Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Qupperneq 15
14
íþróttir
ÍA-Sileks í Evrópukeppninni kvöld:
Möguleikar ÍA eru meiri
- segir þjálfari Sileks
DV, Akranesi:
íslandsmeistarar Skagamanna
mæta í kvöld liði Sileks frá
Makedóníu í forkeppni Evrópu-
keppni meistaraliða í knattspymu.
Leikurinn fer fram uppi á Akra-
nesi og hefst klukkan 20.
í samtali, sem DV átti við þjálf-
ara Sileks, kom fram að liðið mun
leika án nokkurra lykilmanna í
kvöld. Þrír fastamenn em meiddir
og einn í leikbanni.
„Ég lít svo á að Akranes hafi for-
skot að því leyti að liðið leikur á
heimavelli og veðrið hér er mjög
frábrugðið því sem er heima þessa
dagana. Við munum koma í þenn-
an leik til að verjast og auðvitað
ætlum við að reyna að skora mark
því mark á útivelli í Evrópukeppni
er mjög dýrmætt. Við vitum að lið
Akraness er sterkt og hefur. verið
mjög sigursælt á íslandi. Því mið-
ur get ég ekki teflt fram mínu
sterkasta liði en þeir leikmenn
Þing Alþjóða handknattleikssambandsins:
Kjartan formaður
dómaranefndar
sem munu spila koma til með að
leggja sig alla fram. Ef ég lít raun-
sætt á málið tel ég möguleika Ak-
umesinga meiri en okkar eða
70:30,” sagði Zoran Smilewski, að-
alþjálfari Sileks, í samtali við DV.
-DÓ
Þjálfari Sileks á von á mjög
erfiðum ieika gegn ÍA í kvöld.
Knattspyma:
Leikur ÍA og Sileks
í beinni á Sýn
Sjónvarpsstöðin Sýn verður
með beina útsendingu írá síðari
hálfleik í leik Akumesinga og Si-
leks í forkeppni Evrópukeppninn-
ar I knattspymu en leikurinn fer
fram á Akranesi í kvöld. Útsend-
ingin hefst laust fyrir klukkan 21.
Furiong frá Chelsea
Paul Furlong gekk í gær til liðs
við enska 1. deildar liðið Birming-
ham og var kaupverðið 150 millj-
ónir króna. Furlong lék með Chel-
sea en með tilkomu Gianluca Vi-
alli er ekki pláss fýrir hann í hð-
inu.
Costa til Arsenal?
Forráðamenn Arsenal era að
undirbúa 9 milljón punda tilboð í
portúgalska landsliðsmanninn
Rui Costa hjá Fiorentina.
Keegan og Ginola
Kevin Keegan, framkvæmda-
stjóri Newcastle, mun i dag ræða
við Frakkann David Ginola um
framtíð hans hjá félaginu. Keegan
er óánægður með að Ginola hafi
rætt við forráðamenn Barcelona
og vill nú fá hjá honum tryggingu
fyrir því að hann verði um kyrrt
á St. James Park. Fleiri félög en
Barcelona hafa borið víjumar í
Frakkann snjalla en Chelsea,
Marseille og Atletico Madrid hafa
öll spurst fyrir um kappann.
Tour de France:
Riis jók forskotið
Daninn Bjame Riis jók í gær
forystu sína í Tour de France hjól-
reiðakeppninni þegar hann kom
fyrstur í mark í 16. sérleiðinni í
keppninni. Frakkinn Richard
Virenque varð annar og Sviss-
lendingurinn Laurent Dufaux
þriðji. Riis hefur nú rúma tvær og
hálfa mínútu í forskot á Spánverj-
ann Abraham Olano og Tony
Rominger frá Sviss er í þriðja sæti
tæpum þremur mtnútum á eftir
Riis.
