Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1996, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1996, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996 DV 26 tölvur Skúli Valberg Ólafsson, sölustjóri EJS, segir nýja stýrikerfiö, Windows NT 4.0, auka skilvirkni og öryggi viö vinnslu og geymslu gagna. EJS: Windows NT 4.0 komið út Hugbúnaöarrisinn Microsoft á samstarf við fjölda sjálfstæöra hug- búnaðar- og upplýsingafyrirtækja út um allan heim sem aðstoöa Microsoft við að hagnýta tölvu- tækni við að byggja upp upplýsinga- kerfi fyrirtækja. Þessir samstarfsað- ilar eru kallaðir Microsoft Solutions Providers og eitt þeirra er EJS. Það nýjasta sem fyrirtækið býður upp á er Windows NT 4.0 frá Microsoft. Einnig hefur fyrirtækið opnað nýja þjónustudeild sem kölluð er MSF- lausnir. Veruleg afkastaaukning Hið nýja Windows NT 4.0 kemur út i tveimur útgáfum. Annars vegar er um að ræða Windows NT 4.0 Ser- ver netstýrikerfí. Hins vegar er um að ræða Windows NT 4.0 Worksta- tion fyrir einkatölvur. Windows NT 4.0 mun vera öflugasta stýrikerfið sem Microsoft hefur sett á markað- inn fyrir einmenningstölvur. Windows NT 4.0 hefur líka fengið notendaviðmót Windows 95. í Windows NT 4.0 Workstation er að finna Windows NT Explorer sem veitir notendum góða yfirsýn yfir skipulag gagna í hveiju drifi og skjalaskrá. Forritið gerir einnig alla umsýslu og upplýsingastjórnun auð- velda. Inni i Workstation er nýi vef- skoðarinn frá Microsoft, Explorer 3.0, en hann veitir aðgang að Inter- netinu og Intranetum. Netstýrikerfið, Windows NT 4.0 Server, inniheldur bæði samskipta- og Intemettól í grunni kerfisins og hentar það bæði fyrir stór og smá net. Svokallaðir „álfar“ eða „Wiz- ards“ gegna miklu hlutverki í nýja netstýrikerfinu. Sérstaklega má nefna hóp „umsýsluálfa“ sem leiða notandann í gegnum aðgerðir eins og að bæta við notendum í netkerfi, mynda og stjóma hópvinnu, samnýtingu drifa fyrir útstöðvar og netþjóna, svo eitthvað sé nefnt. Meira öryggi Skúli Valberg Olafsson, sölustjóri EJS, segir aö hið nýja Windows NT 4.0 nýtist helst notendum hjá fyrir- tækjum og stofnunum. „Til dæmis má nefna að Workstation hentar þeim sem nota öflugar vinnustöðvar við til dæmis grafíska hönnun eða flókna útreikninga," segir Skúli. Annað sem hann leggur áherslu á er að öryggi gagna er mun meira í Windows NT 4.0 en áður hefur þekkst. „Öll gögn eru ömggari en þau vom í eldri kerfum. Bætt að- gangsstýring gerir þaö erfiðara fyr- ir óviðkomEmdi að komast að þeim en áður var,“ segir Skúli. Að hans mati er netstýrikerfið vítamín- sprauta fyrir netkerfi og öflugar vinnustöðvar. „Það er heilsteypt kerfi þjónustueininga sem styður við upplýsingamiðlun til notenda innan- og utanhúss. Allt eftirlit og umsjón með netum verður líka auð- veldara og skilvirkara," segir hann. Meiri skilvirkni Hann bendir á að nú hafi Microsoft tekið upp sama notendav- iðmót á öllum sínum kerfum - allt miðist nú við Windows 95 notend- aumhverfið. „Þetta þýðir að ef mað- ur kann á Windows 95 kann maður til dæmis á Windows NT 4.0. Þetta þýðir minni þjálfunarkostnað og meiri framleiðni," segir Skúli að lokum. -JHÞ Megabúð Skífunnar: - verða svipuð bylting og hljóðkortin, segir Ólafur Jóakimsson Megabúð Skifunnar hefur fjöl- breytt úrval leikja til sölu i verslun sinni og greinilegt er þegar litast er um í versluninni að unnendur tölvuleikja geta reynt sig við ótrú- legustu hluti eins og að ferðast i gegnum tímann, fljúga orrustuþot- um eða leikið við ljón á sléttum