Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1996, Síða 3
UV FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996
nlist
HLJÓMPLÖTU
Alfreð Clausen - Manstu gamla daga:
Frumherja minnst ★★*
Þeir sem enn muna gömlu óska-
lagaþættina, sjómanna og sjúkl-
inga, á gömlu guíúnni, eins og Rás
1 hefúr stundum verið kölluð, eru
ekki í vandræðum með að vita hver
Alfreð Clausen var því að á árun-
um milli 1950 og 1960 var spilað lag
með honum í nánast hverjum
þætti. Þessi geðþekki söngvari með
flauelsröddina var mjög virkur að
syngja inn á plötur á þessum árum
en mest allt var þó gefið út á 78
snúninga plötum sem á voru aðeins tvö lög. Það þótti því vel við hæfi
að ein fyrsta safhútgáfan hér á landi skyldi vera tvöfalt albúm með
þeim lögum sem Alfreð Clausen söng inn á plötur. Var það Svavar
Gests sem gaf safhið út árið 1981 undir nafhinu Manstu gamla daga.
Nú hefur þessi safnútgáfa verið endurbætt tæknilega séð og gefin út
aftur, örugglega gömlum aðdáendum Alfreðs Clausens til mikillar
gleði því fyrri útgáfan seldist fljótt upp.
Þegar hlustað er á Manstu gamla daga í heild þá er það deginum
ijósara að lögin eru böm síns tíma og flutningurinn einnig. Hin ljúfa
rödd Alfreðs Clausens hæflr best rólegum lögum og mörg þeirra hafa
varðveist í minningunni en hræddur er ég um að útsetningar og
flutningur þætti um of einfaldur í dag. Fjölbreytni er engin í útsetn-
ingum og allt gert á sem einfaldastan hátt með varla boðlegri upp-
tökutækni og af fjárskorti. Það segir sem betur fer ekki alla söguna
því að í öllum einfaldleikanum nýtur Alfreð sín best og það er fyrst
og fremst rödd hans ásamt melódiskum lögum sem hafa gert það að
verkum að mörg laganna á Manstu gamla daga hafa varðveist og ver-
ið spiluð og verða það um ókomna tíð. Hilmar Karlsson
Dúettinn Tromp - Myndir:
Áferðarfallegt en máttlítið ★★*★
Ragnar Ingi Karlsson, tónlistar-
maður frá Blönduósi, hefur á ferli
sinum sem trúbador og meðlimur í
ýmsum hljómsveitum safnað í sarp-
inn eigin tónsmíðum sem hann nú
gefur út á plötu undir heitinu
Myndir. Flytjendur eru Dúettinn
Tromp, sem Ragnar skipar ásamt
komungri söngkonu frá Sauðár-
króki, Hörpu Þorvaldsdóttur.
Lögin á Myndum bera nokkum
keim af trúbadoriðkun Ragnars,
em einfóld í uppbyggingu og auðlærð. Þegar á heildina er litið vant-
ar nokkuð upp á að hægt sé að segja þau góð, eitt og eitt lag sker sig
úr en önnur em betur geymd í skúffunni eða endurbætt. Reynt hef-
ur verið að poppa þau upp, en þó aldrei farið yfir markið. Útsetning-
ar Jens Hanssonar eru í hefldina smekklegar en geta samt aldrei
falið rýrt innihaldið.
Metnaðinn vantar ekki á stöku stað í tónsmíðar og texta Ragnars
Inga og er gott dæmi um þann metnað Stríð, lag sem bæði er mikið
lagt í texta og lag, en fellur i þá gryfju að verða um of yfirborðslegt,
dæmigert lag sem passar betur fyrir trúbador einan á sviði en meira
að segja þannig væri ekki hægt að fela það að textinn ristir ekki
djúpt.
Á Myndum em tíu lög, þau áheyrilegustu em melódísk og auð-
lærð, best er Söngur um draum, rólegt og fallegt lag sem gefur frá sér
góð áhrif. Flutningur er allur til fyrirmyndar að því undanskildu að
söngur Hörpu er stundum flatur. Stúlkan hefur góða rödd en vantar
þjálfun og þroska til flutnings á plötu. Hilmar Karlsson
Dead Sea Apple - Crush
Hressileg frumraun ★★★
Dead Sea Apple er rokkhljóm-
sveit sem fremur lítið hefur farið
fyrir hingað til. Fyrir svo sem
tveimur áram átti hún lag á safh-
plötu en stekkur nú fram í dagsljós-
ið með plötu í fúllri lengd. Sú heit-
ir Crush og hlýtur að teljast gæða-
gripur þegar haft er í huga að
hljómsveitin ætti að vera fremur
óslípuð enn þá og lítt vön hljóð-
versvinnu.
Crash er vitaskuld ekki gallalaus
en kostimir eru göllunum yfirsterkari. Rokktónlist Dead Sea Apple
er í senn kraftmikið og melódísk, dálítið gamaldags á köflum en ætti
fyrir vikið að höfða til ögn breiðari aldurshóps en ella. Á plötunni
era bráðgrípandi lög eins og I Am the One, Happy Song og Ride of a
New Generation sem skartar hinu eftirminnilega viðlagi I hate you,
you hate me. Önnur sem virka ekki jafn grípandi fyrst í stað era eigi
að síður eftirtektarverð. Fleira fær mann raunar tÚ að minnast gam-
alla tíma og gamals rokks. Lagið Mist of the Moming er nokkuð í
takt við það sem Deep Purple var að fást við á plötum sínum um
miðjan áttimda áratuginn þegar slá átti á rólegu og viðkvæmu
strengina. Sennilega er það lag það sem mest er gamaldags á Crush.
