Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Page 5
JLlV FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 y Tónlistarkonan Anna Halldórsdóttir: | Eg hef alltaf hugsað í tónum Kynnir plötuna Villtir morgnar Maöur gæti spurt sig: Hver er eig- inlega þessi Anna Halldórsdóttir? Svariö gæti verið: Ung og metnaö- arfull tónlistarkona sem er nú að gefa út sína fyrstu sólóplötu. En hvaðan kemur hún? DV fór á stúf- ana, fann þessa ungu stúlku og gróf upp öll leyndarmálin í kringum hennar tónlistaráhuga og ferilinn til þessa. Hvenær hefst tónlistaráhuginn? Ég hóf nám bamung í tónlistar- skóla, aöeins sex ára gömul. Ég byij- aöi aö læra á blokkflautu og fór síð- an að læra á flðlu sjö ára og var í tón- listarskóla fram á unglingsárin en þá hætti ég. Ég byijaði síðan aftur og ætlaði að fara að laéra á píanó en þaö fór nú aðailega í kjaftagang og brand- ara, hann var svo sniðugur kennar- inn. Ég var lika í söngnámi í nokkur ár. Síðan hef ég ailtaf verið að semja tónlist, kannski meira svona tilviij- anakennt þegar ég var krakki en ég fór að átta mig á því þegar ég var orð- in unglingur að þetta væri nú eitt- hvað sem ég ætti að halda í og varð- veita. Ég fór að gera það, safnaði efn- inu saman á spólur og geymdi það. Síðan þegar ég var úti á Ítalíu sautján ára gömul var píanó á heim- ilinu og þegar ég fékk heimþrá settist ég við það og fann hvað ég var fljót að átta mig á hljóðfærinu. Og þá fór ég að semja lög markvisst með hljóð- færi í fyrsta skipti,“ segir Anna. Hún var einnig í rokkhljómsveit á fimmt- ánda ári og varð í þriðja sæti Mús- íktilrauna árið 1989 með hljómsveit- inni Bróður Darwins. „Að vísu byrjaði ég víst að semja á gamla pumpuorgelið hennar mömmu þegar ég var lítil. Þetta pumpuorgel hefur verið mjög mikilvægt í mínu lífi. Mér fannst alveg jcifnsjálfsagt að semja tónlist og spila eins og að fara út að leika mér, ég hreinlega hugsaði í tónum.“ Annar sópran „Þegar ég var ung stelpa í kór lenti ég í öðrum sópran og fannst ég svona hálfþartinn annars flokks söngkona vegna þess, því ég vildi syngja hátt eins og hinar, svona eins og engill, en það var ekki hægt. í dag er ég hins vegar afar þakklát fyrir það að hafa sungið í öðrum sópran því þar reyn- ir svo mikið á tóneyrað. Maður verð- ur að passa að fylgja ekki aðallínunni og verður þannig meira sjálfstæður. Það hefúr hjálpað mér mjög mikið í tónlist." Tilkoma sólóplötunnar? Eftir hljómsveitabrölt fyrri ára tók við smáhlé hjá Önnu „...en í haust var ég að spjalla við félaga minn, Orra Harðarson, sem hefur nú þegar gefið út tvær plötur, og hann vissi al- veg að ég væri að semja enda hafði hann heyrt fullt af lögum hjá mér og hann sagði mér að ég þyrfti að drífa í því að gera eitthvað í málinu. Svo leigði ég mér A- DAT tæki og viö tók- um upp éitt lag sem heitir Villtir morgnar (sem útvarpshlustendur ættu að vera famir að kannast við) og fór með það á stúfuna til að at- huga hvort ég kæmi því ekki einfald- lega inn á safnplötu. Ég fékk nei á nokkrum stöðum og fór síðan til Rabba (Rafhs Jónssonar) sem vildi heyra meira,“ segir Anna. Til að gera langa sögu stutta bauð Rabbi Önnu strax breiðskifusamning sem var mun meira en Anna hafði upprunalega falast eftir, þvílíka tröllatrú hafði hann á efninu. Platan nú er komin út og titlast Villtir morgnar. Elsta lagið á plötunni er fimm ára gamalt en á plötuna valdi Anna úr safiii sinna eigin lagasmíða. Anna segir að þrátt fyrir að lögin hafi orð- ið til á mismunandi tímum myndi þau mjög sterka heild á plötunni. Hún er að sjálfsögðu yfir sig ánægð með fyrstu útgáfuna. Efni í framtíð- inni verður hins vegar ekki tekið úr fortíðar lagabönkum því hún er alltaf að semja tónlist, enda hugsar hún enn í tónum. GBG Todmobile vaknar til lífsins Hljómsveitin Todmobile er að vakna til lífsins eftir þriggja ára blund. Sveitin leikur á tíu tónleikum víða um lahd til að kynna nýjan geisladisk sveitarinnar. Á sunnudagskvöldið verður Todmobile í íþróttahúsinu á ísafirði þar sem leikin verða lög af nýrri plötu sveitarinn- ar, Perlum og svínum, en