Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1996, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1996, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996 JLj' 'V » tölvur _ Einar Hilmarsson grunnskólakennari: - vill hafa tölvumál á íslensku Tölvan á framandi ekki að vera Einar Hilm- arsson segir mikilvægt að börn læri strax að venjast tölvum á ís- lensku. Einar segir að það megi deila um hvort það standi upp á hið opinbera eða fyrirtækin að greiða kostnað við þýðingu á almennum hughúnaði. „Mér fmnst samt fljótt á litið eðli- legt að fyrirtækin bjóði sína vöru á íslensku. Hið opinbera ætti kannski frekar að setja einhver ákvæði um hvernig þessir hlutir eigi að vera eins og i kvikmyndum og sjón- varpi,“ segir Einar Tölvan er fjölmiðill Eins og mikið hefur verið fjallað um hefur tölvan öðlast nýtt hlut- verk sem nokkurs konar fjölmiðill. Þetta hefur gerst með nýrri sam- skiptatækni eins og til dæmis ver- aldarvefnum. „Tölvan hefur verið i mjög örri þróun undanfarin ár. Það hefur ekki verið fyrr en á allra síð- ustu árum eða misserum sem tölvur hafa verið notaðar mikið við miðl- un og fræðslu. Þetta er að gerast mjög hratt og það er einmitt það sem er að vekja menn til umhugs- unar. Þetta var tæki sem menn voru með heima hjá sér eða í vinn- unni og þá skipti þetta litlu máli. Nú eru böm farin að nota þetta mjög ung, það er farið að kenna þeim á tölvur kannski allt frá sex ára aldri. Þá er þetta farið að skipta mun meira máli en áður,“ segir Ein- ar. Islenskan hjálpar Einar segir að það breyti miklu fyrir yngri nemendur og þá sem hafa minna sjálfstraust gagnvart tölvunotkun að geta nálgast tölvuna á sínu eigin móðurmáli. „Það er stórt atriði að geta skilið það sem tölvan er að segja,“ segir Einar. Hann vill meina að tölvuheimurinn hafi verið skilgreindur sem „út- lenskur" sem væri ekkert flottur ef hann væri íslenskur. Einar segir líka að það megi ekki gleyma þeim nemendum sem hafa enga reynslu af tölvum þegar þeir koma upp í 10. bekk grunnskóla. „Þetta er stór hóp- ur og hann má ekki gleymast í um- ræðunni eins og gerist oft. Þessum nemendum finnst mun þægilegra að læra á tölvur á íslensku enda er það tvöfalt álag að læra á nýja tækni og gera það á ensku. Þetta gildir líka um þá nemendur sem eru ekki eins fljótir að grípa hlutina og aðrir, tölvumhverfi á ensku getur því ýtt undir ákveðna skiptingu milli krakkanna. Það ýtir ekki undir sjálfstraustið að fá skilaboð frá vél- inni sem ekki skiljast," segir Einar. Hann er mjög fylgjandi því að skrárkerfi tölva sé aðlagað íslens- kunni engu síður en stýrikerfi og forrit. „Því miður eru það bara Mac- intosh tölvurnar sem hafa þann kost en það er vist eitthvað að rofa til hjá PC-tölvunum,“ segir Einar. Hann segir að þetta sé stórt atriði fyrir óvana nemendur, það auðveldi þeim róðurinn að geta merkt skrár með íslenskum stöfum en ekki með einhverjum stikkorðum," sagði Ein- ar. Gert upp á milli kerfa í Hlíðaskóla nota börn tölvur sem kennslutæki, til dæmis skila þau verkefnum sem þau vinna á tölv- urnar og nýta sér kennsluhugbúnað ýmiss konar. Einar segir að það megi finna mörg góð kennsluforrit á íslensku sem nýtast til dæmis við kennslu í stærðfræði og íslensku. Hann vill ekki gera upp á milli ein- stakra forrita. „Það stendur ekkert eitt upp úr en það kemur mikið af nýjum hugbúnaði til þessara nota. Það er samt óskiljanlegt að þessi nýju íslensku kennsluforrit eru nær öfl fyrir Windows umhverfið sem hefur ekki verið þýtt á íslensku," segir Einar. Hann bendir á að Námsgagnastofnun hafi nánast hafnað að styrkja útgáfu á forritum fyrir íslenska Macintosh stýrikerf- ið. „Það er því miður bara eitt ís- lenskt stýrikerfi og það er framleitt minna af íslenskum kennsluhug- búnaði fyrir það, þeir sem skrifa fyrir Macintosh stýrikerfið fá ekki fyrirgreiðslu að því er ég kemst næst. Þetta hefur valdið því að góð forrit hafa stoppað vegna fjár- skorts,“ segir Einar. Hann gagnrýnir mjög þá hugsun að þeir sem hafi vanist Windows og PC-tölvum telji Macintosh tölvur á íslensku lélegri tölvur og öfugt. „Þetta er hugsun sem við þurfum að losna við,“ segir Einar að lokum. -JHÞ Hringiðan: Nýr fasteignagrunnur - hægt að skoða hús úti um allan heim Verk fyrirtækjanna Tölvur og íslensk tunga hefur verið nokkuð í umræðunni að und- anförnu. Til eru þeir sem segja að þung áhersla á íslensku í tölvumál- um geri ekkert annað en tefja fyrir þróuninni og hækka kostnað á vél- og hugbúnaði. Aðrir segja að notk- un á íslensku máli við leik og störf við tölvuna færi notandann nær henni og sýni svo ekki verður um villst að tölvan er ekki eitthvað framandi og útlent verkfæri. Einar Hilmarsson, tölvukennari í Hlíða- skóla, er á þeirri skoðun. Enskan ekki máðurmál tölvunnar Einar segir að það megi í raun líkja þessu við bækur eða kvik- myndir, þetta séu miðlar sem flestir vilji geta nálgast á sínu eigin tungu- máli. „Enska er heldur ekkert móð- urmál tölvunnar frekar en íslenska. Enskan er útbreidd en við eigum ekki að sætta okkur við að kenna börnum og fullorðum á tölvur á því tungumáli þrátt fyrir það.“ Hann gefur lítið fyrir þá röksemd að þýð- ing á hugbúnaði yfir á íslensku tefji fyrir þróun í tölvumálum. „Það hef- ur verið rækilega sýnt fram á að það er vel framkvæmanlegt að þýða stýrikerfi yfir á íslensku. Þetta sést auðvitað best á Macintosh tölvun- um. Það er ekki að sjá að þróunin þar sé neitt á eftir þó að stýrikerfi þeirra og helsti hugbúnaður sé þýddur yfir á íslensku." Hann bend- ir líka á að þar virðist þýðingar- kostnaður ekki hafa gert tölvubún- að of dýran fyrir neytendur. Einar Hilmarsson, tölvukennari í Hlíöaskóla, segir þaö vera nýlega þróun aö flokka megi tölvur sem nokkurs konar fjölmiöla. DV-myndir BG Það er stórt skref að kaupa sér nýja fasteign og flestir gefa sér góðan tíma við að velja draumahú- sið. Þetta vill þó oft verða mikið stapp þegar fólk þeytist bæjarhluta á milli og skoðar misgóð hí- býli. Nú ætti að birta til hjá langþreyttum íbúða- kaupendum þar sem hægt er að skoða hús úti um aflan heim á veraldarvefnum, án þess að yfirgefa heimili sitt. Þetta er hægt með fasteignagrunni Hringiðunnar. Það tók fólkið sem stóð að hönnun fasteigna- gnmnsins nokkum tíma að hanna og forrita hann en menn em ánægðir með útkomuna. „Nú getur fólk setið inni í stofu á hvaða tíma sólar- hringsins sem er og skoðað fasteignir og allar upplýsingar um þær án þess að þurfa að leggja á sig flakk út um allan bæ,“ segir Guðmundur Kr. Unnsteinsson, en hann átti hugmyndina að fast- eignagrunninum. Hann segir að grunnurinn ætti að henta fólki erlendis mjög vel. „Fólk sem er kannski að koma til landsins aftur eftir dvöl er- lendis getur núna skoðað eignir héma heima og sparað sér þannig tíma. Það getur fengið upplýs- ingar um húseignir hér á landi, óháð því í hvaða tímabelti það býr. Það útilokar auðvitað ekkert að hægt sé að skoða húseignir í öðrum löndum. Það má til dæmis skoða hús sem eru til sölu hvort sem er á Flórída eða í Singapúr með þessum hætti,“ segir Guðmundur. Kemur fasteignasölum vel Guðmundur telur að fasteignagmnnurinn sé ekki bara hentugur fyrir væntanlega húseigendur heldur sé hann mjög hentug nýjung fyrir fast- eignasala. „Þeir geta nú haft opið allan sólar- hringinn og komið upplýsingum um það sem þeir era að selja á mun skilvirkari hátt en áður. í stað þess að svara óteljandi símtölum um eignirnar sem eru til sölu geta þeir sett upplýsingar um húsin beint á Internetið. Það sparar öllum tíma og fyrirhöfn, enda verða fyrirspumimar sem fast- eignasalar fá mun markvissari en áður, hvort sem þær koma í gegnum síma, fax eða tölvupóst," segir Guðmundur. @.mfyr:Vel tekið Að hans sögn hafa fasteignasalar tekið mjög vel í þennan nýja möguleika og hann segir það fyrr- nefndum kostum við hann að þakka. Guðmundur segir að heimfæra megi hönnun- ina bak við fasteignagrunninn á sölu á flestum hlutum, eins og til dæmis bílum: „Þetta var auð- veldast að fara út í fyrsta kastið en það er fleira af þessu tagi á döfinni," segir Guðmundur að lok- um. x -JHÞ Hópurinn sem stóð að þróun fasteignagrunnsins. F.v. Halldora Jóhannsdóttir, Guð- mundur St. Sigurðsson, Guöbjörn Gunnarsson, Halldór Gunnarsson, Friðrik Guöjón Guönason, Símon H.S. Wiium, Sigurður Darri Skúlason, Guömundur Kr. Unnsteinsson og Yngvi Þór Jóhannsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.