Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1996, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1996, Side 2
18 MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996 -U"V" tölvur Forritarahópurinn sem þróaði tryggingakerfið sem Navís seldi Lloyd’s tryggingarisanum. Navís hf.: Selur Lloyd's tryggingakerfi - skortur á forrituruni hindrar vöxt ICompuserve tapar Það hefur verið frekar drungalegt um að litast hjá bandaríska Intemetfyrirtækinu Compuserve á þessu ári. Fyrir- tækið býst ekki við því að skila hagnaði fyrr en í lok þessa árs eða í byrjun næsta árs. Stjóm- endur fyrirtækisins segja þó að fyrirtækið hafi skilað hagnaði í 27 ár samfleytt og árið í ár verði engin undartekning. Talið er að áskrifendur að þjónustu Compuserve verði | rúmlega sex miljónir í byrjun næsta árs. Erfiðleikar í rekstri } hafa verið raktir til mikilla fjár- Í festinga, sérstaklega í Banda- f ríkjunum en fyrirtækinu hefur vegnað mjög vel í Evrópu að undanfomu. Til dæmis er búist við að þýskir áskrifendur verði orðnir um 400 þúsund í apríl á I næsta ári en þeir era um 300 þúsund nú. 1 Compaq stærstir Stærsti seljandi miðlara í | heiminum i dag er Compaq jj tölvufyrirtækið. Það seldi átta af hveijum tíu miðlurum sem era búnir Pentium Pro örgjörv- um fjóra fyrstu mánuði þessa I árs. Þetta er niðurstaða mark- . aðsrannsóknarfyrirtækisins I Internation Data Corporation. Tölvumyndavál f frá Casio Casio hefúr sent frá sér tölvu- Imyndavél, QV 100, sem gerir fólki kleift að koma myndum inn á tölvu. Aðalnotendur slíkra myndavéla hafa verið Fasteigna- | salar, bílasalar, tjónamatsmenn, heimasíðuhönnuðir og þeir sem vilja geyma dýrmætar minning- ar á tölvutæku formi. Boðið er upp á venjulega upp- lausn og flnni upplausn. Vélin getur geymt all að 192 myndir í | venjulegri upplausn en 64 | myndir í finni upplausn. Heim- ilistæki munu selja þessa vél en hún verður til sölu á íslandi á p; næsta ári. Nýtt Quicktime fráApple Apple fyrirtækið hefur gefið út nýja útgáfu af QuickTime ; forritinu fyrir Macintosh tölv- ur, QuickTime 2,5. Quicktime er meginforritið sem er notaö á Intemetinu og á geisladiskum | við flutning, klippingu og spil- 1 un á hreyfimyndun og fcjjóði. Talsmenn Apple fyrirtækisins Isegja að stafræn tækni sé að má út mörkin milli hefðbundinna fjöltniðla, kvikmyndagerða- manna, framleiðendur marg- miðlunarefnis og vefsíðuhönn- uða. „Það sem við höfum þurft hingað til er einn staðal fýrir > i alla jpessa hluti og við teljum að ; með nýju útgáfúnni höfúm við ; búið til slíkan staðal“ segir Car- ; los Montava hjá Apple. Um 2/3 allra margmiðlunardiskar eru gerðir á Macintosh tölvur, sama hlutfall tölvutónlistar er gerð á Macintosh og um helmingur i stafrænnar myndvinnslu er gerð g á Macintosh. Hið nýja íslenska hugbúnaðarfyr- irtæki Navis hefur hannað trygg- ingakerfi í upplýsingakerfinu Navision Financials fyrir alþjóðleg- an markað. Breska tryggingafyrir- tækið Ibex at Lloyd’s hefur þegar valið tryggingakerfið fyrir starfsemi sína hér á landi. Það fyrirtæki mun hefja starfsemi sína innan skamms í samstarfi við Félag íslenskra bif- reiðaeiganda