Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Qupperneq 7
24 MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 1996 MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 1996 íþróttir Fimm verölaun hjá Merlene Ottey Merlene Ottey, hlaupakonan glæsilega frá Jamaíka, hefur nú unniö til fimm verö- launa á Ólymp- íuleikum. Hún átti fjögur brons fyrir og bætti svo silifri í safnið í 100 metrunum í fyrrinótt. Aöeins þrjár frjálsíþróttakonur hafa gert betur í sögu leikanna. Ottey á eftir að keppa í 200 metrunum og þar gæti gullið langþráða litið dagsins ljós. Bara gullid telur hjá Fredericks fFrankie Freder- mátt sætta sig verðlauna á ferl- inum. Hann var tal- inn sigurstranglegur í 100 metr- unum en réð ekki við Donovan Bailey og hefur enn ekki sigrað á stórmóti. „Það er bara gullið sem telur. Ég heföi getað náð í fyrstu gullverðlaun Afríku í sprett- hlaupum," sagði Fredericks sem ætlar að freista þess að sigra Michael Johnson í 200 metrun- um. Önnur konan sem ver titilinn Gail Devers er aðeins önnur konan í sögunni sem ver Ólymp- íutitil sinn í 100 m hlaupinu en hún sigraði líka í Barcelona 1992. Sú sem afrekaði það á und- an henni var Wyomia Tyus frá Bandaríkjunum sem sigraði i Tókíó 1964 og Mexíkó 1968. Startið til skammar segir Mitchell Dennis Mitchell frá Bandaríkj- unum, sem varð fjórði í 100 m hlaupi karla, var óhress eins og fleiri vegna þjófstartanna. „Þetta var til skammar, ég hef aldrei séð eins illa staðið að starti," sagði Mitchell. Bandaríkjamenn misstu af verðlaunum í 100 metra hlaupinu, rétt eins og í Barcelona 1992, og þetta eru mik- il viöbrigði fyrir þjóð sem hrein- lega „átti“ þessa grein svo ára- tugum skipti. -VS Q5^P Frjálsar íbróttir 100 m hlaup karla Donovan Bailey, Kanada........9,84 Frank Fredericks, Namibíu .... 9,89 Ato Boldon, Trinidad .........9,90 Dennis Mitchell, Bandar.......9,99 Michael Marsh, Bandar.........10,00 100 m hlaup kvenna Gail Devers, Bandar...........10,94 Merlene Ottey, Jamaíka.......10,94 Gwen Torrence, Bandar........10,96 Chandra Sturrup, Bahama .... 11,00 Marina Trandenkova, Rúss. . . . 11,06 Söguleg úrslit í spretthlaupunum í fyrrinótt: - Gail Devers og Merlene Ottey komu hnífjafnar í mark og Devers vann Gail Devers fagnar sigrinum í 100 m hlaupinu ásamt þjálfara sínum, Bob Kersee. Á litlu myndinni kemur hún fyrst í mark, lengst til hægri. Merlene Ottey er fyrir miðju og Gwen Torrence til vinstri. Símamyndir Reuter Donovan Bailey frá Kanada og Gail Devers frá Bandaríkjunum urðu Ólympíumeistarar í 100 metra hlaupum karla og kvenna í Atlanta í fyrrinótt. Spennan var gífurleg í báðum greinum, Bailey setti nýtt heimsmet, 9,84 sekúndur, eftir aö hlaupararnir höfðu þjófstartað þrisvar og Devers fékk sama tíma og Merlene Ottey frá Jamaíka, 10,94 sekúndur, en var sjónarmun á undan, samkvæmt úrskurði dóm- ara. Taugamar voru þandar til hins ýtrasta þegar átta fljótustu spretthlauparar heims I karlaflokki mættu í rásmarkið. Hinn 36 ára gamli Ólympíumeistari frá 1992, Linford Christie, þjófstartaði í fyrstu atrennu og Ato Boldon frá Trínidad varð sekur um það sama þegar hlaupararnir stilltu sér upp á ný. Þá var kom- ið að Christie á ný - hann var dæmdur úr leik eftir annað þjófstart. Þegar hlauparamir loksins geystust af stað fyrir alvöru virtist baráttan standa á milli Ato Boldons og Namibíumannsins Frank Fredericks. En það var Baiiey sem stal senunni, hann geystist fram úr þeim og þrátt fyrir að hann liti við til að kanna stöðuna var nýtt heimsmet staðreynd. Met Leroys Burrefls hafði verið bætt um 1/100 úr sekúndu. Líka fyrir Jamaíka „Ég lét þjófstörtin ekki hafa nein áhrif á mig. Ég hleyp fyrir sjáifan mig og þjóð mína, Kanada - líka fyrir Jcimaíka. Ég hugsaði ekki um heimsmet. Mér mistekst alltaf þegar ég er með hugann við slíkt,“ sagði Donovan Bailey sem er fæddur á Jamaíka eins og margir fleiri frægir íþróttamenn. Devers 5/1000 á undan Ottey Spennan var ekki síðri hjá konunum en þar