Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1996, Blaðsíða 7
MANUDAGUR 16. SEPTEMBER 1996 27 DV Fram upp í 1. deild 1- 0 Hólinsteinn Jónasson (38.) 2- 0 Þorbjörn Atli Sveinsson (44.) Framarar endurheimtu sæti sitt i 1. deild eftir eins árs veru í 2. deild þegar liðið sigraði Leikni, 2-6, á laugardaginn var. Framarar gerðu gott betur þvi þeir sigruðu einnig í deildinni, þótt ein umferð sé eftir, því Skallagrimm' og Þróttur náðu aðeins jafntefli í sínum leikjum. Segja má að viöureign Fram og Leiknis hafi verið leikur hinna glötuðu marktækifæra. Framara sköpuðu sér aragrúa tækifæra en voru ótrúlegir klaufar við mark andstæðingins. Tvö mörk á síðustu mínútum fyrri hálfleiks nægði Framlið- inu. Fyrra markið var einstak- lingsframtak Hólmsteins Jónas- sonar en Þorbjörn Atli gerði síð- ara markið úr vítaspyrnu eftir að hafa verið felldur innan víta- teigs. Maður leiksins: Hólmsteinn Jónasson, Fram. -JKS Þróttur jafnaði 1-0 Kristján Brooks (14.) 1- 1 Heiðar Sigurjónsson (51.) 2- 1 Kristján Brooks (65.) 2-2 Sigurður Hallvarðsson (88.) „Við spiluðum þetta nákvæm- lega eins og sett var upp og ég er því sáttur við leik minna manna. Ég er hins vegar mjög ósáttur við dómgæsluna," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍR, eftir jafnteflið gegn Þrótti í Breiðholt- inu á laugardag. Enn einu sinni skipti Sigurð- ur Hallvarðsson sköpum í leik Þróttar. Hann kom inn á sem varamaður í leikhléi og lagði fljótlega upp jöfhunarmark Heið- ars Sigurjónssonar. Sigurður tryggði Þrótti síðan annað stigið með marki úr vítaspyrnu undir lok leiksins. „Það eru rosaleg vonbrigði að klára þetta ekki sjálfir héma í dag en við verðum bara að vinna síðasta leikinn," sagði Ágúst Hauksson, þjálfari Þróttar. Maður leiksins: Kristján Brooks, ÍR. -ÞG Jafnt í Borgarnesi 0-1 Steinn Gunnarsson (44.) 1-1 Sindri Grétarssqn (79.) Sindri Grétarsson tryggði Skallagrími mikilvægt jöfiiunar- mark gegn KA í Borgarnesi og Skallarnir eiga enn góða mögu- leika á að ná 1. deildar sæti. Það vantaöi herslumuninn á að heimamenn tryggðu sér sig- urinn í mjög spennandi leik. Fyrirtæki í Borgarnesi buöu starfsfólki á leikinn. Lokaleikur Skailagrims verður á Húsavík og með sigri þar getur Skallagrím- ur tryggt sér sæti í 1. deild. Maður leiksins: Sindri Grétars- son, SkaUagrimi. -EP Höröur misnotaði víti 0-1 Davið Ólafsson (70.) FH-ingar tryggðu sér sigur gegn Víkingi í Víkinni með marki Davíðs Ólafssonar. Hörð- ur Magnússon misnotaði víta- spyrnu fyrir FH í leiknum. Maður leiksins: Davíð Ólafsson, FH. -Hson Stórsigur Þórsara 1- 0 Páll Gislason (26.) 2- 0 Hreinn Hringsson (36.) 3- 0 Birgir Þór Karlsson (44.) 4- 0 Birgir Þór Karlsson (56.) 