Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Qupperneq 2
20
MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 1996
íþróttir
Fyrsta afríska
kvennagullið
DV, Atlanta:
Gullverðlaun hins 25 ára
gamla lögregluvaröstjóra,
Fatuma Roba frá Addis Ababa, i
marþoni kvenna í gær eru þau
fyrstu sem kvenmaður frá Afr-
íku vinnur í þessari íþrótta-
grein.
Abebe Bikila frá Eþiópíu
vann karlamaraþonið á leikun-
um 1960 og 1964 og Mamo Wolde
1968.
Sundmenn fara
til Rostock
Sundsamband íslands hefur
ákveðið að senda landsliðið til
þátttöku í desember á Evrópu-
mótið sem haldið verður í
Rostock í 25 metra laug.
Þaö er góður undirbúningur
sundmanna fyrir Evrópumótið í
50 metra laug í Sevilla næsta
sumar.
Þjálfar landslið
Lúxemborgar
Þjóðverjinn Klaus Jilrgen
Okh, landsliðsþjálfari í sundi,
lætur að störfum hjá sundsam-
bandinu eftir leikana í Atlanta.
Hann hefur verið ráðmn þjálfari
Lúxemborgar.
Hann segist kveðja ísland
með söknuði en þar hafi hann
átt góðar stundir. Klaus kemur
því með landslið Lúxemborgara
þegar það tekur þátt í
Smáþjóðaleikunum á íslandi
sem haldnir verða í maí á næsta
vori.
Ekvador vann
gull í göngu
Jefferson Perez frá Ekvador
kom fyrstur í mark í 12 km
göngu karla á Ólympíuleikunum
í Atlanta. Þessi 22 ára gamli
göngukappi hafði nokkra yfir-
burði í göngunni.
Ilya Martov frá Rússlandi
varð annar og Bemando Segura
frá Mexikó lenti í þriðja sæti.
Guðrún ekki í
110 m grindina
Guðrún Arnardóttir hefur
skráð sig úr 110 metra grinda-
hlaupinu sem fram á fara í
kvöld. Það var sjálfhætt því í
kvöld keppir Guðrún í undanúr-
slitum 400 metra grindahlaups-
ins.
Hefja markvissan
undirbúning
Sævar Stefánsson, formaður
Sundsamband íslands, er þokka-
lega ánægður með frammistööu
íslensku sundmannanna í Atl-
anta. Hann segir að undirbún-
ingur fyrir leikanna hafa verið
góður síöustu sex mánuðina en
hann þurfi að veröa lengri og
markvissari. Að þessu verður
unnið fyrir næsta stórmót og
ljóst er að meira fjármagn þarf
til að hlutimir gangi betur upp.
-JKS/MT
DV
„Spenntur að byrja“
- segir Jón Arnar Magnússon
DV, Atlanta:
„Ég er orðinn spenntur að hefja keppni í tugþrautinni á miðvikudag.
Ég er sannfærður um að fram undan er spennandi keppni og það verður
gaman að mæta Dan O’Brian. Ég er jákvæður og einbeittur svo manni er
ekkert að vanbúnaði og ég mun leggja allt í sölumar að ná sem bestum
árangri. Árangur Guðrúnar í grindinni kveikir svo sannarlega í manni,“
sagði Jón Amar Magnússon við DV i Atlanta í gær.
„Þetta lítur allt vel út og ökklinn á honum er orðinn góður. Ég sé ekki
annað en að Jón sé klár í slaginn," sagði Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns
Arnars, við DV í gær. -MT
„Inn á með eldmóði“
- segir Vésteinn Hafsteinsson
DV, Atlanta:
„Mér líst vel á kringlukastskeppnina og ég er staðráðinn aö gera mitt
besta. Hugafai'ið er gott og ég stefni að sjálfsögðu að því að komast í úr-
slit. Ég væri ekki annars hér í Atlanta og ég fer inn á Ólympíuleikvang-
inn með eldmóði," sagði Vésteinn Hafsteinsson við DV í gær en í dag
hefst keppni i kringlukasti. Á Ólympíuleikunum í Barcelona fyrir fjór-
um árum lenti Vésteinn í 11. sæti.
