Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1996, Page 12
Almost Golden:
Sönn saga
★★★
Hér segir frá sjónvarpsfréttakonunni Jessicu
Savitch sem vann hjá NBC sjónvarpsstöðinni á sjö-
unda og áttunda áratugnum og varð brautryðjandi fyr-
ir fréttakonur í Bandaríkjunum. Hún var mjög vinsæl
en átti í miklum erfiöleikum í einkalífinu. Hún missti
föður sinn á unga aldri, átti tvö misheppnuð hjóna-
bönd og ánetjaðist eiturlyfjum. Að lokum varð hún sér
til skammar í beinni útsendingu með því að vera of
dópuð til að geta talað eðlilega og var þá sjónvarpsferli
hennar lokið. Hún lést i bílslysi 36 ára gömul. Myndin fylgir ferli henn-
ar vel og nær að gera persónu Jessicu Savitch áhugaverða fyrir áhorf-
andann. Sela Ward leikur hana og gerir það ágætlega, hún er mjög sjón-
varpsfréttakonuleg, með ákveðið og hressilegt fas og fréttamannslegt út-
lit og yfirbragð. Þá er Ron Silver óvanalega þolanlegur í hlutverki vin-
ar hennar og elskhuga sem hún þó aldrei giftist. Hér eru þó engin snilld-
artilþrif á ferðinni, þetta er sjónvarpsmynd og ágæt sem slík. Myndin er
áhugaverð en ekki mikið meira og skilur ekki mikið eftir sig.
Útgefandi: Stjörnubíó. Leikstjórí: Peter Werner. Aöalhlutverk: Sela Ward og Ron Silver.
Bandarísk, 1995. Lengd: 90 mín. Bónnuö bómum yngri en 12 ára.
-PJ
T sæti; . ■ . J FYRRIj VIKA Í VIKUR \ Á LISTAÍ J TITILL j ÚTGEF. j TEG.
H ; NÝ ; 1 j i Dead Man Walking J Háskólabíó J j j Drama
2 i i 1 1 4 j j j Heat J J I Warner -myndir j ) _ j Spenna
3 i NÝ 1 j j Fater of the Bride i SAM Myndbönd j Gaman
4 > :;J; 9 i HbHj 2 j j j Strange Days ; í > ClC-myndir 1 j j Spenna
5 í 2 í 5 *r j Jumanji j > j Skrfan > Gaman
6 1 j 5 ; 2 j The Bridges of Maddison County || HW '> Warner -myndir Drama
i 7 ; p! 1 j J J ím Thin Line Between Love & Hate " " J ‘ ‘ '■'' "■” J J Warner -myndir Gaman
8 i s, 3 i 4 Kids j Skifan j 18 * 1 Drama
9 4 6 j j Leaving Las Vegas 1 Skrfan 1 J J Drama
10 1 ; 7 { j 3 j Cutthroat Island J Skífan J J Spenna
m ■{ NÝ ; 1 J J Four Rooms j Skffan | Gaman
12! 8 j 5 j j j Now and Then ,r j ‘r -ri'' í- Myndform 1 Gaman
13 i 6 i 6 j j Fair Game J J j Warner-myndir j Spenna
J 14 ! 1 SSSjS'ji 11 4 i H J nl Babe j j ClC-myndir % ] i T | - Gaman
15 13 í 3 r J X-Files: 82517 1 Skrfan < Spenna
.6 í io ; 5 J J J Clockers RHI i ClC-myndir { RSSSifiBÍfli Spenna
17 i 15 * 5 J J Opus herra Hollands Háskölabíó Drama
18 i j 14 i • — Jl 10 J J Sabrina J J ClC-myndir j j Gaman
i9 ; 12 ; 9 j" J Desperado | Skífan J Spenna
j
20 | NÝ 1 J Restoration J Skrfan Drama
lyndbönd
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996
MYNDBAIÍDA
HMníl
Lucky Break:
Ást í meinum
★★★
Astralir hafa verið að þeyta frá sér myndum i gríð
og erg undanfarið og hafa orð á sér fyrir frumlegar og
skemmtilegar hugmyndir. Lucky Break er enn ein
slík. Hún segir frá rithöfundinum Sophie, sem semur erótískar ástarsög-
ur, og skartgripasalanum Eddie sem ekki er alltaf alveg heiðarlegur í við-
skiptum. Þau hittast á bókasafni þar sem Sophie er að vinna að einni af
sögunum sínum en ýmislegt er í veginum fyrir sambandi þeirra, þ. á m.
