Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Side 6
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 T^V
20 ífítn helgina
VEITINGASTAÐIR
A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., sími
565 1693. Opið 11.30-22.30 alla daga.
A næstu grösum Laugavegi 20, sími
552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22 v.d.,
18-22 sd. og lokað ld.
Amigos Tryggvagötu 8, simi 511
1333. Opið 17.30-22.30 virka daga og
sd, 17.30-23.30 fd. og Id.
Argentína Barónsstíg lla, sími 551
9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar.
Asía Laugavegi 10, sími 562 6210.
Opið 11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd.,
11.30- 23.30 fd. og ld.
Askur Suöurlandsbraut 4, sími 553
8550. Opið 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd.
ogld.
Banthai Laugavegur 130, sími 552
2444. Opið 18-22 mán. til fim. og
18-23 fós. til sun.
Café Opera Lækjargötu 2, sími 552
9499/562 4045. Opið 18-1 fd. og ld„
11.30- 1 v.d.
Caruso Þingholtsstræti 1, sími 562
7335. Opið sun.-fim. 11.30-23.30. Fd.
og ld. 12.-2.
Carpe Diem Rauðarárstíg 18, sími
562 3350. Opið 11-23 alla daga.
Hard Rock Café Kringlunni, sími
568 9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld„
12-23.30 sd.
Hornið Hafnarstræti 15, sími 551
3340. Opið 11-23.30 alla daga.
Hótel Borg Pósthússtræti 11, sími
551 1440. Opið 8-23.30 alla daga.
Hótel Holt Bergstaðastræti 37, sími
552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30
v.d„ 12-14.30 og 18-22 fd. og Id.
Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflug-
velli, sími 552 2322. Opið í Lóninu
0-18, ípiómasal 18.30-22.
Hótel Oðinsvé v/Oðinstorg, sími 552
5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d„ 12-15
og 18-23.30 fd. og ld.
Hótel Saga GriUið, sími 552 5033,
Súlnasalur, sími 552 0221. Skrúður,
sími 552 9900. Grillið opið 19-22.30
alla daga, Súlnasalur 19-3 ld„ Skrúður
12-14 og 18-22 alla daga.
Humarhúsið Amtmannsstíg 1, sími 561
?303. Opið 10-23.30 v.d„ 10-1 ld. og sd.
Italía Laugavegi 11, sími 552 4630.
Opið 11.30- 23.30 alla daga.
Jónatan Livingston Móvur
Tryggvagötu 4-6, sími 551 5520. Opið
17.30- 23 v.d„ 17.30-23.30 fd. og ld.
Kínahofið Nýbýlavegi 20, sími 554
5022. Opið 17-21.45 v.d„ 17-22.45 fd„
ld. og sd.
Kína-húsið Lækjargötu 8, sími 551
1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d„
17.30- 23 fd„ 15-23 ld„ 17-22 sd.
Kínamúrinn Laugavegi 126, sími
562 2258. fd„ ld„ sd. 11-23. má.-fi.
11-22.00.
Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2,
sími 551 1855. Opið 10-01 sd.-fi. og
11-03 fd. og ld.
Kringlukráin Kringlunni 4, sími 568
0878. Opið 12-1 v.d„ 12-3 fd. og ld.
Lauga-ás Laugarásvegi 1, sími 553
1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar.
La Primavera Húsi verslunarinnar,
sími 588 8555. Op. 12.00-14.30,18-22
v.d„ 18-23.00 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd.
Las Candilejas Laugavegi 73, sími
562 2631. Opið 11-24 alla daga.
Lækjarbrekka Bankastræti 2, sími
551 4430. Opið mán.-miðvd.
11.00-23.30, fim.-sd. 11.00-0.30.
Madonna Rauðarárstíg 27-29, sími
562 1988. Opið 11.30-23.30 alla daga.
Marhaba Rauðarárstíg 37, sími 562
6766. Opið alla daga nema md.
11.30- 14.30 og 17.30- 23.30.
Naustið Vesturgötu 6-8, sími 551
7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d„ 12-14
og 18-03 fd. og ld.
Opera Lækjargötu 2, sími 552 9499.
Opið 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
Notre Dame efW hæð Ingólfskaffi,
Ingólfsstræti, sími 896 4609. Helgar
frá kl. 18.
