Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Page 22
42
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996
Afmæli
Ragnar Guðmundsson
Ragnar Guðmundsson, fyrrv.
bóndi í Grænumýrartungu, til
heimilis að Bogahlíð 10, Reykjavík,
er áttatíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Ragnar fæddist að Háreksstöðum
í Norðurárdal en flutti þaðan
tveggja ára með foreldrum sínum að
Gilhaga í Hrútafirði þar sem hann
ólst upp til fermingaraldurs. Á ungl-
ingsárunum vann hann á ýmsum
stöðum öll algeng sveitastörf og var
auk þess á vertíð á vetrum, m.a. í
Höfnum og Keflavík og þrjár vertið-
ir í Viðey hjá Kárafélaginu.
Ragnar lauk búfræðiprófi frá Hól-
um í Hjaltadal 1937. Hann byrjaði
búskap í Grænumýrartungu í
Hrútafirði 1937 og bjó þar til 1966 er
hann brá búi og flutti til Reykjavík-
ur. Þar geröist hann starfsmaður
Reykjavíkurborgar og starfaði þar
til 1975, vann síðan hjá Afurðasölu
SÍS til 1984 og stundaði svo hús-
vörslu í verslunarhúsinu Suðurveri
við Stigahlíð.
Fjölskylda
Ragnar kvæntist 25.12.
1937 Sigríði Gunnarsdótt-
ur í Grænumýrartungu,
f. 21.8. 1916, húsfreyju.
Foreldrar hennar voru
Gunnar Þórðarson og
Ihgveldur Bjömsdóttir
frá Grænumýrartungu.
Böm Ragnars og Sig-
ríðar eru Þórunn Nanna,
f. 13.4. 1940, húsfreyja,
gift Jóhanni Hólmgrims-
syni, bónda í Vogi við
Raufarhöfn og eiga þau son.
fimm börn; Gunnar Ingi,
f. 1942, d. s.á.; Ingunn, f.
27.4. 1944, bókari hjá Heilsugæsl-
unni í Reykjavík, gift Má Óskari
Óskarssyni verktaka en þau eiga
þrjú böm; Gunnar, f. 4.11. 1949,
dreifingarstjóri Mjólkursamlagsins
á Patreksfirði, kvæntur Ásthildi Ág-
ústsdóttur bókara en þau búa á Pat-
reksfirði og eiga þrjú börn; Heiðar,
f. 31.1. 1956, vélsmiður hjá Reykja-
víkurborg, kvæntur Sigrúnu Guð-
jónsdóttur verslunar-
stjóra og eiga þau þrjú
börn.
Barnaböm Ragnars og
Sigríðar era fjórtán og
barnabarnabörnin þrett-
án.
Hálfbróðir Ragnars, sam-
feðra: Jón Stefán, f. 4.7.
1907, nú látinn, bóndi og
smiður frá Brandagili og
Borðeyri.
Alsystkini Ragnars: Sig-
urrós, f. 16.11. 1914, hús-
móðir í Reykjavík; Fann-
ey, f. 28.10. 1916, nú látin,
húsfreyja á Goddastöðum
í Dölum; Þórður, f. 8.1. 1919, skrif-
stofustjóri í Reykjavík; Jóhann
Valdimar, f. 22.4. 1921, vagnstjóri
hjá SVR, búsettur í Reykjavík; Þór-
ir, f. 14.1. 1926, nú látinn, vagnstjóri
hjá SVR, búsettur í Reykjavík;
Gunnar, f. 14.1. 1926, vagnstjóri hjá
SVR, búsettur í Reykjavík; Bergur,
f. 5.1. 1928, bifreiöasmiður í Reykja-
vík; Óskar, f. 4.9.1931, bifreiðasmið-
ur í Reykjavík.
Foreldrar Ragnars: Guðmundur
Þórðarson, f. 22.11.1882, d. 29.3.1962,
smiður og b. í Gilhaga og á Borðeyri
við Hrútaljörð, (bróðir Gunnars
Þórðarsonar í Grænumýrartungu)
og Ragjiheiður Guðbjörg Sigurðar-
dóttir, f. 28.10. 1885, d. 2.11. 1946, frá
Junkaragerði í Höfnun.
Ætt
Guðmundar var sonur Þórðar, b.
