Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1996, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1996, Qupperneq 5
13^ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 Hótel ísland um helgina Skagfirðingar og Bítlar Fólk er fífl: tvö þúsund eintökum en varla er til sá unglingur í dag sem ekki þekkir lögin Heima er best, þar sem Heiðar endurtekur orðið mamma í sífellu, og Þið eruð frábær. Upphitunarband ársins Fjöldi erlendra tónleika hér á landi þetta árið hefur varla farið fram hjá nokkrum tónlistaráhuga- manni, slíkt hefur framboðið verið. Botnleðja verður víst að teljast upp- hitunarband ársins því hún hitaði upp hjá Blur, Pulp og Super Furry Animals, svo eitthvað sé nefnt. Hljómsveitin fékk góða dóma frá meðlimum og aðstoðarfólki Blur og tók Super Furry Animals í nefið, ef svo má að orði komast. „Tónlistarlif í Bretlandi er á villigötum ef þessi hljómsveit er bjartasta vonin,“ sam- sinna strákamir. Framtíðarplön miöast að miklu leyti við útlönd hjá þessari ungu sveit en um þessi jól fer öll einheit- ingin í útgáfu á íslandsmarkaði. Botnleðja kynnir aðra breiðskífu sína sem nefiiist Fólk er fifl. tónlistinni á undangengnu ári. Plat- an er að þeirra sögn mjög frábrugð- in 25 tíma upptökuverkinu, enda í hana lagður mun meiri tími. Upp- tökur stóðu nú í heilar tvær vikur. Grínið hefur að einhverju leyti, þó ekki öllu, vikið fyrir alvarlegri hugsunarhætti hljómsveitarmanna og tónlistin er tekin úr öllum áttmn. „Viö viljum ekki steypa okkur í eitthvert tónlistarstefnumót," sam- sinna strákamir einum rokkrómi. „Við semjum þá tónlist sem okkur þykir góð og setjum ekki endilega fyrir okkur úr hvaða átt hún kem- ur.“ Sem dæmi um þetta má taka lag sem hefur hljómaö á útvarpsstöð- inni X-inu 97,7, sem heldur merkj- um hljómsveitarinnar vel á lofti, enda geysivinsæl meðal hlustenda, en i því lagi má heyra jassáhrif. Eft- ir því sem strákamir segja era þetta einu jassáhrifin á þessari tólf laga plötu. Þó hljómsveitin segist ekki steypt í eitthvert tónlistarstefnumót viðurkenna þeir að þeir spili enn jaðartónlist sem á ættir sínar að rekja til rokksins ú hér er víst ekki til áð fylgja eftir útgáfu plötunnar. Botnleðja hefur aldrei ástundað að spila lög eftir aðra og syngur allt á íslensku. Hins vegar hefur hún ver- ið bókuð á böll með sitt eigið efni en spilar þá aðeins í fjörutíu og fimm mínútur enda tónleikahljómsveit í eðli sínu. Eins og áður kom fram stefiiir hljómsveitin á að leika á er- lendri grund í framtíðinni. Undir- búningur þeirrar tónlistarferðar er þegar hafinn og verða upptökur á ensku líklega gerðar í desember. Strákamir vilja hins vegar ekki gera mikið úr þessum þreifingum og gefa ekki út neinar yfirlýsingar um frægð og frama erlendis að svo stöddu. Ef miða skal við undirtektir tón- leikagesta, blaðamanna og erlendra hljómsveita þessa sumars þykir hins vegar nokkuð ljóst að Botn- leðja á framtiðina fyrir sér, jafnt heima og að heiman. Hvort frasinn „fólk er fifl“ fær einhvem tíma að prýða erlent plötuumslag er spum- ing sem verður ekki svarað á þess- ari stundu. Botnleðja verður heima um jólin. -GBG Fáar islenskar rokkhljómsveitir hafa vakið jafnmikla eftirtekt og hljómsveitin Botnleðja