Spánverjinn Miguel Indurain,
sem sigrað heftir í þessari erfiðu
keppni fjögur síðustu árin, varð
tólfti í gær og er í 10. sæti í
keppninni, rúmar 7 mínútur á eft-
ir Riis.
-GH
Síöasti möguleiki
hjá Pétri og Sigurði
Ólympíuneöid íslands ákvað á
fundi sínum í gær að gefa Pétri
Guðmundssyni, kúluvarpara og
Sigurði Einarssjmi, spjótkastara
eitt tækifæri til viðbótar til að
reyna við ólympíulágmörkin en
áður hafði frestur til að ná
lágmörkum runnið út á miðnætti
15. júlí.
Þeir Pétur og Sigurður taka
þátt á móti í Atlanta og til að öðl-
ast keppnisrétt verður Sigurður
að kasta spjótinu yfir 77,90 metra
og Pétur að varpa kúlunni yfir
19,30 metra. Takist það ekki er
ljóst að þeir verða ekki á meðal
keppenda.
-GH
10 keppendur á
Evrópumót öldunga
10 íslenskii' fijálsíþróttamenn
era á leið til Malmö þar sem þeir
munu keppa á Evrópumeistara-
móti öldunga. Þeir sem keppa era:
Kristján Gissurarson, Guðmund-
ur Hallgrímsson, Ámi Hreiðars-
dóttir, Anna Jeeves, Jón H. Magn-
ússon, Þórður B. Sigurðsson,
Trausti Sveinbjömsson, Hafsteinn
Sveinsson, Ólafur Þórðarson og
Ólafur Unnsteinsson sem jafn-
framt er fararstjóri hópsins.
Mótið hefst á morgun og stend-
ur til 27. júlí. -GH
Kjartan Steinbach var í gær kos-
inn formaður dómaranefndar Al-
þjóða handknattleikssambandsins á
þingi sambandsins sem stendur
þessa dagana í Atlanta í Bandarikj-
unum.
Auk Kjartans voru tveir aðrir í
kjöri, Norðmaður og ítali. Hreinan
meirihluta atkvæða þarf að fá til að
hljóta kosningu. Eftir fyrstu umferð
fékk Kjartan flest atkvæðin eða 36
talsins og ítalinn kom næstur með
27. Þar sem Kjartan fékk ekki
meirihluta atkvæða var gengið til
Islenska landsliðið í knattspymu
mætir Tékkum í vináttulandsleik í
knattspyrnu í Tékklandi 4. septem-
ber næstkomandi. Tékkar, sem töp-
uðu fyrir Þjóðverjum í úrslitaleik á
Evrópumótinu á dögunum, stað-
festu þetta við KSÍ. Einnig var
ákveðið að Tékkar kæmu hingað til
lands á næsta ári en ekki hefur ver-
ið frágengið hvenær leikurinn fer
fram, að sögn Snorra Finnlaugsson-
ar, framkvæmdastjóra KSÍ.
Beöiö svara frá Þjóöverjum
kosninga aftur á milli hans og ítal-
ans og aftur hafði Kjartan betur, 43
gegn 34.
Með þessari kosningu öðlast
Kjartan sjálfkrafa sæti í stjóm Al-
þjóða handknattleikssambandsins
og er hann fyrsti íslendingurinn
sem hlýtur þennan heiður.
Þetta er mikill heiður fyrir Kjart-
an og ekki síst íslenskan handknatt-
leik. Kjartan hefur um langt árabil
starfað sem eftirlitsmaður og hefur
fengið mörg störf á alþjóðlegum
vettvangi. -GH
meisturum Þjóðverja en stefnt er að
því að þeir mæti með landslið sitt
til íslands á 50 ára afmæli Knatt-
spyrnusambands íslands.
Góöur undirbúningur fyrir
HM leikina
Leikurinn við Tékka veröur góð-
ur undirbúningur fyrir þrjá HM
leiki sem íslendingar leika í haust.
