Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Blaðsíða 8
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 T>"\7' hefgina Kaffileikhúsið: Vala Þórs og Súkkat Súkkat er sérstök kryddtegund, unnin úr ávöxtum og skorin í bita. Svo er líka til hljómsveit sem heitir Súkkat. Hana skipa þeir kumpánar Hafþór Ólafsson og Gunnar Öm Jónsson. Þeir hafa nú komið á fót fjöllistahópi, skipuöum þeim sjálf- um og leikkonu nokkurri sem heit- ir Vala Þórsdóttir. Þau hafa nú ákveðið að leiða hesta sína í Kaffi- leikhúsið til leiks og söngs og byrja þar á morgun kl. 21.00. Vala mun frumsýna leiksögur sínar Kíki, súkkulaði, fýlugufu og rasl og Konuna með löngu augnlok- in. Súkkat ætlar að flytja frumsam- in lög og texta. Fyrri leiksagan er fá- ránleg en Vala hefrn- gengið með hana í nokkur ár. Hún ungaðist svo út eftir námskeið hjá Dario Fo í Kaupmannahöfn í vor. Seinni leik- sagan er unnin fyrir þessa sýningu og tekur dúettinn dyggan þátt í upp- færslunni. Annars flytur Súkkat frumsamin lög og texta um íslensk- an veruleika sem þó þarf ekki að vera raun. Dúettinn hefur gefið út tvær geislaplötur sem hvor um sig seldist í bíifarmi. Það gengur sú saga að hér sé um einstaklega skemmtilega uppákomu að ræða. -ilk Hér er hann í öllu sínu veldi, fjöllistahópurinn Vala Þórs og Súkkat. DV-mynd Pjetur Sigrún hjá Sævari Karli Sigrún Ólafsdóttir opnar í dag kl. 16.00 sýningu á verkum sínum í galleríi Sævars Karls að Bankastræti 9. Sigrún er fædd árið 1963 í Reykjavík. Hún hefur stundað nám við myndmótunardeild Myndlista- og handíðaskóla íslands og fram- haldsnám í Þýskalandi. Auk þess að hafa tekið þátt í fjölda sýninga hefúr Sigrún haldið einkasýningu í Nýlistasaöiinu. Gallerí Sævars Karls er opið frá kl. 10.00 til 18.00 virka daga. -ilk Verkfærasmiður sýnir málverk Sýning á verkum eftir Ólaf Odds- son er nú í gangi í Lundi. Ólafur er menntaður sem verkfæra- og móta- smiður en stundaði myndlistamám í Myndlistarskólanum í Reykjavík, myndhstardeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti og myndlistarbraut í Tómstundaskólanum. Sýningin í Lundi mun standa til sunnudags og er opin frá kl. 14.00 til 18.00. -ilk ___________________ Pabbadagurá Laugavegi Á morgun er laugar- dagur og hann verður sérstaklega langur á Laugavegi og í nágrenni. Kaupmenn við Laugaveg standa um leið fyrir fyrsta pabbadeginmn á íslandi. í tileöii dagsins verður ákveðinn pabbaleikur í gangi oo ber heitið Ljótasta bindið. Leikurinn sá fer þannig fram að fj ölskyldumeðlimir koma með bindi af heimilisföðum- um og skila því í einhverja verslun sem tekur þátt í leiknum. í dagslok velur starfsfólk hverrar verslunar svo ljótasta bindið og sigurvegarinn fær vegleg verðlaun frá þeirri versl- un sem bindinu var skilað til. Ýmiss konar tilboð verða svo í verslununum sem verða opnar til kl. 17.00. Þá er bara um að gera aö vera forsjáll, kíkja i bæinn og gera hag- stæð jóla- gjafainn- kaup. -ilk Þetta er bindi. Norræna húsið: Lína langsokkur og finnskur leirlistarmaður Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis í Norræna húsið á sunnudaginn þar sem sýndir verða þrír þættir um hina óviðjafnanlegu Línu Langsokk. Þættimir þrír, sem sýndir verða, heita Pippi flyttar in i Villa Villekulla, Pippi ár sakletare och gár pá kalas og Pippi gár í affar. Um er að ræða sænska þætti sem taka rúmlega 80 mínútur. Lína lang- sokkur er engum lík, finnur sífellt upp á nýjum leikjum og ævintýrum og það er ekki hægt að fá leið á henni. Leirlist í anddyrinu Það er ekki bara Lína langsokkur sem fyllir Norræna húsið með lif! og fjöri um helgina. í dag klukkan 17.00 ætlar Roger Westerholm að opna sýningu á leirlist sinni í and- dyrinu. Roger er flnnskur leirlistar- maður, fæddur árið 1952 og lærður í leirgerð og papp- irslist. Sýning hans verður opin daglega frá kl. 9.00 til 19.00 og á sunnudögum frá kl. 12.00 til 19.00. Henni lýkur sunnudaginn 24. nóvem- ber. -ilk Hún er óvenjuleg stelpa hún Lfna langsokkur en öllum flnnst hún yndis- leg. DV-mynd TJ Fantasíur og frásagnarmyndir Nú fer í hönd síðasta sýning- arhelgi á myndlistarsýningu Jóns Garðars Henryssonar í efri sölum Hafnarborgar í Hafhar- firði. Þar hefur Jón Garðar sýnt fantasíur og frásagnarmyndir úr konungsríki Sækalds konungs. í konungsríkinu svífa sjóstakkablóm og skáldskaparkuðungar. Úr sköpunarskýjunum vætla dropar og rómantfskt tungl ber við sjónarrönd. Fiskimenn berjast við lundemi og bréfbátar sökkva. Hamraborgin er há og fogur. með fjarskabláan bakgnmn. Jón Garðar útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla íslands árið 1991 og mun þetta vera fyrsta einkasýningin hans. Henni lýkur á mánudag. -ilk Úr konungsrfki Sækalds konungs. IU1ESSUR Árbaejarkirkja: Útvarpsguðsþjón- usta kl. 11, ath. breyttur messutími. Barnaguösþjónusta á sama tima. Askirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Breiðholtskirkja: Allra heilagra messa. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gfsli Jónasson. Bústaðakirkja: Bamamessa kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Allra heilagra messa. Látinna minnst. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Digraneskirkja: Messa kl. 11. Altar- isganga. Bamaguðsþjónusta á sama tíma. Sóknarprestur. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Sr. Hjalti Guðmundsson. Bamasamkoma kl. 13 í kirkjunni. Messa kl. 14. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Messan er helguð öllum þeim sem kvatt hafa ástvini sína í Dómkirkjunni. Elliheimilið Grund: Guðsþjónsusta kl. 10.15. Sr. Guðmundur Óskar Ól- afsson. Eyrarbakkakirkja: Bamaguðsþjón- usta kl. 11. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústs- son. Bamaguðsþjónusta kl. 11 í um- sjón Ragnars Schram. Fríkirkjan í Reykjavík: Baraa- guðsþjónusta kl. 11.15, guðsþjónusta kl. 14. Cecil Haraldsson. Grafarvogskirkja: Bamaguðsþjón- usta kl. 11 í umsjón Hjartar og Rúnu og kl. 12.30 í Rimaskóla í umsjón Jó- hanns og Ólafs. Guðsþjónusta kl. 14. Sigrún Gísladóttir prédikar. Prest- arnir. Grensáskirkja: Bamasamkoma kl. 11. Messa kl. 14. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Hafnarflarðarkirkja: Sunnudaga- skóli kl. 11. Sunnudagaskóli í Hval- eyrarskóla kl. 11. Messa á allra heil- agra messu kl 14. Altarisganga, lát- inna minnst. Prestur sr. Þórhildur Ólafs. Hallgrímskirkja: Fræðslumorgunn kl. 10: Höfúndur Hallgrímskirkju, Guðjón Samúelsson. Pétur Ármanns- son arkitekt. Bamasamkoma og messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lár- usson. Minningar- og þakkarguðs- þjónusta kl. 17. Minnst látinúa. Sr. Karl Sigurbjömsson. Hjallakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Látinna minnst. Sr. Hjörtur Hjartar- son þjónar. Bamaguðsþjónusta kl. 13 i umsjá frisar Kristjánsdóttur. Sr. Kristján Einar Þorvarðarson. Keflavíkurkirkja: Kirkjudagur eldri borgara: Sunnudagaskóli kl. ll.Guðs- þjónusta kl. 14. Látinna minnst. Eldri borgarar lesa lestra dagsins. Sr.Ólafur Oddur Jónsson. Kópavogskirkja: Bamastarf í safn- aðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðs- þjónusta kl. 11. Kór Kópavogskirkju syngur. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Landspítalinn: Messa kl. 10. Háteigskirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Helga Soffia Konráðsdóttir. Messa kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson. Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands biskups: Guðsþjónusta kl. 11. Allra heilagra messa. Minnst látinna. Prestur sr. Tómas Guðmundsson. Baraastarf kl. 13. Laugarnesldrkja: Guðsþjónusta kl. 11 í umsjá sr. Gylfa Jónssonar hérað sprests. Ólafur Jóhaimsson. Lágafellskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjudagur aldraðra. Prédikun: Sr. Ólöf Ólafsdóttir. Kirkjukaffi í skrúðhússalnum. Bamastarf í safh- aðarheimilinu kl. 11. Neskirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11, sameiginleg fyrir bamastarfið í Neskirkju og Frostaskjóli. Sr. Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta kl. 14. Ræðumáður Egill Viggósson guð- fræðinemi, Sr. Halldór Reynisson. .Seljakirkja: Baraaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Valgeir Ástr- áðsson prédikar. Sóknarprcstur. Seltjamameskirkja: Messa kl. 11. Allra heUagra messa. Prestur sr. Sol- veig Lára Guðmundsdóttir. Bama- starf á sama tíma. Eftir messu flytur dr. Pétur Pétursson erindi um hvers vegna kirkjan hefiu- hafnað spírit- isma og fram verður borinn léttur há- degisverður. Stokkseyrarkirkja: Messa kl. 14.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.