Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Síða 13
JjV MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996 i^fenning > Hann talar viðstöðu- laust um fsland Sögueyjan í norðri. Heimkynni púka og djöfla og álfa með opnum inngangi til helvítis. Land grjóts og drauma þar sem skil dags og nætur, raunveru og ofskynjana mást út. Landið þar sem sagan er jafii lifandi og núið. Þar sem allt bakkar í hringi og hetjur ríða endalaust um héruð þótt enginn eigi ofan í sig og á. Eitt- hvað á þessa leið eru hugmyndir unga enska aðalsmannsins i Islands- för Guðmundar Andra Thorssonar um ísland. Hann hefúr alist upp við magnþrungnar sögur um landið og íbúa þess og á þangað ættir að rekja til hálfs. Og á örlagastundu í lífi sínu bregður hann á það ráð að heimsækja þetta land til að leita uppruna síns, leita sjálfs sin, leita Guðs. Og við fylgjumst með honum upplifa ísland á seinni hluta síðustu aldar. Sjáum það með augum hans og annarra erlendra ferðalanga sem skrifuðu bækur um þetta sérkennilega land á þeim tíma. BTOSf'ðlííi Sumt er kunnuglegt, staðir, persón- ur, atburðir, annað nýstárlegt og spánskt fyrir sjónum íslendings í dag. Sagan er sögð i fyrstu persónu, safh dagbókarbrota Englendingsins unga, skynhrif, hugsanir, lýsingar, þrár, draumar og ótti. Hann og vin- ur hans Cameron ----------------- eru eins og stokknir út úr hundrað ára gamalli enskri skáld- sögu og minna um margt á unga stein- gervingaskoðarann í Ástkonu franska lautinantsins eftir John Fowles. Lífsleiðir spjátrungar sem dunda við að skrifa dáin ljóð til að fylia upp í tómarúmið í lífí sínu. Á móti þeim er teflt ungum íslenskum hugsjóna- manni, Jóni Hólm, eldhuga með óþrjótandi áhuga á að gera landi sínu gott og kippa því inn í þá stöðnuðu siðmenningu sem þeir félagar eru svo Bókmenntir Friðrika Benónýs þreyttir á. Á milli þeirra skapast togstreita þess fágaða og hins ótamda, lifandi dauða og lifandi lífs. En þessi togstreita endurspeglast ekki í textan- um. Því þótt bókin sé afburða vel skrifuð, stíllinn fágaður og meitlaður og hvert orð vandlega valið og bráðni í munni eins og alenskt After Eight þá vantar í hann ólguna, hið lifandi líf, þessa kraum- andi glóð í miðju alls sem er. Upp- lifanir og andleg þjáning sögumanns snerta mann ekki og myndirnar eru fastar í ramma textans, fallegar og vandlega dregnar en ópersónulegar og staðlaðar eins og lok á konfekt- kassa. Og lesandinn situr eftir með sárt ennið og spyr sig í forundran: Hefur tíminn bakkað í hring enn á ný? Erum við aftur stödd á þeim punkti þar sem umgjörð hlutanna er allt og það sem gárar spegil- fægt yfirborðið útlægt? Guðmundur Andri Thorsson: íslandsförin Mál og menning 1996 Doug Raney á Jómfrúnni Jómfrúin í Lækjargötu býður nú orðið upp á fleira en danskt smur- brauð og bjór. Djassmúsík hefur haldið innreið sína á staðinn og er vonandi komin til að vera. Kaup- mannahafnarbúinn, Ameríkaninn, íslandsvinurinn og gítaristinn Doug Raney lék þar við hvern sinn fingur og með ýmsum íslendingum síðast- liðið föstudagskvöld. Doug erfir stíl- inn að miklu leyti frá Jimmy fóður sínum, hann er hefðbundinn cool- bebop-spilari og fer að verða sjald- gæft að heyra í gítaristum í þessum gæðaflokki sem standa jafntraust- um fótum í hefðinni. Uppistaðan í hljómsveitinni voru Tómas R. Einarsson á kontrabas- sann og Einar Valur Scheving á trommur og fyrsta kastið var það fyrrum dúettfélagi Dougs, Björn Thoroddsen, sem var fjórði maöur. Þeir léku saman í byrjun árs í fyrra og í minningunni áttu þeir þá reyndar betri spretti en í þetta sinn en þeir eru ólíkir