Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996 9 i>v Stuttar fréttir Útlönd Skrafað um Bosníu Mikilvæg ráðstefna um friðar- ferlið í Bosniu hefst í Lundúnum í dag og er gert ráð fyrir að þjóð- arbrot landsins verði gagnrýnd fyrir að fylgja friðarsamkomu- laginu frá Dayton slælega. Óstand hjá Jeltsín Ekki er mjög friðvænlegt i Rússlandi Borísar Jeltsíns for- seta. Stjóm- völd leituðu í gær að lausn á verkfalli 400 þúsund námu- manna sem hafa ekki feng- ið launin sín og deila vegna brottvikningar yflrmanns land- hers Rússlands fór stigmagn- andi. Lofa friði og öryggi Leiðtogar sem sóttu fund Ör- yggis- og samvinnustofnunar Evrópu lofuöu friði og öryggi fyrir alla í álfunni á næstu öld en deilur um stækkun NATO til austurs og fleiri atriði settu blett á fundinn. Hommar giftast Dómari á Hawaii hefur úr- skurðað að hjónabönd samkyn- hneigðra séu lögleg og er Hawaii þar með fyrsta ríki Bandaríkj- anna sem leyfir slíkt. Bændur í vígahug Yfirmaður landbúnaðarmála á Grikklandi ræðir í dag við reiða bændur sem hafa stöðvað umferð bíla og jámbrauta að undanfornu. Engin ný nöfn Sendiherrar Afríkuríkja hjá SÞ ætla ekki að leggja til nöfn kandídata í embætti fram- kvæmdastjóra SÞ, þótt forseti Einingarsamtaka Afríku hafi farið fram á það. Major staðfastur Jöhri Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði breska þinginu að stefna landsins gagn- vart sameigin- legri mynt ESB væri óbreytt en sögusagnir vora á kreiki í London að fjármálaráðherrann mundi segja af sér ef breyting yrði gerð. Hrejnsað úr göngum Á annað hundrað verkamenn vinna á vöktum allan sólarhring- inn við að hreinsa brak úr járn- brautargöngunum undir Ermar- sund eftir lestarbrunann þar á dögunum. Mótmæli í Bonn Um 25 þúsund starfsmenn í heilbrigðisþjónustunni gengu fylktu liði um götur Bonn í Þýskalandi til að mótmæla nið- urskurði í tryggingakerfi lands- ins sem þeir segja að gæti leitt til atvinnumissis 100 þúsund manna. Gerir lítið úr spennu Benjamin Netanyáhu, forsæt- isráðherra ísraels, gerir litið úr spennunni í samskiptum ísraels og arabaríkja. Teresa á batavegi Móðir Teresa er á hægum bata- vegi eftir hjartaskurðaðgerð á dögunum sem bjargaði lífi hennar en læknar segja að hún sé enn mjög máttfarin og að enn geti brugðið til beggja vona. I gildi á næstunni Forseti Alsír segir að stjórnar- skrárbreytingamar sem þjóðin samþykkti í síðasta mánuði muni ganga í gildi á næstu dög- um. Reuter Gorbatsjov sakar Þjóðverja um hefnigirni Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum Sov- étleiðtogi, hefur sakað stjómvöld í Bonn um að vilja ná sér niðri á fyrrum kommúnistaleiðtogum Austur-Þýska- lands með því að ganga á bak orða sinna um að sækja þá ekki til saka fyrir að- gerðir sem voru löglegar í Aust- ur-Þýskalandi. Þetta kemur fram i tveggja síðna skjali sem Gor- batsjov skrifaði fyrir verjendur Egons Krenz, siðasta kommúnista- leiðtoga Austur-Þýskalands, og þriggja annarra leiðtoga sem eru fyrir rétti vegna þeirrar stefnu að landamæraverðir skyldu skjóta á þá sem reyndu að flýja vestur yfir. Skoskum tókst ekki að kaupa eyjuna sína íbúar skosku eyjarinnar Eigg verða að gera sér að góðu enn um sinn að eyjan þeirra skuli vera í eigu Þjóðverja þar sem þeim tókst ekki að safna nægu fé til að kaupa hana. Þjóðverjinn, listamaðurinn Marl- in Eckhard Maruma, vill fá tvær milljónir punda fyrir eyjuna sína en eyjarskeggjum tókst ekki að safna nema tæpum 300 þúsund pundum. Þeir em þó ekki á því að gefast upp. „Ég legg þunga áherslu á að þetta er langt frá því að vera enda- lokin fyrir okkur. Ef eitthvað er, þá erum við harðákveðnari en nokkru sinni fyrr,“ sagði Maggie Fyffe, ein eyjarskeggja. Orkuráðherrar ESB fá vistvænt sólarkaffi Grænfriðungar, sem vilja að lönd Evrópusambandsins dragi úr losun koltvíildis út í andrúmsloftið, gáfu orkuráðhermm ESB kaffisopa í gær þar sem sólarorka var notuð við uppáhellinguna. Suu Kyi fær ekki að yfirgefa heimili sitt Herforingjastjórnin í Burma hefur meinað andófskonunni Aung San Suu Kyi að yfirgefa heimili sitt og að sögn aðstoðar- manns hennar var engin ástæða