Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 27 . DV Fréttir Tvítugur húsbyggjandi í nýrrri Súðavík: Ég hef ekkert þarfara við pen- ingana að gera - segir Ármann Heiðarsson DV, Súðavik: „Hugsunin var sú að festa pen- inga í einhverju. Ég reikna þó ekki með að búa sjálfur í húsinu til að byrja með heldur leigja það,“ segir Ármann Heiðarsson, tvítugur Súð- víkingur sem stendur í húsbygg- ingu í nýrri Súðavík. Ármann er yngstur húsbyggjenda á staðnum og það vekur því nokkra athygli að hann skuli leggja út í þetta verk. Húsbyggingin hófst í desember á síðasta ári og miðar vel. „Ég hafði ekkert þarfara við pen- ingana að gera. Ég hef ekkert sér- staklega gaman af því að standa í þessu byggingarstússi. Ég er þó ekki ákveðinn í því hvort ég sest að héma á staðnum. Það er vel hugsan- legt að ég fari í nám og þá verður tíminn að leiða í ljós hvar ég sest að,“ segir Ármann. -rt Armann Heiðarsson í húsi sínu í nýrri Súöavík. Hann segist ekki reikna með að búa sjálfur í húsinu til aö byrja meö, heldur leigja þaö út. DV-mynd BG Lýðskólinn hefur aftur göngu sína: Erum eins og bensínstöð - segir Oddur Albertsson skólastjóri Oddur Albertsson, skólastjóri Lýöskólans. DV-mynd Pjetur Þann 14. október nk. mun Lýð- skólinn aftur hefja göngu sína, en lengi vel var óvíst um hvort nægt fjármagn fengist til starfseminnar. Oddur Albertsson, skólastjóri skólans, sagði í viðtali við DV að borgarráð hefði samþykkt að koma skólanum til aðstoðar og leggja fram eina og hálfa milljón til starf- seminnar og framlag frá Norræna húsinu er um tvær milljónir. Því mun hefjast 10 vikna námskeið fyr- ir ungmenni á aldrinum 16-20 ára. Stór hópur óvirkur Hér er um að ræða ungmenni sem eru án skóla og án atvinnu og láta ekki mikið fyrir sér fara, að sögn Odds. Það liggja ekki fyrir staðfestar tölur hvað þessi hópur er stór en Oddur segir að fjöldinn sé mun meiri en flestir geri sér í hug- arlund þar sem lítið fari fyrir þess- um krökkum og margir eyði dögun- um i að sofa og gera ekki neitt. Hverjar eru áherslumar i nám- inu? „Þegar hópurinn er kominn sam- an, en það eru 20 nemendur sem komast inn, munum við fara í gegn- um ákveðið ferli sem er mjög skylt samfélagsfræði, fjölmiðlafræði og sjálfsskoðun. Lýðskólafélagið hefur einnig verið í samvinnu við Græn- lendinga og Færeyinga og mun sú samvinna halda áfram, við tökum á móti færeyskum og grænlenskum hóp nema hér í nóvember og dvelja þeir hér í viku. í lok skólaannarinn- ar gefum við gefa út skólablað eins og i fyrravor, blaðið Ozon, og verð- ur það gert í samvinnu við hópana sem koma hingað.“ Vita krakkarnir af þessum mögu- leika? „Nei, það er einmitt staðreyndin að sá hópur sem við erum að reyna að ná í í þetta skiptið er oft ekki að leita að neinum úrræðum. Oft eru það foreldramir sem hvetja viðkom- andi til að fara undan sænginni og finna eitthvað að gera.“ Góö tilfinning fyrir hópnum „Við náum bara í brot af hópnum en því minni sem skólamir em þvi nánari tengsl em milli nemenda og kennara, og meiri tilfinning fyrir heimilinu sínu sem skólinn gæti verið. Enda tókst okkur að halda 95% mætingu hjá krökkunum sem er mjög merkilegt. í skólanum er dagskrá sem er spennandi og við- fangsefnin em sniðin að þeirra hug- arheimi, félagsskapurinn og tilfmn- ingin fyrir hópnum er það góð aö þau vilja ekki missa úr.“ Hafið þið fylgst með hvað krakk- arnir gera eftir að skólanum lýkur? „Eftir útgáfu Ozon, sem kom út í síðustu viku, hittumst við aftur og það kom í ljós að af þeim 18 sem út- skrifuðust var meiriparturinn í skóla núna.“ Við emm kannski eins og bensín- stöð, maður fer út af þjóðveginum og fyllir á orkubirgðirnar, og svo út á þjóðveginn aftur enda vitum við að menntabrautin er sú braut sem skiptir máli í dag. Það þýðir ekkert að byrja að ganga þann veg ef mað- ur er í fýlu, líkar ekki við skólakerf- ið eða er lamaður á annan hátt. Það verður að gefa þessum krökkum mátt, menntun er jú máttur, en það er oft sem skólakerfið hefur lamað krakkana. Svona lítil eining eins og þessi skóli er lykillinn að því að mæta þessum hópi krakka,“ sagði Oddur að lokum. Egilstaðir: Átak í umhverf- ismálum DV, Egilsstööum: „Við höfum að ýmsu leyti for- skot í umhverfismálum. Hér er mikill gróður, stórt og gott úti- vistarsvæði þar sém er Selskógur. Áhugi fólks er vakandi, sbr. átak um að láta bílinn ganga í frígír og á bíllausum degi í sumar skráðu 240 manns sig á lista yfír þá sem skildu bilinn eftir heima. En hvað varðar vatnsból, frárennsli og al- menna umgengni erum við á svip- uðu róli og mörg önnur sveitarfé- lög. Þar þarf að taka til hendinni og ég er nú að vinna að úttekt á þeim málum,“ sagði Sigurborg Kr. Hannesdóttir á Egilsstöðum. Egilsstaðabær fékk styrk frá um- hverfisráðuneyti til þátttöku í nor- rænu verkefni um bætt umhverfi í litlum sveitarfélögum og stendur verkefnið til næstu áramóta. Leitast verður viö að styðja frumkvæði og efla áhuga með heimsóknum í fyrirtæki og stofnanir og koma á óformlegum fundum fyrir áhugafólk. Sigurborg sagði sorpmál í nokkuð góðu lagi með urðun sorps sem komst á fyrir nokkrum árum. Nú yrði hins vegar stefnt í flokkun og jarðgerð lífræns úr- gangs sem fyrst. Útivistarsvæðið er 300 ha. skóglendi og þar hafa verið gerðir göngustígar. Þá hefur einnig verið unnið aö endurbót- um göngu- og hjólastíga í bænum en í mörgum hverfum bæjarins eru götur lokaðar fyrir gegnu- makstri en gangandi eiga kost á að stytta sér leið. SB Fundiö ef þú greiðir áskriftina meö beingreiöslum o o o l#l 1 # m S spamaður beingreiðslu er áskriftargjaldið millifært beint af reikningi þínunr í banka/sparisjóöi Þeir sem greiöa áskriftina meö beingreiðslum fá 5% afslátt af áskriftarverði miðaö við þá sem greiða með gíróseðli. Þú græðir því einn og hálfan sjónvarpsdag í hverjum mánuði og sparar þér auk þess ferð í bankann. Allar nánari upplýsingar um beingreiðslu færðu bjá viðskiptabanka þínum eða áskriftardeild Stöðvar 2, fsími 515 6100 . - grænt númer 800 6161 ) Greiddu áskriftina meö beingreiðslum ■ " ^ r snm FJOLVARP svn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.