Pasta Basta Klapparstíg 38, sími
561 3131. Opið virka daga frá 11.30 til
I. 00 og um helgar til 3.00.
Perlan Öskjuhlíð, sími 562 0200.
Opið 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
Potturinn og pannan Brautarholti
22, sími 551 1690. Opið alla daga
11.30- 22.
Salatbarinn hjó Eika Fákafeni 9,
sími 588 0222. Opið alla daga frá kl.
II. 30.-20.30. nema Id. frá 11.30.-16.
Lokað á sunnudögum.
Samurai Ingólfsstræti la, sími 551
7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld.,.18-23.
Siam Skólavörðustíg 22, sími 552
8208. Opið 18-22 vd„ 18-22.30 fd. og
ld. Lokað á md.
Singapore Reykjavíkurvegi 68, sími
555 4999. Opið 18-22 þd.-fimmtud.
18-23 fd.-sd.
Sjanghæ Laugavegi 28, sími 551 6513.
Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd.
Sjö rósir Sigtúni 38, sími 588 3550.
Opið 7-23.30 alla daga.
Skólabrú Skólabrú 1, sími 562 4455.
Opið frá kl. 18 alla daga. Opið í hádeg-
inu.
Steikhús Harðar Laugavegi 34, sími
551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„
11.30- 23.30 fd. og ld.
Thailand Laugavegi 11, sími 551
8111 og 551 7627. Opið 18-22 alla daga.
Tilveran Linnctsstíg 1, sími 565
5250. Opið 11-23 alla daga.
Veitingahúsið Esja Suðurlands-
braut 2, sími 568 9509. Opið 11-22
alla daga.
Verdi Suðurlandsbraut 14, sími 581
1844. Opið md.-fd„ 11.30-22 og
fd.-sd. 11.30-23.
Við Tjörnina Templarasundi 3, sími
551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30
md.-fd„ 18-23 ld. og sd.
Viðeyjarstofa Viðey, sími 568 1045
og 562 1934. Opið fimmtud.- sunnud.
Kaffistofa opin 14-17. Veitingasalur
opinn 18-23.30.
Vitabar Bergþórugötu 21, sími 551
7200. Opið 15-23.30 v.d„ 12-02 aðra
A Listasafn íslands:
A vængjum vinnunnar
- sýning á verkum Edvards Munch
„Hugmyndin að sýningu þessari
kom frá Verkamannasafninu í Rjuk-
an í Noregi. Aðstandendur safnsins
fengu til liðs við sig Arbejdermuseet
í Kaupmannahöfn og síðan var okk-
ur boðið að vera með í dæminu,"
segir Aðalsteinn Ingólfsson, list-
fræðingur við Listasafn íslands. Þar
hefur undanfarnar vikur verið unn-
ið hörðum höndum að uppsetningu
verka norska listamannsins Ed-
vards Munch en sýningin verður
opnuð á morgun.
Á vængjum vinnunnar er yfir-
skrift sýningarinnar sem er tíma-
mótaviðburður i norrænni mynd-
list. Óvænt og lítt þekkt hlið á lista-
manninum kemur fram þar sem
hann birtist sem glaðbeittur málari
vinnunnar og málsvari vinnandi
stétta. Á meðal viðamestu verka
Munchs eru drög að veggmyndum
af verkafólki sem hann gerði fyrir
Freia-súkkulaðiverksmiðjuna í Ósló
og ýmis tilbrigði um lif og starf
verkafólks sem hann gerði fyrir ráð-
húsið í Ósló. Þar að auki gerði hann
mikinn fjölda verka af bændum, sjó-
mönnum, vegavinnumönnum og
skógarhöggsmönnum.
65 verk til sýnis
Á sýningunni verða 65 verk, olíu-
málverk, teikningar og grafisk
þrykk. Sýningunni fylgir einnig
vönduð sýningarskrá með fjölda lit-
mynda og greina um viðhorf
Munchs til verkafólks og áhrif hans
á túlkun annarra listamanna á
Norðurlöndum á þessu myndefni.
