Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Blaðsíða 5
JjV FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 Að öðrum ólöstuðum var það Emilíana Torrini sem vakti hvað mesta athygli á íslenskmn hljóm- plötumarkaði síðastliðið haust þeg- ar hún sendi frá sér plötuna Crouie d’o 1. Emilíana er aftur á ferð á þessu hausti og hefur verið önnum kafin síðustu daga við að taka upp nýju plötuna, vinna að gerð mynd- bands og standa í fleiri verkum sem fylgja þvi að gefa út plötu. Enskan af þrjósku „Nei, nei, ég ætla að gefa þessa plötu út sjálf í samvinnu við Jón Ólafsson eins og þá síðustu," segir Emilíana þegar hún er spurð að því hvort hún sé búin að fá útgefanda að nýju plötunni. „Það er mjög mik- il vinna að standa í þessu sjálfúr en ég lít þannig á að með því gefa út plötumar mínar sjálf læri ég mest. Það er líka frábærlega gaman að smíða eitthvað sjálf frá upphafi til enda. Þá get ég sagt að það sé Mitt með stórum staf þegar það er til- búið.“ Nýja platan heitir Merman eða Hafsveinn eftir stórskrítnu lagi sem Emilíana samdi með Jóni. Alls eru fimm frumsamin lög á plötunni að þessu sinni og fimm eftir aðra, þeirra á meðal Joni Mitchell, Stevie Wonder og Tom Waits. Textar er- lendu laganna og þeirra frum- sömdu eru allir á ensku og Emilí- ana segist ekkert skammast sín fyr- ir það. „Ég er alls ekki á móti lögum með íslenskum textum," segir hún. „Það er fyrst og fremst af þrjósku sem ég syng á ensku. Það eru allir búnir að vera að frekjast í mér og segja að ég eigi að syngja á ís- lensku. Maður á bara að geta valið hvað manni finnst best að gera. Aðrir eiga ekki að vera að blanda sér í slíkt.“ Femir útgáfutónleikar Að sögn Eniilíönu spila sömu hljóðfæraleikarar á Merman og Crouie d’o 1. En til viðbótar er nú kominn flokkur fiðlu- og flautuleik- ara. Fyrir vikið tók upptaka nýju plötunnar nokkuð lengri tíma en þeiirar.fyrri. „Ástæðcm er fyrst og fremst sú að við vönduðum okkur miklu meira en síðast, það er að segja við undir- leikinn,” segir Emiliana. „Ég var enga stund með sönginn. Það dugar mér aö syngja hvert lag einu sinni eða tvisvar. Mér er alveg sama þótt örfáar falskar nótur slæðist með ef tilfinningin er rétt. Hún er aðalmál- ið fyrir mér.“ Merman kemur út í næstu viku og miðvikudaginn þrettánda nóv- ember verður platan kynnt á út- gáfutónleikum í Óperunni. Emilí- ana segir að nánast allir sem leika á plötunni komi fram á tónleikun- um. Og það er ástæða fyrir því að íslenska óperan varð fyrir valinu til að halda útgáfútónleikana. „Mér finnst langmest gaman að koma fram á fallegum stöðum og Óperan og Þjóðleikhúsið eru í mestu uppáhaldi hjá mér,“ segir Emilíana. „Fólk ætti að nota óper- una miklu meira en gert er. Það skiptir miklu máli að koma fram í fallegu umhverfi.“ En útgáfútónleikamir í Reykja- vík verða ekki hinir einu. Emilíana og félagar stefiia að því að hafa þá fema í allt af þeirri einfoldu ástæðu að fólk á landsbyggðinni á ekki allt heimangengt til að mæta á tónleika í Reykjavík og því er heppilegasta fyrirkomulagið að halda eina tón- leika í hverjum landsfjórðungi. -ÁT Emilíana Torrini: Ef tilfinningin er rétt gerir ekkert til þótt fáeinir falskir tónar slæðist meö. Hótel Island um helgina: Bítlaár og ferðagleði Þaö er greinilegt