Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 17. JULÍ 1996 13 Stjórnmálamenn í sviðsljósinu í flestum löndum heyrist talað um þverrandi traust fólks til stjórnmála- manna. Inn í það vefast alls kyns hneykslisögur og þegar upp komst að sænskir skattpen- ingar runnu til næturklúbba suður í Evrópu ákváðu tveir stærstu stj órnmálaflokkar Svíþjóðar að setja siðareglur fyrir sína menn. Líklega er þó siðferði stjómmálamanna ekki verra en áður en ýmsir þættir valda því að nú er meira um það talað. Samfélagið hefur einnig breyst og þar með ýmsar leikreglur stjórnmálanna. „Þar sem æ fleirí taka þátt í stjórnmálum hefur sérstaða stjórnmálamanna minnkað og gömul sérréttindi horfið. Ætlast er til að þeir fylgi lögum og al- mennum siðareglum í sínu þjóðfé- lagi og séu þar til fyrírmyndar. “ Kjallarmn Dr. Bjarki Jóhannesson skipulagsfræðingur, starfar í Svíþjóð „Ekki er lengur nóg að spyrja að nafni og stöðu heldur einnig hver þú ert bak við tjöldin," segir Bjarki m.a. í grein sinni. Forsenda lýðræðis Annars vegar snýr umræðan að framkvæmd stjórnmálanna en þar hefur aðhald aukist vegna aukinn- ar þátttöku almennings. Hinn al- menni borgari er betur menntaður en áður og hefur betri innsýn í þjóðfélagsmál. Fólk er minna ginn- keypt fyrir slagorðum en lítur til raunverulegs innihalds stjórnmál- anna. Það er forsenda lýðræðis að stjórnað sé samkvæmt vilja fólks- ins og þegar við kjósum erum við að segja hvernig við viljum að samfélaginu sé stjórnað. Fólk vill vita hvað það er að kjósa og þar með að stjórnmálamenn tali skýrt og án þess að villa a sér heimildir. Það gerir þvi auknar kröfur um að stjómmálamenn segi satt og standi við orð sín þannig að kosn- ingaloforð þeirra séu marktæk. Fólk lítur þó einnig á raunverulegan árang- ur, sem gerir málið flóknara. Machiavelli, einn frægasti stjórn- málafræðingur sögunn- ar, sagði að sfjórnendur væru dæmdir af raun- verulegum árangri en ekki fyrirætlunum. Nú- tíma samfélag er hins vegar flókið og völd stjórnmálamanna fara minnkandi í heimi hagsmuna- hópa og alþjóða- samskipta. Þeir koma oft minnu til leiðar en þeir ætla og em oft dæmdir vegna mála sem þeir hafa enga mögu- leika á að stjóma. Hins vegar snýr umræðan að per- sónu stjórnmála- mannanna og þar hafa kröfurnar einnig breyst. Ekki er lengur nóg að spyrja að nafni og stöðu heldur einnig hver þú ert bak við tjöldin. Meira er skyggnst inn í einkalíf fólks og ekki síst stjórnmálamanna sem eru mikið í sviðsljósinu. Aukinn fréttatlutningur gerir að verkum að fólk getur betur fylgst með þeim en áður fyrr. Og ekki lætur slúðurpressan sitt eftir liggja. Sérstaöan minnkar Þar sem æ fleiri taka þátt í stjórnmálum hefur sérstaða stjórnmálamanna minnkað og gömul sérréttindi horfið. Ætlast er til að þeir fylgi lögum og almenn- um siðareglum í sínu þjóðfélagi og séu þar til fyrirmyndar. Siðaregl- umar eru svo breytilegar eftir löndum. Fjármálin verða t.d. að vera í lagi á Norðurlöndunum og fjölskyldumálin í Bretlandi og Bandaríkjunum. Það veldur vax- andi gagnrýni ef stjómmálamenn nota aðstöðu sína í eiginhags- munaskyni. Mona Sahil, sem verða átti forsætisráðherra Sví- þjóðar, féll t.d. á þvi að nota greiðslukort ríkisins til einka- neyslu. Kjósendur hennar, sænskt verkafólk, höfðu enga möguleika á slíku. Á Vesturlöndum tíðkast full- trúalýðræði (representative demacracy) þar sem hinn almenni borgari veitir kjörnum fulltrúum umboð til ákvarðanatöku. Þeir eru að vissu leyti sjálfs