Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1996, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1996, Side 12
H/IYHDBAHDA Nick of time: Tímakapphlaup Johnny Depp leikur i Nick of Time sitt fyrsta hasar- hlutverk og ferst það nokkuð vel úr hendi þótt óneitan- lega gefi hlutverkið ekki efiii til eins mikilla tilþrifa og fyrri hlutverk hans. Hann leikur skrifstofublókina Gene Watson sem lendir í heldur óskemmtilegri aðstöðu þegar 6 ára dóttur hans er rænt, honum fengin skammbyssa og sagt að hann hafi tæplega einn og hálfan tíma til að drepa fylkisstjórann ella verði dóttir hans drepin. Myndin er svosum aðeins afþreying en góð sem slík. Hún er afar vel gerð og það að taka myndina í því sem næst „rauntíma" heppnast vel og undirstrikar vel vaxandi örvænt- ingu aðalsöguhetjunnar sem sér að tíminn er að renna út. Christopher Wal- ken er sannfærandi ilimenni, enda alvanur á þeim bænum, og aðrir leikar- ar eru a.m.k. sæmilega trúverðugir. Samsærið í myndinni er heldur ýkt og ólíkindalegt en atburðarásin þessar tæpu 90 mínútur gengur hins vegar nokkuð vel upp og það er ekki fyrr en í bláendann sem hefðbundin Hollywood- hasareinkenni fara að skemma svolítið. Allt í allt er myndin hin ágætasta skemmfim og með betri hasarmyndum ársins. Útgefandl: ClC-myndbönd. Leikstjóri: John Badham. Aðalhlutverk: Johnny Depp og Christopher Walken. Bandarísk, 1995. Lengd: 86 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. -PJ Dead Presidents: Næstum því bönnuð iricki. 0,4*- Það var með naumindum að Deád Presidents fékkst sýnd hér á landi því Kvikmyndaeftirlitið ætlaði ekki að hleypa henni í gegn í fyrstu. Sem betur fer rættist úr því að myndin er til þess fallin að vekja til umhugsun- ar fremur en að ofbjóða fólki. Hún er vissulega með hrottalegri myndum sem sýndar hafa verið hér en þó ekki í neinum sérflokki hvað það varðar, a.m.k. hef ég séð ógeðfelldara ofbeldi, t.d. í NBK. Myndin fylgir nokkrum fátækrahverfisunglingum á sjöunda áratugn- um fram á þann áttunda og þá sérstaklega Anthony Curtis. Eftir hermennsku í Víetnam koma þeir aftur í grámyglulegt hverfið sitt og eiga erfitt með að aðlagast. Að lokum ákveða þeir að redda málunum með því að fremja stórrán sem reynist skólabókar- dæmi um áætlun sem lítur feikilega vel út á pappírnum en fer svo illa úr- skeiðis. Veruleikafirring persónanna og sinnuleysi gagnvart lífi samborgara sinna er sláandi og sérstaklega eru breytingar aðalsöguhetjunnar sláandi. í byrjun er hann sakleysislegur og fremur feiminn unglingur en í lokin ætlar hann ekki að trúa eigin eyrum þegar dómarinn dæmir hann, stríðshetjuna sjálfa, í ævilangt fangelsi. Slík er firring hans að hann telur morð á fjórum lögreglumönnum léttvæg í samanburði við afrek hans í stríðinu og þjónustu hans þar við þjóð sína. Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjórar: Hughes-bræðurnir. Aðalhlutverk: Larenz Tate, Keith David og Chris Tucker. Bandarísk, 1995. Lengd: 113 mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. -PJ tyndbönd FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 Dracula Dead and Loving It: Ófyndinn Mel Brooks Mel Brooks hefur gert fjöldan allan af grínmyndum um ævina, þ.