5. október verður leikið ytra gegn
Litháum, gegn Rúmenum heima 9.
október og gegn íram í Dublin 10.
nóvember.
Valur (0) 0
KR (1) 2
0-1 Ríkharður Daðason (5.) skor-
aði með þrumuskoti eftir gott þrí-
hymingsspil við Guðmund Bene-
diktsson.
0-2 Guðmundur Benediktsson
(77.) skoraði með viðstöðulausu skoti
eftir laglega fyrirgjöf Ásmundar Har-
aldssonar.
Lið Vals: Lárus Sigiurðsson -
Bjarki Stefánsson (Sigurbjörn Hreið-
arsson 61.), Jón Grétar Jónsson,
Gunnar Einarsson, Kristján Halldórs-
son - tvar Ingimarsson (Sigurður
Grétarsson 76.), Nebojsa Corovic,
Heimir Porca, Jón S. Helgason - Am-
ljótur Daviösson, Sigþór Júlíusson.
Lið KR: Kristján Finnbogason -
Siguröur Öm Jónsson, Þormóður Eg-
ilsson, Þorsteinn Guðjónsson, Ólafiir
H. Kristjánsson (Bjami Þorsteinsson
41.) - Hilmar Bjömsson, Heimir Guð
jónsson, Brynjar Gunnarsson, Einar
Þór Daníelsson - Ríkharður Daðason
(Ásmundur Haraldsson 76.), Guð-
mundur Benediktsson (Óskar Hrafn
Þorvaldsson 80.)
Markskot: Valur 5, KR 8.
Hom: Valur 8, KR 10.
Gul spjöld: Einar Þór (KR).
Rauð spjöld: Jón Grétar Jónsson
(Val).
Dómari: Guðmundur Stefán Marí-
asson, dæmdi sæmilega.
Áhorfendur: Rúmlega 1883.
Óskarafstað
Óskar Hrafn Þorvaldsson, sem
hefur verið frá í nokkrar vikur
vegna meiðsla í hné, kom inn á
undir lok leiksins í liði KR.
Ólafur H. Kristjánsson er
kominn á sjúkralistann hjá KR
en hann meiddist á læri undir
lok fyrri hálfleiksins.
Sex úr 1. deildinni
dæmdir í bann
Sex leikmenn úr 1. deildinni í
knattspymu vora úrskurðaðir í
leikbann á fundi aganefndar KSÍ í
gær. Skagamennimir Mihaljo
Bibercic og Ólafur Adolfsson
missa af stórleik KR og ÍA á
sunnudaginn en þeir vora úr-
skurðaðir í eins leiks bann vegna
fjögurra gulra spjalda. Þá vora
Kekic Sinisa úr Grindavík, Bald-
ur Bjamason, Stjömunni, Karl
Finnbogason, Keflavík, og Gunnar
Einarsson úr Val sömuleiðis úr-
skurðaðir í eins leiks bann vegna
íjögurra áminninga.
Úr 2. deild voru ÍR-ingamir
Kristján Brooks og Ásbjöm Jóns-
son úrskurðaðir í tveggja leikja
bann vegna brottvísunar og sömu-
leiðis Axel Ingvarsson úr Leikni.
Sævar Guðjónsson, Fram, Yngvi
Borgþórsson, Víkingi og Ágúst
Hauksson, þjálfari og leikmaður
Þróttar, vora úrskurðaðir í eins
leiks bann.
Norðuriandamót
í golfi i Leirunni
DV, Suðumesjum:
„Það er allir keppendur mættir
tfl landsins og fyrsta æfingin hjá
þeim var í gær. Keppendur vora
mjög ánægðir með aðstöðuna og
völlinn,” sagði Elías Kristjánsson,
mótstjóri Norðurlandamóts ungl-
inga, sem hefst á Hólmsvelli í
Leiru á morgun.
Keppendur era alls 50 talsins og
koma þeir frá íslandi, Danmörku,
Svíþjóð, Noregi og Finnlandi.