gefin fyrir banninu og heldur ekki sagt hversu lengi það ætti að vara. Skerðingin á ferðafrelsi Suu Kyi fylgir í kjölfar mótmæla náms- manna sem hófust á mánudags- kvöld og náðu hámarki sínu í höf- uðborginni Rangoon fyrir sólar- upprás í gær. Lögreglan handtók milli 300 og 400 námsmenn þegar þeir neituðu að dreifa sér. Mannréttindasamtökin Am- nesty International sögðu að fimm félagar úr hreyfingu Suu Kyi hefðu verið handteknir þegar þeir yfirgáfu hús hennar i gær. Reuter f ^ Sáu Simpson berja Nicole konu sína Besti vinur raðningskappans O.J. Simpsons bar fyrir rétti í gær að Nicole Brown Simpson, fyrrum eig- inkona O. J., hefði sagt sér að eigin- maðurinn hefði barið hana. Tvö önnur vitni kváðust hafa séð ruðn- ingskappann slá eiginkonuna fyrr- verandi sem Simpson var ákærður fyrir að hafa myrt 1994. Hann var sýknaður af ákærunni í fyrra en ættingjar Nicole og vinar hennar, sem einnig var myrtur, höfðuðu einkamál á hendur Simpson og er hann því fyrir rétti á ný. Vinur Simpsons, A1 Cowlings, sem ólst upp með honum og ók Ford Bronconum, sem Simpson flúði í 17. júní 1994 áður en hann var handtek- inn, sagði hikandi í réttinum í gær frá atviki sem átti sér stað á nýárs- dag 1989. Hann hefði farið til heim- ilis Simpsonhjónanna og séð Nicole í uppnámi. „Hún sagði mér að hún hefði verið barin.“ Er sýndar voru myndir af Nicole bólginni virtist Cowlings brugðið. Hann kvaðst hafa farið með Nicole á neyðarmóttöku á sjúkrahúsi fyrrnefnt kvöld þar sem hún hefði kvartað um höfuðverk og hann talið að hún gæti hafa fengið heilahrist- ing. Simpson bar fyrir rétti í síðustu viku að hann hefði aldrei lagt hend- ur á fyrrverandi eiginkonu sína. En í vitnastúkunni í gær kvaðst fyrr- verandi nektarfyrirsæta, India Rose Allen, hafa séð Simpson slá Nicole á stofu dýralæknis í Beverly Hills þar sem Allen starfaði 1983. Hún sagði Nicole hafa komið til að sækja hundana sína og hefði hún verið klædd pelsi. Simpson hefði komið akandi er hún var á förum og steytt hnefann um leið og hann hefði sagt: „Ég keypti ekki þennan pels handa þér til þess að þú færir í bólið með einhverjum öðmm. Ég vil fá pelsinn aftur." Að sögn Allen reyndi Simpson að rífa pelsinn af Nicole áður en hann sló hana í and- litið. Albert Aguilera, sem bjó í strand- bæ þar sem Simpsonhjónin leigðu sér hús sumarið 1986, bar einnig fyrir rétti í gær að hann hefði séð O.J. berja eiginkonu sína. Hún hefði virst vera að stríða honum og hefði hann þá kýlt hana svo að hún féll. Reuter Karl XVI. Gústav Svíakóngur og Silvía drottning hans heimsóttu klukkuturninn í húsi chileska skáldsins Pablos Neruda í strandbænum Isla Negra í gær. Sænsku konungshjónin eru í fimm daga opinberri heimsókn í Chile um þessar mundir. Símamynd Reuter Serbneskir dómarar til liðs við stjórnarandstæðinga: Saka samdómara sína um undirlægjuhátt gegn forsetanum Bandarísk yfirvöld fordæmdu í gær ákvörðun stjórnar sósíalista í Serbíu að loka einkarekinni út- varpsstöð í Belgrad. Stöðin hafði flutt fréttir af dagleg- um mótmælagöngum í borginni sem allt að 100 þúsund manns hafa tekið þátt í. Fimm hæstaréttardómarar í Serbíu gengu i gær til liðs við stjómarandstöðuna og sökuðu sam- dómara sína um undirlægjuhátt við Milosevic Serbíuforseta. Hæstirétt- ur dæmdi úrslit í nýafstöðnum kosningum, þar sem stjómarand- staðan fór með sigur af hólmi, ógild. í gær gengu um 80 þúsund stúd- entar og stuðningsmenn stjómar- andstöðunnar um götur höfuðborg- arinnar. Hópur bandarískra þing- manna tók þátt í mótmælagöngunni í gær. Yfirvöld hafa látið flytja hundruð lögreglumanna til Belgrad og ann- ama borga þar sem stjómarand- staðan hefur skipulagt mótmæli. Enn hefur lögreglan ekki beitt valdi gegn göngumönnum eins og Milos- evic hótaði að yrði gert. Reuter FERÐADISKOTEKIÐ ROCKY Skemmtir í samkvæmum - jólaböllum - á almennum dansleikjum og komandi ára- móta- og nýársfagnaöi, fjölbreytt danstónlist í boði, ásamt íslenskum jólalögum. Upplýsingar og pantanir í síma 557 9119 & 898 3019 alla daga. ROCKY - STÆRSTA FERÐADISKOTEK LANDSINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.