Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Síða 9
MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 1996
27
íþróttir
Guðni þjálfar ísfirðinga
- Champ Wrencher leikur með KR-ingum í vetur
Guðni Guðnason, fyrrum lands-
liðsmaður í körfuknattleik, skrif-
aði um helgina undir eins árs þjálf-
arasamning við úrvalsdeildarlið ís-
firðinga í körfuknattleik. Lið ís-
firðinga tryggði sér í fyrsta skipti i
sögu félagsins sæti á meðal þeirra
bestu á sl. vori.
„Við erum að sjálfsögðu mjög
ánægðir með að vera búnir að fá
Guðna til okkar. Það er hugur í
mannskapnum hér fyrir vestan að
standa sig í úrvalsdeildinni. Það er
stefna okkar að halda sætinu í úr-
valsdeildinni. Áhuginn er mikill á
meðal fólks hér og eins brottfluttra
ísfirðinga. Við fáum því góðan
stuðning í leikjum okkar í vetur.
Guðni er skipulagður maður og við
hlökkum til samstarfsins við
hann,“ sagði Jón Kristmannsson,
formaður körfuknattleiksdeildar
KFf, i samtali við DV í gærkvöldi.
Ísfírðingar hafa styrkt sig vel
fyrir komandi tímabil en eins og
áður hefur komið fram munu þeir
tefla fram bæði Kanadamanni og
Spánverja í vetur.
Wrencher til KR
KR-ingar hafa gengið frá samn-
ingi við bakvörðinn Champ
Wrencher sem leikið hefur með
Þór i Þorlákshöfn sl. tvö ár.
-JKS
DV, Akureyri:
„Ég held að slakur leikur margra
manna í okkar liði hafi ekki stafað
af leti eða vanmati, menn eru ein-
faldlega þreyttir eftir erfitt pró-
gramm að undanfórnu, meðal ann-
ars ferð til Makedóníu. Hins vegar
eru Þórsarar alltaf erfiðir, þeir berj-
ast alltaf. Nú eru það úrslitin og ég
vil fá KR-inga, það skapar meiri
spennu þótt ÍBV væri einnig verð-
ugur andstæðingur," sagði Ólafur
Adolfsson Skagamaður við DV eftir
3-0 sigur á Þór í undanúrslitum
Mjólkurbikarsins á Akureyri í gær-
kvöld.
3. deild:
Dalvík vann
toppslaginn
Dalvíkingar eru komnir í efsta
sæti 3. deildarinnar eftir 0-1 sigur á
Víði í Garði i uppgjöri efstu liðanna
á fostudagskvöldið. Örvar Eiríksson
skoraði sigurmarkið. Önnur úrslit
voru Dalvíkingum hagstæð því
bæði Reynir og Þróttur N. töpuðu:
Höttur vann Reyni á Egilsstöðum,
3-1. Sigurður Valur Árnason skor-
aði tvö mörk fyrir Hött og Sigurður
Magnússon eitt en Marteinn Guð-
jónsson svaraði fyrir Reyni.
Fjölnir vann Þrótt N. óvænt í
Grafarvoginum, 2-1. Ólafur Sigur-
jónsson og Þórður Jónsson skoruðu
fyrir Fjölni en Elmar Viðarsson
minnkaði muninn fyrir Þrótt.
Ægir situr á botninum eftir tap
fyrir HK á heimavelli, 1-2. Sævar
Birgisson skoraði fyrir Ægi en
Steindór Elíson og Tryggvi Valsson
fyrir HK.
Selfoss lagði Gróttu í markaleik á
Seltjarnarnesi, 3-4. Kristinn Kærne-
sted, 2, og Börkur Edvardsson skor-
uðu fyrir Gróttu en Valgeir Reynis-
son 2, Jóhannes Snorrason og Sæv-
ar Gíslason fyrir Selfoss.
