Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Síða 8
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 I iV
_ •» helgina
Frumsýning íVerslunarskóla íslands:
Búumst við frábærri aðsókn
- segir Finnur Tjörvi Bragason, formaður Listafélagsins
?
„Leikritið flallar um fimm krakka sem
þurfa að sitja eftir í skólanum á laugardegi.
Kennarinn situr yfir þeim og fylgst er með
samskiptunum sem þarna fara fram og það
sem krökkunum dettur í hug. Þetta leikrit
lýsir vel hugsanagangi unga fólksins," segir
Finnur Tjörvi Bragason, formaður Listafé-
lags Verslunarskóla íslands.
Um er að ræða leikritið Breakfast Club
sem gert er eftir samnefiidri kvikmynd. Það
verður frumsýnt í kvöld klukkan 20.00 í há-
tíðarsal Verslunarskóla íslands. Listafélag
skólans stendur fyrir leikritinu
og ekki annað að heyra en að
mikill spenningur sé kominn í
Frá undirbúningi leikritsins. Nemendurnir búnir að hreiöra um sig í „kósý“ horninu.
DV-mynd Pjetur
Algjör sprenging í ár
„Þetta leggst rosalega vel í okk-
ur. Við erum búin að vera að æfa
þetta í átta vikur og teljum okkur
vera vel undirbúin. Undanfarin
ár hefur verið svolítið dræm að-
sókn á leikritin okkar en það lít-
ur út fyrir að nú verði breyting á.
Algjör sprenging. Nú búinnst við
við að sjá um áttatíu prósent
nemenda skólans mæta á leikrit-
ið og eins reynum við að fá
gnmnskólana til okkar líka þar
sem við getum kynnt skólann í
leiðinni," segir Finnur Tjörvi.
Leikararnir eru þau Jóhannes
Ásbjömsson, Rebekka Ámadótt-
ir, Kári Guðlaugsson, Jóhann
Guðlaugsson, Katrín Bjarney
Guðjónsdóttir, Guðlaugur Krist-
jánsson og íris Maria Stefánsdótt-
ir. Leikstjóri er Jakob Ingimund-
arson en hann útskrifaðist úr
Verslunarskólanum fyrir tveim-
ur árum og er að leikstýra í
fyrsta skipti, með mjög góðum ár-
angri, að sögn Finns Tjörva.
Þá er bara að drifa sig á skóla-
leikrit í kvöld.
-ilk
Það er blómlegt leikhúslífið á íslandi.
í öllum leikhúsum landsins er verið að
sýna úrvalsleikrit og að sjálfsögðu læt-
ur Þjóðleikhúsið ekki sitt eftir liggja.
Hér koma fréttir af tveimur leikritum
sem sýnd eru á fjölunum þar.
í hvítu myrkri
Leikrit Karls Ágúst Úlfssonar, í
hvítu myrkri, hefur nú verið sýnt tutt-
ugu sinnum fýrir fullu húsi. Á sunnu-
daginn er fyrirhuguð aukasýning en
uppselt er á næstu sex sýningar. Þau
skipti urðu fyrir nokkru að Sigurður
Skúlason tók við hlutverki bílstjórans.
Aðrir leikendur eru Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttir, Magnús Ragnars-
son og Þröstur Leó Gunnarsson. Leik-
stjóri verksins er Hallmar Sigurðsson.
' Sýningum að Ijúka á
Hamingjuráninu
Nú eru aöeins tvær sýningar eftir á
söngleiknum Hamingjuráninu sem
frumsýndur var á Smíðaverkstæðinu á
liðnu leikári. Höfundur verksins er
Bengt Ahlfors, einn fremsti revíu- og
gamanleikjahöfundur Norðurlanda.
Hamingj uránið er rómantískur og
gamansamur söngleikur um stolnar
hamingjustundir íslensks bankastarfs-
manns og ítalskrar þvottakonu. Leik-
endur eru Hilmir Snær Guðnason,
^ Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Ólafia
Hrönn Jónsdóttir, Vigdís Gunnarsdótt-
ir, Öm Ámason, Bergur Þór Ingólfsson
og Flosi Ólafsson. Einnig tekur þriggja
manna hljómsveit þátt í sýningunni en
leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir.
Síðustu sýningarnar verða á sunnu-
daginn og á fostudaginn eftir viku.
-ilk
Hilmir Snær Guönason sem bankastarfsmaöur í sálarflækju.
IÁrbæjarkirlga: Guðsþjónusta kl. 14.
Páll Friðriksson flytur stólræðu. Popp-
messa kl. 17. Heimsókn frá Kristni-
boðssambandinu: stutt hugleiðing.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukórinn
flytur Jjýska messu eftir Franz Schu-
\ bert. Ámi Bergur Sigurbjömsson.
• Breiðholtskirkja: Bamaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta á sama
tíma. Einar S. Arason guðfræðingur
prédikar. Tekið við gjöfum til kristni-
boðsins. Samkoma Ungs fólks með
hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Bamamessa kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Gunnar
Rúnar Matthíasson.