mættust bandarísku stúlkurnar Gail Devers, Ólympíumeistarinn frá 1992, og Gwen Torrance, og hin 36 ára gamla Merlene Ottey frá Jamaíka sem var að keppa á sínum fimmtu Ólympíuleikum. Devers og Ottey háðu gífurlegt einvígi, Ottey virtist vera að sigla fram úr á síðustu metrunum en Devers náði að kasta sér fram á línunni. Eftir nokkra bið var hún úrskurðaður sigurvegari, Jcimaíkamenn kærðu þann úrskurð strax eftir hlaupið en eftir nán- ari skoðun var sigur Devers staðfestur endanlega. Munurinn var 5/1000 úr sekúndu þegar nákvæm mæling hafði farið fram, öxl Devers snerti línuna fyrst. Devers vann Ottey á nákvæmlega sama hátt á heimsmeistaramótinu í Stuttgart 1993. Enn einu sinni mátti Ottey sætta sig við silfurverðlaun en það hafa verið örlög hennar á flestum stórmótum. „Ég trúi því ekki að þetta hafí gerst aftur. Ef vega- lengdin væri 102 metrar í staðinn fyrir 100 myndi ég vinna öfl hlaup,“ sagði Merlene Ottey. -VS Ato Boldon grét og skalf eftir hlaupiö: „Christie eyðilagði allt“ - Linford Christie fleygöi hlaupaskónum í ruslið Trinidadbúinn Ato Boldon sem hlaut bronsið í 100 metra hlaupinu, var sár og reiöur útí Bretann Linford Christie og litlu munaði að þeir lentu í slagsmálum eftir hlaupið. „Framkoma hans setti mig al- veg úr jafnvægi. Ef ég hefði þjófstartað tvisvar hefði ég farið en hann truflaði einbeitingu allra,“ sagð Boldon, titrandi af reiði og með tárin í augunum, en Christie fór ekki frá rás- markinu fyrr en eftir mótmæli og rökræður við dómarana. Christie gekk að Boldon eftir hlaupið og sagði: „Ég heyrði að þú hefðir sagt að ég hefði sýnt þér lítilsvirðingu." Boldon mót- mælti því en starfsmenn leik- anna stíuðu þeim í sundur áður en til frekari orðaskipta eða at- hafna kom. Linford Christie lauk senni- lega löngum og glæsilegum keppnisferli á leiðinlegan hátt í fyrrinótt. Síðara þjófstartið var tæpt en sást 1 hægri endurtekn- ingu. Vonbrigði Bretans voru skiljanlega mikil og þegar hann gekk útaf vellinum henti hann hlaupaskónum sínum í ruslið. Táknrænt, eða hvað? -VS „A framtiðina fyrir ser“ - segir Norbert Elliot, þjálfari Guðrúnar Arnardóttur DV, Atlanta: Norbert Elliot, þjálfari Guð- rúnar Arnardóttur, var að von- um í sjöunda himni með árang- ur Guörúnar í gær en hann hef- ur verið þjálfari hennar í þau fjögur ár sem hún hefur verið við nám í Athens í Georgíu. „Guðrún getur gert betur en þetta. Það er allt opið í fram- haldinu, meiru vil ég ekki lofa í þeim efnum. Ég hef 100% trú á þessari stelpu og hún á framtíðina fyr- ir sér. Hún hefur líkamlega burði til að hlaupa hraðar en það er erfitt andlega að bæta sig í hvert skipti. Ég vissi allan tímann að hún ætti að einbeita sér að 400 metra grindinni,” sagði Norbert Elliot í samtali við DV í Atlanta í gær. -MT Hvað gerir Guðrún í kvöld? - setti íslandsmet og var með annan besta tímann í riðlakeppninni DV, Atlanta: Guðrún Amardóttir stal senunni i undanrásum 400 metra grindahlaups kvenna á Ólympíuleikunum í Atlanta í gær. Guðrún vann riðill sinn með glæsibrag og setti nýtt íslandsmet. Guðrún hljóp á 54,88 sekúndum en gamla metið hennar, 54,94 sekúndur, setti hún á bandaríska háskólamótinu fyrr í sumar. Guðrún vann yfirburðasigur í sínum riðli þar sem hún hljóp á fyrstu braut. Tími hennar var sá annar besti í undanrásum. Þrír hlauparar í riðlinum fjórum í gær tryggðu sér sæti í undanúrslitum hlaupsins sem verða í kvöld, hálf tvö að íslenskum tíma, en sjálft úrslitahlaupið verður á miðvikudaginn þar sem átta stúlkur berjast um verlaunin. Meðal keppenda í hennar riðli var hinn heimsfrægi hlaupari Sandra Farmer-Patrick frá Bandaríkjunum. Sú bandaríska átti aldrei möguleika í Guðrúnu og lét hún óánægju sína í ljós með því að fella tár. Hlaup Guðrúnar var vel útfært frá byrjun þess til enda. Fyrir hlaupið í gær var hún skráð með 12. besta tíma ársins í heiminum í ár. Heimsmethafinn Kim Batten frá Bandaríkjunum náði þriðja besta tíma undarásanna, hljóp á 54,92 sekúndum, en það var Deon