gítaristar og að mörgu leyti athyglisvert dúó. En Bjöm stóð tiltölulega stutt við. Þeir félagar höfðu varla lokið við Tenor Madness þegar Vemharður kynnti að árið í ár væri ár saxófónsins hjá Jazzvakningu og í stað Björns komu saxófónleikarar í röðum. Djass Ársæll Másson Fyrstur kom Sigurður Flosason með altsaxófóninn og blés hann tvö lög með tríóinu áður en funmti maður bættist i hópinn, tenóristinn Jóel Pálsson. Þeir léku saman Have You Met Miss Jones og var það besta lag kvöldsins í eyrum undir- ritaðs (en það skipar reyndar sér- stakan sess í hjarta hans), saxist- amir skiptu hausnum á miili sín og blésu frábærlega. Þetta er líka eitt af þeim lögum sem þeir Raneyfeðg- ar hafa leikið saman á plötu og Doug kann betur við sig þegar lagið skiptir fimm sinnum um tóntegund en þegar sami hljómur liggur lengi. Tenóristamir fengu sitt lagið hver og næstur kom Ólafur Jónsson í stað þeirra Sigurðar og Jóels og blés I Hear a Rhapsody, látlaust og smekklega eins og hans var von og vísa. Óskar Guðjónsson var síðast- ur, og Doxy eftir Sonny Rollins fékk villimannslega meðferð í hægu tempói. Tónleikunum lauk síðan með Oleo og röðuðu saxamir sér upp fyrir framan hrynsveitina, allir nema Jóel sem var illa fjarri góðu gamni. Áheyrendur létu ekki sitt eftir liggja og heimtuðu aukalag og engar refjar og lék tríóið þá Alone Together eftir að saxistamir voru allir horfnir af sviðinu. Vigdís Finnbogadóttir, „Ijúflingur ísiands" eins og Jóhann Pétursson kallaði hana, horfir hér með velþóknun á téð- an Jóhann eftir að hann hafði afhent henni fyrsta eintakið af Sperðli séra Snorra á Húsafeili í Listaklúbbi Leikhús- kjallarans á mánudagskvöldið. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta fyrsta íslenska leikrit er prentað sér á bók og þó að- eins i örfáum eintökum.„Griðkvennaflokkur séra Snorra" leiklas síðan verkið sem óhætt er að segja að hafi komið viðstöddum á óvart. Þetta er meinfyndið gamanleikrit þar sem skopast er að uppskafningshætti og heimsku manna sem vilja sýnast meiri og merkilegri en þeir eru. Einkum kemur endirinn á óvart. Þaö sópaði að Guðrúnu S. Gísla- dóttur í hlutverki Sperðils pósts og hinar „griðkurnar" fylgdu henni vel eftir. DV-mynd S Fyndnasta barnabók allra tíma? Besta skólaár allra tíma eftir Barböm Robin- son gerist í litlum bæ í Bandaríkjunum og segir einkum frá þeim hluta bæjarlífsins sem snýr að krökkunum á staðnum. Ógn og skelfing samfé- lagsins em hin illræmdu Herdman systkini. Þau eru sex talsins og er eitt í hverjum bekk bamaskól- ans. Þó að þau standi sig illa í náminu og mæti ekki einu sinni í prófin þora kennaramir ekki að fella þau, þannig að krakkamir í bænum sitja uppi með sama Herdm- an krakkann sem bekkjarfélaga öll skólaárin. Systkinin sex era skemmtileg blanda af Línu langsokk, Bakka- bræðrum og Mafíunni. Þau era ein- staklega uppátektarsöm, ósvífin og stela öllu steini léttara. Þrjú ár í röð var ekki hægt að halda árlega trjá- ræktardaginn hátíðlegan vegna þess að Herdman krakkamir stálu alltaf trjánum sem átti að gróðursetja. Þau hikuðu heldur ekki við að stela sköllóttu ungbami, mála myndir á B A R8 AH A R0BIN50N hausinn á því og selja svo inn á sýningu á „Tattóveraða ung- barninu". Þar að auki er þeim kennt um allt sem fer úrskeiðis í bæjarfélaginu, þó þau hafi ekki einu sinni verið viðstödd. Það er því ekki auðvelt fyrir sögumanninn, Beth Bradley, að leysa verkefnið „Hrós um bekkjarfélagann" því hún þarf að hrósa bekkjarsystur sinni Imogene Herdman, sem hún hefur hingað til forðast, enda er stúlkan stórhættu- leg... eða hvað? Sagan