Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Síða 11
MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 1996
29
r>v
Meistaraflokkur karla:
„Rosalega ljúft“
„Það er rosalega ljúft að vera
kominn í slaginn aftur. Ég hef
ekki getað æft mikið en er allur
að koma til. Ég er mjög ánægður
með mitt golf og þessi árangur
hefði einhvern tímann dugað til
sigurs. Birgir lék stórkostlegt
golf og methringur hans lagði
grunninn að sigrinum. Annars
hefði þetta verið mun jafnara,"
sagði Þorsteinn Hallgrímsson,
GV, íslandsmeistari 1993, sem
hefur átt við þrálát meiðsli að
stríða allar götur síðan. Hann
tryggði sér annað sætið og vann
mikinn persónulegan sigur.
Hvar er kallinn?
Eftirfarandi bréf kom á faxi til
Landsmótsnefndar:
„Halló Landsmótsfólk. Ég er
hér einn af landkröbbunum sem
átti ekki heimangengt en dauð-
langaði að vera á svæðinu. í
staðinn þarf ég á ykkur að halda
til að koma skilaboðum til
mannsins míns sem greinilega
skemmtir sér hið besta því ekki
hringir hann heim. Ég vil biðja
Phill Hunter, golfkennara hjá GS
að hringja til mín. Hann veit
hver ég er, til að gefa mér nánari
upplýsingar um kallinn minn.
Bréfið var óundirritað.
„ Besta
sem ég
leikið
mót
hef
á“
- sagði meistarinn Birgir Leifur
Skagamaðurinn tvítugi, Birgir
Leifur Hafþórsson, GL, var í sér-
flokki í meistaraflokki karla á
Landsmótinu í golfi. Hann vann
mjög verðskuldaðan sigur en síð-
ustu tvö árin hefur hann hafnað i
öðru sæti.
„Það er unaðsleg tilfinning að vera
orðinn íslandsmeistári eftir tvö
silfurár i röð. Sérstaklega var gam-
an að sigra 1 Eyjum þar sem ég er
Vestmannaeyingur að hálfu leyti.
Fyrir síðasta daginn, þegar forskot-
ið var orðið þetta mikið, ákvað ég
að hafa gaman af þessu og njóta
þess að leika á þessum stórkostlega
golfi í dag, kom með nýja hug-
myndafræði og kenndi mönnum að
hugsa rétt, skipuleggja leikinn
hverju sinni. Ég hef síðan tínt upp
hitt og þetta frá ýmsum aðilum.
Amar Már Ólafsson og Sigurður
Pétursson hafa þjálfað mig undan-
farið og það hefur gengið mjög vel.“
Birgir sagði að Landsmótið í Eyjum
hafi verið til fyrirmyndar. Hann
sagðist aldrei hafa tekið þátt í eins
vel skipulögðu móti. „Það voru
aldrei alvarlegar tafír á rástímum
og allt gekk þetta eins og vel smurð
vél,“ sagði Birgir. Um andstæðinga
sína sagði hann: „Það var gaman að
Texti: Þorsteinn Gunnarsson
Myndir: Þorvaldur Ö Kristmundsson
velli. Mamma var kylfusveinn hjá
mér og stóð sig stórkostlega vel,“
sagði Birgir Leifur þegar sigurinn
var í höfn.
„Ég lagði áherslu á að halda ein-
beitingunni. Ég æfði mikið í vetur.
Það er vonandi að þetta sé bara
byrjunin á einhverju meiru, það er
aldraLað vita. Steftian er að reyna
fyrir sér erlendis en óvist er
hvenær það verður. Ég þarf að
hugsa aðeins meira út í það dæmi,“
sagði Birgir Leifur.
Grunninn að velgengni hans í golf-
inu lagði John Garner, fyrrverandi
landsliðsþjálfari. Um hann segir
Birgir Leifur:
„Gamer lagði granninn að íslensku
sjá Þorstein Hallgrímsson í slagnum
á ný. Ég var farinn að sakna hans
enda er hann litríkur kylfmgur.
Núna ætla ég að taka mér nokk-
urra daga sumarfrí og hitta kærast-
una mína sem er nýkomin heim frá
Belgíu. Það verða fagnaðarfundir."
- Hvaða ráð vilt þú gefa ungum
kylfingum?
„Að vera rólegir og yflrvegaðir.
Það borgar sig ekki að æsa sig yfir
mistökum. Þetta gengur miklu bet-
ur ef maður er rólegur og
jákvæður," sagði Birgir Leifur
Hafþórsson eftir glæsilegan sigur á
Landsmótinu í Vestmannaeyjum.
