Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1996, Side 3
MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 1996
23
Iþróttir
Sigurður sigurvegari í
fyrsfa heimsbikarmótinu
- á þriðja þúsund áhorfendur fylgdust með tilþrifunum í Jósepsdal
Fyrsta heimsbikarmót í torfæru,
Sónax-torfæran, var haldið í Jóseps-
dal á laugardaginn. Mikifl fjöldi
áhorfenda, um 2200 manns, fylgdist
með keppninni sem var að mörgu
leyti ágæt en dróst alltof mikið á
langinn. Alltof langan tíma tók að
hreinsa brautir og gera þær klárar
fyrir næsta bíl, auk þess sem tveir
bílar þurftu vegna mistaka að keyra
sömu braut tvisvar sinnum. Gott
veður bjargaði miklu og þeir sem
enntust allan tímann sáu nokkur
góð tilþrif, sérstaklega í tímabraut-
inni.
Þrír erlendir bílar meö í
keppninni
Þrír erlendir bílar tóku þátt í
keppninni, einn götubíll frá Noregi
og tveir sænskir sérútbúnir. Þeir
voru meðal neðstu keppenda.
Margir biðu spenntir eftir þvi að
sjá hvemig ömmunni í torfærunni,
Sæunni Lúðviksdóttur, gengi. Sæ-
unn keppir í heimsbikarmótinu á
Svala sem eiginmaður hennar,
Gunnar Egilsson, ekur í íslands-
meistarakeppninni. Þau hjónin
eignuðust bamabarn í sumar og er
Sæunn fyrsta amman sem keppir i
torfæra. Sæunn keyrði ágætlega í
keppninni og endaði í sjöunda sæti.
Eftir þrjár brautir var Gísli G.
Jónsson á Makkanum með forustu.
Þór Þormar Pálsson á Pizza 67 var á
hæla honum og í næstu braut, sem
var löng og há, með frákasti efst,
lagði Þór heldur mikið undir, fór
hæst allra, náði Gísla að stigum, en
tók fjórfalda harða veltu á niðurleið
og var bíllinn óökufær eftir það. 1
fimmtu og næstsíðustu brautinni
náði Sigurður Axelsson á Fríðu
Grace í 300 stig og Einar Gunnlaugs-
son á Norðdekk-drekanum í 290,
meðan aðrir nældu í mest 200 stig,
og voru þeir þá komnir í 1. og 3.
sæti. Sigurður keyrði tímabrautina
mjög vel og Gísli, sem var strax á
eftir honum, þurfti að ná betri tíma
en hann og fara refsilaust til að
tryggja sér sigur.
Gísli keyrði meistaralega vel
Gísli keyrði alveg meistaralega
vel, var nokkuð oft á tveimur hjól-
um, nánast velti og náði bestum
tíma en tók niður eitt dekk og vann
Sigurður því þetta fyrsta heimsbik-
airnót í flokki útbúinna.
í flokki götubíla var slagurinn
um fyrsta sætið milli þeirra Gunn-
ars Guðmundssonar á Rapparanum
og Gunnars Pálma Pétursson á Ford
‘42. í fyrstu þremur brautunum var
Gunnar Pálmi með 10 stiga forustu
en í 4. braut náði Gunnar Guð-
munds forastu. í fimmtu braut náði
Gunnar Pálmi aftur forastu en velti
einnig, en hann er einn af þeim sem
velta mjög sjaldan. Gunnar Pálmi
náði svo bestum árangri i tímabraut
og gulltryggði þannig sigur sinn.
Úrslit. Sérútbúnir: 1. Sigurður
Axelsson, 1260 stig. 2. Gísli G.
Jónss., 1250 stig, 3. Einar Gimn-
laugsson, 1140 stig. Tilþrif fékk
Gísli G. Jóns
Götubílar. 1. Gunnar P. Péturss.
1320 stig. 2. Gunnar Guðmundss
1260 stig. 3. Rafn A. Guðjónss. 1110.
Tilþrif fékk Thorbjöm Johanson.
-Ása Jóa
Gunnar Pálmi Pétursson á Ford ‘42 sigraði í flokki götubíla á fyrsta heimsbikarmótinu í torfæru sem haldiö var í Jósepsdal á laugardaginn. Hér veltir Gunnar
Pálmi í næstsíöustu braut en nánast gulltryggir sér sigurinn meö því aö fara hæst allra. DV-mynd Ása Jóa
Náðum
okkur ekki
á strik
„Viö náðum okkur ekki á strik
í þessum leik og þaö var mikill
munur á leik okkur frá þvf gegn
Hollendingum,” sagði Sigrún
Óttarsdóttir, leikmaður fslenska
landsliðsins í knattspyrnu, eftir
leikinn gegn Rússum.