á m. margar sem í dag eru orðnar klassískar, t.d. Blazing Saddles sem Hreyfi- myndafélagið var að sýna nýlega. Það er þvi sorglegt að sjá þessa hroð- virknislegu hryggðarmynd sem er nýjasta mynd hans. Hér tekur hann fyrir vampírumyndir og þá kannski sérstaklega þá nýjustu, Bram Stokers Dracula. Sjálfur er hann í hlutverki vampíruveiðarans Van Helsing og er þreytulegur. Leslie Nielsen leikur vampíruna en hann sló í gegn í Naked Gun myndunum og lifir enn á því. Hann hefur aldrei þótt vera frambærilegur leikari en smellpassaði í hlutverk aulans Franks Drebins í Naked Gun. Hér er hann álíka aulalegur en allsendis ófynd- inn og stælamir í honum eru þreytandi. Annars em allir leikararnir ömurlegir nema Peter MacNicol, sem nær stundum skemmtilegum of- leik í hlutverki hins geðbilaða Renfields. Mel Brooks hefúr ekki gert skemmtilega mynd síðan Spaceballs kom út og er greinilega með öllu út- hrunninn. Ég mæli eindregið með því að fólk nái sér fremur í Young Frankenstein. Þar er hægt að sjá hvernig Mel Brooks gat einu sinni skopast að hryllingsmyndum á drepfyndinn hátt. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Mel Brooks. Aðalhlutverk: Leslie Niel- sen og Mel Brooks. Bandarísk, 1995. Lengd: 90 mín. Bönnuð börnum inn- an 12 ára. -PJ La Haine: Hrá þjóðfélagsádeila Titill myndarinnar vísar í hugarástand margra i fá- tækrahverfum í Frakklandi, úthverfum sem að miklu leyti eru byggð innflyljendum og minnihlutahópum þar sem hatur á kerfinu grefur um sig vegna félagslegs óréttlætis. I myndinni segir frá félögunum Hubert, Said og Vinz en sögusviðið er fátækrahverfl sem logar í óeirðum vegna þess að Abdel Ichah, unglingur úr hverfinu, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir mis- þyrmingar við lögregluyfirheyrslu. Said hefur lifíbrauð af dópsölu og pælir ekki mikið í félagslegum vandamál- um. Hubert og Vinz stendur hins vegar ekki á sama um málin en afstaða þeirra er gjörólík. Vinz er blindaður af hatri og sér ástand- ið sem stríö milli þeirra og yfirvalda meðan Hubert vill slá á ofbeldið og gera eitthvað uppbyggilegt fyrir hverfið. Aukin spenna færist í samskiptin þegar Vinz sýnir þeim lögregluskammbyssu, sem hann hafði fundið eftir óeirðimar, og lýsir því yfir að ef Abdel Ichah deyi muni hann ná fram rétt- læti með því að nota byssuna til að drepa lögreglumann. Unglingamir, sem leika í myndinni, standa sig allir mjög vel, sérstaklega Vincent Cassel sem leikur Vinz. Myndin er tekin í svarthvítu sem undirstrikar ömurleikann í grámyglulegu úthverfinu og öll stObrögð og leikstjóm era fagmannlega unnin. Sagan er vel skrifuð og áhugaverð og myndin vekur mann tO um- hugsunar en þá er víst tOganginum náð. Einhver mistök hafa orðið i is- lenskri textasetningu og misfarast því einstaka linur. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Mathieu Kassovitz. Aðalhlutverk: Vincent Cassel, Hubert Koundé og Saþd Taghmaoui. Frönsk, 1995. Lengd: 90 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. -PJ i fl Hin vinsæla gamanmynd The Birdcage stendur af sér allar atlögur og situr sem fastast í efsta sæti listans, aöra vikuna í röö. Fjórar nýjar myndir koma inn á listann þessa vikuna og fara tvær þeirra í efstu fimm sætin og á myndinni hér til hliöar er Kurt Russell, aöalleikari Executive Decision, ásamt aöstoöarmönnum sínum um borö í breiðþotu sem rænt hefur verið. Executive Decision er í fjórða sæti. Eina nýja myndin á iist- anum sem ekki var sýnd í bíói er Last