Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Síða 5
«1 313 "W FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 19 ísafjörður: Sixties heldur uppi stuði - kemur fram á körfuboltaleik „Þaö verður pakkað hús og mikið stuð,“ segir Rúnar Öm Friðriksson, söngvari hljómsveitar- innar Sixties, um vænt- anlega ferð sveitarinnar til Ísaíjarðar. Hljómsveit- in Sixties hefur verið geysivinsæll gleðigjafl að undanfomu og virðist bítlastíll hljómsveitarinn- ar hafa gengið vel í land- ann. í sumarbyrjun kom platan Ástfangnir út og þar var fjöldi laga sem hafa komist hátt á vin- sældalistum. í sumar og haust hafa þeir félagar farið víða mn land og ekkert lát virðist vera þar á. Heldur vestur Um næstu helgi ætlar Sixties að halda til Vest- fjarða og halda þar uppi geigvænlegu stuði eins og henni er einni lagið. Föstudaginn 11. október er stór dagur í íþróttalífi ísfirðinga en þá leika þeir sinn fyrsta heimaleik í úrvalsdeild körfuboltans. KFÍ mætir Tindastóli og hefst leikurinn klukkan 20.00 í íþróttahúsinu ís- jakanum. Sixties mun koma fram í hléi. Á föstu- dagskvöldinu leikur sveitin fyrir dansi á mikl- um körfuboltadansleik. Laugardaginn 12. október verður svo haldið stórt ball í Sjallanum á ísafirði. Gengur vel Rúnar segir að Sixties hafi gengið vel í sumar. „Það var ekki beysið hjá mörgum hljómsveitum í sumar en við getum ekki kvartað. Samt var mikill þeytingur á okkur,“ segir hann. Sixties verður hús- hljómsveit á Hótel íslandi í vetur og að sögn Rúnars kemur það sér mjög vel fyrir sveitina. „Það er þægilegt að vera á einum stað þá getum við safnað kröftum og viðhaldið ferskleikanum. Þar er líka hægt að finna ný lög en við munum ekki gefa neitt út fyrir næstu jól. Hins vegar er aldrei að vita hvað gerist fyrir næsta sumar. Við munum taka það með trompi enda er hugur í mönnum," segir Rúnar að lokum. Auk hans skipa þeir Þórarinn Freysson bassa- leikari, Guðmundur Gunnlaugsson trommu- leikari og Andrés Gunn- laugsson gítarleikari bitlasveitina Sixties. JHÞ Hljómsveitin Sixties verður á ísafirði um helgina. /erður stuð á ky Boogie ilgina. Hún ' í Sjallanum eyri laugar- 12. október. íd BGS Sjallinn Akureyri: Spooky Boogie hitar upp norðrið Nýlega var stofnaður diskó- og fönkflokkurinn Spooky Boogie þar sem stórsöngvaramir Richard Sc- obie og Stefán Hilmarsson leiða saman hesta sína. Nú eru þeir félag- arnir famir að láta til sín taka og halda norður til Akureyrar um næstu helgi. Vetrarfunktískan kynnt Laugardagskvöldið 12. október ætlar Spooky Boogie að leika á diskóhátíð í Sjallanum á Akureyri. Þar mun sveitin eflaust leika lög af nýútkomnum geisladiski, Greatest Hits, en honum hefur verið vel tek- ið af diskóaödáendum. Vetrar- fúnktískan frá versluninni Zentro verður kynnt ásamt því að gestum gefst kostur á að smakka á nýjum og hlýjum diskódrykk. Auk þeirra Richards og Stefáns skipa þeir .Sigurður Gröndal, James Ólsen, Eiður Alfreðsson og Ingólfur Guðjónsson hljómsveitina Spooky Boogie. KVIKMYNDAHA TIÐ HASKÓLABÍÓS OG DV Confessionnal Skriftunin Kol»ert Lepage, einn atliygliverhasti kvikiiiyiidagcrbarinafair kanada, Íívrir okkur liér sjóiiræiit ineistaraverk |>ar sem linýtast saiiian |mi'hir fortíftar 0J4 mitióar. I’etta er myiul sem |m seiut ^leymir. Afrallilutverk Lotliaire lUiillieaii og Kristin Seott I lionias * ★ ■ ★. •n//sf ★ ★ I Rúnar Þór í Keflavík B Hinn geðþekki trúbador og | listamaður Rúnar Þór spilar Íföstudaginn 11. október og laug- ardaginn 12. október í Ránni í Keflavík. Hann mun væntan- lega spila tónlist af nýrri plötu sem kemur út um næstu mán- aðamót. Sú plata hefur verið um ár í smíðum. Henni á einnig að dreifa á ensku á i - Norðurlöndum. Sömuleiðis er ný píanóplata á leiðinni frá || Rúnari. I Hljómsveitin GLOSS !A Fógetanum verður það diskósveitin GLOSS sem leikur fyrir dansi föstudaginn 11. október og laugardaginn 12. | október. í sumar sendi sveitin H frá sér lagið Allir dansa salsa gj og í lok ágúst kom annað lag | frá GLOSS sem heitir I Am 1 WhatlAm. IÞað eru þau Helga J. Úlfars- dóttir, Matthías Baldursson, Freyr Guðmundsson, Hjalti Grétarsson, Kristinn Guð- mundsson og Finnur P. Magn- & ússon sem skipa hljómsveitina f GLOSS. 8 i Hæfileikakeppni á Hótel Islandi Föstudaginn 11. október 1 verður haldinn annar hluti 1 hæfileikakeppninnar Stjörnur l| morgundagsins. í keppninni i verða fjórir valdir úr hópnum I til að keppa til úrslita. Eftir I keppnina mun hljómsveitin I Twist og bast leika fyrir dansi. I Hörður Torfa á Höfn og Djúpavogi Hinn landsfrægi tónlistar- tj maður Hörður Torfason verður |f með tónleika á Höfn í Homa- firði föstudaginn 11. október á Veitingastaðnum Víkinni. S Laugardaginn 12. október verð- I ur Hörður á Djúpavogi og held- 1 ur tónleika á Hótel Framtið. Kaffi Amsterdam um helgina Í Trúbadorinn Siggi Bjöms 1 verður á Kaffi Amsterdam > I föstudaginn 11. október, laugar- | daginn 12. október og sunnu- 5 daginn 13. október. I V Meira stuð á 8 Kaffi Reykjavík Sigrún Eva og hljómsveit |; leika fyrir gesti Kaffi Reykja- I víkur sunnudaginn 13. október. The Dublinen Irsk stemning um helgina Eins og venjulega verður írsk stemning um helgina á The Dub- liner. Föstudaginn 11. október verð- ur haldið sérstakt írskt kvöld með fiðluleikaranum knáa Dan Cassidy. Hann leikur írskar hljóðfæramelód- íur eins og honum er einum lagið. Cassidy hefur spilamennsku sína klukkan 17.00. Klukkan 23.30 á föstu- dagskvöldinu eru það Papamir sem stiga á stokk og halda uppi urrandi írskri stemningu fram á rauða nótt. Laugardaginn 12. október verða það Snæfríður og Stubbamir sem leika fýrir gesti The Dubliner. Sunnudag- inn 13. október verður leikinn írsk tónlist eins og hún gerist best. Leiðrétting í síðasta blaði var fjallað um plötu Rjúpunnar, Konung hálof- tanna. Gefa átti plöúmni eina og hálfa stjörnu en ekki hálfa eins og gefið var til kynna í plötudómnum. Þetta leiðréttist hér með.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.