4-1 Hjörtur Hjartarson (59.) Þórsarar voru miklu betri að- ilinn gegn Völsungi og allt ann- að að sjá til liðsins eftir að Dav- íð Þór Garðarsson var rekinn frá liðinu og Zoran Zikic var settur á bekkinn. Maður leiksins: Birgir Þór Karlsson, Þór. -gk Blikastelpurnar ósigrandi í knattspyrnu: „Við hofum lagt okkur allar fram“ - unnu Stjömuna 11-0 og hafa sigrað í öllum mótum ársins Breiðablik sýndi það og sannaði í síðasta leik íslandsmótsins gegn Stjörnunni á föstudag að það á lang- besta kvennalið landsins um þessar mundir. Blikastúlkur hafa sigrað í öllum leikjum sínum á þessu ári og hafa hirt alla titla sem í boði hafa verið. Leikurinn gegn Stjörnunni byrj- aði með flugeldasýningu og svo fór að Blikarnir sigruðu 11-0 eftir að staðan hafði verið 7-0 í hálfleik. Breiðabliksliðið lék einn sinn besta leik i sumar gegn Stjörnunni og innsiglaði með honum glæsilegt tímabil. Varla er veikan bletta að finna á liðinu. Vanda Sigurgeirs- dóttir stjómaði vörninni eins og herforingi og leiddi Stjörnustúlkur hvað eftir annaði í rangstöðugildru. Á miðjunni réðu þær Ásthildur Helgadóttir og Katrín Jónsdóttir ríkjum og í framlínunni voru þær Kristrún Daðadóttir og Stojanka Nikolic mjög ógnandi. Ásthildur skoraði 3 mörk, Sigrán Óttarsdóttir, Inga Dóra Magnúsdótt- ir og Stojanka Nikolic tvö mörk hver og þær Erla Hendriksdóttir og Kristrún L. Daðadóttir sitt markið- hvor. Vona að liðin komi betur undirbúin á næsta ári „Það sem leggur grunninn að þessum frábæra árangri í sumar er að við æfum mjög vel, skipulega og tökum þetta mjög alvarlega. Það er að skila sér núna. Við erum með góða einstaklinga sem mynda mjög sterka liðsheild,“ sagði Ásthildur Helgadóttir. „Ég fer til Bandaríkjanna í há- skólanám í janúar og reikna með þvi að koma aftur í Kópavoginn í maí og leika hér næsta sumar. En ég á von á því að deildin verði jafn- ari næsta ár og vona að hin liðin verði betur undir það mót búin. Við höfum lagt okkur allar fram, eins og á að gera, en hin liðin hafa greini- lega ekki verið nógu dugleg," sagði Ásthildur. Æfingarnar skila sér „Sumarið hefur verið frábært. Við höfum náð að stilla okkur vel saman sem ein heild. Við höfum æft mjög vel og við lékum æfinga- leiki frá því í byrjun febráar í hverri einustu viku og þetta er að skila sér. Mörg önnur lið byrjuðu ekki að spila fyrr en i deildarbik- arnum í apríl og við komum bara betur undirbúnar heldur en hin lið- in. Það verða einhverjar breytingar á liðinu. Vanda, Margrét Sigurðar og Margrét Ólafs verða ekki með en þetta verður bara meiri ögrun fyrir okkur að takast á við,“ sagði Sigrún Óttarsdóttir, fyrirliði Breiðabliks. „Við höfum gríðarlegan metnað og sigurvilja og erum tilbúnar til að leggja á okkur það sem þarf. Við erum búnar að æfa og stefna að þessu og höfum bætt okkur með hverju árinu. Þetta er markviss uppbygging," sagði Vanda Sigur- geirsdóttir, þjálfari og leikmaður Breiðabliks, sem hefur náð frábær- um árangri í sumar með liðið sitt. Hún hyggst reyna fyrir sér á öðrum slóðum á næsta ári en aðspurð sagði hún að það væri óráðið hvert hún færi. „Ég er að hugsa um að hætta núna, á toppnum. Það hefur orðið mikil breyting á fótboltanum frá því ég byrjaði að sparka. Það er meiri snerpa og tækni og einstaklingamir eru mjög jafnir. Þetta lið á eftir að vera á toppnum í mörg ár til viðbót- ar, við eigum svo góða yngri flokka," sagði Margrét Sigurðardótt- ir en hún var að leika sinn síðasta