Staðan í 3. deild:
Dalvlk Víðir 11 11 7 7 3 1 1 3 31-16 28-17 24 22
Reynir, S. 11 5 4 2 27-17 19
Þróttur, N. 11 5 3 3 23-18 18
Selfoss 11 4 3 4 23-29 15
HK 11 4 1 6 19-25 13
Höttur 11 3 3 5 18-29 12
Fjölnir 11 3 2 6 19-27 11
Grótta 11 2 4 5 18-25 10
Ægir 11 2 2 7 16-19 8 -vs
Það var ekki reiknað með mikilli
mótspyrnu heimamanna fyrir fram,
fjórir lykilmenn í leikbanni og
Bjarni Sveinbjörnsson og Halldór
Áskelsson báðir meiddir. Þórsarar
fylltu þessi skörð með ungum
mönnum sem börðust vel þannig að
Skagamenn sköpuðu sér ekki
hættuleg færi. Hins vegar teygði
Þórir Áskelsson sig upp með hönd-
ina i eigin vítateig á lokamínútu
fyrri hálfleiks. Óskiljanlegt hjá
svona reyndum manni og Mihajlo
Bibercic var ekki i vandræðum með
að skora úr vítaspyrnunni.
Skagamenn bættu öðru marki við
strax í upphafi síðari hálfleiks.
Bibercic var aftur á ferðinni eftir
góðan undirbúning Kára Steins og
Bjarna og eftir það var allt annar
bragur á leiknum. Síðasta markið
var það glæsilegasta, utanfótarskot
af 30 metra færi frá Kára Steini efst
í fjærhornið, gullmark.
Serbinn Zoran Miljkovic var sterkur fyrir að vanda í vörn Skagamanna gegn
Þórsunum á Akureyri t gærkvöldi.
2. deild:
Völsungar
úr fallsætinu
DV, Húsavik:
1- 0 Ásmimdur Amarsson (23.)
2- 0 Guðni Rúnar Helgason (25.)
3- 0 Amgrímur Amarson (57.)
3-1 Heiðar Ómarsson (75.)
3- 2 Róbert Amþórsson (80.)
4- 2 Amgrímur Amarson (89.)
5- 2 Ásmundur Arnarsson (90.)
Völsungur komst úr fallsæti 2.
deildarinnar á ný í gærkvöld
með 5-2 sigri á botnliði LeikniS.
Völsungar voru mun betri
aðilinn lengst af en seint í
leiknum skoruðu Leiknismenn
skyndilega tvívegis og sóttu stíft.
Mikilf skrekkur var kominn í
heimamenn en þeir sluppu fyrir
horn og skoruðu síðan tvö mörk
í lokin.
Völsungar sýndu að þeir geta
spilað vel en þurfa hins vegar að
halda haus allan leikinn ef þeir
ætla að standa sig gegn
toppliðunum. Hinn 18 ára gamli
Arngrímur Arnarson var bestur
Húsvíkinga, mjög ógnandi
frammi og skoraði tvö mörk auk
þess sem hann skapaði sér fleiri
færi. Hjá Leikni var Pétur
Amþórsson í aðalhlutverki á
miðjunni.
Maður leiksins: Arngrímur
Arnarson, Völsungi.
-GA
2. deild
Fram 9 5 3 1 26-12 18
Skallagr. 9 5 3 1 17-6 18
Þróttur, R. 9 4 4 1 21-15 16
Þór, A. 9 4 3 2 11-17 15
FH 9 3 3 3 14-11 12
KA 9 3 3 3 16-16 12
Völsungur 10 3 2 5 17-19 11
Víkingur, R. 9 2 3 4 12-11 9
ÍR 9 3 0 6 10-22 9
Leiknir, R. 10 1 2 7 11-26 5
Fram-Þróttur í kvöld
Fram og Þróttur, R. mætast í
2. deildinni á Valbjarnarvelli í
kvöld klukkan 20.
4. deild A-riðill: KSÁÁ-ÍH 3-0
GG-Léttir . . . 2-4
HB-Njarðvík . 2-4
Njarðvik 11 7 2 2 40-22 23
Léttir 11 7 2 2 26-13 23
Afturelding 11 7 0 4 30-27 21
ÍH 11 5 1 5 27-32 16
GG 11 4 1 6 25-30 13
KSÁÁ 11 4 1 6 28-31 13
Framherjar 11 3 3 5 21-21 12
HB 11 1 2 8 17-38 5
B-riðill:
B-riðill:
Bruni-Ármann .................2-3
Haukar-Víkingur, Ó............1-2
Smástund-Skautafélag Rvk .. . 31-1
Víkingur, Ó. 9 7 1 1 59-11 22
Haukar 9 6 2 1 41-10 20
Ármann 9 5 3 1 38-21 18
Smástund 9 5 1 3 64-21 16
Bruni 10 3 0 7 18-36 9
TBR 9 2 1 6 15-33 7
Skautafél. R. 9 0 0 9 5-108 0
C-riðill:
Magni Kormákur . 4-1
Neisti, H.-Hvöt 2-1
Tindastóll-KS . 1-1
Tindastóll 10 7 2 1 27-10 23
Magni 10 7 1 2 31-16 22
KS 9 6 2 1 32-7 20
SM 9 4 1- 4 18-15 13
Neisti, H. 9 3 1 5 8-21 10
Kormákur 9 2 0 7 9-29 6
Hvöt 10 0 1 9 9-36 1
D-riðill:
Leiknir, F.- -Einherji . . 2-3
Huginn-Sindri . 3-7
KVA 9 8 1 0 36-7 25
Sindri 9 5 2 2 27-19 17
Einherji 9 3 1 5 21-24 10
Leiknir, F. ' 9 2 1 6 21-29 7
Huginn 10 2 1 7 14-40 7
Þórsarar fengu reyndar ekki
nema eitt hættulegt færi. Hreinn
Hringsson komst aleinn inn fyrir
vörnina en Þórður Þórðarson,
markvörður ÍA, kom út á móti hon-
um og varði í horn.
