Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996
9
Útlönd
Bresk samtök fengu dómsúrskurö gegn eyðingu heilbrigðs tvíburafósturs:
Fóstrinu löngu eytt
þegar bannið fékkst
Mikil deila um hvort bresk kona
fengi að láta eyða öðru af tveimur
heilbrigðum tvíburafóstrum, sem
hún bar undir belti, tók óvænta
stefhu í gær þegar upplýst var að
eyðing fóstursins hefði þegar átt sér
stað. Konan, 28 ára gömul, hafði
sagt lækni sínum að vegna að-
stæðna sinna gæti hún átt eitt bam
í viðbót viö það sem hún átti fyrir
en alls ekki tvö.
Breska dagblaðið The Sunday Ex-
press birti frétt um mál konunnar á
sunnudag. Þar sagði frá konu, sem
væri komin 16 vikur á leið, bæri
heilbrigð tvíburafóstur undir belti
en sæi engu að síður ekki fram á að
geta átt tvíbura. í kjölfarið spruttu
harðar deilur um réttmæti þess að
konan fengi sínu framgengt. Efnt
var til fjársöfnunar fyrir konuna til
að hún gæti átt bæði bömin og safn-
aðist tæp hálf milljón króna.
Þegar útlit var fyrir að eyðing ann-
ars fóstursins færi fram urðu samtök
gegn fóstureyðingum sér úti um
dómsúrskurð þar sem fóstureyðingin
var bönnuð um sinn. Ætluðu samtök-
in þannig að fá ráörúm til að efla bar-
áttirna gegn fóstureyðingunni. Yfir-
lýsing frá spítalanum þess efnis að
eyðing fóstursins hefði þegar farið
fram kom því eins og köld vatnsgusa
framan í mótmælendur. Talsmaður
spítalans vildi ekki tjá sig um hve-
nær fóstrinu hefði verið eytt en sam-
kvæmt fréttum blaða gat það hafa
verið gert fyrir fjórum vikum.
Talsmaður samtakanna gegn fóst-
ureyðingum, sem eru á móti slíkum
aðgerðum nema líf móðurinnar sé í
verulegri hættu, sagði að samtökin
mundu halda sínu striki og fara
með málið fyrir hæstarétt til aö
árétta að bresku fóstureyðingarlög-
in frá 1967 þyrftu endurbóta við.
Sagði hann að mál þetta hefði vakið
upp umræðu um fóstureyðingu sem
lausn við félagslegum vandamálum
en það sé fjarri hugmyndum þeirra
sem samþykktu lögin á sínum tíma.
„Félagsleg vandamál kalla á félags-
legar lausnir, ekki drápsaðgerðir,"
sagði talsmaðurinn.
Sértæk fóstureyðing hefur marg-
sinnis verið gerð í Bretlandi og þá
þegar glasafrjóvgun hefur leitt til
fjölbura og þegar í ljós hefur komið
að eitt eða fleiri fóstur eru ekki heil-
brigð. Reuter
Fyrirsætan Christy Turlington er hér viöstödd opnun veitingastaöarins
London Fashion Café sem var opnaður í London í gær. Sams konar tísku-
kaffihús hafa verið opnuð í fleiri borgum heims en þau á Christy í félagi við
starfssystur sínar, þær Claudiu Schiffer, Naomi Campbell og Elle McPher-
son, og framkvæmdamanninn Tommaso Buti. Símamynd Reuter
Stríðsglæparéttarhöld í Haag:
Verðir nauðguðu
tólf ára stúlku
Múslímskur læknir sagði við
stríðsglæparéttarhöldin í Haag i
gær að serbneskir fangaverðir í
fangabúðum í norðvesturhluta Bos-
níu hefðu ítrekað nauðgað ungum
stúlkum allt niður í tólf ára aldur.
Voðaverkin hefðu verið hluti áætl-
unar um að rústa siðferðiskennd
múslímskra fanga.
„Fangamir gátu réttlætt rán og
þjófnaði en þegar nauðganimar hóf-
ust misstu þeir alla von,“ sagði
læknirinn við réttarhöldin í máli
Bosníuserbans Dusans Tadics.
Hann er ákærður fýrir að hafa
myrt, pyntað og nauðgað múslímum
meðan á þjóðemishreinsunum
Serba stóð í norðvesturhluta Bosníu
1992. Tadic, sem er karatekennari,
kráareigandi og faðir tveggja
stúlkna, neitar öllum ásökunum.
