Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Side 9
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 helgina * Hér sést Kjartan viö eitt verka sinna. Á morgun ætlar Kjartan Guðjóns- son að opna sýningu á verkum sín- um í Gallerí Fold við Rauðarárstíg. Sýninguna nefnir Kjartan Konuna og ljóðið. Listamaðurinn mun sýna módel- myndir en hann kenndi einmitt módelteikningu í áratugi. Einnig sýnir Kjartan myndir við úrval ljóða Jóns úr Vör. Hjalti Rögnvalds- son leikari mun lesa úr ljóðum skáldsins á sýningunni og hefst lest- urinn kl. 15.30. Sýningin Konan og ljóðið verður opnuð klukkan 15.00 og um leið verður kynning á glerskálum Jónas- ar Braga Jónassonar í galleríinu. Opið er í Gallerí Fold daglega frá kl. 10.00 til 18.00, laugardaga frá kl. 10.00 til 17.00 og sunnudaga frá kl. 14.00 til 17.00. -ilk Furöuleikhúsiö frumsýndi leikritiö Mjallhvít og dvergarnir sjö í Möguleikhús- inu fyrir skömmu. Nú hefur leikhúsiö ákveöiö aö endurtaka leikinn og verð- ur meö aöra sýningu á sunnudaginn kl. 14.00. Þetta veröur væntanlega eina sýningin aö sinni sem opin er almenningi af því aö þetta er farandsýning sem hægt er aö panta hvert á land sem er. Snegla 5 ára Listhúsið Snegla verð- ur fimm ára á morgun. í tilefni þess verður á morgun opnuð sýning í innri sal listhússins sem ber yfirskriftina Langt og mjótt. 15 listakonur standa að Sneglu og sýna 14 þeirra í þetta sinn. Sýningin, sem mun standa til 2. nóvem- ber, verður opin mánu- daga til föstudaga frá kl. 12.00 til 18.00 og laugar- daga frá kl. 10.00 til 14.00. -ilk Listhúsið Snegla stendur á horni Grettisgötu og Klapparstígs. Ónafngreindur listamaður Á Mokka kafFi á morgun mun ónafngreindur listamaður opna sýn- ingu klukkan 21.00. í fréttatilkynn- ingu stendur: „Ungir listamenn hengja ekki upp verk sín með hefðbundnum hamri og nagla. Með nælonsokk á höfði ráðast þeir inn í sýningarsalinn og hrópa „everybodi freeze!“, skipa eldri kynslóðum að leggjast á gólfíð, plaffa svo niður verkin á veggjun- um, láta síðan vaða úr sjálfvirkum riffli á auða veggina; stinga nöglum í kúlnagöt og hengja verk sin á þá.“ Ungir listamenn kveða sér hljóðs með hvelli. -ilk Málþing íslenskunema: Mímir á afmæli Mímir er félag stúdenta í íslensk- um fræðum. Félag þetta fagnar fimmtíu ára afmæli sínu á þessu ári. í tilefhi þess standa félagar Mímis fyrir viðamiklu málþingi um helgina. Þar verður litið á íslenskt mál og íslensk fræði út frá mörgum ólíkum sjónarhomum. Dagskráin byrjar kl. 10.30 í fyrra- málið þegar Sigþrúður Gunnars- dóttir mun leiða umræðu um stöðu rannsókna í íslenskum fræðum. Fjöldi erinda verður fluttur í fram- haldi af því og dagskránni lýkur seinni hluta sunnudags. Erindin sem flutt verða á mál- þinginu verða gefin út í sérstöku af- mælishefti tímaritsins Mímis. Allir eru velkomnir á máiþingið, hvort sem um er að ræða kennara, nem- endur eða áhugafólk um íslenskt mál. -ilk Pedró Almodóvar er hér kominn á gamlar slóbir í efnisvali en meb nýjum efnistökum. Efniviburinn er kona á barmi taugaáfalls en efnistökin eru fágabari og meira lagt upp úr dramatískri sögu en ábur. Stílbrögbin eru samt öll til stabar, litríkar uppákomur, skrautlegar persónur og djúp kynferbisleg undiralda kryddub hárfínum húmor. i---------------- 1 Þjóðleikhúsið í hvítu myrkri föstudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 sunnudag kl. 20.30 Nanna systir I sunnudag kl. 20.00 Hamingjuránið laugardag kl. 20.00 Þrek og tár föstudag kl. 20.00 Kardemommubærinn sunnudag kl. 14.00 Borgarleikhúsið Ef væri ég gullfiskur laugardag kl. 20.00 Largo Desolato laugardag kl. 20.00 Barpar föstudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 Stone Free föstudag kl. 20.00 laugardag kl. 23.30 Leikfálag Akureyrar Sigrún Ástrós föstudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 Loftkastalinn Á sama tíma að ári laugardag kl. 20.00 Sirkús Skara skrípó föstudag kl. 20.00 Hermóður og Háðvör Birtingur - allt er gott föstudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 Islenska óperan Master Class laugardag kl. 20.00 sunnudag kl. 20.00 Hafnarborg Vegurinn er vonargrænn föstudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 Furðuleikhúsið Mjallhvít og dvergamir sjö sunnudag kl. 14.00 Kaffleikhúsið Spænsk kvöld föstudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 Hinar kýmar sunnudag kl. 21.00 Skemmtihúsið Ormstunga föstudag kl. 20.30 sunnudag kl. 20.30 Höfðaborgin Gefln fyrir drama þessi dama föstudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.