og Alþjóðlega miðlun ehf. Kynnt erlendis Navision Financials er skrifað í eigin forritunarumhverfi og það gerir mögulegt að bæta við kerfið. Tryggingakerfi Navís er slík viðbót. Fyrirtækið hefúr staðið að kynning- um á kerfinu úti í Bretlandi og þar hefur það vakið mikla athygli, segir Jón Öm Guðbjartsson, markaðs- stjóri Navís. „Það sem heillar þá sem hafa skoðað tryggingakerfið er að upplýsingar birtast með einföld- um og þægilegum hætti. Forritið er með Windows notendaskil og allar upplýsingar birtast með myndræn- um hætti. Enn fremur býður kerfið upp á mikinn hraða við vinnslu enda birtast aUar upplýsingar sem tengjast hverjmn viðskiptavini mjög hratt,“ segir Jón Öm. Sem dæmi um þetta má nefna að hægt er að skoða myndir af bílatjónum með myndrænum hætti í tryggingakerf- inu frá Navís. „Þetta auðveldar til dæmis mat á tjónum á bifreiðum,” segir Jón Öra enn fremur. Skortur á forriturum Hann segir að skortur á forritur- um hamli verulega vexti fyrirtækis- ins. „í raun er það þannig að þessi skortur veldur því að við getum ekki nýtt okkur sóknarfæri. Vöxtur- inn er svo mikill," segir Jón Öm. Hann segir að mesti skorturinn sé á reyndu starfsfólki á þessu sviði en að hans sögn er slikt fólk varla til á vinnumarkaðinum. „Það er bara beðið eftir fólki sem er að koma úr námi,“ segir Jón Öm. Stofnað í vor Navis hf. var stofnað í mars síð- astliðnum og leggur fyrirtækið höf- uðáherslu á útflutning þekkingar og hugbúnaðarkerfa i Navision og Navision Financials. Það er í eigu Navís, Tæknivals og Landsteina. Nú vinna tíu manns hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið mun vera hið eina á ís- landi sem einbeitir sér einvörðungu á sölu og þjónustu við Navision hugbúnaði. -JHÞ Net-sjónvarp: Eiginsjón- varpsstöð - einungis þarf tölvu, mótald, myndavél og síma Fyrsta sjónvarpsstöðin á Internetinu, sem flytur ein- göngu frumsamið efni, hefur : verið opnuð í Bandaríkjunum. I Aðaldagskrárefni sjónvarps- stöðvarinnar, sem heitir First- i TV Network, verða þættir um ‘ ínternetið og frumsamið efni i sem unnið er á grafíkvinnslu- f forrit. Allir að kynna sig „Við vonumst til þess að geta hafið útsendingar á íþróttaefni 1 innan mjög skamms tíma,“ seg- Iir sjónvarpsstjóri First-TV, Scott Boume. Aðrir veðja á að notendur Intemetsins séu : meira eða minna hættir að nota hefðbundna miðla eins og til ; dæmis sjónvarp. Nýlegar kann- anir benda reyndar til þess að notendur Netsins eyði rúmlega 11 tímum á því á viku og horfi minna á sjónvarp en áður. Búið er að kynna hugbúnað sem ger- ir mönnum kleift aö senda út mynd og hljóð á Internetinu með venjulegum síma, mótaldi, ; tölvu og myndavél. Engin tak- mörk eru fyrir því hversu margir vefflakkarar geta fylgst með slíkum útsendingum. „Hin gífurlega íjölgun vef- síðna á undanfornum árum úti um allan heim skýrist senni- lega af því að allir eru að reyna að kynna sjálfa sig. Þær eru eins og persónulegar útvarps- ‘ stöðvar sem útvarpa allan sól- arhringinn,” sagði yfirmaður Sun Microsystems Inc., Eric Schmidt, á tölvusýningunni f Networld+Interop. Nýja tæknin er sennilega einungis hluti af þeirri