Digraneskirkja: Messa kl. 11. Altar-
isganga. Bamaguðsþjónusta á sama
tíma. Sóknarprestur.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestur
sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Bamasam-
koma kl. 13 í kirkjunni.
IElliheimilið Grund: Guðsþjónusta
kl. 10.15. Sr. Gylfi Jónsson.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson.
; Bamaguðsþjónusta á sama tíma í
umsjón Ragnars Schram. Prestamir
Flateyrarkirkja: Messa kl. 14. 60
> ára vígsluafmælis kirkjunnar
minnst. Biskupinn yfir íslandi, herra
Ólafur Skúlason, prédikar og blessar
j safnaðarheimili í nýrri viðbyggingu
I kirkjunnar. Gunnar Bjömsson.
Fríkirkjan í Reykjavík: Guðsþjón-
í usta kl. 14. Cecil Haraldsson.
Grafavogskirkja: Bamaguðsþjón-
. usta kl. 11 í umsjón Hjartar og Rúnu
, og kl. 12.30 í Rimaskóla í umsjón Jó-
hanns og Ólafs. Guðsþjónusta kl. 14.
Dr. Sigurjón Ami Eyjólfsson messar.
Gaulverjabæjarkirlga: Messa kl.
14. Þorgils Hlynur Þorbergsson
predikar.
Grensáskirkja: Fjölskyldumessa kl.
11. Bamakór Grensáskirkju syngur.
Messa kl. 14. Kristniboðsdagurinn.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
HafnarQardarkirkja: Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Þórhallur Heimisson.
Hallgrímskirkja: Bamasamkoma og
messa kl. 11. Kristniboðsdagurinn. Sr.
■i Kjartan Jónsson prédikar. Sr. Sigurð-
| ur Pálsson þjónar fyrir altari.
Landspítalinn: Messa kl. 10.
Háteigskirlga: Bamaguðsþjónusta
kl. 11. Messa kl. 14. Sr. Helga Sofíia
Konráðsdóttir.
Hjallakirkja: Kristniboðsdagurinn.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Bamaguðsþjónusta kl. 13 í umsjá
írisar Kristjánsdóttur. Kristján Ein-
ar Þorvarðarson.
Hveragerðiskirkja: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Heilsustofnun NLFÍ,
guðsþjónusta kl. 11. Jón Ragnarsson
sóknarprestur.
Kálfatjarnarsókn: Messa í Kálfa-
, tjaraarkirkju kl. 14. Minning lát-
inna. Altarisganga. Sr. Bragi Frið-
riksson.
Keflavíkurkirkja: Guðsþjónustá á
Sjúkrahúsi Suðumesja kl. 13. Guðs-
þjónusta í kirkjunni kl. 14. Prestur:
Sigfús Baldvin Ingvason.
Kópavogskirkja: Bamastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur dr. Siguijón
Árni Eyjólfsson héraðsprestur. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11. Prestur sr.
| Tómas Guðmundsson.
Laugarneskirkja: Kristniboðsdag-
urinn. Messa kl. 11. Karl Jónas
Gíslason kristniboði prédikar. Guðs-
þjónusta kl. 14 í Sjálfsbjargarhúsinu,
Hátúni 12. Kvöldmessa kl. 20.30.
Ólafur Jóhannsson.
Lágafellskirkja: Guðsþjónusta kl.
| 14. Prestur: sr. María Ágústsdóttir.
% Jón Þorsteinsson.
Neskirkja: Messa kl. 14. Sr. Frank
t M. Halldórsson.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Guðsþjón-
| usta kl. 14.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Sunnu-
| dagaskóli kl. 11. Böm sótt að safhað-
arheimilinu kl. 10.45.
Óháði söfnuðurinn: Guðsþjónusta
kl. 14. Látinna minnst. Einsöngur
Dúfa Einarsdóttir. Bamastarf á
sama tíma. Kaffi eftir messu.
Seljakirkja: Kristniboðsdagurinn.
| Bamaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón-
; usta kl. 14. Karl Jónas Gíslason
I kristniboði prédikar. Tekið er við
gjöfum til kristniboðsins. Sóknar-
| prestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Baraastarf á sama tíma í um-
| sjá Hildar Sigurðardóttur, Erlu
Karlsdóttur og Benedikts Hermanns-
sonar.
Stokkseyrarkirkja: Bamaguðs-
| þjónusta kl. 11.
Vídalínskirkja: Guðsþjónusta á
kristniboösdegi kl. 11. Sunnudaga-
skóli á sama tíma. Benedikt Amkels-
son, guðfræðingur, og starfsmaður
Kristniboðssambandsins, prédikar.
Héraðsprestur þjónar fyrir altari. Að
lokinni athöfn munu almanök og
bækur verða seldar til styrktar
Kristniboðinu. Sunnudagaskóli í
Hofsstaðaskóla kl. 13.
DV-mynd Grímur Ðjarnason