Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Blaðsíða 4
22
MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ1996
Iþróttir
IPerkins
Draumaliðið
tók Kínverja
í kennslu
A-riöill:
Bandarlkin-Kína............133-70
Argentína-Króatfa ..........75-90
Litháen-Angóla .............85-49
Kína-Litháen ..............55-116
B-riöill:
Ástraiía-Puerto Rico.......101-86
Grikkiand-S-Kórea..........108-85
Júgóslavía-Brasilia........101-82
Ástralía-Grikkland.........103-62
Blak kvenna:
Rússland-Perú................3-0
Holland-S-Kórea .............3-1
Brasilía-Kanada .............3-0
Kína-Úkraína ................3-0
Bandaríkin-Japan.............3-0
Þýskaland-Kúba ..............0-3
Kína-Japan...................3-0
S-Kórea-Bandarikin...........1-3
Úkraína-Holland..............0-3
BrasUía-Þýskaland ...........3-1
- og lagði Kína með 63 stiga mun
Bandaríska draumaliðið í
körfuknattleik hrökk loksins almenni-
lega í gang og var með hreina flugelda-
sýningu þegar það burstaði lið Kína,
133-70, aðfaranótt laugardags.
Eins og tölurnar gefa til kynna voru
yfirburðir Bandaríkjamanna miklir og
Kínverjar fengu svo sannarlega
kennslustund í hvernig á að spila
þessa íþrótt. Leikmenn draumaliðsins
skemmtu 34.000 áhorfendum svo sann-
arlega með troðslum, glæsilegum
hraðaupphlaupum, töfrasendingum og
3ja stiga skotum
Orðnir leiðir á
gagnrýnisröddum
„Ég var ánægður með leik liðsins og
menn voru nú tilbúnir í leikinn. Hlut-
irnir gengu flestir upp og menn höfðu
gaman af því sem þeir voru að gera.
Við vorum orðnir leiðír á þessum
gangrýnisröddum. Við erum ekkert að
hugsa um hvað draumaliðið gerði á
leikunum 1992 eða á heimsmeistara-
mótinu 1994. Okkar markmið er að
vinna gullverðlaunin," sagði Lenny
Wilkins, þjálfari draumaliðsins eftir
leikinn.
Scottie Pippen var stigahæstur hjá
draumaliðinu með 24 stig, Grant Hill
skoraði 19, Reggie Miller 17 og Penny
Hardaway 15. Sir Charles Barkley
komst ekki á blað enda hvíldi hann all-
an leikinn
Ástralir, með Andrew Gaze og Shane
Heal í broddi fylkingar, lögðu Puerto
Ricana , 101-96. Gaze skoraði 29 stig og
Heal 28.
Litháar áttu ekki í vandræðum með
lið Angóla og sigruðu, 85-49. Arturas
Karnisovacs var með 20 stig fyrir Lit-
háa og Darius Lukminas 15.
Júgóslavar unnu sannfærandi sigur
á Brasilíumönnum, 101-82. Predrag
Danilovic skoraði 21 stig fyrir Júgósla-
vaa og Dejan Bodiroga 14 en hjá Bras-
ilíumönnum var Caio Cassiolato með
19 stig og Oscar Schmidt 14.
Grikkir fóru með léttan sigur af
hólmi gegn S-Kóreumönnum, 108-85,
þar sem Giorgos Sigalas skoraði 22 stig
og Fragiskos 18.
-GH
Bandaríska draumaliöið í
körfuknattleik var með hreina
sýningu þegar það tók Kínverja í
bakaríið í fyrrinótt og sigraöi
með 63 stiga mun. Draumaliöiö
sýndi glæsileg tilþrif og 38.000
áhorfendur skemmtu sér kon-
unglega. Á myndinni er Karl
Malone, Póstmaðurinn, aö skora
eina af fjölmörgum körfum
Bandarikjamanna í leiknum.