sín herrar en bera þó ábyrgð gagnvart kjósend- um. Þar sem miðstýring ríkir innan flokka, eins og í Svíþjóð, er eflaust þörf á skráöum siðareglum. Þar sem prófkjör tíðkast, eins og á ís- landi, eru kjósendur hins vegar ekki bundnir af uppstilltum flokkslistum en geta valið þá sem best standa sig. Það ætti að veita stjórnmálamönnum það aðhald sem nauðsynlegt er í lýðræðisþjóð- félagi. Bjarki Jóhannesson Misskilningur OECD hefur komist að því að við notum meiri tíma til að afla sambærilegra tekna en nágranna- þjóðirnar. Og skuldinni er skellt á framleiðni í atvinnustarfsemi. Sem sé að einstaklingarnir vinni illa og minna en gerist í nágranna- löndum. Þetta er í öllum aðalatrið- um rangt. Slök framleiðni er fyrst og fremst sök verkstjórnarinnar, verkstjórnar almennt í landinu. Þar er aðcdatriði að við rekum svo til jafn fjölbreytt samfélag og ná- grannarnir. Einungis það er ávís- un á minni framleiðni. Stórfelld eignaupptaka Ef afurðasölulögin frá 1936 hefðu ekki komið þá væri land- búnaður að mestu leyti á Suður- og Vesturlandi og við Eyjafjörð. Ef byggðastefna heföi ekki verið rek- in þá lifðu hinar dreifðu byggðir af aðlægum náttúruauðæfum en iðnaður og þjónusta væri hér á Reykjaneshorninu. Þetta þýðir minn framleiðni. Kvótakerfið þýðir minni fram- leiðni sakir þess að veiðiheimild- ir lúta ekki frjálsum mark- aðslögmálum, heldur er fjárfest upp í þol kvót- ans til að bera íjárfestinguna. Það leiddi af byggðastefnu að þéttbýlismynd- unin varð minni en ella á Reykja- neshominu og kraftafiskiri allt árið í stað vertíð- arafla þýðir um 100.000 tonnum minni þorskafla á ári. Bara lítiö atriði eins og það að móðgast við franska verktakann sem bauð í Búrfellsvirkjun fyrir að ætla að setja upp myllu fyrir al- vömsement í Hafnarfiröi vegna þess að íslenska sementið væri óhæft leiddi til þess að vond steypa var notuð i mikinn hluta bygginga okkar. Sprunguviðgerðir „Vegna byggðastefnu, fyrir fólk sem flytur burt vegna þess að því leiðist, eins og fólk segir sjálft á Vestfjörðum, þá er flutningskostn- aður innanlands framleiðnidrep- andi.“ um framleiðni leiða ekki af sér fram- leiðni. Vegna byggða- stefnu, fyrir fólk sem flytur burt vegna þess að því leiðist, eins og fólk segir sjálft á Vest- fjörðum, þá er flutn- ingskostnaður innan- lands frameiðnidrep- andi. Fjárfestingar án arðsemi í virkjunum eða í tveggja milljarða glerhúsi, sem leigist tæplega fyrir við- haldskostnaði, styrkja ekki framleiðni. Stór- felld eignaupptaka í gegnum verðbætur, þar sem fjöldi fyrir- tækja fór á hausinn, var ekki fallin til framleiðniaukningar. Séríslensk atriöi Við erum háð miklum náttúru- legum sveiflum og verk gefa sig misjafnt eftir aðstæðum. Það er afli, veður til framkvæmda, árs- tíðabundin verk, í raun of stórir lagerar á öllum sviðum vegna þess hve markaðurinn' er fjölbreyttur en þó lítill. Þessi atriði minnka framleiðni. Sjötíu hafnir, margir flugvellir, árstíðabundin notkun skipa og atvinnu- tækja - leiðir af sér miklar biðstöður sem oft eru fylltar með dútli. Hjá þessu verð- ur ekki komist því sérhæft fólk þarf að fá regluleg laun þótt stundum sé minna að gera. Ég kemst því að þeirri niðurstöðu að miðað við nágranna- löndin sé framleiðni hér með ágætum þeg- ar tekið er mið af að- stæðum. Því er ástæðulaust að miða við þau ef við viljum bæta okkur heldur bætum við okkur miðað við okkar stöðu nú. Átak i þá veru er að minnsta leyti eitthvert samningsatriði að- ila vinnumarkaðar