efh- isskráin byggist þó fyrst og fremst á eldri og þekktari lög- um sveitarinnar. Todmobile hefur tekið nokkrum breytingum og sveitina skipa nú Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjami Þorvaldsson, Eiður Arnars- son, Kjartan Valdemarsson, Matthías Hemstock og Vil- hjálmur Goði, en hann er nýr liðsmaöur sem leysir Eyþór Amalds af hólmi. Eyþór ein- beitir sér nú alfarið að hljóm- sveit sinni, Bong. Todmobile hefur tekið nokkrum breytingum og sveitina skipa nú Andrea Gylfadóttir, Þon'aldur Bjarni Þorvaldsson, Eiður Arnarsson, Kjartan Valde- marsson, Matthias Hemstock og Vilhjálmur Goði. Hafsvenn E Önnur sólóplata Emilíönu Torrini, Merman (Haf- sveinninn), er komin út. Platan er að því leyti frá- bmgðin metsöluplötunni frá því i fyrra (sem nú hefur selst í 9.000 eintökum) að á henni er að finna frumsamið efni til móts við efni eftir er- lenda höfunda. Emilíana sýnir því á sér nýja hlið sem texta- og lagahöfundur í samstarfl við Jón Ólafsson á öðrum helmingi plötunnar. Á hinum helmingnum má finna lög eftir Stevie Wond- er, Tom Waits, Melanie Kafka, Lou Reed og Joni Mitchell. Útgáfutónleikar Emilíönu verða haldnir næstkomandi miðvikudag, 13. nóvember, i íslensku óp- erunni. Útvarpshlustendur hafa þegar fengið að heyra lagið Blame It on the Sun eftir Stevie Wonder en laginu The Boy Who Giggled so Sweetly er einnig spáð góðu gengi á vinsældalistum. Myndband við það lag verð- ur frumsýnt á næstu dögum. Emilíana Torrini átti metsöluplötu síðasta árs. Hónlist *★ ★, Papar og írar Lifandi tónlist er spiluö í Dublinerskránni í Hafnarstræti fjölmörg kvöld vikunnar. Föstu- dags- og laugardagskvöldin 8. og 9. nóvember verður það hin vinsæla hljómsveit Papanna sem heldur uppi fjöri á staðnum en sunnu- dagskvöldið 10. nóvember spilar hljómsveitin The Wild Rovers. Poppers í Lundanum Hljómsveitin Poppers verður í Lundanum í Vestmannaeyjum fostudags- og laugardagskvöldin 8. og 9. nóvember. Hljómsveitin mun leika létt rokk og popptónlist í bland við sígild íslensk dægurlög. Kos á Næturgalanum Hljómsveitin Kos ætlar að sjá um að halda uppi stemningunni á Næturgalanum á Smiðjuvegi fóstudags- og laugardagskvöldin 8. og 9. nóvember. Hunangá Reykjavík Á Kaffi Reykjavík er spiluð lif- andi tónlist öll kvöld vikunnar. Hljómsveitin Hunang spilar fyrir dansi fóstudags- og laugardags- kvöldin 8. og 9. nóvember en Sig- rún Eva og hljómsveit sér um að halda uppi fiörinu sunnudags- kvöldið 10. nóvember. Stjörnugjöf tónlistargagnrýnenda Óútgáfuhæf ★ . Slæm ★* Slök ★★ í meðallagi ★★* Sæmileg ★★★ Góö ★ ★★"Á Frábær ★ ★★★ Meistaraverk jj jj umimmí ★★★ Kvöldið er okkar - Ingimar Eydal: Kvöldið er fagurt er eiguleg útgáfa. Lögin eru að vísu böm síns tíma og það er aðeins hluti þeirra sem hefur staðið af sér aldurinn. Útgáf- an sem slík er fagnaðarefni og geymir minningu um einn ástsæl- asta tónlistarmann þjóðarinnar. -HK ★★★ From the Muddy Banks of the Whishka - Nirvana f heild er platan feiknavel sett sam- an og tríóið sýnir að því fylgdi kraftur á sviði. Strákamir em þétt- ir og það eina sem dregur þá niður er misjafti söngur Cobans og mögu- lega sú staðreynd að flest lögin era flutt mun hraðar en maður á að venjast en það er hluti af tónleika- stemningunni. -GBG ★★★ Salsaveisla aldarinnar - Ýmsir flytj- endur Lög plötunnar bera því glöggt vitni að Rogers kann öll helstu „trikkin" til að búa til áheyrilega blúsrokkplötu. Gítarleikurinn er einnig í góðu lagi en ef eitthvað mætti hljóma betur þá er það söng- rödd Roys Rogers. Það er hin ágæt- asta skemmtun að hlusta á Rhythm & Groove. -ÁT ★★★ Travelling without Moving: Þessi þriðja plata Jamiroquai sýnir ákveðin kaflaskil hjá hljómsveit- inni. Á heildina litið er platan melódísk, þægileg á að hlusta, vel spiluð og framleg á köflum. ★★★★ -GBG New Adventures in Hi-Fi: Melódíumar hjá REM era stórgóð- ar, textamir jafti torræðir og fyrr og útsetningar á köflum frumlegar. Platan er sennilega fjölbreyttasta lagasafhiö sem REM hefúr sent frá sér til þessa. -ÁT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.