deildarleik. Stórsigur Skagans KR tryggði sér silfrið með 5-0 sigri á ÍBA sem þarf að leika auka- leiki gegn Reyni, Sandgerði, um sæti í 1. deild á næsta ári. Ólöf Helgadóttir 2, Guðrán JónaKrist- jánsdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir og Helena Ólafsdóttir skoruðu mörk KR. ÍA vann Aftureldingu 11-0. Ás- laug Ákadóttir skoraði 6 mörk, Ingi- björg Ólafsdóttir 3 og Magnea Guð- laugsdóttir og Erna Gylfadóttir sitt markið hvor. Leik Vals og ÍBV var frestað vegna ófærðar og hefur verið settur á nk. föstudag, 20. september. -ih *?***£' M' V..JIW- ^ 1. f 'jy t MM. Vanda Sigurgeirsdóttir með Islandsbikarinn. Lið Breiðabliks haföi fáheyrða yfirburði í kvennaknattspyrnunni í sumar og vann öll verðlaun sem í boði voru. DV-mynd Brynjar Gauti jf#- 2. DEILD KARLA Fram 17 11 5 1 54-16 38 Skallagr. 17 10 4 3 30-15 34 Þróttur R. 17 9 6 2 36-21 33 FH 17 7 4 6 26-21 25 KA 17 7 4 6 34-31 25 Þór A. 17 7 4 6 28-29 25 Víkingur R. 17 5 3 9 20-31 18 ÍR 17 5 3 9 20-37 18 Völsungur 17 4 3 10 23-39 15 Leiknir R. 17 1 2 14 17^8 5 Leikir lokaumferðar: Víkingur-Þróttur, Völsungur-Skalla- grlmur, FH-Fram, Leiknir-Þór, KA- ÍR. Þu færd allar upplýsingar um stödu þína í leiknum og stöðu efstu liðanna í síma 904 1015 Verð 39,90 mínútan. íþróttir 3. deild: Allt varð vitlaust í Sandgerði - Reynir í 2. deild Reynir í Sandgerði tryggði sér keppnisrétt í 2. deild á næsta keppnistímabili með öruggum og sanngjörnum sigri á nágrönnum sínum í Víði á laugardag að við- stöddum um 500 áhorfendum. Lokatölur urðu 3-0 fyrir Reyni og þar með tryggði liðið sér ann- að sætið í 3. deild. Reynismenn voru miklu betri í leiknum og barátta leikmanna liðsins alveg stórkostleg. Skotinn Kevin Dochorty skoraði tvívegis á fyrstu 15 mínútunum og staðan í leikhléi var 2-0. Grétar Hjartarson skoraði síö- an mjög mikilvægt mark fyrir Reyni strax í upphafi síðari hálf- leiks og markið var endanlegt rothögg á Víðismenn. Geysilegur íognuður braust út á meðal stuðningsmanna Reynis að leik loknum. -ÆMK/-SK Fjölnir vann HK og slapp við fallið Lið Fjölnis í Grafarvogi gerði sér lítið fyrir og sigraði lið HK um helgina í 3. deild Islands- mótsins í knattspymu. Með sigrinum tókst Fjölni að bjarga sér frá falli í 4. deild. Miklar breytingar urðu á leik- mannahópi liðsins fyrir keppnis- timabilið og Fjölnismenn ekki alltof bjartsýnir á að halda sæti sínu í deildinni. En það tókst og víst er að Fjölnismenn ætla sér stóra hluti næsta sumar. Lokatölur urðu 2-0 en leikur- inn fór fram á heimavelli Fjölnis í Grafarvogi. Úrslit í öðrum leikjum i deild- inni urðu þessi: Grótta-Dalvík..................2-3 Þróttur N-Selfoss..............3-0 Ægir-Höttur....................1-1 3. DEILD KARLA Lokastaðan er þannig i 3. deild: Dalvlk 18 11 4 3 47-32 37 ReynirS. 18 10 4 4 45-26 34 Víöir 18 10 2 6 43-32 32 Þróttur N. 18 8 6 4 39-27 30 HK 18 8 3 7 38-36 27 Selfoss 18 6 6 6 39-46 24 Fjölnir 18 5 3 9 28-39 18 Ægir 18 4 5 9 33-36 17 Höttur 18 3 6 9 2fr47 15 Grótta 18 3 5 10 34-51 14 ÍÞRÓTTADEILD I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.