í Grænumýrartungu, Sigurðssonar,
b. í Núpsseli í Miðfirði, Sigurðsson-
ar. Móðir Guðmundar var Sigríður
Jónsdóttir, frá Bálkastöðum í
Hrútafirði, Magnússonar.
Ragnheiður Guðbjörg var dóttir
Siguröar Híeronymussonar og Jó-
hönnu Jóhannesdóttur, Bergsteins-
sonar, á Árgilsvöllum í Rangár-
vallasýslu, Sigurðssonar.
Ragnar er að heiman á afmælis-
daginn.
Ragnar Guðmunds-
Rudolf Kristinsson
Rudolf Kristinsson sjómaður,
Fagrahjalla 36, Kópavogi, er sextug-
ur í dag.
Starfsferill
Rudolf fæddist í Vestmannaeyj-
um en flutti fimm ára með móður
sinni og systur til Reykjavíkur þar
sem hann hefur átt heima síðan.
Á unglingsárunum stundaði Ru-
dolf ýmis störf í landi. Hann fór til
sjós 1958 og hefur verið togarasjó-
maður síðan. Rudolf var á Þormóði
goða 1958-64, á Víkingi 1964-72, á
togaranum Vigra 1972-74, á Ögra
1974-85 og hefur verið á togaranum
Frera, sem gerður er út af Ögurvík
hf., frá 1985 eða í ellefu ár.
Fjölskylda
Alsystkin Rudolfs: Lára, f. 1926, d.
1927; Anna Helga, f. 28.8. 1932, d.
23.8.1995, húsmóðir í Reykjavík, var
gift Þór Þorsteinssyni; Jón Guð-
mundur, f. 8.11. 1933, drukknaði
12.2. 1986, skipstjóri í Kópavogi, var
kvæntur Jóhönnu Halldórsdóttur og
eru börn þeirra fjögur en barna-
börnin sex.
Hálfsystkini Rudolfs, sammæðra:
Ragnheiður Þormóðsdótt-
ir, húsmóðir í Reykjavík,
gift Ólafi B. Guðmunds-
syni og eiga þau einn fóst-
urson; Brynjar Þormóðs-
son, f. 10.8. 1944, sjómaður
í Reykjavík, en hann á
eina dóttur og þrjú bama-
böm.
Fósturbróðir Rudolfs er
Ingþór Pétur Þorvaldsson,
f. 6.1. 1960, múrari í
Reykjavík.
Foreldrar Rudolfs voru
Jóhann Kristinn Guðmundsson,
Rudolf Kristinsson.
3.11. 1904, d. 18.2. 1943
(fórst með Þormóði frá
Bíldudal), og Emilía
Benediktsdóttir, f. 19.7.
1908, d. 5.7. 1993, hús-
móðir.
Stjúpfaðir Rudolfs var
Þormóður Jónsson, f.
1.10. 1917, d. 27.12. 1965,
frá Skuld á Blönduósi,
verkamaður í Reykja-
vík.
Rudolf er á sjónum um
þessar mundir.
Jensína Guðrún Oskarsdóttir
Jensína Guðrún Óskars-
dóttir húsmóðir, Dúfnahól-
um 4, ibúð 4 B, Reykjavík,
er áttræð í dag.
Fjölskylda
Jensína Guðrún fæddist
á Hellissandi en ólst upp á
Hellu í Beruvík í Breiða-
víkurhreppi. Hún giftist
1.1. 1944 Eggerti E. Eggerts-
syni, f. 16.2. 1912, d. 18.2.
1986, vélsmið. Foreldrar
hans vora Eggert Einars-
son og Sigríður Þorvarðar-
dóttir sem bjuggu á Hell-
issandi.
Böm Jensínu Guðrúnar og Egg-
erts eru Sigurður Egg-
ert Eggertsson, f. 22.7.
1942, vélsmiður í
Reykjavík, kvæntur El-
ínborgu Gísladóttur og
era dætur þeirra Guð-
rún Jenný, f. 16.7. 1966
og Valborg Harpa, f.
19.12. 1973; Minnie Egg-
ertsdóttir, f. 13.5. 1946,
kennari á Akureyri,
gift Sigmundi Þórissyni
raftækni og em synir
þeirra Freyr Gauti, f.
17.1. 1972, Eggert Högni,
f. 21.2. 1974 og Þórir
Svavar, f. 6.3. 1979.