Edvard Munch fæddist árið 1863
en yfirgaf heim þeirra lifandi árið
1944, þá rúmlega áttræður. Faðir
hans var herlæknir en móðirin dó
þegar hann var aðeins 5 ára gamall
og einkenndist æska hans af örum
flutningum fjölskyldunnar vegna
starfs föðurins. Edvard gekk í
Tækniskólann í Kristjaníu árið 1879
en teikning var ein aðalnámsgrein
skólans. ítrekuð forfóll vegna veik-
inda trufluðu skólagöngu hans en
haustið 1880 tók hann örlagaríka
ákvörðun og skrifaði í dagbók sína:
„Nú er ég nefnilega ákveðinn í að
og listsýningu. Siðan þá hefur mik-
ið vatn runnið til sjávar og nú vita
allir Norðurlandabúar hver Edvard
Munch var.
Tveir eðallistamenn
„Við búumst við góðri aðsókn,“
segir Aðalsteinn. „Það er ekki nóg
með að í gangi sé stórsýning á verk-
um Munchs heldur eru verk Ás-
gríms Jónssonar einnig til sýnis á
efri hæð safnsins. Þarna er um tvo
eðallistamenn Noregs og íslands að
ræða sem voru báðir frumherjar,
hvor í sínu landi. Við teljum að við
ættum að fá talsvert af fólki í heim-
sókn og vonum að skólarnir taki
virkan þátt
í því.“
Edvard Munch var
mikilhæfur listamaöur.
Sýningin verður formlega opnuð
af forseta íslands, herra Ólafi Ragn-
ari Grímssyni, en einnig munu
Björn Bjamason menntamálaráð-
herra, Bera Nordal safnstjóri og
Nils O. Dietz, sendiherra Noregs,
flytja ávörp við opnunina.
Sýningin mun standa til 19. janú-
ar 1997. -ilk
verða málari." Hann fór svo i Kon-
unglega teikniskólann í Kristjaniu
en leigði sér fljótlega vinnustofu
ásamt sex félögum sínum. Frægasti
málari Noregs var þá Christian
Krohg og veitti hann þeim leiðsögn.
Skömmu síðar komu verk hans
fyrst fyrir almannasjónir á iðnaðar-
Sjómaður á grænu engi. Olía á striga eftir Edvard Munch.
Hér er hann Jón ásamt einni geimverunni,
Geimverur á Mokka
Fyrir 35 árum hélt listamaðurinn
Jón M. Baldvinsson fyrstu einka-
sýningu sína. Það gerði hann á
Mokkakaffi. Nú kemur kappinn aft-
ur á Mokka og opnar þar málverka-
sýningu á morgun. Sýningin ber
heitið Geimverar en þar verður
hægt að líta á 24 andlitsmyndir af
geimverum og geimskipi.
Jón fékk sterka löngun til að
mála geimverur þegar hann var
staddur á Flórída fyrir ári síðan. Af-
rakstur þessa innblásturs sýnir
hann svo á Mokkakaffi. Myndimar
eru fantasíur en einnig styðst hann
við frásagnir af fyrirbærum.
Jón hefur haldið fjölmargar mál-
verkasýningar hér heima og í út-
löndum. Hann hefur numið list á Is-
landi, í Danmörku og í San
Francisco.
Sýningin Geimverur mun standa
til 5. desember.
-ilk
Á morgun mun danski bama-
bókahöfundurinn Louis Jensen
kynna verk sin í Norræna húsinu.
Rauði þráðurinn í bókum hans er
einhvers konar leit að fjársjóði og
þá í víðum skilningi, eins konar leit
að tilgangi lífsins. Öll viljum við
fmna okkur sjálf, finna hvert annað
og út á það gengur lífið.
Louis Jensen er fæddur árið 1953
og er menntaður arkitekt en fæst nú
eingöngu við skriftir. Bækur hans
hafa verið mikið lesnar af ungu
fólki í Danmörku og hefur frásagn-
araðferð hans veriö líkt við H. C.
Andersen og Selmu Lagerlöf.
Fyrsta bók hans kom út árið 1986
en síðan þá hefur hann gefið út 17
bækur, þar af fjórar ætlaðar full-
orðnum.
Louis þykir áhugaverður rithöf-
undur barna- og unglingabók-
mennta og eru allir hvattir til að
koma og ekki síst þegar norræna
lestrarkeppnin MÍMIR verður. Fyr-
irlesturinn, sem byrjar kl. 14.00, fer
fram á dönsku og er aðgangur að
honum ókeypis. -ilk