Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1996, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1996
5
Fréttir
Ótal mál inni á boröi hjá FÍB vegna viðskipta meö notaða bíla:
- segir Björn Pétursson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda
Tryggingafélag tekur ekki viö bil nema bíllinn veröi fyrir altjóni eöa svo miklu aö ekki
þyki borga sig aö gera viö hann, segir Björn Pétursson hjá FÍB.
„Það er alveg óhætt að segja að
ástandið sé slæmt og við fáum ótal
mál inn á borð hjá okkur vegna þess
hvemig staðið er að málum hjá
mörgum bílasölum. Sumir eru
vissulega til fyrirmyndar og ég vona
að með nýjum lögum um bílasölur
megi bæta ástandið. í lögin vantar
t.d. sárlega ákvæði um fara megi
fram á að sölu verði hreinlega lokað
bæti menn ekki ráð sitt,“ segir
Bjöm Pétursson hjá Félagi ís-
lenskra bifreiðaeigenda.
Bjöm segir að með tilkomu Fé-
lags löggiltra bílasala séu bílasalar
að gera sig ábyrgari og hverfa frá
hrossapranginu og yflr í kaup-
mennsku. Hann segir dæmin verst
þar sem kaupandinn fær ekki réttar
upplýsingar um akstur og ástand
ökutækisins.
„Hafi tryggingafélag átt bílinn er
stundum sagt við kaupanda að bíll-
inn hafi lent í smávægilegu tjóni.
Málið er að tryggingafélag tekur
ekki við bíl nema bíllinn verði fyrir
altjóni eða svo miklu að ekki þyki
borga sig að gera við hann. Fólk fer
flatt á þessu þvi siðan getur alltaf
eitthvað komið upp á með bílinn.
Fólk veit ekki almennt að ferilskrá
bíla er til og það er auðvitað á
ábyrgð bílasala að upplýsa um
þessa hluti,“ segir Bjöm.
Aðspurður um peningahliðina
segir Bjöm mjög varasamt af fólki
að skrifa undir pappíra fyrr en allt
hafi verið lagt á borðið og rétt sé
fyrir það að fylgjast náið með því að
eigendaskipti séu gerð. Létta þurfi
veðum af bílum og annað slíkt.
„Við höfum haft það að leiðarljósi
hér að bílasali sé ekki búinn að
vinna fyrir laununum sínum fyrr
en allir séu orðnir sáttir við kaupin.
Við vonumst til þess að ný lög verði
samþykkt sem fyrst og að þau verði
til þess að ýta við mönnum í þess-
um bransa. Ástandið verður að
skána,“ segir Bjöm Pétursson. -sv
ÞESSIR BILAR ERU A STAÐNUM
GRAND CHEROKEE LAREDO '93
Verð kr 2.600 þús.
.LINCOLN CONTINENTAL ‘90
Bíll með öllu.
Verð kr. 1.250 þús.
CHEVROLET ASTRO '90
8 manna, 4x4.
Verðkr. 1.450 þús.
E.V. BILAUMBOÐIÐ ehf.
SÍMI 564-5000
JAGUAR S0VEREIGN ‘90
Sóllúga, leðurklæddur. Bíll í
sérflokki. Verð kr. 2.850 þús.
WAGONEER LIMITED '89
Verö 1.420 þús.
ATHUGIÐ BREYTT HEIMILISFANG
SMIÐJUVEGI
Vantar ákvæði
í lög um að
loka bílasölum
Söfnunarsíminn
sjálf boðaliðar verða við símann §||p|
kl. 12.00- 21.00 pH
dagana 5. - 8. nóvember.
Gíróseðlar Hjálparsjóðs
í bönkum og sparisjóðum.
Reikningur Hjálparsjóðs:
ávísanareikn. nr.12 í SPR0N, Seltjarnarnesi
Framlögin renna óskert til hjálparstarfsins.
RAUÐI KROSS ISLANDS
> ' - ” 'I ” V: . ' % f , | tl t
HL'.w