Símamynd Reuter
Körfubolti karla:
AllanW
'Q52P
Sund:
200 m flugsund kvenna:
Susan O'Neill, Ástr...2:07,76
Petria Thomas, Ástr...2:09,82
MicheUe Smith, írl....2:09,91
200 m baksund karla:
Brad Bridgewater, Band .. . 1:58,54
Tripp Schwenk, Band...1:58,99
Emanuele Merisi, ítal.1:59,18
50 m skriösund karla:
Amy van Dyken, Band ....24,87
Jingyi Le, Kína.........24,90
Sandra Völker, Þýskal...25,14
1500 m skriösund karla:
Kieren Perkins, Ástr.14:56,40
Daniel Kowalski, Ástr .... 15:02,43
Graeme Smith, Bretl..15:02,48
4x100 m fjórsund karla:
Bandaríkin............3:34,84
Rússland..............3:37,55
Ástralía .............3:39,56
Handknattleikur kvenna:
A-riðW:
Ungverjaland-Kína.........29-19
Danmörk-Bandaríkin........29-19
Kína-Danmörk..............21-33
Bandaríkin-Ungverjaland ... 24-30
B-riöW:
Noregur-Angóla............30-18
S-Kórea-Þýskaland.........33-20
Angóla-S-Kórea ...........19-25
Körfuknattleikur kvenna:
A-riðill:
Japan-Ítalía................52-66
Kína-Brasilía...............83-98
Rússland-Kanada.............68-49
B-riðill:
S-Kórea-Zah-e...............95-71
Úkraína-Kúba ...............87-75
Ástralía-Bandaríkin.........79-96
Ástralinn Kieren Perkins fagnar hér Ólympíumeistaratitli sínum eftir sigurinn í 1500 metra skriðsundinu.
Van Dyken með
fern gullverðlaun
Smith heim til Irlands með fjóra verðlaunapeninga
Sundkeppni Ólympíuleikanna
lauk aðfaranótt laugardagsins og er
óhætt að segja að keppnin í sundinu
hafl verið mjög skemmtileg. Nýjar
þjóðir komu sterkar til leiks en á
engan er hallað að telja Michelle
Smith frá írlandi sundmann leik-
anna. Fyrir leikanna var hún nær
óþekkt í sundheiminum en hún held-
ur burt frá Atlanta með fjóra verð-
launapeninga, þrenn gullverðlaun og
ein bronsverðlaun. Bandaríkjamenn
voru mjög sigursælir í sundkeppn-
inni og unnu flest verðlaunin.
Tvöfalt hjá Áströlum
í 200 metra flugsundi kvenna
unnu Ástralir tvöfaldan sigur. Susan
O'Neill kom fyrst í mark á 2:07,76
mínútum. Petria Thomas varð önnur
og írska stúlkan Michelle Smith
krækti sér í fjórða verðlaunapening-
inn þegar hún kom þriðja í mark.
O'Neill var búin að biða lengi eftir
gullinu, varð þriðja á leikunum 1992
og í sama sæti á heimsmeistaramót-
inu 1994.
í 200 metra baksundi karla voru
Bandaríkjamenn í aðalhlutverkum.
Brad Bridge-water vann Ólymp-
íugullið og Tripp Schwenk kom
næstur. ítalinn Emanuele Merisi
varð svo í þriðja sæti. Ólympíumeist-
cirinn frá árinu 1992, Spánverjinn
Martin Lopez, varð í 6. sæti og
heimsmeistarinn Vladimir Selkov
komst ekki í úrslitin.
Keppnin var æsispennandi í 50
metra skriðsundi kvenna. Banda-
ríska stúlkan Amy van Dyken kom
fyrst í mark en 3/100 úr sekúndu á
eftir henni kom Kínverjinn Jingyi
Le. Sandra Völker frá Þýskalandi
varð í þriðja sæti. Þetta voru fjórðu
gullverðlaun hinnai' 23 ára gömlu
van Dyken á leikunum.
Ástralinn Kieren Perkins fór með
sigur af hólmi í 1500 metra skrið-
sundi. Sigur hans kom nokkuð á
óvart þó svo hann sé heimsmethaf!
og heimsmeistari því honum hafði
vegnað illa á tímabilinu og komst
með naumindum í úrslit.
„Það var erfltt að vinna gullið í
fyrsta sinn en að koma hingað og
vinna eftir allt sem á undan er geng-
ið var frábært,” sagði Perkins.
Heimsmet hjá Bandaríkja-
mönnum
Bandaríska boðsundssveitin í
4x100 metra fjórsundi karla setti svo
punktinn yfir i-ið á glæsilegri sund-
keppni með því að setja heimsmet í
greininni. Sveitin kom í mark á
3:34,84 mínútum og bætti met sem
Bandaríkjamenn settu í Seúl fyrir
þremur árum.
-GH