heldur að rekja alla virka þætti og samræma gerðir til að hindra framleiðni- minnkandi starfsemi. Það er gert með því að láta fara fram sérstakt framleiðnimat við nýjar fyrirætl- anir og skoða eldri starfsemi á sama hátt. Þorsteinn Hákonarson Kjallarinn Þorsteinn Hákonarson framkvæmdastjóri Með og á móti Unnur Halldórsdótt- ir, formaður Lands- samtakanna Heim- ilí og skóli. Einsetning skóla Börn eiga skil- ið það besta „Sveitarfé- lögum ber að sjá fyrir hús- næði svo halda megi uppi lög- boðnu skóla- starfi. Ávinn- ingur við ein- setinn skóla er ótvíræður fyrir alla. Nokkur dæmi: Það skapar festu að börn og foreldrar fari á svipuðum tíma i vinnu og skóla. Systkin eru á sama tíma í skólanum og meiri reglusemi kemst á svefntíma barna ef hringl með síðdegis- og árdegis- bekki hverfur. Svigrúm skapast fyrir fjöl- breyttara og skemmtilegra skóla- starf. Hver bekkur hefur sína kennslustofu þar sem kennari og nemendur hafa gögn sín á vísum stað. Kennslustundum fjölgar, vngstu börnin verða 30 kennslu- stundir á viku í skólanum og þau eldri 35-37 árið 2001. Því verður ekki komið við í tvísetnum skóla nema síðdegisbekkir verði fram á kvöld. Samstarf kennara innbyrðis og við sérfræðinga eykst og styrkist í einsetnum skóla þegar hægt er að skipuleggja samstarfið á vinnutíma allra kennara. Þetta ætti að efla námskrárgerð og um- bætur í skólastarfi. Skólabyggingar þurfa ekki að vera dýrar. Með lausum skóla- stofum og endurskipulagningu mætti ná einsetnum skóla. Fjar- kennsla, tölvunotkun, internet, hraðnámstækni o.þ.h. gefur ýmsa möguleika svo og sveigjanlegt skipulag þar sem unnið er með blandaða aldurshópa. Góður skóli kostar sitt en best væri ef meiri peningar fengjust í innra starfið í stað þess að setja allt í umgjörð- ina.“ Einsetning ekki lausn allra mála „Margir halda að lykill- inn að góðum skóla og skóla- starfi sé^ ein- setning. Eg tel það ekki skipta höfuðmáli hvort skólinn er einsetinn eða ekki, aðrir þættir skipta mun meira máli. Það er rangt að binda það í lögum að sveitarfé- lög verði að einsetja skólana. Sveitarfélögin verða að velja hvemig þau standa aö uppbygg- ingu skólamála. Ég tel að hægt sé að byggja upp eins gott og jafnvel betra skólastarf án einsetningar. Með henni koma heilu bygging- arnar til með að standa auðar eft- ir klukkan 14 á daginn og þrjá mánuði ársins. Vera má að það sé hugsun einhverra að nemendur eigi að geta lokið öllu námi i skól- anum, heimanám verði úr sög- unni. Þá erum við að tala um mikla aukningu á kostnaði til viðbótar byggingarkostnaði sem ekki er víst að allir sveitarstjórnarmenn hafi hugleitt. Þá þyrfti að ráða mun fleiri kennara, krafa kæmi um mötuneyti í skólanum með öllum þeim kostnaði sem því til- heyrði. Fyrir mörg sveitarfélög kostar milljónatugi og hundruð milljóna að uppfylla lagaákvæði um einsetningu. Ég tel að fjár- mununum væri betur varið til að efla verk- og listmenntakennslu í skólunum og búa betur að þeim. Einsetning skóla er ekki lausn allra mála. Að sjálfsögðu munu sveitarfélög uppfylla lagaákvæði um einsetningu. Hætta er á því að erfitt verði að útbúa skólann nauðsynlegum búnaði til nútíma- kennslu. Hvað er þá unnið með einsetningu? Samfelldur skóla- dagur nemenda er það sem skipt- ir mestu og að umhverfi og kennslugögn séu í góðu lagi ásamt því að til starfa fáist góðir og hæfir kennarar." -gdt oiguiuui juiibbun, sveitarstjóri Geröa- hrepps.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.