of the Dog- men en í henni leikur Tom Berenger lögreglu- mann sem leitar uppi fanga sem hafa flúið. The Birdcage Robin Williams og Nathan Lane Armand og Al- bert hafa búið sam- an um árabO og hafa þeir alið upp son Armands, Val. Þegar Val tilkynnir um trúlofun sína og dóttur þingmanns leggja þeir blessun sína yfir ráðahag- inn en það verður heldur betur handa- gangur f öskjunni þegar von er á þing- manninum og eig- inkonu hans f heimsókn tO tOvon- andi tengdaforeldra dóttur þeirra og þingmannshjónin vita ekki betur en „móðir“ Vals sé kona. Broken Ar- row John Travolta og Christian Slater Vic er einn besti flugmaður banda- ríska hersins og einn af fáum sem stjóma vél sem ber kjamaodda. í leyni- legri sendifór kem- ur hins vegar í ljós að Vic er ekki aOur þar sem hann er séður. Með honum er flugmaðurinn ROey sem lítur upp tO Vics. Sú aðdáun breytist hins vegar í skelfingu þegar vélinni er rænt og ROey verður Ijóst að það er Vic sem stendur fyrir rán- inu. 12 Monkeys Bruce Willis og Brad Pitt Bmce WOlis leik- ur mann að nafni Cole sem finnst sturlaður og er sendur á geðveikra- hæli. Hann segist vera frá árinu 2035 og hafa verið send- ur tO að koma í veg fyrir útbreiðslu á veiru sem eigi eftir að eyða nær öUu lífi innan nokkurra vikna. Þótt fáir trúi honum tekur geð- læknirinn Kathryn eftir því að ýmis- legt styður það sem Cole segir. Executive Decision Kurt Russell og Steven Seagal Hryðjuverka- menn hafa náð þotu á sitt vald og em með óaðgengUegar kröfur. Um borð er öflug sprengja og er ekki bara líf far- þega í hættu heldur 40 miUjóna manna sem búa á austur- strönd Bandaríkj- anna. Eina færa leiðin tO að koma í veg fyrir þessa hættu er að lauma um borð sex manna liði meðan vélin er á flugi og afvopna hryðj uverkamenn- ina. Vamnire in Brooklyn Eddie Murphy og Angela Basset Vampíran Max- imUlian er komin tO Brooklyn og leit- ar þar að konu sem á að uppfyUa aUar hans væntingar. Það kemur á dag- inn að hann er á réttum stað þvi að í lögreglukonunni Ritu finnur hann sinn sanna lífsfóru- naut. En tO að ná henni á sitt vald þarf hann að stiUa blóðþorstann. Á þessa konu dugar ekki að bíta í háls- inn og sjúga úr henni blóðið. smm 12-til 18. nóvember —r SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA SHSHHBHBl TITILL e^-r-r-r-r-^-- ÚTGEF. TEG. 1 L 3 Birdcage Warner -myndir Gaman 2 3. 5 Broken Arrow Skrfan Spenna 3 2. 4 12 Monkeys ClC-myndbönd Spenna . Ný 1 Executive Decision Warner -myndir Spenna 1_5 «* i ; Vampire in Brooklyn ClC-myndbönd Gaman 6 1 2;! Two Much Stjörnubíó > l Gaman 7 17. 3 Things To Do In Denver... Skrfan , Spenna 8 6. 7 ; Get Shorty Warner -myndir ■HB gg§HH| Gaman 9 4. b Grumpier Old Men Warner -myndir > Gaman w| Ný i ; Rumble in the Bronx Skrfan ; Spenna 11 5' 4 ; Up Close And Personal Myndform ' Ðrama 12 9. , l 8 1 Casmo ■BHHHHHHHI : ClC-myndbönd Spenna 13 ; 14. 2 ; X-Files:Master Plan Skífan ; Spenna 14 , 8. . i 6 i Sudden Death agggapSR»;S, ClC-myndbönd Spenna 15 : io. ; 5 : Virtuosity r ClC-myndbönd , Spenna ; Ný ; i ; Last Of The Dogmen , Skrfan ' WBSBBKmt Spenna 17 - 17. ; ii - Heat Warner -myndir > Spenna 18 20. ; 12 : ' ■'. t Thin Line Between.. 1 Myndform Gaman 19 ; 15. ; 6 Sense & Sensebility ; Skífan ' Drama 20 18. 4 ; Mighty Aphrodite Skrfan > Gaman t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.