Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1996, Qupperneq 12
12
MIÐVKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1996
Spuiningin
Lesendur
Hvaöa föt vantar þig helst
fyrir veturinn?
Arnar Haukur Ottesen Amarson
sölumaður: Ameríska húfu á skall-
ann.
Þórunn Helgadóttir nemi: Skó og
húfu.
Andrea Fálmadóttir nemi: Skó,
úlpu og ekkert meira.
Marta Eydal nemi: Bara úlpu, ég
held ekkert annað.
Þröstur Júllusson málarameist-
ari: Kuldaskó.
Sigurður Jónsson sveitarstjóri:
Ég held að mig vanti ekki nokkum
skapaðan hlut.
Kosmngar og
peningahítin
Ástþór Magnússon skrifar:
Það hefur varla farið framhjá
þjóðinni að í nýafstöðnum forseta-
kosningum gleymdist næstum að
fjalla um málefni frambjóðendanna
vegna umræðna um peningamál
framboðanna. Þær virtust skipta
fjölmiðla meira máli krónumar
sem varið var til auglýsinga en
hvaða boðskap frambjóðandinn
færði fram.
Jafnvel nú, að loknum kosning-
um, hafa birst blaðagreinar þar
sem greinarhöfundar era að setja
spumingamerki við ítök vissra við-
skiptajöfra hjá nýkjömum forseta,
m.a. vegna þess að Jón Ólafsson,
forstjóri íslenska útvarpsfélagsins,
hafi nýverið verið viðstaddur mót-
töku erlendra gesta hjá forsetanum.
Reynslan af forsetakosningunum
ætti að sýna fram á að aðskilja þarf
fjármagn frá framboðum, hvort sem
um er að ræða forseta-, alþingis-
eða sveitarstjómarkosningar.
Óhæft er að frambjóðendur eða
flokkar veljist út frá bankainni-
stæðum eða viðskiptalegum sjónar-
miðum fyrirtækja eða annarra fjár-
sterkra aðila.
Það hlýtur að styrkja lýðræðið að
finna aðrar lausnir á þessum vanda
en betlframboð. Sú lausn, sem ég
hef bent á, er bæði einföld og ódýr í
framkvæmd. Hún felst í því að
starfsleyÐ til útvarps- og sjónvarps-
rekstrar, bæði fyrir ríkisrekna fjöl-
miðlun svo og einkarekstur, sé háð
því að þessir fjölmiðlar taki allir
jafnan þátt í framboðskynningum.
Þetta geta slíkir aðilar gert án til-
kostnaðar á þann hátt að hliðra til
í dagskrá þessar fáu vikur sem
framboð standa yfir, lengja örlítið
auglýsingatíma og gefa hverju
framboði t.d. eina mínútu á dag til
kynninga auglýsingatímanna.
Á þennan hátt geta framboðin
komið boðskap sínum til skila án
ritskoðunar og allir standa jafht aö
vígi. Einnig er mjög jákvætt að gefa
frambjóðendum kost á sérstökum
ávörpum eins og gert var á Stöð 2
og svo umræðuþáttum undir stjóm
fréttamanna likt og verið hefúr.
Væri þessi tilhögun tekin upp
þyrfti enginn að standa eftir kosn-
ingar með milljónaskuldir á bakinu
og stórlega drægi úr sníkjum af
þjóðfélaginu í kosningasjóði. Fram-
bjóðendur gætu einnig orðið sjálf-
stæðari og óháðari fjármálaöflum
þjóðfélagsins en um allan heim er
það þekkt staðreynd að slíkir aðilar
reyna oft að „kaupa sér“ frambjóð-
endur með eiginhagsmuni að leið-
arljósi á kostnað þjóðar sinnar.
Þetta gæti einnig orðið til þess að
fjölmiðlaumræðan snerist um ann-
að og þarfara en eigin gullgröft í
vasa frambjóðenda og stuðnings-
manna þeirra.
Kostnaður og skuldir forsetaframbjóðenda
20
Kostnaður hlns
opinbera
í milljónum króna*
■ Kostn. Skuldir ■ Endanlegur kostnaöur
Ólafur
Ragnar
Grfmsson
Pétur Kr.