að Hótel ísland ætlar sér stóra hluti í skemmtanalíf- inu þennan veturinn enda mikið að gerast mn næstu helgi. Haldið verð- ur áfram með stórsýninguna Bítla- árin 1960-1970 laugardaginn 2. nóv- ember en á þeirri sýningu er gott tækifæri fyrir ’68 kynslóðina að skemmta sér. Reyndar er ekki við öðm að búast en fleiri aldurshópar geti fúndið sitthvað við sitt hæfl í þeirri tónlistarveislu sem þessi sýn- ing er. Ejöldi þekktra söngvara tek- ur þátt í sýningunni og má nefiia þá Ara Jónsson, Bjama Arason, Björg- vin Halldórsson, Pálma Gunnarsson Pálmi Gunnarsson er meöal þeirra landsþekktu tónllst- armanna sem troða upp á sýningunni Bítiaárin á Hótel ís- landi. og hinar unaðslegu söngsystiu-. Undirleikur er í traustum höndum stðrsveitar Gunnar Þórðarsonar. Eftir sýninguna mun hin lands- þekkta hljómsveit Sixties leika fyrir dansi fram á rauðanótt. Sunnudag- inn 3. nóvember verður uppskem- hátíð ferðaþjónustunnar 1996 og nefnist hún ferðagleði. Byijað verð- ur að taka á móti gestum klukkan 18 með fordrykk, þríréttaðri glæsi- máltíð, skemmtiatriði og happ- drætti. Eftir þetta fá gestir síðan að njóta sýningarinnar Bítlaárin og þegar honum lýkur verður haldin dansleikur. -JHÞ Mónlist *** Sixties í Gjánni Hin sívinsæla nýbítlahljóm- sveit Sixties heldur til Selfoss fostudaginn 2. nóvember og leikur fyrir dansi í Gjánni. Laugardaginn 3. nóvember verða strákamir í Sixties á Hótel íslandi þar sem þeir leika öll gömlu góðu lögin fyr- ir gesti skemmtistaöarins. Sixties skipa þeir Rúnar öm Friðriksson, Þórarinn Freysson, Guðmundur Gunn- laugsson og Andrés Gunn- laugsson. Kúrekafjör á Feita dvergnum Hljómsveitin Texas Two Step leikur sveita- og rokktón- list eins og hún gerist best fostudaginn 1. nóvember og laugardaginn 2. nóvember. Á laugardagskvöldið fá þeir fé- lagar sérstaka gesti en þá koma kántrídansarar frá Danssmiðju Hermanns Ragn- ars og sýna listir sínar. Vax á Fógetanum Það ætti ekki að væsa um gesti Fógetans um helgina. Það verða engir aðrir en rokk- aramir í hljómsveitinni Vax sem skemmta þeim fostudag- inn 1. nóvember og laugardag- inn 2. nóvember. Fjör á Kaffi Reykjavík Það verða engir aðrir en strákamir í Reggae on Ice sem skemmta gestum á Kaffi Reykjavík föstudagskvöldið 1. nóvember. Frekar hljótt hefur verið um sveitina að undan- fömu en nú er ljóst að þeir verða tvíefldir þegar þeir spila fyrir gesti Kaffi Reykja- víkur. Hinn margreynda hljómsveit Sóldögg verður svo þeim sem skemmta sér á Kaffi Reykjavík laugardagskvöldið 2. nóvember til halds og trausts eins og henni er einni lagið. S.uííhudaginn 3. nóvem- ber verður það svo Sigrún Eva og hljómsveit sem hitar gestum á Kaffi Reykjavík meö þrælskemmtilegri tónlist. Hljómsveitin Jetz rokkar „Vinnan við plötuna gekk mjög vel og nú er bara komið að því að kynna hvað við höf- um verið aö gera,“ segir Gunnar Bjami, I hljómsveit- inni Jetz, en hann var eitt sinn í Jet Black Joe. Ætlunin er að Jetz haldi upp á útgáfu nýrrar plötu með gestum skemmtistaðarins Tetris laug- ardagskvöldið 2. nóvember. Hljómsveitarmenn hafa þegar komið einu lagi, Mystery Girl, á spilunarlista útvarps- stöðvanna en í því lagi syngur Móeiður Júníusdóttir með hljómsveitinni Jetz. -JHÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.