Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Síða 8
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 DV
22 = #n helgina
i , ..... ................... )'*' .■ii-.— ii i.
Nemendaleikhúsið frumsýnir:
Leiklistarskóli íslands er með
leikhús á snærum sínum. Það heitir
Nemendaleikhúsið. Leikhús þetta
ætlar að frumsýna verkið Komdu
ljúfi leiði á morgun í Lindarbæ. Ge-
org Búchner heitir maðurinn sem
samdi þetta leikrit en það var Þor-
steinn Þorsteinsson sem sá um þýð-
ingu. Sýningin er byggð á leikrit
unum Vojtsek og Leonce og Lena.
Sýningarhandrit er eftir Hávar
Sigurjónsson og leik-
hópinn
sjálf-
an
en
Hávar er einnig leikstjóri.
Hann segir um höfund
verksins:
„Georg Búchner var stórmerk-
ur höfundur, byltingarmaður á sins
tíma mælikvarða, sósíalisti sem
vildi yfirstéttina feiga og hann vildi
bætt kjör alþýðunnar. Við sem njót-
um forsjónarinnar í því að búa á
einu af örfáum velmeg-
andi homum
heimsins látum
jafiivel telja okkur
trú um að slík
sjónarmið tilheyri
pólitískri
fomöld og
að fyrir-
bæri eins og hástétt og lágstétt, for-
réttindaaðall og alþýða, eignastétt
og verkalýður tilheyri orðahók gær-
dagsins og allt tal um slíkt skapi
sundrungu þegar skipun dagsins er
sameining í stéttlausu þjóðfélagi.
Það ræðst þá af trú-
girni okkar hvort
við teljum hug-
myndafræði
Búchner úrelta
eður ei.“
Nem-
endumir
sem leika
í leikrit-
inu heita
Atli Rafn
Sigurð-
arson,
Bald-
ur
sónur beggja verkanna byggja sama
heiminn, hugmyndaheim Búchner,
og hann er sú undirstaða sem sýn-
ingin okkar hvílir á.“
Leikritið Komdu ljúfi leiði verður
frumsýnt annað kvöld klukkan
20.00.
-ilk
Trausti Hreinsson, Gunnar Hans-
son, Halldór Gylfason, Inga María
Valdimarsdóttir, Katla Margrét Þor-
geirsdóttir og Þrúður Vilhjálmsdótt-
ir. Eins og áður sagði er leikrit
þetta soðið saman úr tveimur verk-
um. Hávar leikstjóri vill um það
segja:
„Leikritin tvö, Vojtsek og Leonce
og Lena eiga það sammerkt að túlka
á mjög beinskeyttan hátt þjóðfélags-
sýn Búchner. í harmleiknum um
Vojtsek og unnustu hans Maríu lýs-
ir hann hlutskipti lítilmagnans sem
samfélagið hefur að
s. leiksoppi. í
Leonce og
Lenu hefur Búchner
annað sjónarhorn þó sann-
færing hans sé hin sama.
Hann beitir háðinu óspart
þegar hann dregur upp
mynd af smákóngaaðlinum,
tilgangsleysi tilveru þess-
ara persóna, uppblásnum
hugmyndum þeirra um eig-
ið mikilvægi og síðast en
ekki sist bendir Búchner á
að það sé einungis hin of-
dekraða forréttindastétt
sem hafi tíma til og efni á
að velta sér upp úr til-
finningasemi og
rómantískum
dagdraumum.
Að blanda
þessu tvennu
saman þótti Nemendur Leiklistarskóla ísiands þykja efni-
okkur spennandi í upphafi |egjr leikarar. Á myndunum getur að líta sýnis-
og eftir því sem á æfinga- horn úr frumsýningarleikritinu þeirra, Komdu
timann hefur liðið æ eðli- ijúfj |eiði.
legra og sjálfsagðara. Per- DV-mynd ÞÖK
Atriði úr leikritinu Þrek og tár sem notið hefur gríðarlegra vinsælda.
DV-mynd GVA
Þjóðleikhúsið:
Þrek og tár
- óstöðvandi
Nú eru að hefjast á ný í Þjóðleik-
húsinu sýningar á leikriti Ólafs
Hauks Símonarsonar, Þreki og tár-
um sem frumsýnt var síðastliðið
haust. Verkið hefur nú verið sýnt
alls 67 sinnum á sama leikárinu og
tala gesta er komin upp í 28 þúsund
manns.
Þrek og tár er Reykjavíkursaga
frá sjöunda áratugnum, ljúfsár og
iðandi af lífsgleði, skreytt tónlistar-
perlum þessa tíma. Flytjendur tón-
listarinnar eru auk leikaranna hin
geysivinsæla Tamlasveit.
Leikendurnir eru þau Hilmir
á Stóra sviðinu
Snær Guðnason, Edda Heiðrún
Backman, Gunnar Eyjólfsson, Jó-
hann Sigurðarson, Edda Arnljóts-
dóttir, Anna Kristín Arngrímsdótt-
ir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir,
Örn Ámason, Egill Ólafsson, Stef-
án Jónsson, Hjálmar Hjálmarsson,
Bessi Bjarnason, Sveinn Þ. Geirs-
son og Sigríður Þorvaldsdóttir.