sú staðreynd að Eddie er að fara að gifta sig. Sophie er smeyk við að láta
Eddie vita að hún er bækluð og þarf að notast við spelkur en er svo
lánsöm að fótbiotna og vera sett í gifs svo að hún hefur nokkrar vikur
áður en sannleikurinn kemur í ljós. Inn í söguna blandast svo rússnesk-
ur innflytjandi og lögreglumaður sem er á hælunum á Eddie. Persónum-
ar nef-, kjálka-, fót- og handarbrotna hver um aðra þvera í farsakenndri
atburðarás en aOt leysist að lokum og elskendurnir ná saman (að sjálf-
sögðu) þrátt fyrir líkamsmeiðingar og fleira. Gia Carides er mjög
skemmtileg í hlutverki Sophie og myndin hefur öU skemmtilega ærsla-
fengið yfírbragð en er jafnframt hlýlega rómantísk. Söguþráðurinn er yf-
irgengileg deUa en það hefur víst verið meiningin.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Ben Lewin. Aöalhlutverk: Gia Carides og Anthony
LaPaglla. Áströlsk, 1995. Lengd: 90 mín. Leyfö öllum aldurshópum. -PJ
Get Sfiorty:
Krimmi í Hollywood
★★★★
Dead Man Walking
fer beint í fyrsta
sæti. Á myndinni
eru aöalleikararnir
Susan Sarandon og
Sean Penn, en þess
má geta aö Sar-
andon fékk ósk-
arsverölaun í vor
fyrir leik sinn í
myndinni.
Jumanji
Robin Williams
og Bonnie Hunt.
Dag einn finnur
hinn 8 ára gamli
Alan dularfuUan
kassa. Hann tekur
kassann með sér
heim og í ljós kem-
ur teningaspil sem
hann og vinkona
hans Sara prófa. En
þegar Alan tekur
upp teningana og
kastar þeim taka
undarlegir hlutir að
gerast. Alan hrein-
lega leysist upp og
hverfur inn í spUið.
ChUi Palmer er okurlánari í Miami sem eltir einn
af skuldurum sinum tU Los Angeles. I hjáverkum
kemur hann við hjá kvikmyndaframleiðandanum
Harry Zimm til að innheimta spUaskuld fyrir spUaviti
nokkurt í Miami. Það viU svo tU að ChUi Palmer er
mjög áhugasamur um kvikmyndir og í staðinn fyrir
að beita hörku við Zimm, sem því miður getur ekki
borgað skuldina sína, hefja þeir miklar samræður þar
sem ChUi Palmer kynnir fyrir Zimm hugmynd að
kvikmynd. Svo fer að hann ákveður að hætta í sínu
gamla starfi og heUa sér út í kvikmyndabransann í
HoUywood. Hann tekur saman við Harry Zimm og í sameiningu reyna
þeir að fá eina allra stærstu stjörnuna í Hollywood í myndina. Ýmis ljón
eru þó í veginum, eins og t.d. óprúttnir forsprakkar límúsínuþjónustu,
sem Harry Zimm er í tengslum við, og svo óvUdarmaður Palmers frá Mi-
ami sem er ekki á þeim buxunum að sleppa honum svo létt. Myndin hef-
ur mjög létt yfirbragð og sjá má á leikurunum að þeir hafa skemmt sér vel
við gerð myndarinnar. John Travolta er öryggið uppmálað í aðalhlutverk-
inu og Gene Hackman skapar skemmtilega persónu sem hinn ólukkulegi
Harry Zimm. Myndin gerir grín að stjörnustælum og mafíósum og gerir
það vel. AUa vega hlær maður nóg.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Barry Sonnenfeld. Aöalhlutverk: John Travolta,
Gene Hackman, Rene Russo og Danny DeVito. Bandarísk, 1995. Lengd: 101 mín.
Bónnuö bórnum innan 12 ára. -PJ
Casino:
Glæsileg umgjörð
★★★
wi*-
Martin Scorsese er hér á svipuðum slóðum og í
GoodfeUas. Casino fjallar um svipaðar persónur og
skartar ennfremur tveimur af aðaUeikurunum í
GoodfeUas. De Niro leikur Ace Rothstein sem er feng-
inn af mafíunni tU að stjórna spUavíti í Las Vegas.