Danir era núverandi meistarar
hjá drengjunum en sænsku stúlk-
umar urðu hlutskarpastar á síð-
asta móti.
„Okkar keppendur eru í góðu
formi cg það verður gaman að
fylgjast með þeim. Það eina sem
ég vona er að gott veður verði
þegar keppnin hefst,” sagði Elías.
-ÆMK
Birgir efstur
Bh'gir Leifur Hafþórsson, GL,
er með flest stig í karlaflokki eftir
stigamótin fjögur hjá GSÍ. Birgir
er með 192 stig. Sigurpáll G.
Sveinsson, GA, og Kristinn G.
Bjamason, GL, era með 188 stig.
Hjá konunum er Ólöf M. Jónsdótt-
ir, GK, efst með 165 stig, Herborg
Amarsdóttir, GR, er með 155 stig
og Þórdís Geirsdóttir, GK, 153 stig.
-GH
KSÍ bíður enn svara frá Evrópu- -GH
Islenska landsliöiö í knattspyrnu:
Mætir Tékkum
ytra i haust
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996
MIÐVIKUDAGUR 17. JULI 1996
35
Iþróttir
KR óstóðvandi
- bikarmeistararnir komnir í undanúrslit Mjólkurbikarkeppninnar eftir 0-2 sigur á Val
„Ég er ánægöur með sigurinn og á
köflum var spilið fallegt að sjá. Vals-
menn vora erfiðir og þeir voru meira
í baráttunni en við hugsuðum meira
um að spila. Baráttan var samt góð í
liðinu og ég er ánægður með að við
fengum ekki á okkur mark, ég held að
þetta hafi verið sanngjarn sigur,“
sagði Lúkas Kostic, þjálfari KR, eftir
að lið hans tryggði sér sæti í undanúr-
slitum bikarkeppninnar með 0-2 sigri
á Valsmönnum.
Mark eftir fimm mínútur
Það tók KR-inga ekki nema fimm
mínútur að skora fyrsta mark leiksins
og kom það eftir fallegt þríhyrninga-
spil Guðmundar Benediktssonar og
Ríkharðs Daðasonar en sá síðarnefndi
kláraði sóknina með góðu skoti. Þetta
mark hleypti um leið miklu fiöri í
leikinn og stuttu eftir það átti Einar
Þór Daníelsson glæsilegt skot frá
vinstri sem sleikti markstöng Vals.
KR-ingar voru þó alls ekki hættir og
fékk Ríkharður Daðason dauðafæri
eftir glæsilega sendingu frá Einari Þór
en besti maður vallarins, Lárus Sig-
urðsson, markvörður Vals, varði
glæsilega.
Jón Grétar fékk rautt
Valsmenn urðu síðan fyrir miklu
áfalli á 23. mínútu leiksins þegar Jóni
Grétari Jónssyni var vikið af leikvelli
eftir að hafa brotið á Guðmundi Bene-
diktssyni sem var að komast einn inn
fyrir. Jón hafði fengið sitt fyrra gula
spjald þrettán mínútum áður. En það
sást ekki á spili Valsmanna að þeir
væru einum færri það sem eftir lifði
leiks því þeir börðust gríðarlega vel,
spiluðu mjög vel á köflum og áttu
nokkur færi sem þeir náðu ekki að
klára.
I seinni hálfleik komu heimamenn
mjög ákveðnir til leiks og sást í raun
enginn munur á þessum liðum sem
sýndu mjög oft skemmtilega knatt-
spymu. Það voru samt Vesturbæing-
arnir sem fengu hættulegri færi og
varamaðurinn Bjami Þorsteinsson,
sem kom mjög sterkur inn á í KR-
vörnina átti gott hlaup upp allan völl-
inn en tókst ekki að nýta það sem
skyldi. Einnig áttu Guðmundur og
Einar Þór mjög góð færi en Lárus
varði allt sem á markið kom.
