Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Síða 12
30
MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 1996
íþróttir
DV
Sprengingin í Ólympíugarðinum í Atlanta aðfaranótt laugardagsins:
Fólk flykkist
áfram á leikana
- ódæðið dró ekki úr aðsókn en margir íþróttamenn eru smeykir
Ólympíuleikarnir í Atlanta
héldu sínu striki um helgina þrátt
fyrir sprenginguna í Ólympíugárð-
inum aðfaranótt laugardagsins.
Áhorfendur létu hana og herta ör-
yggisgæslu ekki hindra sig í að
flykkjast á íþróttaviðburðina og
troðfylltu Ólympíuleikvangana,
sérstaklega á frjálsíþróttakeppn-
inni.
Martröðin sem hefur vofað yfir
Ólympíuleikum í 24 ár, síðan ell-
efu ísraelskir íþróttamenn voru
drepnir á leikunum í Munchen
árið 1972, varð að veruleika að-
faranótt laugardagsins. Klukkan
5.20 að íslenskum tíma, 1.20 að
staðartima í Atlanta, sprakk
heimatilbúin rörasprengja, full af
nöglum og skrúfum, í ruslatunnu í
Ólympíugarðinum þar sem mikill
fjöldi fólks var samcmkominn en
þar voru popptónleikar á dagskrá.
Tveir létust og 111 særöust
Tveir létust við sprenginguna og
111 særðust, ellefu þeirra nokkuð
alvairlega, þegar brotum rigndi
yfir mannfjöldann. Engir íþrótta-
menn eða aðilar tengdir leikunum
voru í hópi þeirra sem slösuðust.
Annar hinna látnu var fertugur
tyrkneskur sjónvarpstöku- og
fréttamaður, Melih Uzunyol að
nafni. Hann fékk hjartaáfall við
sprenginguna og lést á leiðinni á
sjúkrahús. Hitt fómarlambið var
44 ára gömul bandarísk kona,
Alice Hawthome, frá nágranna-
borginni Albany sem lést af völd-
um sprengjubrota. Fjórtán ára
gömul dóttir hennar varð fyrir
talsverðum meiðslum. '
Haldiö áfram en hinum
látnu sýnd virðing
Alþjóða Ólympíunefndin boðaði
til blaðamannafundar strax um
nóttina og lýsti því yfir að leikarn-
ir myndu halda áfram eins og ekk-
ert hefði ískorist. Hinum látnu
yrði sýnd virðing með mínútu
þögn á undan öllum greinum og
allir fánar yrðu dregnir í hálfa
stöng. Bandaríska alríkislögregl-
an, FBI, tók strax við rannsókn
málsins.
Gefumst ekki upp fyrir
þessum skepnum
Viðbrögð íþróttamanna hafa
verið mjög mismunandi. Körfu-
boltastjarnan Charles Barkley,
sem skömmu áður hafði skemmt
áhorfendum af varamannabekkn-
um á leik Bandaríkjanna og Kína,
sagði um nóttina: „Ég fmn til með
þeim fjölskyldum sem eiga um
sárt að binda eftir sprenginguna.
En ef við hættum væri það sama
og að gefast upp fyrir þessum
skepnum." Bæði körfuknattleiks-
lið Bandaríkjanna, karla og
kvenna, sendu síðan frá sér form-
legar yflrlýsingar í svipuðum dúr
en spurningum um framhaldið
hafði rignt yfir leikmenn
draumaliðsins, enda eru þeir
einna mest áberandi af öllum þátt-
takendum á leikunum.
Hræðsla viö maraþoniö og
bæjarferöir
Aðrir lýstu yfir miklum áhyggj-
um, sérstaklega maraþonhlaup-
arar sem þurfa að hlaupa um opin
svæði þar sem þeir gætu verið
auðveld bráð. Margir hafa hætt
við að fara í skoðunarferðir um
Atlantaborg, til dæmis suður-
afríska sunddrottningin Penny
Heyns, sem vann til tvennra gull-
verðlauna á leikunum. Hún sagð-
ist ekki þora út úr Ólympíuþorp-
inu eftir þennan atburð og fleiri
hafa tekið í sama streng. -VS
Helgi til
TB Berlin
fyrir 9
milljónir
Helgi Sigurðs-
son, knatt-
spyrnumaður.
sem hefur
verið hjá
Stuttgart i
Þýskalandi
síðustu tvö
árin, var á föstu-
daginn seldur til 3.
deildar liðsins Tennis Borussia
Berlin. Sjónvarpsstöðin SATl
skýrði frá því að TB Berlín hefði
greitt Stuttgart um 9 milljónir
króna fyrir Helga sem fyrst og
fremst hefúr spilað með varaliði
Stuttgart í 4. deild.
