Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1996, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1996, Síða 9
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 um helgina Norræna húsið: LEIKHUS Þjóðleikhúsið Nanna systir fbstudagskvöld kl. 20.00 laugardagskvöld kl. 20.00 Kardemommubærinn sunnudag kl. 14.00 í hvítu myrkri föstudagur kl. 20.30 laugardagur kl. 20.30 Borgarleikhúsið Ef væri ég gullfiskur laugardagur kl. 20.00 Largo Desolato laugardagur kl. 20.00 Barpar laugardagur kl. 20.30 Stone Free föstudagur kl. 20.00 Islenska óperan Galdra-Loftur laugardagur kl. 20.00 I Loftkastalinn Sumar á Sýrlandi föstudagur kl. 20.00 laugardagur kl. 23.30 Á sama tíma að ári sunnudagur kl. 20.00 II Sirkus Skara skrípó föstudagur kl. 20.00 laugardagur kl. 20.00 Kaffileikhúsið IHinar kýrnar 1 » sunnudagur kl. 16.00 Skemmtihúsið s Ormstunga föstudagur kl. 20.30 sunnudagur kl. 20.30 Höfðaborgin Gefin fyrir drama þessi dama... laugardagur kl. 20.30 sunnudagur kl. 20.30 Leikfálag Akureyrar Sigrún Ástrós föstudagur kl. 20.30 laugardagur kl. 20.30 Sýning Bryn- hildar í Menningár- miðstöðinni Gerðubergi og á Sjónarhóli, Hverf- isgötu 12, stendur nú yfir sýning á verkum Brynhild- ar Þorgeirsdóttur en hún var gestur á síðasta Sjón- þingi Gerðubergs. Á Sjónþingum er farið yfir ævi og feril listamanna og framlag þeirra til íslenskrar myndlistar skoð- að. Sjónþingin eru síðan prentuð og gefm út. Nú þegar hafa komið út Sjónþing myndlist- armannanna Braga Ásgeirsson- ar, Ragnheiðar Jónsdóttur, Haf- steins Austmanns og Birgis Andrés- sonar. -ilk Úr leikritinu Nanna systir sem frumsýnt var um síöustu helgi í Þjóðleikhúsinu. Nanna systir er grátbroslegur gamanleikur eftir þá Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson þar sem allir helstu gamanleikarar landsins koma viö sögu. Um helgina veröa tvær sýning- ar á verkinu, í kvöld og annaö kvöld. Á myndinni eru þeir félagar Pálmi Gestsson, Siguröur Sigurjónsson og Örn Árnason. Gerðuberg: Opin æfing Á morgun kl. 15.00 verða tónlist- armennirnir Fríður Sigurðardóttir, sópran, Halla Soffia Jónsdóttir, sópran, og Skúli Halldórsson, tón- skáld og píanóleikari. með opna æf-. ingu í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Æfingin er haldin vegna væntanlegrar upptöku á lög- um Skúla en hann hefur nýlega út- sett tíu af lögum sínum fyrir tví- söng. Fríður og Halla Soffia hafa víða komið fram á tónleikum og sungið við ýmis tækifæri, bæði hér heima og erlendis. Út hefur komið geisla- diskurinn Ætti ég hörpu með söng þeirra. Skúli er löngu landskunnur fyrir lög sín og eiga þau fastan sess í hugum margra. Hér er ekki um tónleika að ræða heldur opna æfingu og aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. -ilk Þaö er alltaf gott aö slappa af og glugga í góöa bók. Oskjuhlíðar- hlaup Á morgun verður hlaupið i Öskjuhliðinni. Hlaupið hefst við Perluna kl. 14.00 en hægt verður að skrá sig frá kl. 12.30. Nú verð- ur hlaupin ný leið sem liggur meðal annars um hina skemmti- legu skógarstíga Öskjuhlíðar. Frá Perlunni verður hlaupið-niður að Nauthólsvík, veginn að Hótel Loftleiðum, til baka eftir skógar- stígunum og endað við Perluna. Hlaupaleið þessi er um það bil fimm kílómetrar. Þrír fyrstu í hverjum aldurs- flokki fá verðlaunapeninga en keppt verður i eftirfarandi ald- ursflokkum: 10 ára og yngri, 11 og 12 ára, 13 og 14 ára, 15 og 15 ára, 17 til 39 ára, 40 til 49 ára, 50 til 59 ára og 60 ára og eldri. Allir eiga jafna möguleika þegar dregið verður um fjölda útdráttarverð- launa að hlaupi loknu. -ilk Góða gesti ber að garði Fyrirlestraröðin Orkanens oje hefst að nýju í Norræna húsinu á sunnudaginn. í Orkanens oje er fjallað um það sem efst er á baugi hverju sinni en einnig eru bók- menntir og listir til umfjöllunar þegar góða gesti ber að garði. Nú er sænski rithöfundurinn og ljósmyndarinn Bertil Pettersson mættur til leiks og með kynningu á verkum sínum og frásögnum af sjálfum sér byrjar hann haustdag- skrána. Hann hefur sent frá sér á fjórða tug bóka frá því að fyrsta ljóðasafn hans, Utkast, kom út árið 1958. í fór með Bertil er eiginkona hans, danski rithöfundurinn Lis Vibeke Kristensen. Hún er nú að vinna að nýrri skáldsögu og barnabók en bók- menntagagnrýnendur stærstu blaða Danmerkur hafa borið mikið lof á Lis fyrir bækur hennar. Allir eru hvattir til að mæta á þessar bókmenntadagskrár Nor- ræna hússins sem verða fastir liðir i vetrardagskránni á sunnudögum. -ilk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.