Þegar fór að líða á hálfleikinn
pressuðu KR-ingar stíft og í einni
sókn þeirra fengu þeir þrjár horn-
spymur en Lárus, sem varði þar tvö
skot frá Þormóði Egilssyni og eitt frá
Heimi Guðjónssyni, sýndi sannkallaða
glæsimarkvörslu. Eitthvað hlaut samt
að láta undan og á 77. mínútu skoraði
Guðmundur Benediktsson eftir góða
fyrirgjöf frá Ásmundi Haraldssyni
sem var nýkominn inn á og tryggði
þar með KR sigurinn.
Ég var ánægöur með mína
menn
„Við vorum að fá okkar sénsa en
því miður nýttum við þá ekki og leik-
urinn var jafn, við spiluðum mjög vel
og ég var ánægður með mína menn,
það vantaði bara markiö," sagði Sig-
urður Grétarsson, þjálfari Vals, eftir
leikinn.
Hjá Val var vömin geysisterk og
ásamt Lárasi í markinu átti Gunnar
Einarsson gríðarlega góðan leik í vörn
Vals og fór oft illa með sóknarmenn
KR. Hjá KR átti Einar Þór góðan leik
ásamt Brynjari Gunnarssyni, sem
barðist vel á miðjunni, og Bjama Þor-
steinssyni sem var sterkur í vörninni.
KR-ingar stefna því ótrauðir i átt að
þriðja bikarmeistaratitli sínum í röð
en með þeim í undanúrslit eru komnir
Skagamenn og Eyjamenn. Á morgun
kemur svo í ljós hvert fiórða liðið
verður en þá mætast Akureyrarliðin
KA og Þór.
KR-ingurinn snjalli, Einar Þór Daníelsson, sýnir hér lagleg tilþrif á Hlíöarenda í gær. Engu er líkara en Lárus Sigurðsson, markvörður Vals, biðji sér vægðar og félegar
hans í Valsvörninni, þeir Bjarki Stefánsson og Gunnar Einarsson, eru við öllu búnir. DV-mynd ÞÖK
Þórir til Fylkis?
- Marteinn Geirsson gaf ekki kost á sér í starfiö
Samkvæmt öraggum heim-
ildum DV er líklegt að Þórir
Sigfússon verði næsti þjálfari
1. deildar liðs Fylkis í knatt-
spyrnu í stað Magnúsar Páls-
sonar sem í fyrradag var sagt
upp störfum hjá Árbæjarlið-
inu.
Þórir steig sín fyrstu skref
sem þjálfari í 1. deildinni í
fyrra en hann tók þá við liði
Keflvíkinga snemma sumars
eftir að Inga Bimi Alberts-
syni var sagt upp.
Nöfn Inga Bjöms og Harðar
Hilmarssonar hafa einnig ver-
ið nefnd í sambandi við þjálf-
araráðninguna hjá Fylki en
samkvæmt heimildum DV er
Þórir líklegastur.
Eins og DV greindi frá í
gær var Marteinn Geirsson
efstur á óskalista Fylkis-
manna og hittu forráðamenn
Árbæjarliðisins hann á fundi
í gær.
„Mig dauölangaöi”
„Eftir langa umhugsun gaf
ég þetta frá mér. Ég sá fram á
það að ég gæti ekki sinnt
þessu 100% vinnu minnar
vegna. Mig dauðlangaði að
taka þetta verkefni að mér en
þar sem ég hefði ekki getað
sinnt því sem skyldi fannst
mér ekki rétt að taka það að
mér,” sagöi Marteinn í sam-
tali við DV í gærkvöldi.
Fyrsti leikur Fylkis undir
stjórn nýs þjálfara er gegn
Valsmönnum á sunnudags-
kvöldið.