Systkini Jensínu Guðrúnar; Júlí-
us Fjeldsted, f. 13.4. 1914, d. 30.9.
1992, bóndi og síðast búsettur í
Keflavík; Þórarinn Jens, f. 16.3.
1915, húsasmíðameistari í Reykja-
vík; Guðríður Fjóla, f. 23.12. 1917,
húsmóðir í Hafnarfirði; Gísli Ágúst,
f. 15.8. 1919, d. 1946, sjómaður í
Reykjavík; Björg Jósefina, f. 8.2.
1921, d. 1926; óskírður, f. 1922, d.s.á.;
Kristín Lilja, f. 9.5. 1923, húsmóðir í
Reykjavík; Jóhanna Laufey, f. 14.8.
1924, húsmóðir; Skarphéðinn Þórar-
inn, f. 3.3. 1926, d. 20.5. 1991, verka-
maður í Reykjavík; Sigurbjörg Unn-
ur, f. 9.9. 1927, húsmóðir i Reykja-
vík; Guðmundur Ingólfur, f. 29.3.
1929, húsasmíðameistari í Reykja-
vik; Jósefina Arndis, f. 16.6. 1930,
hárgreiðslukona í Bandaríkjunum;
Kristinn Guðbjartur, f. 31.7. 1931,
verkamaður í Kópavogi; Sigurvin
Reynar, f. 15.3. 1934, afgreiðslumað-
ur í Reykjavík.
Foreldrar Jensínu Guðrúnar
voru Óskar Jósep Gíslason, f. 25.6.
1889, d. 3.12. 1978, b. og sjómaður á
Hellu i Beruvík í Breiðuvíkur-
hreppi á Snæfellsnesi, og k.h.,
Pétrún Sigurbjörg Þórarinsdóttir, f.
6.7. 1891, d. 12.9. 1961, húsmóðir.
Jensína Guðrún tekur á móti
gestum í safnaðarheimili Fella- og
Hólakirkju í dag frá kl. 17.00-20.00.
Jensína Guörún
Óskarsdóttir.
Hólmfríður Pétursdóttir
Hólmfríður Pétursdóttir, Víði-
hlíð, Mývatnssveit, er sjötug í dag.
Starfsferill
Hólmfríður fæddist í Kast-
hvammi í Laxárdal en ólst upp í
Reynihlíð og Reykjahlíð í Mývatns-
sveit. Hún var í farskóla í Mývatns-
sveit, stundaði nám við Héraðsskól-
ann á Laugum, lauk gagnfræðaprófi
frá MA, stundaði nám við Hús-
mæðraskólann á Hverabökkum í
Hveragerði og hefur sótt mikinn
fjölda félagsmála- og hannyrðanám-
skeiða.
Auk þess að vera húsfreyja í Víði-
hlíð hefur Hólmfríður starfað við
Hótel Reynihlíð um árabil.
Hólmfríður var tuttugu og sex ára
er hún gekk í Kvenfélag Mývatns-
sveitar, hefur þrisvar verið formað-
ur þess eða samtals í fimmtán ár,
var formaöur Kvenfélagasambands
Þingeyinga í tólf ár, formaður Skóg-
ræktarfélags Suður-Þingeyinga í átj-
án ár, er félagi í ITC deild Flugu,
hefur verið forseti þar tvisvar og er
formaður Félags eldri Mývetninga.
Fjölskylda
Hólmfríður giftist 18.4. 1949
Sverri Tryggvasyni, f. 15.7. 1920,
bónda og þúsundþjala-
smið. Hann er sonur
Tryggva Guðnasonar og
Sigrúnar Ágústu Þorvalds-
dóttur, bænda í Víðikeri í
Bárðardal.
Börn Hólmfriðar og
Sverris eru Héðinn, f. 20.9.
1949, bóndi og smiður,
kvæntur Huldu Finnlaugs-
dóttur kennara og era
böm þeirra Tryggvi, f.
11.6. 1974, d. 16.5. 1993,
Ema, f. 11.1.1976 en maður
hennar er Hörður Karls-
son og dóttir þeirra Álf-
heiður Kristín, f. 29.1.1996,
Jóhannes Pétur, f. 31.3.
