Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Page 4
18
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 I>V
ísland
— plötur og diskar—
| 1. (1 ) Pottþétt 5
Ýmsir
t Z ( 3 ) New Adventures in Hi-Fi
R.E.M
t 3. (- ) Nirvana
From the Muddy Banks of the Wh...
I 4. ( 2 ) Falling into You
Celine Dion
| 5. ( 5 ) Travelling without Moving
Jamiroquai
t 6. (10) Pinkerton
Weezer
# 7. ( 4 ) Coming up
Suede
t 8. (13) ItWasWritten
NAS
| 9. ( 9 ) Trainspotting
Úr kvikmynd
# 10. ( 7 ) Unreleased and Revamped
Cypress Hill
f 11. ( 6 ) New Beginning
Tracy Chapman
112. (Al) The Score
Fugees
113. (17) Salsaveisla aldarinnar
Ýmsir
f 14. ( 8 ) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
115. (Al) NoCode
Pearl Jam
116. (16) Older
George Michael
f 17. (11) Stone Free
Úr leikriti
f 18. (12) Pottþétt 4
Ymsir
119. (- ) The First Band on the Moon
The Cardigans
| 20. (20) Paranoid and Sunburnt
Skunk Anansie
London
-lög-
t 1. (- ) Setting Sun
The Chemical Brothers
f 2. ( 1 ) Brekfast at Tiffany's
Deep Blue Something
t 3. (- ) You're Gorgeous
Baby Bird
t 4. ( 6 ) It's All Coming back to Me now
Celine Dion
| 5. ( 5 ) I Love You Always Forever
Donna Lewis
t 6. (- ) Rotterdam
The Beautiful South
f 7. ( 3 ) Seven Days and One Week
BBE
f 8. ( 2 ) Ready or not
Fugees
t 9. (- ) Kevin Carter
Manic Street Preachers
f 10. ( 4 ) Escaping
Dina Carroll
New York
-lög-
: | 1.(1) Macarena (Bayside Boy Mix)
Los Del Rio
| 2. ( 2 ) I Love You always Forever
Donna Lewis
) 3. ( 3 ) It's All Coming back to Me now
Celine Dion
| 4. ( 4 ) Twisted
Keith Sweat
t 5. ( 7 ) Where Do You Go
No Mercy
) 6. ( 6 ) Change the World
Eric Clapton
f 7. ( 5 ) C'mon N' Ride It
Quad City Dj's
) 8. ( 8 ) Loungin
LL Cool J
t 9. (10) You're Makin' Me High/Let It Flow
Toni Braxton
t 10. (14) Last Night
Az Yet
^ Bretland ^
— plötur og diskar—
t 1. (- ) Natural
Peter Andre
f 2.(1) K
Kula Shaker
f 3. ( 2 ) The Score
Fugees
t 4. (- ) From the Muddy Banks of the W...
Nirvana
t 5. (- ) Sheryl Crow
Sheryl Crow
f 6. ( 3 ) Travelling without Moving
Jamiroquai
f 7. ( 4 ) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
f 8. (7 ) Older
George Michael
f 9. ( 6 ) Moseley Shoals
Ocean Colour Scene
t10. (15) Falling into You
Celine Dion
Bandaríkin
—sl=- plötur og diskar —_
) 1. (1 ) Falling into You
Celine Dion
) 2. ( 2 ) Home again
New Edition
t 3. ( 4 ) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
t 4. ( - ) Set It off
Soundtrack
) 5. ( 5 ) Another Level
Blackstreet
t 6. ( - ) Sheryl Crow
Sheryl Crow
f 7. ( 3 ) New Adventures In Hi-Fi
r E m
) 8. ( 8 ) Keith Sweat
Keith Sweat
f 9. ( 6 ) All Eyez on Me
2Pac
f 10. ( 7 ) No Code
Pearl Jam
Mezzoforte á apavöllum
Aðdáendur Mezzoforte eiga von á
margföldum glaðningi á mánudag-
inn kemur. Þá kemur út plata
hljómsveitarinnar Monkey-fields og
jafnframt heldur hún tónleika í
Borgarleikhúsinu þá um kvöldið.
Þá verða einnig endurútgefnar fjór-
ar eldri plötur Mezzoforte sem hafa
verið hljóðblandaðar stafrænt.
„Við lögðum síðustu hönd á
þessa plötu fyrir um það bil níu
mánuðum þannig að það var tími
kominn til að hún væri gefin út,“
segir Eyþór Gunnarsson, hljóm-
borðsleikari Mezzoforte. „Tafirnar
eru til komnar vegna einhvers
samningaþófs um útgáfuna erlend-
is. Ég þekki því miður ekki inn á
það nema mér skilst að ganga hafi
átt frá erlendum útgáfusamningum
áður en hún kom út hér.
Til Búlgaríu
Tónleikarnir á mánudagskvöldið
verða hinir einu sem Mezzoforte
heldur að sinni. Það sem fyrir ligg-
ur á þessu ári auk þeirra er ferð til
Búlgaríu þar sem hljómsveitin spil-
ar sextánda desember. Þá fer hún
hugsanlega til Indónesíu í desem-
ber en það er ekki afráðið.