-DÓ/VS
Parma selur
fyrliðann
Fyrirliði Parma, Lorenzo
Minotti, skrifaði um helgina
undir fjögurra ára samning við
franska félagið Marseille. Parma
selur fyrirliðann á 114 milljónir
króna. Minotti er vamarmaöur
sem missti mest af siðasta
keppnistímabili vegna meiðsla.
-GH
Stefán og Rögnvald:
Setja stefn
una á ÓL
í Sydney
DV, Akureyri:
„Segðu bara með þessari mynd að
við séum farnir að æfa fyrir Ólymp-
íuleikana í Sydney árið 2000,“ sagði
Rögnvald Erlingsson sem hefur um
árabil verið annar helmingur okkar
besta dómarapars í handknattleik á
móti Stefáni Arnaldssyni.
Þeir félagar urðu á vegi DV á
Drottningarbrautinni á Akureyri
um helgina þar sem þeir vom á
hlaupum frá Kjarnaskógi að sund-
laug bæjarins en í Kjarnaskógi
höfðu þeir verið að ræða það að
hætta við að hætta sem dómarar í
handbolta.
„Öll okkar áform miðast við að
vera í þessu fjögur ár til viðbótar
með stefnuna á Ólympíuleikana í
Sydney árið 2000. Við erum ekkert
að horfa til annarra móta eins og
HM því við vitum að við eram þar
inni,“ sagði Stefán. Klíkuskapurinn
sem varð til þess að þeir félagar
fengu ekki dómarastörf á leikunum
í Atlanta varð til þess að þeir hugð-
ust leggja flauturnar á hilluna enda
mun slakari og óreyndari dómarar
teknir fram yfir þá.
Það sem hefur breyst er ekki síst
það að Kjartan Steinbach hefur ver-
ið kjörinn formaður dómaranefndar
Alþjóða handknattleikssambands-
ins og getur væntanlega tryggt það
sem slíkur að þeir félagar njóti
sannmælis meðan hann gegnir því
starfi. „Það að formaður nefndar-
innar talar sama tungumál og við
ætti a.m.k. að gefa okkur sann-
gjarna möguleika á að komast á
Ólympíuleikana árið 2000. Við höf-
um prófað allt annað sem hægt er
að prófa í dómaramálum og Ólymp-
íuleikar eru draumurinn sem okkur
dreymir um,“ sögðu þeir félagar.
Þeir tóku að vísu fram að þeir
ættu eftir að „hnýta örfáa lausa
enda“ áður en endanleg ákvörðun
lægi fyrir en telja má fullvíst að þeir
haldi áfram með flauturnar sínar.
Það ættu að vera góð tíðindi fyrir ís-
lenskan handknattleik jafnt sem al-
þjóðlegan, þótt klíkuskapurinn sem
viðgengst innan IHF hafi útilokað
þá frá dómgæslu á Ólympíuleikum
til þessa.
-gk
Dómararnir Rögnvald Erlingsson og Stefán Arnaldsson á hlaupum á Drottningarbrautinni á Akureyri um helgina.
DV-mynd gk
íslendingar skammt undan Markamet í Eyjum - þegar Smástund skoraöi 31 mark
DV, Atlanta Nýtt markamet i deildakeppni íslandsmótsins í knattspyrnu var sett í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Smástund sigraði þá Skautafélag Reykjavíkur með ótrúlegum mun í 4. deildinni, 31-1. Óðinn Sæbjörnsson skoraði 8 mörk í leiknum og Rúnar Vöggsson 6. Leikmenn Skautafélagsins mættu aðeins 10 til Eyja og snemma leiks meiddist einn þeirra þannig að þeir léku níu mestallan leikinn. Annars hefur liðinu ekki gengið sem best í sumar og í 9 leikjum hefur liðið skorað 5 mörk en fengið á sig 108. -VS
Enginn af íslensku íþróttamönnunum eða fararstjórunum urðu vitni að sprengingunni í Ólympíugarðinum að- faranótt laugardagsins. Samúel Örn Erlingsson íþróttafréttamaður var hins vegar á göngu, skammt frá. Hópur íslendinga var á ferð um garðinn um 20 mínútum áður. íslenska sundfólkið var þá í garðinum ásamt Elsu Nielsen badmintonkonu, Rúnari Alexanderssyni fimleika- manni, Klaus-Júrgen Ohk sundþjálfara og fréttaritara DV. Iþróttafólkið fór inn í Global Village, nokkurs konar „Kringlu" sem er í 50 metra fjarlægð frá garðinum, en tveir þeir síðarnefndu stigu inn í járnbrautarlest og á hvorugum staðnum heyrðist hvellurinn þótt fjarlægðin væri ekki mikil. -MT