Hemmings frá Jamaíka sem átti besta tímann, hljóp á 54,70 sekúndum. Sally Gunnell frá Bretlandi, einn frægasti kvenhlaupari í heiminum, varð að gera sér að góðu annað sætið í sínum riðlí á tímanum 55,29. Það skal þó hafa í huga að í undanrásum eru hlauparar fyrst og fremst að tryggja sig áfram en ekki að keppa við klukkuna. „Ég er ánægð að hafa hlaupið undir 55 sekúndum sem sýnir vissan stöðugleika. Þessi árangur gefur mér að sjálfsögðu aukið sjálfstraust. Breiddin í grindinni er meiri núna og fram undan er erfið keppni. Það skipti miklu máli fyrir mig að mæta aflsöppuð í hlaupið en á síðustu vikum hef ég verið að byggja upp andlegu hliðina. Taktíkin i hlaupinu var að hlaupa fyrstu fimm grindurnar af krafti og hlaupa síðan eftir mitt hlaup. Þessi árangur í undanrásunum segir ekkert fyrir um hvemig ég hleyp í undanúrslitum. Ég ætla fyrst og fremst að nota sömu taktíkina aftur. Markmiðið var að komast áfram en æfingamar hér úti undir handleiðslu frábærs þjálfara eru farnar að skila sér. Það er ólýsanleg tilfmning að vera innan um stórstjörnurnar hér í Atlanta,” sagði Guðrún Amardóttir. -JKS/MT t 25 jSjpriijrwPjigij^ Donovan Bailey fagnar Ólympíutitlinum innilega á meðan Linford Christie gengur dapur af velli eftir aö hafa veriö vísaö úr keppni. Fyrir ofan er markmyndin úr 100 m hlaupinu, frá vinstri Michael Green, Davidson Ezinwa, Donovan Bailey, Frankie Fredericks, Dennis Mitchell, Ato Boldon og Michael Marsh. Símamyndir Reuter íþróttir Áhorfendur á bandi hinnar nígerísku Rachinda Mahamane, 16 ára gömul hlaupakona frá Níger, vann hug og hjörtu áhorfenda á ólympíuleikvanginum. Hún kom þá langsíðust í mark í einum af riðlunum í 5.000 metra hlaupi kvenna og var tveimur hringjum á eftir næstu manneskju. Ma- hamane fékk krampa í fætuma í hlaupinu en neitaði aö gefast upp, mest fýrir mikinn stuðning áhorf- enda sem hvöttu hana til dáða. Vildu ekki fá van Dyken í liðið Stúlkumar, sem syntu með Amy van Dyken í háskólaliðinu, vildu að hún yrði rekin úr liðinu þai' sem þær héldu að hún væri það slök. Núna, þegar sundkeppn- inni er lokið á Ólympíuleikunum, hefur van Dyken heldur betur stungið upp í þessar stúlkur því hún varð fýrst kvenna í Banda- ríkjunum til aö vinna fem gull- verðlaun á einum leikum. Mikill hagnaður af leikunum Það er ljóst aö mikill hagnað- ur verður af Ólympíuleikunum enda hefur aðsóknin á leikunum farið fram úr björtustu vonum. Bandaríkjamenn áætla að hagn- aðurinn verði 1,7 milljón banda- ríkjadalir. Það er bandaríska Ólympíuneflidin sem nýtur góðs af hagnaðinum og mestur hluti hans fer til bandarískra íþrótta- sambanda líkt og gert var eftir leikana í Los Angles 1994 sem einnig skiluðu miklum hagnaði. Jackie varð að hætta keppni Jackie Joyner-Kersee frá Bandaríkjunum, ein mesta af- rekskona frjálsra íþrótta frá upp- hafi, sem stefndi að þriðju gull- verölaunum sínum í röð á Ólymp- íuleikunum í sjöþraut, varð að hætta keppni í greininni á laug- ardaginn. Hún varð fýrir meiðsl- um í fyrstu greininni, 100 metra grindahlaupinu, þar sem hún vann sigur í sínum riðli. Jackie hefur lengi átti við nárameiðsli að stríða og þau tóku sig upp rétt áður en hlaupinu lauk. Óvæntar vinsældir handboltans Handknattleikskeppnin í Atl- anta hefur notið óvæntra vin- sælda en íþróttin er nær óþekkt í Bandaríkjunum. Miðar á hand- boltaieiki, sem kostuðu 1.100 krónur, ganga nú kaupum og sölum á svörtum markaði fyrir 5.000 krónur. Fern gullverðlaun á fjórum leikum Breski ræðarinn Steve Red- grave vann glæsilegt afrek á laugardaginn en þá vann hann sín fjórðu gullverðlaun á jafn- mörgum Ólympíuleikum þegar hann og félagi hans komu fyrstir í mark í keppni á tveggja manna bátum. Hann er fyrsti siglinga- kappi í sögu Ólympíuleikanna sem nær þessum áfanga og ein- ungis þrír aðrir íþróttamenn hafa leikið þetta eftir í sögu leik- anna. Eftir sigurinn gaf Redgra- ve það út aö hann væri hættur keppni. -VS/GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.