Hafsteln
Guðrún Ástþór Guðrún
Agnarsdóttlr Magnússon Pétursdóttlr hafa
verió blrtir
Borgog
ríklð sveltarfélög
Meö breyttri tilhögun stæöi enginn uppi meö milljónaskuldir á bakinu, segir Ástþór m.a. í bréfinu.
Útgerð á Fáskrúðsfirði - lítil framsýni
Jóna B. Jónsdóttir skrifar:
Margir sjómenn á Fáskrúðsfirði
era nú atvinnulausir þar sem búið
er að selja skuttogarann Hoffell.
Þessir sjómenn bætast nú í hóp
þeirra sjómanna sem leita þurfa eft-
ir skipsplássum í önnur byggðarlög
vilji þeir stunda sjómennsku. Marg-
ir þessara manna eiga um 20 ár að
baki sem sjómenn hjá KFFB. Sumir
lengri tíma, aðrir styttri. Á þessum
20 árum hafa flestir þessir sjómenn
lagt tekjur sínar í að byggja upp
þetta sjávarpláss en standa í dag án
skipsrúms og með eignir sínar verð-
litlar og illseljanlegar.
Sumir þessara sjómanna kynnu
að fá vinnu í Stóra Stóra Loðnu-
vinnslunni á meðan á loðnuvertíð
stendur en ekki er til ein lítil loðna
í kvóta handa þeim að veiða og
landa í Stóru Stóra Loðnuvinnsl-
una. Einhverjar síldarbröndur á
fyrirtækið en ekkert skip til að
veiða þær.
Sjómenn virðast hafa fullan skiln-
ing á því að selja varð Hoffellið þar
sem búið var að reka hér mála-
myndaútgerð í nokkur ár. Stjóm-
endur fyrirtækisins virtust standa í
þeirri trú að hægt væri að gera út á
málningu og góð veiðarfæri. Ekki
vildu þeir kaupa kvóta í neinum
mæli, hann var of dýr. Ekki nóta-
skip, það var ekki þeirra deild, og
alls ekki frystiskip, þurftu ekki á
því að halda. En skip með stóran
rækjukvóta keyptu þeir en seldu
fljótt aftur og verður sú saga ekki
rakin hér að sinni.
Ekki er hægt að hrósa framsýni
forráðamanna í útgerðarmálum á
Fáskrúösfirði í gegnum árin. Segjast
þeir vilja kaupa loðnuskip og kvóta
en lítið framboð því hinir framsýnu
eru búnir að kaupa það sem falt var.
Það er sorgleg staða ef fólk fætt hér
og uppalið sem hefur viljað búa á
staðnum þarf nú aö hrökklast héðan
burtu vegna skammsýni í útgerðar-
málum staðarins.
Blöffmarkaður á útsölubílum?
Þorsteinn Einarsson hringdi:
Ég var í höfuðborginni þeirra er-
inda að leita að notuðum bíl og fór
á flestar bílasölurnar. Úrvalið er
geysilega mikiö. Ég fór einnig í
Kolaportið þar sem nú era auglýstir
notaðir bílar í tugatali. Eftir að hafa
Li§lj®í\ þjónusta
allan sólarhringinn
da hringið i sima
0 5000
ílli kl. 14 og 16
Á bílasölunum má oft gera lægra tilboö sem seljandi
gengur aö.
borið saman verðið
þar og á hinum al-
mennu bílasölum
borgarinnar komst
ég að þeirri niður-
stöðu að í Kolaport-
inu sé síst lægra
verð en annars
staðar.
í Kolaportinu er
svonefnt ásett verð
sem virðist vera
hæsta verð á mark-
aðinum í dag. Þá er
útsöluverð - stað-
greiðsluverð þama
í Kolaportinu
hærra oft og tiðum,
eða a.m.k. það sama og maður sér á
hinum almennu bílasölum. Ég tek
dæmi af bíl sem þar var sett á verð-
ið 330 þús. kr. Sams konar bíl gat ég
keypt á 220 þús. kr. á almennri bíla-
sölu. Ásett verð á bílum hílasalanna
er engan veginn endanlegt verð, því
kaupandinn gerir tilboð sem er oft
mun lægra og seljandi samþykkir. -
Að öllu samanlögðu finnst mér eins
og verið sé að blöffa fólk með svona
risaútsölu.