Úrslitin í þessum leik, sem var
hvorki spennandi né skemmtilegur,
voru því sanngjörn.
„Það var hrikalegt að fá markið í
lok fyrri hálfleik, það breytti öllu
okkar leikplani, og eftir markið
strax í síðari hálfleik var þetta búið.
Ég var hins vegar ánægður með
suma af ungu strákunum," sagði
Nói Björnsson, þjálfari Þórs, eftir
leikinn. -gk
Þór (0)0
ÍA (1)3
0-1 Mihajlo Bibercic (44.) úr víta-
spyrnu eftir að Þórsari handlék bolt-
ann í vítateignum.
0-2 Mihajlo Bibercic (49.) eftir
góöan undirbúnings Kára Steins
Reynissonar og Bjarna Guðjónssonar.
0-3 Kári Steinn Reynisson (87.)
með utanfótarskoti af 30 metra færi
efst í fjærhomið. Gullmark.
Lið Þórs: Atli Már Rúnarsson -
Sveinn Rafnsson, Sigurður Hjartar-
son, Arnar Bill Gunnarsson, Páll
Pálsson - Guðmundur Hákonarson,
Páll V. Gíslason (Örlygur Helgason
67.), Þórir Áskelsson, Kristján Örn-
ólfsson, Árni Þór Árnason - Hreinn
Hringsson.
Lið ÍA: Þórður Þóröarson - Stur-
laugur Haraldsson, Ólafur Adolfsson,
Zoran Miljkovic, Jóhannes Harðar-
son - Alexander Högnason (Stefán
Þór Þórðarson 88.), Steinar Adolfs-
son, Ólafur Þórðarson (Haraldur Ing-
ólfsson 77.), Kári Steinn Reynisson -
Bjarni Guðjónsson, Mihajlo Bibercic.
Gult spjald: Þórir Áskelsson
(Þór).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Bragi Bergmann, dæmdi
ágætlega.
Áhoriendur: Um 1.300.
Maður leiksins: Zoran Milj-
kovic, ÍA.
ÍBV og KR
mætast í kvöld
Leik ÍBV og KR í undanúrslit-
um bikarkeppninnar sem fram
átti að fara í Eyjum í gærkvöldi
var frestað. Þrátt fyrir itrekaðar
tilraunir komust KR-ingar ekki
til Eyja vegna veðurs. Leikurinn
hefur verið settur á í kvöld
klukkan 19.
Colin Todd hefur
áhyggjur af Guðna
Colin Todd, framkvæmda-
stjóri enska knattspymuliðsins
Bolton, hefur áhyggjur af því að
Guðni Bergsson skuli leika með
íslenska landsliðinu gegn Möltu
þann 14. ágúst. Þremur dögum
siðar leikur Bolton við Port Vale
í fyrstu umferð 1. deildarinnar.
„Það er slæmt fyrir liðið að
missa góðan mann eins og
Guðna því hann er sá sem held-
ur vörninni hjá okkur saman.
Það er spurning hvernig hann
kemur stemmdur eftir landsleik-
inn í leikinn við Port Vale,“
sagði Todd.
-DÓ/VS
Skagamenn leika til úrslita í Mjólkurbikarnum gegn ÍBV eða KR:
„Ég vil fá KR-
inga í úrslitum"
- ÍA vann Þór á Akureyri, 3-0, í undanúrslitunum