Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1996, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1996, Síða 9
T"fe"^yr FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 helgiha 23 Nýlistasafnið: Þrír listamenn opna sýningar Þrjár myndlistarsýningar verða opnaðar í Nýlistasafninu á laugardag- inn. Finnur Arnar mun sýna í neðri sölum safnsins og Ingileif Thorlaci- us í efri sölum. Guðrún Halldóra Sigurðardóttir er gestur safnsins í setu- stofu að þessu sinni. Sýning Finns Amars fjailar um blákaldan veruleikann og er samsett af veggverkum og gólfverkum sem listamaðurinn kallar „skrappverk". Þetta er önnur einkasýning Finns Arnars en hann hefur tekið þátt í sam- sýningum bæði hérlendis og erlendis. Hann hefur starfað sem leikmynda- hönnuður síðustu ár og gert meðal annars leikmyndir við leikritin West Side Story, Hárið, Himnaríki, Birting og fleiri. Ingileif sýnir vatnslitamyndir og gólfverk á palli. Þetta er fimmta einkasýning hennar en hún hefur einnig tekið þátt i samsýningum. Und- anfarin ár hefur hún verið stundakennari í málaradeild Myndlista- og handiðaskóla íslands. Sýningarnar verða opnar daglega frá kl. 14 til 18 og þeim lýkur 8. des- ember. -ilk Ungversk tónlist Um þessar mundir halda Ungverjar upp á 1100 ára búsetu í landi sínu. Af því tilefni efnh' félagið Ísland-Ung- verjaland til tónleika í Norræna hús- inu á morgun kl. 17.00. Ungverski pí- anóleikarinn Miklós Dalmay leikur verk eftir ungversk og islensk tón- skáld. Miklós Dalmay vakti mikla athygli fyrir skömmu þegar hann bar sigur úr býtum í Tónvakakeppni Rikisút- varpsins. Allir eru velkomnir á tónleikana og þá sérstaklega velunnarar Ungverja- lands. -ilk Akureyri: i/i Eilíft líf - síðasta sýningarhelgi Poppmessa í Garðabæ Síðasta poppmessa ársins verður í Vídalínskirkju í Garðabæ á sunnu- dagskvöldið kl. 17.00. Alls hafa ver- ið haldnar fimm poppmessur á þessu ári í Vídalínskirkju við góðar undirtektir. Lofgjörðarhópur ungs fólks leiðir söng en píanóleikari og stjórnandi tónlistar er Óskar Einarsson. Páll E. Pálsson leikur á bassa, Hannes Pét- ursson á trommur og Kristinn Svav- arsson á saxófón. Nanna Guðrún Zoega, djákni safnaðarins, flytur hugleiðingu og héraðsprestur þjón- ar fyrir altari. Léttar veitingar verða í boði að athöfn lokinni. Fólk á öllum aldri er hvatt til þess að koma og eiga ánægjulega kvöldstund í kirkjunni. -ilk Listhús 39 í Hafnarfirði: Ljóð og Ijósmyndir Lárus Karl við nokkur verka sinna. í Listhúsi 39 í Hafnarfirði stendur nú yfir gluggasýning á ljósmyndum eftir Lárus Karl Ingason ljósmyndara. Myndirnar eru úr bókinni Fjársjóðir ís- lenskrar ljóðlistar (Treasures of Icelandic Verse) sem út kom í sumar. Auk ljósmyndanna eru í bókinni ljóð eftir íslensk skáld, allt frá Jónasi Hallgrímssyni til ungskálda dagsins í dag. Þetta er fjórða einkasýning Lárusar Karls en hann starfar sem auglýsinga- og iðnaðarljós- myndari. Hann hefur m.a. tekið ljósmyndir I innlend og erlend tímarit og bækur. Hann er fædd- ur árið 1959 og hefur unnið við ljósmyndun undanfarin ellefu ár. Sýningunni lýkur á sunnudag- inn. -ilk Mikið um að vera í Hafnarborg 1 menningar- og listastofnun Hafnarijarðar, Hafnarborg, blómstar menningin svo sannar- lega. Fyrst ber að nefna málverka- sýningu Eggerts Magnússonar sem nú stendur yfir. Eggert hefur fengist við málaralist um nokk- urra ára skeið og hefur gjarnan verið talinn til naífista. Efniviður hans er annars vegar veruleiki ís- lensku sveitanna og hins vegar svipmyndir frá ijarlægum löndum. Hvert sem viðfangseínið er eru efnistök Eggerts ávallt frískleg og andi verkanna kröftugur. Síðustu grísku veislurnar Dagskrá undir yfirskriftinni Grísk veisla: Vegurinn er vonar- grænn hefur verið í Hafnarborg í haust. Hér er um að ræða efni sem dregið er úr verkum gríska ljóð- og tónskáldsins Mikis Þeodórakis, ásamt frásögnum Sigurðar A. Magnússonar af lífi þessa ástsæla skálds Grikkja. Fyrir hverja sýn- ingu býður Jóhann Sigurðsson matreiðslumeistari gríska máltið. Máltíðin hefst kl. 18.30 en sjálf dag- skráin kl. 