„Það sem kemur í veg fyrir að
við getum spilað meira er fyrst og
fremst það að Friðrik Karlsson er
bundinn við að spila í sýningum á
Jesus Christ Superstar í Lundún-
um fram í miðjan desember," segir
Eyþór. „Á næsta ári höfum við hins
vegar i hyggju að leika meira sam-
an. Það háir hljómsveitinni í raun
og veru hversu sjaldan hún spilar
og hálft í hvoru má líta á hljómleik-
ana á mánudaginn sem lið í að
halda okkur í æfingu fyrir Búlgar-
íuferðina. Við æfum þó vitaskuld
fyrir hana þegar þar að kemur.“
Apavellir
Nýja platan, Monkey- fields,
dregur nafn sitt af því að þegar liðs-
menn Mezzoforte voru að æfa lögin
sem fara áttu á plötuna komu þeir
Mezzoforte heldur tónleika í Borqarleikhúsinu á mánudaqskvöld, sama dag og nýjasta plata hljómsveitarinnar kem-
sér fyrir í nokkra daga í sumarbú-
staðnum Apavöllum. Platan var
reyndar hljóðrituð síðsumars 1995
á fáeinum dögum og síðan voru lög-
in slípuð til síðar. Eyþór segir að
Monkey-fields sé að ýmsu leyti frá-
brugðin fyrri plötum Mezzoforte.
„Já, hún er verulega frábrugðin
fyrri plötum okkar á köflum. Það
má segja að hún sé að vissu leyti
afturhvarf til fortíðarinnar þegar
ekki gafst kostur á að nýta sér all-
ar þær tæknibrellur sem nútíma
hljóðver bjóða upp á. Nú, nýi saxó-
fónleikarinn okkar, Óskar Guðjóns-
son, hleypti nýju blóði i spila-
mennskuna. Einnig hjálpaði til að
við fengum upptökustjóra sem við
höfum ekki unnið með áður til að
vinna með okkur að plötunni. Hann
samvinnu við
okkur sem erum allir upptökustjór-
ar í eðli okkar og með ákveðnar
skoðanir á því hvemig hlutirnir
eiga að ganga fyrir sig. Og honum
tókst að fá út úr okkur það sem við
vildum að hann fengi. Þessi maður
heitir Andrew Missingham og hann
hefur meðal annars unnið fyrir
Acid Jazz fyrirtækið."
Liðsmenn Mezzoforte hafa haft í
nógu að snúast jafnt hér á landi
sem erlendis að undanfornu. Frið-
rik vinnur í Lundúnum og kom
meðal annars fram með Pavarotti á
dögunum. Gunnlaugur Briem hefur
sömuleiðis unnið í Bretlandi upp á
síðkastið og fer væntanlega þangað
á næstunni. Eyþór hefur nýlokið
við að vinna plötu með Bubba
Morthens og er önnum kafinn með
Borgardætrum. Mezzofortemenn
eru því síður en svo aðgerðalausir
milli þess sem þeir vinna saman
undir merkjum þess gamalgróna
stórveldis á bræðingstónlistarsvið-
inu.
Endurútgefnu plöturnar sem eru
að koma út um þessar mundir eru
Surprise Surprise, Observations,
Octopus og No Limits. Óskar Páll
Sveinsson, upptökumaður I Lund-
únum, sá um að hljóðblanda lögin á
plötúnum stafrænt fyrr á þessu ári.
Hann endurvann einnig hljóðið á
fjórum Mezzoforteplötum til viðbót-
ar og verða þær gefnar út síðar.
-ÁT
hljomsveitin aftur
Crash Test Dummies: Sungiö um orma, skeggjaöa konu og dreng meö lausa
tönn.
áferð
Fólk kitlar sennilega enn þá í
munninn eftir að hafa reynt að
raula lagið MMM MMM MMM sem
kanadíska hljómsveitin Crash Test
Dummies sendi frá sér fyrir nokkr-
um árum. Lagið var á plötunni
God Shuffled His Feet sem vakti
verðskuldaða athygli og seldist í
bílförmum eða svo. Lagið vakti
mikla hrifningu og fór í efstu hæð-
ir vinsældalista, sem og lagið Af-
ternoons and Coffeespoons sem gaf
þvi lítt eftir í vinsældum. Og nú er
að sjá hvernig lögunum af nýjustu
plötu Crash Test Dummies reiðir
af.
Platan heitir A Worm’s Life, tólf
laga gripur sem hefur að geyma lög
og texta sem bjóða upp á óvænt
sjónarhorn í textum. Textinn við
titillagið fjallar til dæmis um lífið
og baráttuna frá sjónarhóli orms. í
textanum við Overachievers, er
segir frá skeggjaðri konu og slepju-
legum geimfara, og í He Liked to
Feel It er sungið um dreng sem
ætlar að ná úr sér lausri tönn með
því að binda spotta i hana og skott-
ið á hundi.
Nýja platan kom út fyrir
nokkrum vikum og Brad Roberts
söngvari og félagar hans í Crash
Test Dummies hyggja á hljómleika-
ferð seint í haust til að fylgja henni
eftir. Engum sögum fer af Evrópu-
ferð að sinni.
Samantekt: Ásgeir Tómasson
Nashville:
Sólstrandagæj-
arnir halda
Austfjarðaball
- gert að árlegum
viðburði
Föstudaginn 11. október verður
Rúnar Júl. ásamt hljómsveit á neðri
hæð skemmtistaðarins Nashville en
á efri hæðinni verður diskótek.
Laugardaginn 12. október munu
Sólstrandagæjarnir halda Aust-
fjarðaball á hinum góðkunna
skemmtistað Nashville. í fyrra var
sams konar ball haldið á Tveimur
vinum og þar var mikil stemning
enda mættu þangað hvorki meira
né minna en um 400 manns. Nú er
sem sagt ætlunin að endurtaka leik-
inn á Nashville og eflaust mun fólk
af austfírsku bergi brotið og aðrir
fjölmenna á þennan gleðskap á Nas-
hville enda lofa Sólstrandagæjarnir
rífandi stemningu.
Sólstrandagæjar halda uppi rífandi
stemningu á Austfjaröaballi á Nas-
hville laugardaginn 12. október.