þróun. Vefurinn persónugerður Eðli sínu samkvæmt þá er veraldarvefurinn afar óskipu- lagt fyrirbæri þar sem erfitt getur verið að villast ekki í * frumskógi slóða, tenginga og sambandsleysis. Nú hefur tölvufyrirtækið BroadVision : útbúið nýja tækni fyrir notend- ur vefsins sem gerir þeim kleift að persónugera sína vefþjón- ustu. Hugbúnaðurinn, sem fyr- irtækið hefur þróað, heitir The Angle. Fyrir viðskiptalífið Forritinu er ætlað að breyta framsetningu á upplýsingum sem notendur á vefnum fá í hvert skipti eftir skapferli þeirra eða hvenær þeir nota vefinn. Þeir geta til dæmis hag- að málum þannig að fá aðrar vahnyndir upp eftir því hvort I þeir nota Vefinn viö vinnu sína I eða hvort hann sé notaður um , helgar. Einnig getur notandinn forritað The Angle eftir per- sónuleika og skapi í það og það skiptið. Vefþjónusta, sem hverj- j um og einum býðst, á því að geta þróast með breyttum f smekk og áhugamálum viðkom- 5 andi. Eins og talsmaður Broa- í dvision orðaði það: „Þú stjóm- ar, eftir því sem þú þroskast á } lífsleiðinni þá breytast þínar upplýsingaþarfir.” Broadvision hefur i hyggju að búa sér til lista yfir þúsund alþjóðleg fyrirtæki og ætlar að vinna með þessum fyrirtækjum við að nota þessa nýju tækni í innanhússnetum þeirra. Nota á hugbúnaðinn til þess að koma reglu á samskipti við starfs- menn innan risafyrirtækja. mmmmmmmmmmmmmmmm Smáauglýsingadeild DV er opin: • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Tekið er á móti smáauglýsingum til kl. 22 til birtingar nœsta dag Ath. Smáauglýsing í Helgarblað DV þarf þó að þerast okkur fyrir kl. 17 á föstudag a\n mll/< him/r,' Smáauglýsingar i> 550 5000 Tölvumál í Evrópu: Bundnir á reglugerðaklafa Bandarískir tölvuframleiðendur sem markaðssetja vöru sina í Evr- ópu ná vart upp í nefið á sér þessa dagana vegna þess sem þeir kalla reglugerðafargan í tölvu- og fjar- skiptamálum álfunnar. Þeir gagn- rýna líka hversu evrópski markað- urinn er brotakenndur. Stöðnun fyrirsjáanleg Bandaríska fyrirtækið Compaq hefúr lýst áhyggjum sínum vegna þess að fyrirsjáanlegt er að eftir- spum eftir tölvubúnaði i Evrópu hætti að aukast vegna óhagstæðs verðs og reglugerðafargans sem fyr- irtækið segir ríkja í álfúnni. „Við sjáum ekki fram á annað en sam- runi tölvunnar og símans sé um það bil að stöðvast vegna þeirra reglu- gerða sem eru í gildi í þessari heimsálfu,” sagði talsmaður Compaq, Echard Pfeiffer, á nýlegri ráðstefnu um upplýsingatækni. Brotakenndur markaður Pfeiffer sagði við sama tækifæri að evrópski markaðurinn væri alltof brotakenndur. „Við þurftum að taka tillit til 19 staðla um mótöld í nýju smátölvunum okkar,” sagði Pfeiffer. Bandaríkjamennimir segja líka að smásöluverð á tölvum sé of hátt en Evrópubúar þurfa að meðal- tali að borga 34 prósentum meira fyrir tölvur en notendur í Banda- ríkjunum. Annað sem Pfeiffer og Compaq hafa gagnrýnt er lítil afkastageta evrópskra símakerfa og telja nauð- synlegt fyrir áframhaldandi þróun Intemetsins að það vandamál verði leyst. „Annars stöðvast kerfið ein- faldlega,” segir Pfeiffer. -JHÞ/Reut-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.