er ofboðslega fyndin og vel skrifuð og verður ef- ______________ láust mjög vinsæl. Það sem gerir bókina hins vegar að góðri barnabók er að gamninu fylgir hæfi- leg alvara. Höfundur- inn laumar inn í frásögnina ýmsu sem skýrir hegðun Herdman krakk- anna. Pabbi þeirra yfirgaf þau og mamma þeirra vinnur tvöfaldan Bókmenntir Margrát Tryggvadóttir vinnudag í skóverksmiðju bæjarins. Svo fá þau ekki aðstoð frá félags- málayfirvöldum þvi fulltrúi þeirra þorir ekki inn á heimilið og lætur sér nægja að keyra fram hjá einu sinni í viku. Lesendur kynnast einnig lífinu hjá betri borgurunum, þar sem nóg er að bíta og brenna og mömmumar geta eytt deginum á snyrtistofú. Lesendum er svo eftir- látið að bera heimilin saman og skilja samhengið, því höfundur fell- ur ekki í þá gryfju að túlka söguna eða predika, eins og algengt er í bamabókum. Þýðing verksins hefur tekist ágætlega og fyndnin er enn á sínum stað. Hins vegar hefði mátt stað- færa söguna eða skíra fólk íslensk- ____________ um nöfnum. Persón- ur eru margar og hætt við að ungir lesendur ragli þeim saman, því erfitt er að lesa og muna er- lend nöfn ef ensku- kunnáttan er ekki fyrir hendi. Barbara Robinson: Besta skólaár allra tíma. Þýðandi: Jón Daníels- son. Skjaldborg, 1996. Starf björgunarsveita Björgvin Richardsson hefur skrifað bókina Upp á líf og dauða. Æfingar og alvara í starfi björgunarsveita. Þetta eru at- hyglisverðar lýsingar á mannraunum og baráttu við óblíð náttúru- öfl í æfinga- og björgunaiferð- tun með Hjálp- arsveit skáta í Kópavogi en Björgvin hefur verið félagi í henni síðan 1978. Hér er til dæm- is lýsing á aðstæðum sem mættu björgunarmönnmn eftir snjóflóð- in hörmulegu í Súðavík og á Flateyri. Skjaldborg gefur út. Hljóðbókakvöld Kjarninn í hljóðbókaútgáfu Hljóðbókaklúbbsins er fyrstu fjórar bækumar í fyrirhugaðri heildarútgáfu íslendingasagna á snældum. Menningarsjóður styrkir útgáfuna en ritstjóri er Örnólfur Thorsson. Þessar fyrstu hljóðbækur eru Bárðar saga Snæfellsáss, Hrafnkels saga og Fljótsdæla saga saman, Kjal- nesinga saga og Jökuls þáttur Búasonar saman og loks Fóst- bræðra saga. í kvöld kl. 20.30 kynnir klúbburinn nýju hljóð- bækurnar sínar á Súfistanum, bókakaffi Máls og menningar. Þar les Ingvar E. Sigurösson úr Gauragangi Ólafs Hauks Símon- arsonar, Ingi- björg Haralds- dóttir les úr Kjal- nesingasögu og Erlingur Gísla- son úr Fóst- bræðra sögu. Meðal annarra hljóðbóka sem kynntar verða era íslandsförin eftir Guðmund Andra Thorsson og Furðulegt ferðalag eftir Aðalstein Ásberg Sigurðs- son. Hljóðbækur verða á sér- stöku kynningarverði í Bókabúð Máls og menningar í kvöld. Bubbi í Kaffileikhúsinu Bubbi Morthens blandar hljómplötunmn sínum saman á tónleikum í Kaffúeikhúsinu í Hlaðvarpanum við Vesturgötu annað kvöld kl. 21. Þar flytur hann bæði lög af plötunni Allar áttir og les ljóð af ljóöadisknum Hvíta hliðin á svörtu. Með hon- um spilar Jakob Magnússon á bassa. Jólin koma Á metsölulista DV í gær uröu þau leiðu mistök að tveim bók- um var skellt saman i 10. sæti. Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum, barnaljóða- bókin sígilda sem fyrst var gefin út 1932 og er nú seld í 16. prentun, bókin sem hetst a kvæðinu Bráðum koma blessuð jólin og segir í öðrum kvæðum frá jólasveinunum, Grýlu og Leppalúða, jólakettin- ti og sjálfu jóla- baminu, rennur þar saman við Jólin koma í Andabæ frá fyr- irtæki Walts : Disneys. Út- koman varð Jólin koma í Andabæ eftir Jóhannes úr Kötlum! Hlutaðeig- endur era beðnir afsök- unar á þess- um raglingi. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.