gerði á síð- asta ári. Sveitin hóf feril sinn á því að vinna Músíktilraunir með mikl- um yfirburðum og í kjölfarið fylgdi útgáfa plötunnar Drullumall. Platan var tekin upp og hljóðblönduð á þeim 25 timum sem hljómsveitin vann sér inn með sigrinum í Tóna- bæ. Sú plata seldist aðeins í tæpum Meira í hana lagt „Titillinn er tilvísun í hegðun mannfólksins og er títt notaður frasi innan tónlistarbransans en ekki illa meintur á neinn hátt. Við emm líka fifl,“ segir Heiðar. Okkur er bara ekki sama um umgengni mannfólksins á þessari jörð. Strák- amir segjast hafa þroskast mikið i hægt að finna neitt píkupopp. Þeir sem að því leita ættu sem sagt frek- ar að snúa sér að öðrvun útgefhum titlum þessi jólin. Framtíðin Hljómsveitin hélt útgáfutónleika sína við góðar undirtektir við- staddra í gærkvöld og mun halda áfram tónleikahaldi fram að jólum Botnleðja drullumallar á ný Það verður mikið um að vera á Hótel íslandi um þessa helgi. Á föstudagskvöldið verður haldin söng- og skemmtidagskrá Skagfirð- inga og Húnvetninga sem nefhist Skín við sólu Skagafjörður og Húna- þing. Þar kemur fram fjölda þekktra skemmtikrafta og má þar nefna Rökkurkórinn, Ómar Ragnarsson, Lóuþrælana og Jóhann Má Jó- hannsson. Veislustjóri verður Geir- mundur Valtýsson og leikur hljóm- sveit hans fyrir dansi eftir að dag- skránni lýkur. Laugardagskvöldið 30. nóvember verður svo sýningin vinsæla Bítla- árin 1960-1970 en þar gefst ’68 kyn- slóðinni tækifæri til að njóta kvöld- stundar. Stórsöngvaramir Bjami Arason, Ari Jónsson, Björgvin Hall- dórsson og Pálmi Gunnarsson koma fram, enn fremur Söngsystur og Stórhljómsveit Gunnars Þórðarson- ar. Eftir að sýningunni lýkur leika Sixties fyrir dansi fram á rauða- nótt. -JHÞ Geirmundur Valtýsson verður á Skín viö sólu Skagafjöröur og Húnaþing á Hótel íslandi í kvöld. HLJÓMPLjjTU mimð Kvenréttindi, melódíur og gítarrokk Ani DHranco - Dilate Ani Difranco er ung kona sem hefur á sínum stutta ferli afheitað frægðinni með því að neita stórum útgef- endum um efni sitt. Hún gefur út á litlu merki sem heitir Righteous Babe, ferð- ast um heiminn og styrkir konur í hvarvetna. Hún gef- ur stórstjörnunni Alainis Morrisette ekkert eftir hvað varðar lagasmíðar og texta- smiðar; hún er hins vegar betri hljóðfæraleikari. Á plötunni Dilate fá karlmenn á baukinn í textum og ýtt er undir sjálfstæði kvenna og baráttu þeirra við kynferðislegt ofbeldi. Laga- smíðar em gítarslegnar (samdar á gítar) en segjast verður að tilfinn- ing Ani fyrir hljóðfærinu kemur talsvert á óvart, hvort sem sú hugs- un mín telst til karlrembu eður ei. Sérstaklega em skemmtileg grúv í lögunum Outta Me, Onto You (sem hefur heyrst á X-inu upp á síðkastið), Shameless og Superhero. Einnig verður útgáfa Ani af lag- inu Amazing Grace að teljast i minnsta lagi frumleg, a.m.k. skemmti- leg áheymar þó minnst fari fyrir söng hennar (sem annars hentar tónlistinni afar vel) en þess má geta að aðrar söngkonur, sem reynt hafa við þetta lag, hafa lagt aðaláherslu á sönginn. Ekki er allt jafn- vel gert á þessari plötu en Ani Difranco sannar svo um munar að góð tónlist á ekki aðeins heima hjá útgáfurisunum, dreifingin kann að vera minni en tónlistin nær til þeirra