„Andlegur undirbúningur fyrir
leikinn var í góðu lagi en þegar
út í alvöruna var komið gekk
ekkert upp. Við gerðum okkur
sekar um alltof marga sendinga-
feila og mistök gegn liði eins og
því rússneska era dýr. Þær leika
mjög fast og það var undarlegt
aö sjá ekki einu sinni gult spjald
þegar sparkað var í höfuðið á
Auði,“ sagði Sigrún.
Þess má geta að dómari leiksins
kom frá Hvíta-Rússlandi.
Mikill sóðaskapur
íslensku stúlkumar eru ekki
vanar hótelum eins og því sem
þær gistu á í Moskvu. Mikill
sóðaskapur var þar og auk
þeirra gistu margir kakkalakkar
á flestum herbergjum. Þá kvört-
uðu stúlkumar undan leikvellin-
um sem var harður og af þeim
sökum erfitt að hemja boltann.
Níu Blikar
Nýtt met var slegið í leiknum
gegn Rússum því alls voru niu
leikmenn frá Breiðabliki inni á í
einu en slíkt hefur ekki gerst
áður í neinu íslensku landsliði.
Sara Smart, leikmaður KR, var í
íslenska landsliðshópnum í
fyrsta sinn og hún átti að vera í
byrjunarliði. Á æfingu fyrir
leikinn tognaði hún á ökkla og
gat því ekki tekið þátt í sínum
fyrsta landsleik.
i99izina«
ÍSLANDSMÓTIÐ
MIZUNO-DEILDIN
11. UMFERÐ
Þriðjudagur 20. ágúst kl. 19
VARMÁRVÖLLUR
Afturelding - ÍBV
KR-VÖLLUR
KR - Breiðablik
AKUREYRARVÖLLUR
ÍBA - Valur
STJÖRNUVÖLLUR
Stjarnan - ÍA
+ Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu:
Islensku stúlkurnar
mættu ofjörlum sínum
- leika tvo leiki gegn Þjóðverjum í haust um sæti í úrslitunum
íslenska kvennalandsliðið í
knattspymu mætti ofjörlum sínum
þegar það lék gegn Rússum í
Moskvu á laugardag og tapaði 4-0.
Leikurinn var sá síðasti í riðla-
keppninni og með sigri hefði ís-
lenska liðið tryggt sér sæti í 8 liða
úrslitum Evrópukeppninnar.
Leikurinn var vart hafinn þegar
Rússar höfðu skorað fyrsta markiö
með fostu skoti utan vítateigs.
Markið var mikið áfall fyrir ís-
lensku stúlkumar og á 35. mínútu
varð'íslenska liðið enn fyrir áfalli
þegai- sparkað var I höfuö Auðar
Skúladóttur. Hún var borin af
leikvelli og flutt á nærliggjandi
sjúkrahús þar sem sauma þurfti 4
spor í vör hennar.
Rússamir héldu áfram að sækja
og um miðjan síðari hálfleik skor-
uðu þær tvö mörk með um minútu
millibili og fjórða markið kom
undir iok leiksins.
„Úrslit leiksins era mikil von-
brigði fyrir okkur. Við áttum von
á því fyrir leikinn að hann myndi
verða okkur erfiður en við vonuð-
umst til þess að halda honum í
jámum og ná að vinna okkur inn í
hann. Markið sem kom á 2. mín-
útu sló okkur hins vegar alveg út
af laginu. Við þurftum að taka
áhættu í þessum leik því með sigri
hefðum við tryggt okkur áfram.
En gæfan var ekki með okkur í
leiknum og við þurftum á henni að
halda,“ sagði Kristinn Bjömsson
landsliðsþjálfari.
Katrín Jónsdóttir og Helga Ósk
Hannesdóttir léku best í liði ís-
lands.
Stúlkurnar leika um aukasæti í
úrslitunum gegn Þjóðverjum nú í
haust, heima og heiman.
Lið fslands: Sigfríður Sophusd., Helga
Ó. Hannesd., Guðrún Sæmundsd., Sig-
rún Óttarsd., G. Jóna Kristjánsd. (Erla
Hendriksd.), Auður Skúlad. (Inga D.
Magnúsd.), Vanda Sigurgeirsd., Mar-
grét Ólafsd., Ragna Lóa Stefánsd., Ást-
hildur Helgad. og Katrín Jónsd. -ih
LIVERPOOL-KLÚBBURINN Á ÍSLANDI
OG
LIVERPOOL - ARSENAL
á breiötjaldi í Ölveri í kvöld kl. 19.00
Félagsmenn: Ýmsir afsláttaraöilar verða kynntir
og verö á veitingum kemur á óvart.
Skráning í klúbbinn í Ölveri og í síma 881-3215.