Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1996, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1996, Qupperneq 3
1 >"\7' FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 HLJÓMPLjjTU &mj jj y]jj Valgeir Sveinsson - Ég á mér draum: Reynsla og hæfileikar ★★★ Valgeir Sveinsson er tutt- ugu og íjögurra ára gamal Austfirðingur sem er búinn að gefa út plötu með eigin efni. Ég á mér draum heitir platan. Þar er að fmna tíu lög eftir Valgeir og eru text- ar einnig að mestu hans smíði. Og það verður að segjast strax að platan kem- ur á óvart. Lögin eru melódísk, íjölbreytt og gríp- andi, þá eru útsetningar og flutningur góður. Það hefur verið um nokk- urt skeið lenska að ungir og óþekktir tónlistarmenn telji bestu leið- ina til að auglýsa sig að gefa út plötu. Oftast er þetta skot í myrkri sem hittir ekki í mark, því ef hráefnið er ekki gott þá fylgir engin pöntun á eftir. Það er reynslan ásamt hæfileikum sem segir til um hvort sú aðferð að gefa út eigin lög á plötu á eftir að skila sér og Val- geir hefúr hvort tveggja. Valgeir er ungur að árum en hann er búinn að vera að skemmta með lögum eftir sjálfan sig og aðra í tíu ár og þurfti í byrjun undan- þágu bamavemdamefndar og sýslumanns til þess að mega syngja og spila fyrir Austfirðinga á skemmtunum. Valgeir lagði síðan land undir fót og ferðaðist ekki bara um ísland heldur lagði hann leið sína um Skaninavíu, aflt að landamærum Rússlands, spilandi og syngj- andi sem trúbador. Það er sem sagt ungur en þroskaður tónlistarmaður sem sendir frá sér Ég á mér draum. Lögin em góð og lífleg þegar á heildina er litið. Sum era betri en önnur og vil ég sérstaklega benda á titillagið Ég á mér draum, Dansar við elda og Þökk sé þér sem góðar lagasmíðar. Textar Valgeirs era heiðarlegir og innilegir en nokkuð einfaldir. Val- geir er enginn stórsöngvari en rödd hans hentar lögunum og hún venst. Útsetningar eru mjög góðar og á Björgvin Gíslason einna mestan heiður af þeim og þótt lögin séu um margt ólík og misgóð þá eiga útsetningarnar sinn þátt í því að Ég á mér draum er vel heppn- uð fyrsta plata frá leitandi tónlistarmanni. Vert er að geta að metn- aður er lagður í útlit og innihald plötuaibúmsins, sem er ekki algengt þegar ungir og óþekktir tónlistaramenn standa sjálfir í útgáfu. Hilmar Karlsson Bubbi - Allar áttir: Blanda fyrir flesta ★★★ Bubbi Morthens hefúr tiökað það nokkuð hin síðari ár að hljóðrita plötur með ákveðnum þræði. Sú síðasta hafði að geyma þekkt lög frá ferli Hauks Morthens. Fyrir nokkrum árum kom ein með Karíbahafsstílum ýmiss kon- ar, önnur var Ijóðræn og tregablandin og þannig mætti áfram telja. Nýja plat- an, Allar áttir, sækir hins vegar eins og nafriið bendir til áhrif, stíla og yrkisefni í allar áttir. Rokk hér, reggae þar, sving í endann. Þessi blanda er í senn styrkur plötunnar og galli. Sumt finnst manni reyndar að hafi áður verið samið. Lagið Það er aðeins ein minnir til dæmis glettilega á Háflóð sem kom út fyrir sjö árum. Hverjum geturðu treyst? sver sig í GCD-ættina. Alla daga gæti verið af plötunni Konu. Plötur Bubba eru hins vegar komnar nokk- uð á annan tuginn og því kannski ekki að furða að jafn afkastamik- ill tónlistarmaður endurtaki sig stöku sinnum. Nokkuð er um liðið síðan Bubbi Morthens tók sér tak og fór að vanda textagerðina. Stundum hefur hann meira að segja bundið texta sína svo fast í ljóðstafi að legið hefur við að þeir bæru efnið of- urliði. Að þessu sinni hefúr hann slakað nokkuð á. Stöku sinnum lætur hann höfuðstaf ekki fylgja stuðlum og kannski kemst efni text- ans betur til skila en ella hefði orðið. Rímið er þó í hávegum haft og er yfirleitt i góðu lagi. Skelfilega undantekningu er þó að ftnna í lag- inu Hvað er töff við það i snöru að hanga?, einu sísta lagi plötunnar. Þar yrkir Bubbi: Brennivín sem vímugjafi er eins og hægri höndin á Tyson. Þeir sem halda þeir geti unnið, þeir lifa í falskri von. Ýmislegt er hins vegar vel gert á plötunni Allar áttir og ég hygg satt að segja að