1979, Helgi, f. 13.4. 1988 og
Einar, f. 20.4. 1990; Sigrún Sverris-
dóttir, f. 9.5. 1953, póstafgreiðslu-
maður, gift Friörik Lange Jóhann-
essyni hreppstjóra og eru synir
þeirra Sverrir Lange, f. 1.1. 1975 og
Daði Lange, f. 4.1.1979; Kristín Þur-
íður, f. 6.12. 1959, kennari og er son-
ur hennar Bjartmar
Þorri, f. 5.6.1978; Gísli, f.
18.5. 1961, tæknifræðing-
ur en kona hans er Lilja
Sigríður Jónsdóttir kerf-
isfræðingur og eru börn
þeirra Aldís, f. 18.4.1983,
Eyrún, f. 27.11. 1990 og
Tómas, f. 17.9. 1994.
Systkini Hólmfríðar:
Gísli, f. 19.5.1922, d. 25.4.
1950, í Reynihlíð; Jón
Ármann, f. 24.5. 1924,
bóndi í Reynihlíð; Snæ-
björn, f. 31.8. 1928, garð-
yrkjufræðingur í Reyni-
hlíð; Helga Valborg, f.
26.6. 1936, verslunarm-
aður.
Foreldrar Hólmfríðar vom Pétur
Jónsson, f. 18.4. 1898, d. 17.11. 1972,
bóndi og vegaverkstjóri í Reynihlíð,
og Kristín Þuríður Gísladóttir, f.
31.7. 1895, d. 21.7. 1984, húsfreyja.
Hólmfríður er að heiman.
Hólmfríöur Péturs-
dóttir.
DV
Til hamingju
með afmælið
17. júlí
95 ára
Kjartan J. Einarsson,
Túngötu 64, Eyrarbakka.
85 ára
Freyja Bjamadóttir,
Egilsgötu 17, Borgamesi.
80 ára
Óli Pálmi Halldór
Þorbergsson,
Dunhaga 13, Reykjavík.
Eiginkona hans er
Hildur Kjartansdóttir.
Þau taka á móti gestum á
heimli dóttur sinnar að
Austurströnd 14, Seltjarnar-
nesi, í kvöld, kl. 18.00- 21.00.
Sigríður Gísladóttir,
Einilundi 6b, Akureyri.
Ragnheiðiu-
Sveinbjörnsdóttir,
Hjálmsstöðum II,
Laugardalshreppi.
Ingólfur Helgason,
Kirkjulundi 8, Garðabæ.
Sigurlaug Bjömsdóttir,
Rauðagerði 72, Reykjavík.
Óli A. Guðlaugsson,
Lindasíðu 4, Akureyri.
75 ára
Magnþóra Magnúsdóttir,
Reynimel 90, Reykjavík.
70 ára
Aðalsteinn
Guðlaugs-
son, skrif-
stofustjóri
hjá RLR,
Rauðalæk 50,
Reykjavík.
Hann tekur
á móti gest-
um í Fóstbræðraheimilinu,
Langholtsvegi 109, Reykjavík,
milli kl. 17.00 og 20.00
í kvöld.
Haukur Jónasson,
Eyrargötu 24b, Siglufirði.
Sigríður Hermannsdóttir,
Oddeyrargötu 8, Akureyri.
60 ára
Gunnlaugur Ingvarsson,
Álftamýri 21, Reykjavík.
Ásgeir Höskuldsson,
Austurbergi 2, Reykjavík.
Eysteinn Guðlaugsson,
Úthlið 31, Hafnarfirði.
50 ára
Eysteinn Reynisson,
Einholti 16a, Akureyri.
Sigurjón Þorgrímsson,
Hafnarbraut 54b,
Neskaupstað.
Amór Jón Sveinsson,
Einholti 14e, Akureyri.
Elín Þórjónsdóttir,
Suðurhólum 2, Reykjavík.
Rúnar Olsen,
Mánagötu 13, Reyðarfiröi.
Jón Sigurðsson, •
Hraunbæ 108, Reykjavík.
40 ára
Unnur Björgvinsdóttir,
Sæbergi 13, Breiðdalsvík.
Sigurðm- Þór Bragason,
Mararbraut 23, Húsavík.
Sigurður Egill Grimsson,
Flétturima 35, Reykjavík.
Guðbjörg Skúladóttir,
Bröttukinn 22, Hafnarfirði.
Bjöm Karlsson,
Hjallabraut 41, Hafnarfirði.
Guðjón Grétar Óskarsson,
Laugarásvegi 4a, Reykjavík.