sem hana vilja heyra. Hún spil- ar sjálf á flest hljóðfærin, semur öll lögin sjálf og flytur þau af ein- stakri tilfmningu sem nær i gegn til hlustandans. Næst þegar þú átt leið út í plötubúð og vilt heyra fallegar melódí- ur í bland við gott gítarrokk og kvenréttindaboðskap skaltu biðja um Ani Difranco. Þú sérð ekki eftir því! Guðjón Bergmann Stuna - m.m.m. Undarlegt einkaflipp ★* Hljómsveitin Stuna send- ir hér frá sér sitt fyrsta verk, m.m.m. (Multi- Media-Mast- urbation), og er það fyrir margt athyglisverð frumraun. Hér er um ákveð- ið tilraunastarf að ræða þar sem hljómsveitin leitast við að blanda saman hörðu þungarokki og tölvutónlist. Útkoman er hins vegar ekki eins góð og maður gæti átt von á þar sem of lítið er gert að því að spinna þessi tvö el- ement saman. Hljóðið á plötunni er allt að því lélegt, með einni undantekningu þó: trommumar (þ.e. ,,alvöm“trommumar) hljóma þéttar en ég veit ekki hvað. Það sama má segja um hljóðfæraleikinn að þar standa trommumar aftur upp úr. Hljómsveitin ætti að íhuga alvarlega að taka inn annan gítarleikara því gítarleikur á plötunni er of einhæf- ur til að hann geti verið í aðalhlutverki í flestum lögum. Tónlistin og taktbreytingarnar bjóða upp á miklu meiri fraseringar og flóknari hljómaganga en útkoman sýnir. Aftur á móti er Jón með flotta rokk- rödd sem hentar vel í tónlist hljómsveitarinnar. Það er vissulega gleðiefni að rokkarar em hættir að agnúast út í tölvmnar og hljóðgervlana og farnir að taka tæknina upp á sína arma. Þetta krefst hins vegar aðeins ööravísi heimavinnu en menn em vanir og það verður gaman að fylgjast með þessari hljómsveit í framtíðinni ef hún heldur áfram að þróa þessa tónlist. -MÞÁ Ríó - Ungir menn á uppleið: íslenskt með írsku ívafi Þegar fjallað er um ný lög með Ríó er alveg eins gott að sleppa hugtökum eins og fram- farir eða breytingar, þeir gera það sem þeir kunna best; flytja áheyrileg lög Gunnars Þórðar- sonar við góða texta Jónasar Friðiks nánast óaðfinnanlega og það þarf ekki annað en að hlusta á fyrstu laglínumar sungnar á Ungir menn á upp- leið (góður húmor í nafninu) til að vita hverjir era á ferð- inni. Ungir menn á uppleið er í rauninni beint framhald af Landið fýk- ur burt, sem kom út fyrir fimm árum, og eru þessar tvær plötur lík- ar i uppbygginu og áferð. Lög Gunnars era góð, en misgóð að vísu, og textar Jónasar standa alltaf fyrir sínu. Breytingin er að þeir félag- ar fóra til írlands og nokkur laganna era tekin þar upp. Og írsku áhrifin leyna sér ekki þótt aldrei nái þau yfirtökum. Ungir menn á uppleið er góð og þægileg hlustun. Það eru þó lög sem skera sig úr, Gunnar nær sér oft best upp í rólegum og melódísk- um lögum. Má nefha Á eyjunni grænu og Þegar hjartað segir frá sem era einstaklega falleg lög. En hann á það til að faúa I þá gryfju að of- gera i útsetningum og er það sérstaklega áberandi í lokalagi plötunn- ar, Sofðu barnið mitt, sem er falleg og lítil vögguvisa. Þar er stórsöng- konunni Sigrúnu Hjálmtýsdóthu- bæh inn í alveg að ástæðulausu, ekki vantar hana raddfegurðina en þáttur hennar gerir lagið of há- tíðlegt, það nálgast að verða sálmur. Hilmar Karlsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.