Margrét Guðmundsdóttir mun um
stundarsakir leika í stað Þóra Frið-
riksdóttur.
Sýningar á Þreki og tárum hefj-
ast á ný í kvöld og byrjar fjörið
klukkan 20.00. -ilk
Síðasta sýningarhelgi
Um þessar mundir stendm- yfir
málverkasýning Gunnars R. Bjama-
sonar í MÍR-salnum við Vatnsstíg.
Á sýningu hans era 38 olíumálverk
og pastelmyndir. Gunnar er kunnur
sem leikmyndahönnuður en hefur
jafnframt starfi ávallt unnið að
myndlist og er þetta sjötta einkasýn-
ing hans á málverkum auk þess sem
hann hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga.
Sýningu Gunnars lýkur á sunnu-
daginn en verður opin um helgina
frá kl. 14.00 til 18.00.
Listamaður leitar að fyrirsætu
Á morgun klukkan 16.00 opnar
Jóhann Torfason listsýningu í Gall-
erí Greip. Á sýningunni, sem ber
yfirskriftina Listamaður leitar að
fyrirsætu, verða fimmtán málverk
ásamt fáeinum myndasögum.
Myndirnar lýsa hugmyndum Jó-
hanns um menningarlegt áreiti á
börn en eru jafnframt hugleiðingar
um hvort listir geti varðað veginn
til aukins þroska og sjálfsþekking-
ar hvers einstaklings.
Jóhann, sem er 31 árs, stundaði
nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands og á að baki tvær
einkasýningar ásamt þátttöku í
fjölda samsýninga. Síðasta vetur
dvaldi hann í borginni San Sehast-
ian í Baskalandi og voru myndirn-
ar á sýningunni málaðar þar.
Sýningin Listamaður leitar að
fyrirsætu verður opin frá kl. 14.00
til 18.00 alla daga nema mánudaga
og stendur til 27. október. Það kost-
ar ekkert inn á hana og allir eru
velkomnir. -ilk
Myndirnar lýsa hugmyndum um menningarlegt áreiti á börn.
Leir í lok aldar
ÍHafnarborg stendur yfir sýning-
in Leir í lok aldar sem haldin er í
tilefni af tuttugu og fimm ára af-
mæli Leirlistafélagsins. Tuttugu og
sex meðlimir félagsins taka þátt í
sýningunni og alls eru þar áttatíu
og eitt verk. Sýningunni hefur verið
afar vel tekið og nú hafa á þriðja
þúsund manna séð hana. Sýning
þessi stendur til mánudagsins 14.
október og mun þetta þvi vera síð-
asta sýningarhelgin.
jónusta kl.
Bergur
Árbæjarkirkja: Bamaguðsþjón-
usta kL 11. Guðsþjónusta kl. 14 Félag-
ar úr Giaedonfélagi Reykjavíkur, aust-
urdeild, kynna i guösþjónustunni starf
félagsins og lesa ritningarlestra. Prest-
amir.
Áskirlqa:
11. Guðsþjónusta kL’14.
Sigurbjömsson.
Breiðholtskirkja: Bamaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta á sama tíma.
Bamakórinn syngur. Prédikunarefiii:
Fimmta boðorðið, „Þú skalt ekki
mann deyða“. Samkoma Ungs fólks
með hlutverk kL 20. Gísli Jónasson.
Bústaöakirkja: Bamamessa kL 11.
Foreldrar hvattir til þátttöku með
bömunum. Guðsþjónusta kL 14. Pálmi
Matthíassoa
Digraneskirkja: Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Bamaguðsþjónusta á sama
tima. Sóknarprestur.
Dómkirkjan: Messa kL 11. Prestur
sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Dómkórinn
syngur. Bamasamkoma kL 13 í kirkj-
unni. Guðsþjónusta kL 14. Sr. Jakob A.
Hjálmarsson.
Elliheimilið Grund: Guösþjónusta
kl. 10.15. Sr. Gylfi Jónsson
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Signý Sæmundsdóttir
syngur einsöng. Bamaguðsþjónusta
kl. 11 í umsjón Ragnars Schram.
Kirkjurútan gengur eins og venjulega
kl. 18. Guðsþjónusta með altarisgöngu.
Prestamir.
Fríkirkjan í Reykjavík: Guðsþjón-
usta kL 14. Cecil Haraldsson.
Grafarvogskirkja: Bamaguðsþjón-
usta kl. 11 í.umsjón Hjartar og Rúnu
og kl. 12.30 í Rimaskóla í umsjón Jó-
hanns og Ólafe. Guðsþjónusta kl. 14.
Siguröur Skagfjörö syngur einsöng.
Eftir guðsþjónustuna verður fúndur
með foreldrum fermingarbama Húsa-
og Hamraskóla. Fulltrúar bekkjar-
deilda draga um fermingardag. Prest-
amir.