Afr- íku. Megabúðin selur einnig hina vinsælu leikjatölvu Sony Playsta- tion Microsoft hefur sókn Ólafur í Megabúð Skífunnar á Laugavegi er nýlega kominn af ECPS-tölvuleikjasýningunni í Lon- don þar sem allir evrópskir fram- leiðendur tölvuleikja sýna það nýjasta sem boðið verður upp á næstu mánuðina í leikjabransan- um. „Þetta var alveg risastór sýning með mörgum glæsilegum sýningar- og sölubásum. Það sem kom í ljós þarna var að þrívíddarskjákort eru að koma inn á markaðinn með miklum þunga. Ég held að það verði eins og þegar hljóðkortin voru að koma inn á markaðinn, fyrr en var- Endurmenntunarstofnun Hl Gagnleg námskeið Endurmenntunarstofnun Há- skóla íslands býður upp á fjöl- breytt námskeið í notkun tölva og hugbúnaðar í vetur. Þar á meðal má nefna námskeið um Unix stýrikerfið, Margmiðlun, forritunarmálið Java og hönnun vefsíðna með HTML forritunar- málinu. Ætluð fólki með ein- hverja grunnmenntun Að sögn Margrétar Bjömsdótt- ur endurmenntunarstjóra hafa námskeið Endurmenntunarstofn- unar Háskóla íslands verið vel sótt. Þau henta flest fólki með einhveija grunnmenntun fyrir þó að þau séu opin öllum. „Það er samt afar mismunandi hversu mikla menntun og þekkingu nem- endur okkar þurfa að hafa aflað sér til þess að hafa gagn af þeim námskeiöum sem við bjóðum upp á. Það er munur á því hvort um er að ræða námskeið um Unix Margét Björnsdóttir endurmennt- unarstjóri segir mismunandi hversu mikla grunnmenntun fólk þurfi aö hafa til þess aö hafa gagn af námskeiöum hjá Endurmennt- unarstofnun Háskóla Islands. stýrikerfið eða námskeið sem fjallar um einfalda heimasíðu- hönnun," segir Margrét. -JHÞ ir verða allir komnir með þvívídd- arskjákort," segir Ólafur. Hann seg- ir að nú séu nokkrir slagsmálaleik- ir og bílaleikir framleiddir fyrir þessi nýju skjákort. Auk þessarar nýju þróunar eru grafik og hljóð- gæði sífellt að aukast í tölvuleikj- um, að sögn Ólafs. „Það sem hefur verið vinsælast hjá okkur að undanfömu hafa verið leikir eins og Z sem er blanda af skotleik og herfræðileik, Quake, sem minnir um margt á hinn óhugnanlega Doom, og The Pandora Directive sem er ævintýraleikur með kvikmyndaatriðum og flóknum söguþræði. Síðasttaldi leikurinn er framhald af hinum geysivinsæla leik Under a Killing Moon.“ Ný sókn Hann segir að Microsoft hafi gert öllum ljóst á ECPS-sýningunni að fyrirtækið ætli að láta til sín taka af fullum þunga á leikjamarkaðinum. „Það hefur ekki gengið vel að mark- aðssetja Windows 95 fyrir tölvu- leiki. Nú ætlar fyrirtækið að snúa vöm í sókn og þeir hafa fengið flest aðalnöfnin í iðnaðinum með sér til þess að framleiða leiki sem ganga á Windows 95,“ segir Ólafur Sony Playstation er vin- sæl Hinar geysivinsælu leikjatölvur Sony Playstation eru seldar í Mega- búð Skífunnar og segir Ólafur að þær hafi gengið vel í landann. „Tölvan hefur selst afar vel enda hefur hún lækkað nokkuð í verði. Það sem helst ræður velgengni hennar er að það em þegar til um 80 leikjatitlar fyrir hana. Þetta skiptir máli þegar litið er til þess að það em kannski bara um 5-10 titlar til fyrir aðrar sambærilegar vélar á markaðinum," segir Ólafur. Hann segir að margar nýjungar séu á döf- inni fyrir Sony Playstation. Sérstak- lega má nefna að Sony ætlar að framleiða aukabúnað sem gerir not- endum vélarinnar kleift að tengjast Internetinu. -JHÞ Ólafur Jóakimsson hjá Megabúöinni segir aö velgengni Sony Playstation byggist á tæknilegri fulikomnum og miklu og góöu leikjaúrvali.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.