Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 23 DV íþróttir Jóhann Samúelsson, handknattleiksmaður með Bjerringbro i Danmörku: Frá fram að jólum Lífið hefur ekki verið dans á rósum hjá Jó- hanni Samúelssyni eftir að hann hætti að leika með Aftureldingu og fluttist til Danmerkur og gekk til liðs við 1. deildar lið Bjerringbro KFUM í dönsku 1. deildinni. „Á fyrstu æfingunum kom i ljós að ég dreif varla á markið., Ég lék meiddur allt tímabilið með Aftureldingu í fyrra og var alltaf sprautaður. Nú er komið í ljós að lið- band í öxl var slitið auk þess sem taka þarf af beini sem angrar axlar- liðinn. Það er hrikalegt að lenda í þessu svona i upphafi en ég þarf að fara í aðgerð á mánudag (í dag),“ sagði Jóhann í samtali við DV í um helg- ina. „Það eru tvær vikur í að ég geti farið að æfa og ég keppi varla með liðinu fyrr en undir jólin. Auð- vitað er þetta mjög svekkjandi, ekki sist vegna þess að ég hélt, eft- ir samtöl við lækni á ís- landi, að þetta væru alls ekki alvarleg meiðsli. Annað hefur nú komið í ljós og þessari niðurstöðu verður maður bara að taka,“ sagði Jóhann. -SK Jóhann Samúelsson verður frá keppni í danska handboltanum fram að jólum. Nadal ekki til United Mannheim í basli Ekkert verður af þvi að spænski landsliðsmaðurinn Miguel Nadal gangi til liðs við Englandsmeistara Manchester United. Bobby Robson, þjálfari Barcelona, sagði í gær að hann myndi ekki seija Nadal eða lána til United. „Nadal er fastur maður í byrjunarliðinu hjá mér og hann er einfaldlega ekki til sölu. Þaö þýuðir heldur ekkert fyrir forráðamenn United að falast eftir því að fá hann að láni. Þetta er ekki inni í myndinni," sagði Robson. Martin Edwards, stjóm- arformaður United, sagði í gær að kaupverðið væri ekki lengur vandamál og beðiö væri eftir símtal frá Spáni. Það virðist hins veg- ar ljóst að varnarjaxlinn Nadal verður áfram hjá Barcelona. -SK Það gengur hvorki né rekur hjá Bjarka Gunnlaugssyni og félögum hans í þýska 1. deildar liðinu Mannheim. Mannheim lék um helgina gegn Stuttgart Kickers og mátti þola tap. í kjölfarið er Mannheim nú í neðsta sæti 1. deildar með aðeins þrjú stig. Líkur eru miklar á því að þjálfari Mann- heim verði látinn taka pokann sinn á næstu dögum. Forseti félagsins átti í gær viðræður við þjálfarann og búist er við afsögn mjög fljótlega. Helgi skoraði ekki í 3. deildinni Tebe Berlín, lið Helga Sigurðssonar, gerði 1-1 jafntefli við FC Berlín i 3. deildinni þýsku um helgina og var Helgi ekki á skot- skónum í leiknum. -SK Jón Arnar Magnússon náöi ágætum árangri í tugþrautinni í Frakklandi um helgina og fyrri dagurinn var sérstaklega góður hjá þessum snjallasta íþróttamanni sem íslendingar hafa átt. Símamynd Reuter „Núna er ég ekki sáttur" - sagði Jón Arnar Magnússon „Nú verð ég að segja eins og er að ég er mjög ósáttur. Ég horfði á þetta ganga mér úr greipum frá og með kringlukastinu sem var mjög lélegt hjá mér. Kringlan fór bara ekki lengra. Ég veit ekki hvað gerðist og það er ekki til nein afsökun fyrir þessari frammistöðu," sagði Jón Amar Magnús- son, tugþrautarmaður, í samtali við DV í gær. Jón Amar varð 8. á alþjóðlegu tugþrautar- móti í Frakklandi um helgina og var vem- lega óheppinn í nokkrum greinum. Litlu mimaði að Jón Amar setti Norður- landamet og hann var mjög nálægt því að bæta árangur sinn verulega: „Ég átti að fá 200 stig til viðbótar í kringlukastinu og 150 stig í 1500 metra hlaupinu. Þá var ég verulega óheppinn í langstökkinu. Þar stökk ég 7,34 metra en gerði 7,90 metra kast hárfint ógilt. Þar mun- aði aðeins millímetra að ég fengi um 120 stig til viðbótar. Ég er ekki vanur að tala um óheppni en að þessu sinni er fúll ástæða tU þess. Mesta áfaUið var hins vegar í kringlu- kastinu. Ég var alveg eins og druUa i hringnum og þetta er algerlega óafsakanlegt. Það er ekki nokkur leið að finna neina af- sökun fyrir þessari frammistöðu. Hins vegar era í þessu ljós- ir punktar líka. Ég bætti árangur minn í kúluvarpinu og í heUd er ég ánægður með fyrri daginn," sagði Jón Amar. Fyrstur eftir fyrri daginn Hann hafði forystu eftir fyrri dag keppn- innar og var þá með 4.425 stig. Jón hljóp 100 metra á 10,80 sek- úndum, stökk 7,34 metra í langstökki, varpaði kúlu 15,88 metra, stökk 2,04 metra í hástökki og hljóp 400 metrana á 47,39 sekúndum. Fyrsta greinin síð- ari keppnisdaginn var 110 metra grindahlaup og þar fékk Jón tim- ann 14,30 sekúndur. Þá kastaði hann 38 metra í kringlukastinu marg- nefnda og spjótið flaug 61,08 metra. í stangar- stökki vippaði Jón sér yfir 4,85 metra og hann hljóp 1500 metrana á 4:51,49 mín- útum. Samtals fékk hann 8.217 stig en fékk 8.274 á Ólympíuleikun- um í Atlanta. Hamalainen vann Eduard Hamalainen frá Hvíta-Rússlandi sigraði í þrautinni og hlaut 8.478 stig og Tékkinn Tomas Dvorak varð annar með 8.456 stig. Allir bestu tugþrautarmenn heims tóku þátt í þrautinni að þeim O’Brien og Buseman undanskUdum. „Vildum fá meira út úr þessu“ „Þetta gekk vonum framar fyrri daginn og þá bætti Jón Arnar ár- angur sinn um 40 stig,“ sagði Gísli Sig- urðsson, þjáifari Jóns Amars, í samtali við . „Byrjunin síðari daginn var sæmUeg en síðan kom áfaUið í kringlukastinu. Stang- arstökkið var allt í lagi en hann þarf að fara að bæta árangur sinn í þeirri grein. 61,08 metrar í spjóti er í lagi en hann á mun meira inni í þeirri grein. Ég tala eigin- lega aldrei um óheppni en ég get ekki orða bundist vegna langstökksins. Þar var Jón Arnar verulega óheppinn. Við hefðum viljað fá meira út úr þessari þraut en verð- um að bíða betri tíma og sýna þolinmæði. Hafi einhver verið í vafa um hæfileika Jóns fyrir þessa þraut ætti að vera endanlega ljóst nú að hæfileik- amir em tU staðar tU að gera mun betur,“ sagði Gísli. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.