Grensáskirkja: Fjölskyldumessa
kL 11. Bamakór Grensáskirkju syng-
ur, kórstjóri Margrét Pálmadóttir.
Messa kL 14. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal.
Hafnatjarðarkirkja: Sunnudaga-
skóli i Hafnarijarðarkirkju kl. 11. Um-
sjónarmenn sr. Þórhildur Ólafs, Natal-
ía Chow og Katrín Sveinsdóttir.
Sunnudagaskóli í Hvaleyrarskóla kl.
11. Umsjónarmenn sr. Þórhallur
Heimisson, Ingunn Hildur Hauksdótt-
ir og Bára Friðriksdóttir. Guðsþjón-
usta kl. 14. Prestur sr. Gunnþór Inga-
son. Fermingarböm úr öldutúnsskóla
sýna helgileik, lesa ritningarlestra og
bænir. Kaffisamvera í safiiaðarheimil-
inu Strandbergi eftir guðsþjónustu.
Hallgrimskirkja: Fræðslumorg-
unn kl. 10. Kennimenn í Hailgríms-
kirkju: dr. Sigurbjöm Einarsson, dr.
Sigurður Ámi Þórðarson. Bamasam-
koma og messa kl. 11. Fermingarlxim
og foreldrar hvött til að mæta. Sr.
Ragnar Fjalar Lárasson og Karl Sigur-
bjömsson.
Hjallakirkja: Fjölskylduguösþjón-
usta kL 11. Nemendur úr Tónlistar-
skóla Kópavogs koma i heimsókn.
Skólakór Snælandsskóla syngur undir
stjóm Heiörúnar Hákonardóttur.
Bamaguðsþjónusta kl. 13 i umsjá Írís-
ar Kristjánsdóttur. Kristján Einar Þor-
varðarson.
Hveragerðiskirkja: Sunnudaga-
skóli kL 11. Heilsustofnun NLFI: Guðs-
þjónusta kL 11. Jón Ragnarsson sókn-
arprestur.
Háteigskirkja: Bamaguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Helga Soffia Konráðsdóttir.
Messa kL 14 Sr. Tómas Sveinsson.
Keflavíkurkirkja: Sunnudaga-
skóli kL 11. Munið skólabilinn. Guðs-
þjónusta í Sjúkrahúsi Suðumesja kl.
13. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur Sigfús
Baldvin Ingvason. Kór Keílavíkur-
kirkju leiðir söng.
Kópavogskirkja: Bamastarf í safh-
aðarheimilinu Borgum kL 11. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ægir Fr. Sigurgeirs-
son.
Landspltalinn: Messa kl. 10. Sr.
Jón Bjarman.
Langholtskirkja, Kirkja Guð-
brands biskups: Messa kl. 11. Ferming-
arböm og foreldrar þeirra hvött til að
mæta í messuna. Presfiir sr. Tómas
Guðmundsson. Kór Langholtskirkju
(hópur III) syngur. Kaffisopi eflir
messu. Bamastarf kl. 13.00.
Laugameskirkja: Messa kL 11. Gí-
donfélagar kynna starf sitt og lesa ritn-
ingarlestra. Sigurbjöm Þorkelsson
prédikar. Drengjakór Laugames-
kirkju syngur undir stjóm Friðriks S.
Kristinssonar. Bamastarf á sama
tima. Guðsþjónusta kL 14 í Sjálfebjarg-
arhúsinu, Hátúni 12. Kvöldjguðsþjón-
usta kl. 20.30. Lifandi tónlist frá kl. 20.
ÓlafUr Jóhannsson.
Neskirkja: Bamastarf kl. 11. Opið
hús frá kl. 10. FrostaskjóL Bamastarf
kL 11. Húsið opnað kL 10.30. Sr. Hall-
dór Reynisson. Guðsþjónusta kl. 11.
Athugið breyttan tima. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Óháði söfiiuðurinn: Ejölskyldug-
urðsþjónusta kl. 14. Kirkjudagurinn.
Leikið á hörpu og gítar í guðsþjónust-
unni. Kafiisala kvenfélagsins eftir
guðsþjónustu.
. Seljakirkja: Bamaguðsþjónusta kL
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sigfinnur
Þorleifeson sjúkrahúsprestur préd-
ikar. Sóknarprestur.
Seltjamameskirkja: Messa kl. 11.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Bamastarf á sama tima í umsjá
Hildar Siguiðardóttur, Erlu Karlsdótt-
ur og Benedikts Hermannssonar.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14. Kirkjukór-
inn leiðir almerman söng undir stjóm
organistans, Steinars Guðmundsson-
ar. Nemendur úr Tónlistarskóla
Njarðvíkur koma fram og foreldrar
þeirra hvattir til að mæta. Sunnudaga-
skóli kl. 11. Böm í Innri-Njarðvíkur-
sókn sótt að safnaðarheimilinu kl.
10.45. Foreldrar era hvattir til að mæta
með bömum sínum. Baldur Rafii Sig-
urðsson.