Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1996, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1996, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996 tþlvur Heimilistæki hf.: Með elsta PC tölvumerkið Prentkaplar • Netkaplar • Sérkaplar Samskiptabúnaður fyrir PS, PC og Macintosh Samsetning á tölvubrettum, vél lóðning. • • Ortækni Það er sjaldgæft í hverfulum tölvuheiminum að fyrirtæki selji sama vörumerkið í heilan áratug. Heimilistæki hf. eru þó ein af þeim fyrirtækjum sem hafa enst svo lengi með eitt merki, fyrirtækið hefur selt Laser tölvur í tiu ár. Tölvur fyrir útlitið „Ég held að ekkert annað fyrir- tæki hafi verið jafnlengi með sömu PC tölvutegundina og við,“ segir Benedikt Rúnarsson, sölustjóri hjá Heimilistækjum, og á þá við Laser tölvurnar. Hann segir að hvað varði almenna notendur þá bjóði fyrir- tækið helst upp á Laser tölvur og Acer Aspirer tölvur sem eru orðnar margfrægar fyrir sitt stórskemmti- lega útlit. „Sumir kalla þetta grænu tölvumar,“ segir Benedikt. Heimil- istæki selja líka Acer Power tölvur sem em fyrir venjulega notendur eins og til dæmis fyrirtæki. „Acer Aspirer tölvu kaupa þeir sem vilja hafa flotta og góða tölvu í stofunni sem er afar auðvelt að nota. Tölvan er með innbyggða skel ofan á Windows 95 sem gerir hana svo ein- falda sem raun ber vitni,“ segir Benedikt. Eins og á flestum einmennings- tölvum þá er stýrikerfi og annar hugbúnaður á Acer Aspirer tölvurn- ar allur á ensku. Benedikt segir að það sé ekki eins slæmt og oft er lát- ið líta út fyrir. „Staðreynd málins er einfaldlega sú að við lifum á upplýs- ingaöld þar sem hraðinn er í fyrir- rúmi. Það er ómögulegt að þurfa að bíða eftir því að nýjustu forritin séu þýdd á íslensku. Þýðingarmikil ástæða fyrir því að íslenskir forrit- arar em svona eftirsóttir erlendis er sú að þeir hafa haft aðgang að því nýjasta í tölvuheiminum og því má ekki breyta," segir hann. Að hans sögn er afar dýrt að flytja forrit yfir á íslenska tungu og hann telur að ef það væri gert væri verið að verð- leggja tölvur og hugbúnað þannig að færri gætu keypt. „Það er því miður að megnið af þeim hugbúnaði sem við notum er á ensku og ég er ansi hræddur um að íslendingar tali ekki eins gott mál og þeir gerðu fyr- ir nokkrum áratugum. Það sem þarf að gera er að búa til meira af Elnet hf.: Scala komið út fyrir PC Nýr alhliða hugbúnaður á sviði margmiðlunar mun koma út innan skamms á vegum Elent hf. Hugbún- aðurinn heitir SCALA og er afurð samnefnds norsks fyrirtækis sem gaf forritið eingöngu út fyrir Amiga tölvur til ársins 1993. í hugbúnaðarpakkanum eru 600 megabæt af alls kyns bakgrunnum, hljóðskrám, stafrænt myndefni og önnur myndasöfn. Ómar Guð- mundsson hjá Elnet segir að SCALA sé gagnlegt fyrir þá sem vinna gögn til kynningar. „Það má nota það til þess að setja saman mynd og hljóð að vild. Það má líka nota SCALA til skemmtunar, til dæmis er ekki erfitt að gera myndband við uppá- haldslagið eða drög að kvikmynd" segir Ómar. Dæmi um tæknilega möguleika SCALA er að það hug- búnaðurinn gerir notendum kleift að vinna myndir í fullri stærð, hann inniheldur hljóblandara sem gerir mögulegt að spila mörg hljóð eða tóna samtímis og einnig má nefna að forritið velur sjálfkrafa bestu lit- ina fyrir skjámyndir. - JHÞ SCALA kennsluhugbúnaði á íslensku fyrir börn og unglinga eins og gert er með miklum sóma víða erlendis," segir Benedikt að lokum. -JHÞ Hátúni 10,105 Reykjavík, sími 552-6800, fax 552-6809 SCALA býður upp á fjölbreytta möguleika.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.