Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996
Fréttir
Guðjón Þórðarson, sigursælasti þjálfari landsins, rekinn frá Skaganum:
Atvikið i Bretlandi var
dropinn sem fyllti mælinn
- af mörgum atvikum þar sem meint ofbeldi og ósæmileg hegðun Guðjóns koma við sögu
fylgst vandræðalega með en ekki
gripið í taumana.
Þá bárust einnig kvartanir til
stjómarmanna ÍA eftir leik ÍBV og
KR í Eyjum þar sem Guðjón var
sakaður um ósæmilega og dóna-
lega hegðun. Loks var haldinn
neyðarfundur hjá stjórn ÍA í byrj-
un ágúst. Þar komu fram háværar
óskir um að Guðjóni yrði vikið
frá. Greidd voru atkvæði meðal
leikmanna um það hvort Guðjón
ætti að vera áfram þjálfari liðsins
og fékk Guðjón nauman stuðning
en samkvæmt heimildum DV
greiddu 7 leikmenn atkvæði á
móti honum. Eftir þetta sagði allt
meistóu'aflokksráðið af sér í heilu
lagi. í kjölfarið fékk Guðjón skrif-
lega áminningu frá stjórn félags-
ins. Guöjón sagði sjálfur í tjölmiðl-
um að hann hefði fengið áminn-
ingu um atriði sem betur mættu
fara.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
náðist ekki í Guðjón í gær.
Gunnar Sigurðsson, formaður
Knattspymufélags ÍA, vildi ekki
tjá sig um tildrög brottrekstursins
né önnur mál Guðjóns. Gunnar
staðfesti að samningnum við Guð-
jón hefði verið rift en vildi ekkert
segja um ástæðurnar.
Ólafur Þórðarson, fyrirliði ÍA,
vildi ekki tjá sig neitt um málið né
aðrir leikmenn liðsins. Einn leik-
maður liðsins sagði þó að það
hefði einungis verið tímaspursmál
hvenær þessi sorglega staða kæmi
upp og Guðjón yrði látinn fara.
Guðjón Þórðarson, sigursælasti
knattspymuþjálfari landsins, var
á mánudagskvöld rekinn úr starfi
sinu sem þjálfari íslands- og bikar-
meistara ÍA. Ákvörðunin var tek-
in eftir sex klukkustvmda stjórn-
arfund hjá Knattspymufélagi ÍA.
Árangur þessa umdeilda þjálf-
ara á knattspymuvellinum er
óneitanlega frábær. Guðjón gerði
Fréttaljós
Róbert Róbertsson
Tvær líkamsárásarkærur
Guðjón hefur nokkrum sinnum
á undanfornum ámm verið talinn
eiga aðild að árásarmálmn og feng-
ið á sig a.m.k. tvær kærur vegna
líkamsárása. Á lokahófi Knatt-
spyrnusambands íslands árið 1993
réðst Guöjón á kunnan rithöfund
og veitti honum áverka. Sú árás
var kærð en sættir náðust í mál-
inu áður en það fór fyrir dómstóla.
í sumar var uppi sterkur
orðrómur um að Guðjón hefði ráð-
ist á mann á veitingastað á Akra-
nesi fyrir framan fiölmenni. Frá-
sögn af þessu atviki hefur farið
víða en aldrei fengist staðfest og
hermt er að atvikið hafi verið
þaggað niður. í kjölfar þess kom til
árekstra í röðum leikmanna og
sfiómarmanna ÍA vegna slæmrar
hegðunar Guðjóns.
Fékk skriflega áminningu
Ekki bætti úr skák að eftir leik
Skagamanna og Leifturs í sumar
sauð upp úr á milli Guðjóns og
Ólafs Þórðarsonar, fyrirliða liðs-
ins. Þung orð féllu á milli þeirra í
búningsklefa eftir leikinn og heim-
ildir segja að sfiómarmenn hafi
Skagamenn að þrefoldum meistur-
um í ár. Hann hafði áður gert þá
að íslandsmeisturum árin 1992 og
1993. Hann gerðist síðan þjálfari
hjá KR og gerði vesturbæjarveldið
að bikarmeisturum 1994 og 1995.
Hann tók síðan aftur við Skagalið-
inu og undirritaði fiögurra ára
„gullsamning" sem átti að gilda til
aldamóta.
Ástæðan fyrir brottrekstrinum
mun vera atvik, varðandi Guðjón,
sem gerðist í Bretlandi í síðustu
viku. Það var dropinn sem fyllti
mælinn af mörgum atvikum þar
sem meint ofbeldi og ósæmileg
hegðun Guðjóns í fiölmenni kem-
ur við sögu.