-GH
Logi Jes Kristjánsson:
„ Logi í
góðum
málum“
Logi Jes Kristjánsson tekur nú
þátt i sinu fyrsta alþjóðlega stór-
móti í sundi. Logi náði lágmarki
til þátttöku á Ólympíuleikunum í
Atlanta með því að synda 100 m
baksund á 57,64 sekúndum á
sterKú alþjóðlegu sundmóti í
Mónakó í maí síðastliðnum. Hann
Var 8/100 undir ólympíulágmark-
inu og bætti sinn fyrri árangur um
hvorki meira né minna en 1,27
sekúndu.
Logi hefur æft sund í 13 ár,
fyrstu tíu árin æfði hann í Vest-
mannaeyjum undir handleiðslu
Magnúsar Tryggvasonar sem ræð-
ir um Loga að þessu sinni.
„Eftir að hafa farið i æfingabúð-
ir til Ungverjalands í janúar og
febrúar 1992 má segja að Logi hafi
gert sér grein fyrir því hvað þyrfti
að leggja á sig til þess að verða
sundmaður á alþjóðamælikvarða.
Meðal æfingafélaga Loga voru
Kristina Egerzegi, margfaldur Evr-
ópu-, heims- og ólympíumeistari í
baksundi, og Karoly Guttler,
heimsmethafinn í 100 m bringu-
sundi,“ sagði Magnús.
Hefur æft markvisst í þrjú
ár
„Eftir Ungverjalandsdvölina
varð Loga ljóst að hann yrði að
hleypa heimdragánum til að geta
æft eins og hann vildi. Haustið
1993 hélt hann til Arizona í Banda-
ríkjunum og hefur æft markvisst
undanfarin þrjú ár með það í huga
að keppa á ólympíuleikunum."
Logi hefur stundað nám í graf-
ískri hönnun við Arizona State
University sem er einn stærsti há-
skóli Bandaríkjanna með um
45.000 nemendur. Logi hefur æft og
keppt með sundliði skólans sem er
14. sterkasta háskólalið landsins. I
keppnum með skólaliðinu hefur
Logi verið að kljást við marga
bestu baksundsmenn heims og
með því öðlast ómetanlega keppn-
isreynslu. Þjálfari Loga er heims-
þekktur þjálfari og sundvísinda-
maður að nafni Ernie Maglischo
sem samdi svokallaða „sundbibl-
íu“ níunda áratugarins, „Swimm-
ing Faster".
Það er því ljóst að Logi æfir við
bestu aðstæður og er í mjög góðum
höndum enda hafa framfarir hans
á þessu tímabili verið miklar.
„Þar sem aðalgrein Loga er
baksund þá er óhætt að segja að
hann hafi staðið í skugga Eðvarðs
Þórs Eðvarssonar framan af ferli
sínum. Frá því 1993 hefur hann
verið að mjaka sér úr skugga Eð-
varðs og hefur sigrað tvöfalt í
baksundi á Smáþjóðaleikunum,
bæði 1993 og 1995.
Logi út úr skugganum
Á íslandsmótinu í vor kom Logi
út úr skugganum og bætti íslands-
met Eðvars í 100 m og 200 m
baksundunum í 25 m laug. I 50 m
laug á Logi 57,64 sekúndur og mun
hann eflaust stefna að því að bæta
þann tíma og reyna við íslandsmet
Eðvars Þórs sem er 57,15 sekúnd-
ur. Ef allt gengur 100% upp er það
raunhæft markmið. Hversu langt
það dugar Loga í geysiharðri
keppni ólympíuleikanna verður að
koma í ljós en líklegt er að synda
verði undir 57 sekúndum til að
komast í B-úrslit. Spumingin er
hvort Loga tekst að ná upp nægi-
legri einbeitingu til að synda á sín-
um besta tíma i undanrásum. Ef
einbeitingin er til staðar þá verður
Logi í góðum málum," sagði Magn-
ús rétt áður en hann hélt til Atl-
anta.
-JGG