Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
3
Fréttir
Misvísandi kaupkröfur verkalýðshreyfingarinnar:
Eg tek ekki þatt i
þessum uppboðsmarkaði
-{
- segir Aðalsteinn Baldursson, formaður fiskvinnsludeildar Verkamannasambands Islands
DV, Akureyri:
„Öll þessi mál eru á því stigi að
það er ótímaþært að vera með ein-
hverjar yfirlýsingar um væntanleg-
ar kröfur í þeim samningum sem
eru fyrir hendi. Ég tek a.m.k. ekki
þátt í þeim uppboðsmarkaði sem
menn hafa verið á undanfarið," seg-
ir Aðalsteinn Baldursson, formaður
fiskvinnsludeildar Verkamannsam-
bandsins. Einstaka forsvarsmenn
innan verkalýðshreyfingarinnar
hafa verið með yfirlýsingar um
launakröfur sem leggja á fram og
hafa þær verið ansi misvísandi.
Aðalsteinn segir að samningsum-
boðin séu núna hjá verkalýösfélög-
unum en Verkamannasambandið sé
þessa dagana að afla þeirra umboða
frá 54 aðildarfélögum sínum til að
hægt sé að ljúka gerð viðræðuáætl-
unar sem liggja á fyrir 22. október.
„Allt tal um launakröfur á þess-
um tímapunkti er ótímabært og ég
og fleiri höfum ákveðið að taka ekki
þátt í þessum uppboðsmarkaði. Ef
svo fer að Verkamannasambandið
semur fyrir flest aðildarfélög sín þá
sé rétt að samninganefnd sem verð-
ur kjörin móti tillögur og kröfur.
Það er því ekki timabært að vera að
tjá sig um einhverjar hugsanlegar
kröfur á þessum tímapunkti.“
Verður samið til tveggja ára eins
og heyrst hefur?
„Það er ekki gengið út frá neinu
um það fyrirfram. I fyrsta lagi þurf-
um við að sjá innihald þess samn-
ings sem gerður verður og hvort
hægt verður að koma í veg fyrir að
það sem gerðist eftir síðustu samn-
inga okkar endurtaki sig. Það er tal-
að um að verkalýðshreyfingin hafi
Síldarsöltun og -vlnnsla hófst á
Eskifirði í lok síöustu viku þegar
Arnþór EA kom til hafnar meö 40
tonn af mjög góðri síld sem fór öll í
söltun og aöra vinnslu til manneldis
hjá Friðþjófi hf. sem nú er í eigu
Samherja á Akureyri. Tvö af skipum
Samherja stunda nú síldveiöar á
vegum Friöþjófs, en þau eru Arnþór
EA og Oddeyrin EA. Á föstudaginn
landaöi Arnþór í annað sinn 70
tonnum af stórri og fallegri síld.
DV-mynd Þórarinn
þá verið tekin í bólinu því þegar
hún hafði lokið sínum samningum
komu aðrir á eftir og fengu miklu
meiri hækkanh. Það þarf að fyrir-
byggja að þetta gerist aftur en síðan
kemur að þvi að gildistími samn-
ingsins verður ákveðinn," segh Að-
alsteinn. -gk