-ÞoGu
33. Landsmótfð
hjá Björgvin
Gamla brýnið, Björgvin Þorsteinsson, GA, lék á sínu 33. Landsmóti og náði
frábærum árangri, var jafn Kristni G. Bjarnasyni, GL, í 3.-4. sæti.
íþróttir
Birgir Leifur Hafþórsson, GL, fagnar íslandsmeistaratitlinum í Vestmanna-
eyjum á laugardag. Sigur hans var öruggur og sanngjarn enda lék hann
langbest allra kylfinga í meistaraflokki karla.
Með morgunmatnum
Gefið var út dagblað á meðan
Landsmótið fór fram, „Lands-
mótsfréttir".
Þar var að finna allar helstu
upplýsingar, viðtöl við keppend-
ur í öllum flokkum, hrakfalla-
sögur, hetjusögur, ýmsar stuttar
fréttir og blaðið var ríkulega
myndskreytt.
Landsmótsfréttir voru prent-
aðar á nóttunni á meðan kepp-
endur sváfu og síðan dreift með
morgunmatnum klukkan sex.
Orn á Erni á Erni
Örn Ævar Hjartarson, Golf-
klúbbi Suðurnesja, sem lék í
meistaraflokki karla, náði
óvæntri þrennu á 18. brautinni.
Hann lék brautina á tveimur
höggum undir pari en slíkur ár-
angur kallast Örn á máli
kylfinga.
Kylfingurinn Örn lék sem sagt
á Erni og til að fullkomna þrenn-
una þá heitir 18. brautin á vellin-
um í Vestmannaeyjum Örn.
Einkennileg tilviljun.
...... 1 " 'V......
Norman og
Faldo heföu
ekki gert betur
„Birgir var mjög vel að sigrin-
um kominn. Hann lék frábært
golf. Björgvin Þorsteinsson lék
einnig vel. Hann er eins og vín-
ið, batnar með aldrinum. Björg-
vin finnst gaman að leika golf og
hann er yngri strákunum mikið
aðhald," sagði Davíð Barnwell,
golfkennari á Akureyri.
Bamwell var ánægður með
spilamennsku kylfinga almennt
á mótinu: „Ég get fullyrt að ef
snillingar eins og Greg Norman
og Nick Faldo hefðu leikið hér
þá hefðu þeir ekki gert betur en
Birgir Leifúr, sérstaklega fyrstu
þrjá dagana, slíkir eru töfrar
hans. Mótið í heild er besta mót-
ið frá uþphafi, það er varla hægt
að gera betur,“ sagði Barnwell
sem orðinn er íslenskur ríkis-
borgari.
Þingmaðurinn
kylfusveinn
Meistaraflokksmaðurinn Þor-
steinn Hallgrímsson hafði ekki
kylfusvein af verri endanum
einn daginn á Landsmótinu.
Sá sem hér um ræðir er al-
þingismaðurinn Lúðvík Berg-
vinsson.
„Það var gaman að fylgjast
með Landsmótinu. Mótið var
Golfklúbbi Vestmannaeyja til
mikils sóma. Það var gaman að
draga fyrir vin minn Þorstein og
gaman að fylgjast með þessum
hæfileikaríku kylfingum. Sjálfur
er ég aðeins að fikta við golfiö.
Ég læðist út seint á kvöldin þeg-
ar enginn sér til. Ég er mjög hrif-
inn af golfiþróttinni og á án efa
eftir að stunda hana mikið í
framtíðinni.
Tjald fýrir
áfallahjálp
Nokkrir léttir kylfingar höfðu
á orði eftir einn 18 holu hringinn
á Landsmótinu að mótið væri
frábærlega skipulagt í alla staði.
Þó vantaði tjald fyrir áfalla-
hjálp við 18. flötina.
Aukablað um UNDIR
Miðvikudaginn 7. ágúst mun
aukablað um tómstundir og
útivist fylgja DV.
í þessu blaði verður fjallað um Reykjavíkur-
maraþonið 18. ágiist, viðtöl við keppendur,
kort af lilaupaleið, upplýsingatöflur og fl.
Fjallað verður um tómstundir fyrir alla aldurshópa
m.a. hjólreiðar, veiði, göngxdeiðir og margt fleira.
Umsjón efnis hefur Gyða Dröfn Tryggvadóttir
blaðamaður.
Þeh auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu
aukablaði eru vinsamlega beðnir að hafa samband
við Guðna Geir Einarsson í síma 550 5722 á auglýs-
ingadeild DY.
Vinsamlega athugið af> síðasti shiladagur
auglýsinga er mibvikudagurinn 31. júlí.
Auglýsingar
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727.