20.30. Eitt hundrað mannamyndir Myndlistarmaðurinn Jón Óskar er einnig með sýningu í Hafti- arborg. Hann sýnir eitt hundrað mannamyndir sem unnar eru með tölvutækni. Hér er um að ræða andlit sem ekki eru Ijósmynduð heldur skönnuð beint inn í tölv- una og síðan unnin og prentuð út aftur. Það er sem sagt ekki að tóm- um kofunum að koma ef fólk legg- ur leið sína í Hafnarborg. -ilk Núna um helgina eru síðustu for- vöð að sjá sýningu Þorvalds Þor- steinssonar, Eilíft líf, i Listasafninu á Akureyri. Sýningin hefur vakið mikla athygli og fengið mjög góða aðsókn en hún er að stórum hluta unnin í samvinnu við fólk sem að jafnaði leggur ekki stund á mynd- list. -ilk Lúðrasveit í Langholtskirkju Enn á ný er komið að tónleikum Lúðrasveitar verkalýðsins. Verða þeir að þessu sinni haldnir í Lang- holtskirkju á sunnudaginn og hefj- ast klukkari 17.00. Á efnisskránni er úrval tónlistar sem sveitin hefur verið að æfa síð- ustu vikurnar undir dyggri hand- leiðslu stjórnandans, Tryggva M. Baldvinssonar. Sveitin er skipuð 44 hljóðfæraleikurum sem flestir eru ungir og stirnda tónlistarnám í hin- um fjölmörgu tónlistarskólum á höf- uðborgarsvæðinu. Það er von Lúðrasveitarinnar að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi en að venju er aðgangur ókeypis. -ilk Bergmál blóma Elínrós Eyjólfsdóttir heitir listakonan sem ætlar að opna sýningu á verkum sínum á morgun í Gallerí Horn- inu að Haftiarstræti 15. Sýningin ber yfirskrift- ina Bergmál blóma og vísar hún til viðfangs- efriisins; blóma í mörg- um blæbrigðum. Að loknu myndlist- arnámi hér heima, stundaði Elínrós lista- nám við Skidmore Col- lege í New York. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og einnig tekið þátt í sam- sýningum, meðal ann- ars í Bandaríkjunum. Sýning Elinrósar í Gallerí Hominu stend- ur til miðvikudagsins 11. desember og verður opin alla daga frá kl. 11.00 til 23.30. Eitt verka Elínrósar sem veröur á sýningunni. Menningarmiöstööin Geröuberg og Menningarmálanefnd Reykjavíkurborg- ar standa fyrir sýningu á myndskreytingum í norrænum barnabókum. Sýn- ingin verður opnuð í Geröubergi á morgun og mun standa til 20. desember. Opiö verður mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10 til 21 og föstudaga til sunnudaga frá kl. 12 til 17. Stórsveit í ráðhúsinu Stórsveit Reykjavíkur er eina starfandi,„Big Band“ landsins. Tón- leikar svéitarinnar eru orðnir fast- ur liður í dagskrá Ráðhúss Reykja- víkur en þar verður sveitin einmitt á morgun. Tónleika mun hún halda og hefjast þeir kl. 17.17. Efnisskrá tónleikanna er úr ýmsum áttum eins og gjaman áður og stjórnandi Stórsveitarinnar er Sæbjöm Jóns- son. Kynnir á tónleikunum verður Pétur Grétarsson og Edda Borg mun koma fram með hljómsveitinni og syngja nokkkur lög. Aðgangseyrir er enginn og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. -ilk LAUGARDAGAR DV Bílur erfjögurra síðna blaðauki þarsem er um allt sem viðkemur bílum og bílaáhugafólki á fróðlegan og skemmtilegan hátt. DVI IKvikmyndir [ Helgarblaði DV hefur kvikmyndaumfjöllun blaðsins verið stórlega aukin. Þar er á fjórum litríkum og skemmtilegum síðum umfjöllun um vinsælar myndir, leikara og raunar allt sem viðkemur ,v»rri kvikmyndaheiminum. Helgarblað kemur úl eldsnemma á laugardagsmorgnum! Barna liktJ Barna DV er lifandi blaðauki fyrir hressa krakka. Þar er að finna sögur, þrautir, gátur ásamt hinu skemmtilega Krakkaklúbbshorni þar sem alltaf er að finna spennandi verðlaunagetraunir fyrir Krakkaklúbbsmeðlimi. DV býður öllum yngri lesendum blaðsins að ganga í Krakkaklúbbinn og vera þannig virkir meðlimir með þátttöku í gátum og þrautum í Barna-DV. Allir Krakkaklúbbsmeðlimir fá Krakkaklúbbskort sem er jafnframt afsláttarskírteini og veitir aðgang að uppákomum á vegum klúbbsins. Lukkudýr Krakkaklúbbsins, Tígri, hefur verið víðförull og er aldrei að vita nema hann birtist óvænt í uppákomum Krakkaklúbbsins. DVl I DV-Ferðum finnur þú upplýsingar og vandaðar frásagnir um ferðalög bæði innanlands og utan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.