Joe Pesci leikur Nicky Santoro, sem er sendur til að
hafa auga með starfseminni, og Sharon Stone leikur
Ginger McKenna sem giftist Ace. Ace Rothstein og
Nicky Santoro græða á tá og fingri og byggja upp mik-
ið veldi í Las Vegas en öfund, græðgi og ofsóknar-
brjálæði þeirra verður tU þess að veldið hrynur að
lokum og vináttan er fyrir bí. Myndin er í beinu fram-
haldi af GoodfeUas, er e.k. GoodfeUas Part II, útþynnt útgáfa þar sem
bófarnir eru aðeins íburðarmeiri og ofbeldið aðeins hrottalegra. Um-
gjörðin er eins glæsileg og hugsast getur en innihaldið er fremur rýrt,
sérstaklega fyrir tæplega þriggja tima mynd. Það eru leikararnir sem
bjarga myndinni. Robert De Niro og Joe Pesci eru á kunnuglegum mið-
um og hvergi veikan punkt að finna á þeim en senuþjófurinn er þó Shar-
on Stone, sem aldrei hefur leikið betur og sýnir alveg sérstaklega öflug-
an leik sem hin ólánsama eiginkona Ace, sem er óhamingjusöm í inni-
haldslausu hjónabandi og verður piUum og áfengi að bráð. Það gneistar
af henni þar sem hún túlkar örvæntingu persónunnar á áhrifarikan hátt.
Sharon Stone á persónulega helminginn af stjörnunum fyrir þessa mynd.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjórí: Martin Scorsese. Aöalhlutverk: Robert De Niro,
Sharon Stone og Joe Pesci. Bandarísk, 1995. Lengd: 171 mín. Bönnuö bömum yngrí
en 16 ára. -PJ
17. sept. til 23. sept. '96
Dead Man Walking
Susan Sarandon
og Sean Penn
Þessi úrvalsmynd
er byggð á sann-
sögulegri frásögn
systur Helan Prej-
an. Dag einn berst
henni bréf frá
dauðadæmdum
manni, Matthew
Poncelet, sem biður
trúboð hennar um
hjálp. Hún heldur
tU fundar við hinn
örvæntingarfuUa
mann sem dæmdur
hefur verið tU
dauða. Hann biður
Helen að koma i veg
fyrir að dauðarefs-
ingunni verði beitt.
Helen á óhægt um
vik vegna sannana
gegn honum en
reynir að draga
fram sannleikann.
Heat
Al Pacino og Ro-
bert De Niro.
í Heat segir frá
hinum snjalla at-
vinnuglæpamanni
Neil sem ásamt
mönnum sínum
leggur á ráðin um
nokkur hátæknUeg
rán. Vincent er
rannsóknarlög-
reglumaður í rán-
og morðdeUd.
Einkalíf hans er ein
rjúkandi rúst enda
kemst ekkert annað
að í huga hans en
staifið. En hann er
ekki síður snjaU en
NeU og með hjálp
sinna manna og
uppljóstrara tekst
honum smám sam-
an að þrengja netiö
í kringum glæpa-
mennina.
ÍMiíiftfeta
wi
Father of the Bride II
Steve Martin og
Diane Keaton
Mynd þessi er
framhaldsmynd og
nú gerist sá óvænti
atburður aö bæði
dóttir og eiginkona
Steve Martins, sem
í fyrri myndinni
gifti dóttur sína,
verða bamshafandi
á sama tíma. Það
liggur því fyrir
Martin að glíma við
það álag sem því
fylgir að verða faðir
og afi á sama tíma.
Og miðað við tauga-
veiklunina sem ein-
kenndi hann við
giftingu dóttur
sinnar má nærri
geta að ekki er hún
minni þegar kemur
að fæðingu hjá
mæðgunum.
Strange Days
Ralph Fiennes og
Angela Bassett
Dagurinn er 30.
desember 1999 og
ruslaralýður fyllir
götur Los Angeles.
Aðalpersónan
myndarinnar er
Lenny, fyrrverandi
lögreglumaður.
Þennan dag er vin-
kona hans myrt á
hrottalegan hátt.
Rétt áður en stúlk-
an deyr setur morð-
inginn upptökutæki
á höfuð hennar og
tekur upp skelfingu
fómarlambsins,
sendir Lenny upp-
tökuna og þar með
dregst Lenny inn í
geðveikislegan
heim valda og of-
sóknarbrjálæðis.
ifyrsta
roíri>
AL
PACINO