Eftir stendur hins vegar að Dead Sea Apple er hljómsveit sem lof-
ar góðu og á vonandi eftir að vinna enn betur í framtíðinni út frá
þeim áhrifum sem hún er undir á plötunni Crash.
Ásgeir Tómasson
Kula Shaker:
Dularfull velgengni
- ný hljómsveit kveður sér hljóðs
Umskipti
Síðan þá hefur mikið vatn rann-
ið til sjávar. Kula Shaker hefur
slegið í gegn með blöndu sinni af
indverskum tónum, dulúð og
bresku poppi í ætt við Blur og Oas-
is. Nýjasta plata sveitarinnar K
hefur fengið góða dóma gagn-
rýnenda og plötukaupenda.
Hljómsveitin á sér hins vegar
afar skrautlega sögu og varla er
hægt að segja að velgengnin hafi
beinlínis sveitina uppi fyrr en nú.
„Það má segja að botninum hafi
verið náð vorið 1995. Plötufyrirtæk-
ið, sem við vorum skuldbundnir,
fór mjög illa með okkur og við
þurftum að kúldrast í nánu sam-
býli hvor við annan. Þá fór ég til
Liverpool og upplifði virkilega and-
lega uppljómun. Þá ákvað ég að
breyta nafninu á hljómsveitinni úr
Kays í Kula Shaker," segir Crisip-
an en hann hefúr frá unga aldri
verið mjög hneigður til austrænnar
trúarspeki og kemur það glöggt
fram í lagasmíðum og allri fram-
komu hljómsveitarinnar. Crispian
er einungis 23 ára gamall en hann
hefur þegar ferðast til Indlands og
numið þar austræna speki. Nafn
hennar, Kula Shaker, er uppruna-
lega nafn á austrænum dulspekingi
og keisara sem var uppi á níundu
öld. Hljóinsveitarmeðlimum fannst
cdveg kjöriö að taka upp nafn dul-
spekingsins til þess að njóta vemd-
ar hans. „Það veitir ekki af að njóta
konunglegrar verndar," segir
Crispian.
„í árslok 1994 spiluðum við á
staö í London sem heitir Leisure
Lounge. Sá sem hitaði upp fyrir
okkur var einhver maður
sem var með járnadrasl
og sverð hangandi á
kynfærum sínum.
Hann spilaði há-
væra teknótónlist
á meðan allsnak-
in kærastan
hékk upp við
sviðið og
reykti krakk.
Við spiluð-
um hins
vegar ró-
lega ind-
verska
tónlist
og sung-
um um
sólarlag-
ið. Varla
er hægt að
segja að við
höfum feng-
ið góð við-
brögð því að
fullt af upp-
dópuðum
nöktum
mönnum, sem
vora meðal
áheyrenda öskraðu
á.okkur, kölluðu okkur
homma og sögðu okkur að
hypja okkur. Þetta var um það
bil lágpunkturinn á ferlinum,“ seg-
ir Crispian Mills, söngvari Kula
Shaker.
Yfirlýsingagleði
Crispian er ekkert að skafa utan
af því þegar hann talar um framtíð
Kula Shaker. „Við erum að breyta
kerfinu að innan en það er greini-
legt að mikil andleg og menningar-
leg bylting er á næstu grösum.
Margir hafa reyndar útilok-
að sig frá henni en ég
held að við
verðum að
viður-
kenna
að það er eitthvað
æðra til og yfír
því höfum við
enga stjórn. Marg-
ir halda að við
séum klikkaðir að
gefa út svona yfirlýsing-
ar en það er allt í lagi að hafa
smá mótvind, annars væri þetta
leiðinlegt og óspennandi.
Samantekt: JHÞ
Slegið í gegn
Hvort sem austrænir töfrar réðu
því eða ekki þá hefur allt farið að
ganga Kula Shaker í haginn eftir
nafnbreytinguna. Innan fiögurra
mánaða tókst sveitinni að næla sér
í góðan samning við Columbia og
tekist að gera það sæmilega gott á
öldum ljósvakans með laginu
Gratefúl When You Are Dead. Síð-
astliðinn júlí tókst Kula Shaker að
slá virkilega í gegn á breska smá-
skífúlistanum með laginu Tattva
sem er sungið á hinu ævaforna
tungumáli Sanskrit.
írsku rokkgoðin í U2 era í
vondum málum þessa dagana.
Hljómsveitin hefúr unniö ötul-
lega að nýjustu plötu sveitar-
innar sem á að koma út í jan-
úar. Nafnið á plötunni hefur
ekki verið ákveðið og mun
sveitin eiga nokkuð í land með
að klára vinnuna við plötuna.
Þrátt fyrir þetta hafa upptökur
af frumútgáfúm nýrra laga
komist í rangár hendur og
mun vera hægt að nálgast
búta úr þeim á Internetinu.
Útgáfufyrirtæki U2, Island,
stendur nú fyrir mnfangsmik-
illi rannsókn og biður útvarps-
stöðvar að leika bútana ekki
þar sem þeir era úr ófullgerð-
um lögum. Lögin heita Wake
up Dead Man og Discotheque.
Erfitt gæti reynst fyrir Is-
land aö hindra útbreiðslu laga-
bútanna enda aödáendur U2
orðnir langþreyttir á biðinni
eftir nýrri tónlist frá sveitinni.
-JHÞ