Honum er gefið að sök að hafa tekið
þátt í pyntingum og hópnauðgunum
Priebke berst
gegn framsali
Forseti
Sýrlands
til Egypta-
lands
Hafez al-Assad, forseti Sýr-
lands, flýgur í dag til Egypta-
lands þar sem hann mun ræða
við Hosni Mubarak forseta um
tilraunir ísraela til þess að
koma Sýrlandi á ný inn í friðar-
viðræðumar í Miðausturlönd-
um. Embættismenn í Egypta-
landi hafa skýrt frá því að rætt
verði um tilboð frá Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra
ísraels, þess efhis að ísrael dragi
til baka herlið sitt frá Líbanon ef
það leiði til friðarsamninga við
Sýrlendinga.
„Það er nauðsynlegt á þessari
stundu að meta friðarsamkomu-
lagið því aðstæður breytast
hratt,“ sagði ónefhdur egypskur
embættismaður í gær. Friðar-
viðræður Sýrlendinga og ísraela
hafa legið niðri síðan í mars.
Samkvæmt heimildum banda-
ríska utanríkisráðuneytisins
em báðar þjóðimar reiðubúnar
að heQa viðræður aftur.
Reuter
Erich Priebke, fyrmrn meðlimur
hinna illræmda SS-sveita nasista,
sem ekki var dæmdur til refsingar
þrátt fyrir sakfellingu fyrir stríðs-
glæpi í ítölskum rétti á fimmtudag-
inn, sagði í gær að hann myndi berj-
ast hart gegn því að verða framseld-
ur til Þýskalands.
ítalskur herréttur kvað upp þann
dóm á fimmtudaginn aö glæpir Pri-
ebke, sem er áttatíu og þriggja ára,
væra fymdir og því var hann látinn
laus strax eftir dóminn. Hann var
svo handtekinn aftur átta timum
seinna og nú reyna Þjóðverjar að fá
hann framseldan svo að þeir geti
réttað yfir honum fyrir stríðsglæpi.
Það er Tommaso Fighuzzi dómari
sem mun ákveða hvort Priebke
verður framseldur. Við vitnaleiðsl-
ur í gær var Priebke spurður hvort
hann myndi samþykkja aö verða
framseldur til Þýskalands en hann
neitaði. Lögfræðingur Priebke lagði
í morgun fram kröfu um það í áfrýj-
MMMém
med potti
Erich Priebke
unarrétti að hinn fyrrum nasisti
yrði látinn laus hið fyrsta. Reuter
BHdshð)aa20-112Raykjavlk-SlmiS871410
kvenna og stúlkna og að hafa myrt
yfir 30 fanga í Tmopolie-fangabúð-
unum.
Fyrmefndur læknir segist hafa
komið upp bráðabirgðasjúkraskýli i
fangabúðunum og man sérstaklega
eftir 12 ára stúlku sem hann með-
höndlaði eftir nauðganir.
„Ég sá þar sem hún hnipraði sig
saman úti í homi og virtist ekki
taka eftir neinu í umhverfi sínu,“
sagði læknirinn og bætti við að
hann hefði einnig hjálpað 19 ára
stúlku sem fékk alvarlegar sýkingar
eftir hópnauðgun.
Tadic neitar staðfastlega öllum
ásökunum og segir vitnin fara
mannavillt. Málareksturinn gegn
Tadic hefur staðið í þrjá mánuði og
á þeim tíma hafa um 50 vitni verið
kölluð til. Búist er við að verjendur
hefii aö kalla vitni fyrir í septem-
ber. Reuter
Sumartilboð á byggingarefni
Gagnvarið timbur
22x95, kr. 90 stgr. 28x95, kr. 110 stgr.
95x95 og 98x98, kr. 375 stgr.
90x90, kr. 315 stgr.
22x35, 22x45, 35x45, 45x95 o.m.fl. stærðir.
Verð ótrúlega hagstætt.
Spónaplötur!
12 mm, stærð 120x253,104 pl. í búnti.
Verð pl. 800 stgr.
Fræstar veggjaplötur, 59x253,12 mm.
Verð 500-600 eftir magnkaupum.
Perma-Dri
utanhússmálning
20 ára ending á íslandi
Pílorar!
Eigum til tvær gerðir 80 cm
kantfræstra pílora, ásamt staurum,
langböndum og handlistum.
Gluggaefni:
Mjög hagstætt verð
Krossviður
margar tegundir
Utanhússklæðning!
Bæði gagnv. og ekki.
Bandsöguð klæðning, 17x120
Kúpt klæðning, 22x120
Bjálkaklæðning, 28x120
Verðið er það hagstæðasta sem þekkist.
Mótatimbur - þakefni
1x6” í búntum. Verð pr. m 70,40 stgr.
2x4” - 2x9”, lengdir allt að 6,9 m.
Mjög hagstætt verð.
Gori fúavörn
margir litir - góð ending
Hjá okkur er verðiö
svo hagstsett
V/sa/Euro
12/36 rnánuöir
SMIÐSBUÐ
Smiðsbúð 8 og 12, Garðabæ
S. 565-6300 F. 565-6306