Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 Siö hæða Brúarfoss 4Hveran u - þó ekki margir í einu Á sumrin er oft fallegt útsýnið yfir Reykjavíkur- og Sundahöfn þeg- ar erlend skemmtiferðaskip, sum gríðalega stór, liggja á ytri höfninni eða leggjast jafnvel að landi. íslensk skemmtiferðaskip hafa hins vegar ekki verið í boði síðan Gullfoss og Hekla voru og hétu á fyrri hluta átt- unda áratugarins. íslendingum gefst samt kostur á að sigla utan með ís- lensku skipi þótt ekki sé það sér- hannað farþegaskip. Eimskipafélag- ið hefur nokkuð lengi boðið upp á káetur í flutningaskipum sínum fyr- ir þá sem vilja sigla til Evrópu. Brúarfoss hinn fjórði I júní síðastliðnum bættist nýtt skip í flota Eimskips, Brúarfoss, og tók það við af samnefndu skipi en siglir þó aðra leið. Hið nýja skip er fjórði Brúarfoss Eimskips. Sá fyrsti kom til landsins 1926, annað skipið tók við 1958 og síðasta skipið þjón- aði fyrirtækinu frá 1988 þar til í júní sl. Tilverunni lék hugur á að kynn- ast Brúarfossi og fór um borð og lit- aðist um undir leiðsögn Finnboga Aðalsteinssonar bryta og Rafns Sig- urðssonar 1. stýrimanns. Skipstjóri á Brúarfossi er Engilbert Engil- bertsson. Sjö áfangastaðir „Skipið siglir tveggja vikna hring, á Færeyjar, Hamborg, Árhús, Kaupmannahöfn, Helsinki, Gauta- borg, Friðriksstað í Noregi, Færeyj- ar og heim,“ segir Finnbogi og nefn- ir Hamborg sem sína uppáhalds- höfn. Rafh bætir við að nýja skipið sigli töluvert hraðar en það eldra. Það muni mörgum klukkutímum bara á leiðinni frá síðustu höfn og til Reykjavíkur. Fimmtán manna áhöfn er um borð, þar af sjö yfir- menn. „í skipinu eru sex káetur fyrir tólf farþega. Við megum ekki taka fleiri því þá þarf að skrá skipiö sem farþegaskip," segir Rafn. Að sögn Finnboga eru þetta jafn margar ká- etur og voru I fyrri Brúarfossi en í þessu skipi séu þær mun skemmti- legri og betur búnar, allcU' með sjón- varpi og ísskáp. Sérbaðherbergi er inn af hverri káetu og kom það blaðamanni á óvart hversu stór þau voru. Fyrir farþegana er einnig setusofa með sjónvarpi. Borðstofa fyrir farþegana er sniðin fyrir há- marksfjölda þeirra, tólf manns. Farþegarnir sjóveikir? „Það var fullbókað hjá okkur í síðustu ferö frá Hamborg og heim og mér skilst að vel sé bók- að fram í tímann," segir Finn- bogi. Hann segir alls konar fólk kjósa þennan ferðamáta og tekur sem dæmi hjón með barn og bíl sem fari til Hamborg- ar, keyri Fulit fæði er innifaliö í fargjaldinu og sérmatsalur er fyrir far- þegana. Finnbogi (t.v.) og Rafn í farþegaklefa fyrir tvo einstaklinga. DV-myndir Pjetur Þeir veröa ekki lengi aö koma sér í gott form meö tröppurnar áttatíu sem mynda frekar brattan stiga. Hjá Úrval-Út- sýn fást Verúiö um Evrópu og komi í skipið í Kaup- mannahöfn að einhverjum tíma liðnum. Einnig er mögulegt að sigla utan með eða án bíls og fljúga heim. „Ef fólk hefur tíma og vill njóta þess að eyða hluta af fríinu sínu í rólegheitum þá er þetta kjörið,“ segir Finn- bogi. Hann segir skipið mjög þægi- legt í siglingu og land- krabbarn- mannahöfn kostar kr. 34.300, en frá Hamborg kr. 54.800. Ef bíllinn er tekinn með kostar það 22.500 hvora leið. Ferð mennt ekki veikir þegar á sjó er komið. Sjóveikinnar verði helst vart ef skipið lendir í slæmu veðri í upp- hafi ferðarinnar. „En skipið hreyfist varla, þetta er aðeins mjúkt vagg svona rétt til að láta menn vita að þeir séu á sjó. Áttatíu tröppur í vinnuna Brúin er uppi á efstu og sjöundu hæð. Tveir stýrimenn er um borð en aöeins er einn í einu uppi í brú. Á kvöldin og næturnar er einn há- seti með stýrimanni á vakt. Rafn segir að þær áttatiu tröppur sem skilji að brúna og þilfarið leggist ekki illa í mannskapinn. „Maður getur þurft að hlaupa þær nokkrum sinnum yfir daginn og það getur orðið lýjandi en maður verður bara „slank“,“ sagði Rafn að lokum og taldi sig alveg mega við því. upplýsingar um fargjöld. Eingöngu er selt í klefana sem slika og eru þeir allir tveggja manna. Það kostar t.d. fyrir manninn Rvík-Hamborg kr. 27.400. Heimleiðin frá Kaup- til Þórshafnar í Færeyjum, sem var- ir frá fimmtudagskvöldi til laugar- dags, kostar kr. 13.700 á mann. Alltaf er innifalið fullt fæði. -saa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.