I>V
Löggjöf um
olíuleit
Óskar Sigurðsson skrifar:
Nú hafa Færeyingar ákveðið
undirbúning að olíulöggjöf og
leyfi til olíuvinnslu verða boðin
út um áramótin 1997-8. Þetta
gera Færeyingar vegna þess að
líklegra er en ekki að á eyjunum
verði hafhar olíuboranir þvi til-
raunaborunum er nú að ljúka
þar. Við íslendingar eigum ekki
siður en Færeyingar að undir-
búa löggjöf um olíuleit hér við
land.~ Við getum stuðst við
frumrannsóknir erlends aðila
sem skilaði upplýsingum um set-
lög úti fyrir ströndum Norður-
lands. Fyrsta skrefið hér væri að
skipa sérstaka olíuráðgjafanefnd
sem ynni að undirbúningi frum-
varps til laga um olíumálin.
Pínlegt plott f
Efstaleiti
Jóhannes Jónsson skrifar:
Pínlegt er plottið í Efstaleitinu
um hvernig skákað skuli til í
embættum núverandi og fyrrver-
andi útvarpsstjóra. Auðvitað
stóð alltaf til að greiða Markúsi
Emi Antonssyni þá skuld sem
skapaðist við borgarstjóramiss-
inn. Það bar því vel í veiöi
einmitt nú að Þingvallaprestur
skyldi segja af sér og „gamlan
Árnesing“ langaði svo yfirmáta
mikið aftur „heim“. Það var því
brugðið á það ráð að kunngera
þessa óstjðmlegu löngun núver-
andi útvarpsstjóra heim i Ámes-
þing eftir öðrum leiðum en frá
Biskupsstofú. Þetta er því allt að
smella saman: út og inn á Þing-
völlum, en inn og út í Efstaleit-
inu.
Ef ég væri
ríkur?
Sonja skrifar.
Ég las grein í Degi-Tímanum
meö þessari fyrirsögn. Þar var
rætt um þá ríku sem eyddu 120
þúsund kr. í einkabílinn á mán-
uði. Einkabíllinn væri sá hlutur
sem aðskildi þá tekjuháu frá hin-
um hér á landi. Sammála þessu.
En hvað gera svo hinir tekjuháu
eftir að hafa svalað aukanautn
sinni i bílinn? Jú, dýrari föt,
meiri bjór, ferðalög og veitinga-
hús, eins og sagði í greininni. Al-
veg rétt. En hvað svo? Bara það
sama og aðrir. Nema þeir tekju-
háu era mestu eyðsluseggimir
og eiga aldrei fé afgangs. Era
líka þeir skuldugustu þegar upp
er staðið, eiga aldrei pening og
hjá þeim má engu muna, þá eru
þeir gjaldþrota, og oftar en ekki
verða þeir það líka.
Auglýsum eftir
formanni
Jón Maríasson skrifar:
Auglýsum eftir formanni fyrir
Alþýðuflokkinn. Manni úr laun-
þegahreyfingunni, óspilltum af
núverandi valdaklíku, manni
sem þorir og vill lyfta Alþýðu-
flokknum á hærra plan. Burt
með menntaklíkuna sem hefur
niðurlægt flokkinn á undanfóm-
um áram. Burt með Alþýðu-
flokksíhaldið úr flokknum, nóg
er íhaldið annars staðar til að
koma landi og þjóð á vonarvöl.
Sýnum djörfung og þor og geram
Álþýðuflokkinn eins og til hans
var stofhað af Jóni Baldvinssyni.
Demi Moore á
strætó
Vilhjálmur Alfreðss. skrifar.
Ég var að keyra á eftir strætis-
vagni nýlega og sá þá mynd af
Demi Moore sem baksíðuauglýs-
ingu á vagninum. Það lá við að
ég missti stjórn á bílnum. Ekki
er ég neitt sérstaklega á móti
nöktum konum þar sem við á.
En hvað finnst ykkur, í stjórn
Strætisvagna Reykjavíkur? Er
þetta það sem koma skal á vagn-
ana í bak og fyrir?