Bubbi hafi sjaldan samið betri texta en við lagið Með vindinum kemur kvíðinn. Hann fjallar um hamfarimar í Súðavík fyrir tæpum tveimur árum og kemur hinum nöturlegu aðstæðum, sem þá ríktu, afbragðs vel til skila. Áreiðanlega hríslast kuldahroll- ur um margan hlustandann þegar Bubbi syngur viðlagið: Og með vindinum kemur kvíðinn úti er kolsvört hríðin og fjallið það öskrar, svo fellur öll hlíðin og húsin þau hverfa í kófið. Um hljóðfæraleik á plötunni Allar áttir er það að segja að hann er til fyrirmyndar. Sér í lagi ná þeir vel saman Jakob Magnússon, Guð- mundur Pétursson og Ólafur Hólm í laginu Hverjum geturðu treyst? Eyþór Gunnarsson hafði veg og vanda af verkstjóm plötunnar og vart þarf að koma á óvart að sú stjóm var vel af hendi leyst. Ásgeir Tómasson tönlist ii I janúar á næsta ári er liðinn aldar- fjórðungur síðan Jóhann Helgason kom fram á sjón- arsviðið með félaga sínum, Magnúsi Þór Sigmundssyni. Báðir starfa þeir sem tón- list- ar semja fyrir mig texta, lögin mín höfðuðu til hans og útkoman er á nýju plötunni. Fyrir- komulagið var þannig að ég sendi honum lögin á kassettu og ég var í flestum tilvikum búinn að semja eða gera grind að viðlögun- um. Hann þurfti síðan að fylla inn í þannig Með í söngskemmtun Helsta verkefhi Jóhanns Helgasonar þessa dagana er að taka þátt í söngskemmtuninni Keflavíkumætur 2 sem nýlega var frumsýnd í Reykjanesbæ. Þar kemur fram hópur söngvara og skemmtikrafta frá Suðumesj- um. Að sögn Jóhanns var skemmtuninni vel tekið á frmn- sýningu en aðalvinnan við hana verður eftir áramót. Tónlistin sem flutt er í söngskemmtuninni er öll komin til ára sinna þannig að ekki kemur til greina að blanda nýju efni af plötunni KEF við dagskrána. „Við Rúnar Júlíusson erum háðir með nýjar plötur og fór- um fram á að ia aö kynna þær á skemmtuninni,“ segir Jóhann. „Það fékk hins vegar dræmar undirtektir hjá hinum. Ég hef enn ekkert ákveðið með útgáfutónleika. Það verður bara að koma í ljós hvort af þeim verður. Fyrir okkur sem störfum einir og höfum enga hljómsveit á bak við okkur er það vissum vandkvæðum bundið að efna til slíkra tónleika en ef tækifærið gefst slæ ég til.“ Jóhann Helgason: Samstarfiö viö breskan textahöfund gafst vel. -ÁT menn enn þann dag í dag, stund- um saman en yfirleitt hvor í sínu lagi. Og þessa dagana er Jó- hann einmitt að senda frá sér sína fýrstu sólóplötu í langan tíma, plötuna KEF. „Nafnið? Ja, það kom bara allt í einu upp í höfuðið fyrir stuttu. Ég var á ferð í bíl og datt þetta þá í hug og er enn þá hæstá- nægður með hugmyndina,“ segir Jóhann. „Jú, jú, auðvitað tengist það því að þetta er skammstöfun- in á Keflavík. Sá kaupstaður á alltaf ítök í mér, þar liggja rætur mínar.“ Á plötunni KEF eru tíu lög, flest nýsamin. Þó er þar eitt lag sem Jóhann samdi árið 1984 og annað sem varö til að hluta árið 1976 og var síöan lokið við fyrr á þessu ári. „Ég vinn alla jafna ekki þannig að eiga til lagabúta sem ég prjóna síðan við síðar,“ segir Jóhann. „Það atvikaðist hins vegar þannig að ég samdi versin við lagið Bid Me Tonight fyrir tuttugu áriun og átti þau tilbúin á kassettu. Ég ákvað síðan að ljúka við lagið og nota það á nýju plötuna. Reyndar á ég sáralítið til af löginn núna og aðeins til að láta ef leitað er til mín. Mig lang- ar að gera aöra plötu á næsta ári og þá byija ég á að semja öll lög- in sem á henni verða.“ Höfundur flestra texta við lög- in á KEF er Bretinn Reg Meuross. Jóhann segir að hann sé í hljómsveit og sé með plötu- samning en ástæða þess að þeir fóru að vinna saman að lögum er í senn einfold og óvenjuleg: „Það var Jakob Magnússon sem kom mér í samband við þennan mann,“ segir Jóhann. „Ég hafði aðgang að textahöf- undi í Bandaríkjunum um skeið en síðan missti ég sambandið við hann, hafði ekki lengur síma- númerið hans eða heimilisfang, þannig að ég leitaði til Jakobs. Reg Meuross gat hugsað sér að í veru var ég búinn fýrir fram að leggja drög að því sem ég vildi fá.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.