Guöjón Þórðarson, sigursælasti þjálfari landsins, var rekinn frá Skaganum eftir atvik sem mun hafa átt sér stað í
Englandi í síðustu viku. Það var dropinn sem fyllti mælinn af mörgum atvikum þar sem ofbeldi og ósæmileg hegð-
un Guðjóns kemur við sögu.
Dagfari
Ó, gefðu, Guð, oss meira puð
Islendingar hafa frá öndverðu
lagt á það ríka áherslu að vinna
sem lengst á hverjum degi. Þeir
sem ekki skila 14-16 tíma vinnu-
degi eru taldir aumingjar. Þjóðfé-
lagið allt byggist upp á þessu kerfi.
Trikkið er að hafa taxtalaun eins
tíkarleg og unnt er en um leið
heimild til þess að vinna yfirvinnu
meðan örendið endist. Þá una allir
glaðir við sitt.
Þessu séríslenska kerfi fylgir
það að fólk getur verið í vinnunni
meðan það stendur uppi og þarf
ekki að hitta aðra í fiölskyldunni
enda eru þeir líka í vinnunni,
nema bömin sem bíða hjá dag-
mæðrum og öldruðum ættingjum
sem lokið hafa löngum vinnudegi.
Svokölluð framleiðni er óvenju-
lítil hér á landi en öllum er sama
um það. Vinnuveitandinn veit að
hann nær því sem hann þarf með
langa vinnudeginum og launþeg-
inn veit að hann nær að hífa kaup-
ið sitt upp með yfirvinnunni til
þess að láta enda ná saman. Þetta
þýðir það að íslendingar ná sömu
afköstum á sextán tímum og ann-
arra þjóða menn ná á átta tímum.
Enginn hefur gert athugasemd
við þetta frábæra kerfi sem við-
gengist hefur frá öndverðu. Það
þykir við hæfi og raunar fint að
menn séu vinnulúnir þá loksins er
þeir drattast heim. Karlmannleg-
ast er að ná skyrhræringi, súrmeti
eða rífa í sig bjúga við heimkom-
una og sofna svo alklæddur strax á
eftir. Þá má ljóst vera að góðu
dagsverki er lokið. Engin þörf er
þá á samræðum milli hjóna, leikj-
um við böm eða öðram óþarfa.
En nú er vá fyrir dyrum. Útlend-
ir menn hafa sett um það reglur að
aðeins megi vinna 48 stundir í
viku hverri og skulu þær reglur
einnig gilda um hérlenda menn.
Eftir 48 stunda vinnu er vinnuvik-
an rétt að byija hjá þorra íslend-
inga. Þessi ólög áttu að taka gildi
nú um mánaðamótin en vinnuveit-
endur og launþegar hafa samein-
ast um að þæfa málið um stund
enda er þeim þvert um geð að
breyta góðu kerfi.
En lög og reglur Evrópusam-
bandsins láta ekki að sér hæða.
Ráðherra félagsmála hefur gert að-
ilum vinnumarkaðarins að ná
samkomulagi um vinnutímann og
vinna þá aðeins þetta smotterí. Ná-
ist ekki samkomulega hótar ráð-
herrann lögum og má þá enginn
vinna lengur en þessa örfáu
klukkutíma í viku hverri. Páll á
Höllustöðum boðar því léttúð og
frí frá áramótum. Og hvað gera
menn þá? Stíga menn á stokk í
upphafi nýs árs og heita því að
breyta öllu háttemi sínu? Ætla
menn jafnvel heim úr vinnunni
fyrir kvöldmat virka daga og hugs-
anlega að hætta að vinna um helg-
ar eða selja sumarfríið? Hvar end-
ar svoleiðis kæruleysi?
Hvað verður þá um mannlýsing-
ar á okkar helstu hetjum? Verður
þá engum lýst i framtíðinni svo að
hann hafi verið skorpumaður,
átakagóður eða jafnvel aldrei fallið
verk úr hendi. Höllustaða-Páll ætl-
ar sér að gera hina íslensku þjóð
að dusilmennum að útlendri fyrir-
mynd. Hver hefði trúað því á hinn
húnvetnska bónda?
Þórarinn V. Þórarinsson VSÍ-
foringi segir í gær að menn verði
að nudda sig nær lausn þessa
máls. Það má ljóst vera af orðalag-
inu að honum er það þvert um geð
að sleppa vinnlýðnum heim meðan
ratljóst er. Sá söfnuður er sama
sinnis og vill ekki semja sig að
hinum útlendu háttum. í gömlum
og góðum söngleik heimtuðu menn
aukavinnu og meira puð. Senn
heyrir sú sælutíð sögunni td.
Er enginn ábyrgur fyrir því að
koma okkur í þetta bannsetta Evr-
ópurugl?
Dagfari