„Ég hef verið að kasta þokklega á æFingum hér í Atlanta. Ég hef
reynsluna sem ætti að koma sér vel og ég hef trú á sjálfum mér. Árang-
ur Guðrúnar í grindahlaupinu er hvatning fyrir okkur öll.“ -MT
Knattspyrna:
Nígeríumenn í
undanúrslitin
Nígeríumenn komúst i
undanúrslit í knatt-
spyrnukeppni Ólympíu-
leikanna í gærkvöldi með
því að bera sigurorð af
Mexíkönum, 2-0. Mörkin
skoruðu Austin Okocha
og Celestin Babayaro, 17
ára gamall bakvörður frá
Anderlecht í Belgíu,
hvort i sínum hálfleik.
Nígeríumenn mæta sig-
urvegaranum í leik Bras-
ilíu og Gana í undanúr-
slitunum en þeim leik var
ekki lokiö þegar DV fór í
prentun í gærkvöld.
Portúgal vann í
bráðabana
Portúgal er eina Evr-
ópuþjóðin sem eftir er i
keppninni. Portúgalar
unnu Frakka í hörku-
spennandi leik í Miami í
fyrrinótt, 2-1. Þar réðust
úrslitin á bráðabana i
framlengingu, Calado
skoraði úr vítaspyrnu eft-
ir 15 mínútur og það réð
úrslitum samkvæmt nýj-
um reglum. Áður hafði
Capucho komið Portúgal
yfir en Florian Maurice
jafnað fyrir Frakka.
Stórsigur Argentínu
Argentínumenn léku
Spánverja, Ólympíumeist-
arana frá því í Barcelona,
grátt í Birmingham, 4-0,
en öll mörkin komu í síð-
ari hálfleik. Hernan
Crespo skoraði tvö
markanna, Claudio Lopez
eitt og eitt var sjálfsmark.
-VS/GH
Ellefu borgir vilja
halda leikana 2004
Ellefu borgir keppast um að fá
að halda Ólympíuleikana árið
2004. Þetta eru Höfðaborg,
Aþena, Buenos Aires, Rio de
Janeiro, San Juan, Stokkhólmur,
Sevilla, Pétursborg, Lille, Róm
og Istanbúl.
Næstu Ólympíuleikar, árið
2000, verða haldnir í Sydney í
Ástralíu.
Sannur Ólympíuandi
hjá Grænhöfðaeyingi
Henry Andrade, grindahlaup-
ari frá Grænhöfðaeyjum, sýndi
sannan Ólympíuanda. Kappinn
meiddist illa á hásin fyrir
nokkrum vikum en vildi fyrir
alla muni ekki missa af stóra
tækifærinu, að keppa á Ólympíu-
leikunum. Andrade mætti til
leiks vafinn um ökklann en allt
kom fyrir ekki. Hann hné niður
eftir að hafa farið yfir tvær
grindur og varð að hætta keppni.
Honum var klappað lof í lófa af
80.000 áhorfendum sem fylltu
Ólympíuleikvanginn.
Knattsovma karla:
8 liða úrslit:
Portúgal-Frakkland............2-1
Argentina-Spánn...............4-0
Mexíkó-Nígería...................
Brasilía-Gana..........ekki lokið
Knattsnvrna kvenna:
Undanúrslit:
Kína-Brasilía ...........3-2
Bandaríkin-Noregur .... ekki lokið
Friálsar íbróttir:
Maraþon kvenna:
Fatuma Roba, Eþíópíu .....2:26:05
Valentina Jegborova, Rúss. . . 2:28:05
Yuko Arimori, Japan........2:28:39
20 km ganga karla:
Jefferscn Perez, Ekvador .. . 1:20:07
Ilja Markov, Rússlandi.....1:20:16
Bernardo Segura, Mexikó . . . 1:20:23
Sleggjukast karla:
Balazs Kiss, Ung............81,24
Lance Deal, Bandar..........81,12
Oleksiy Krykum, Úkr.........80,02