Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996
73
Sviðsljós
Strandvarðagellan miskunnsamur Samverji inni við beinið:
Pamela aftur komin
heim til hans Tomma
Burt Reynolds
gjaldþrota
Kvikmyndastjömur eru ekki
alltaf forríkar. Burt Reynolds er
gott dæmi þar um en hann hef-
ur nú farið fram á eins konar
greiðslustöðvun á meðan hann
kemur fjármálum sínum aftur á
réttan kjöl. Leikarinn skuldar
hvorki meira né minna en rúm-
ar tiu milljónir dollara. Eignir
hans era metnar á tæpar tíu
milljónir dollara.
Spielberg
eignast dóttur
Leikstjórinn Steven Spielberg
og kona hans, leikkonan Kate
Capshaw, eiga miklu bamaláni
að fagna. Kate ól manni sínum
dóttur um daginn, fimmta barn-
ið sem þau hjónin eiga saman.
Fyrir áttu þau sitt bamið hvort
með fyrri mökum sinum.
Silíkonkrúttið Pamela Anderson
má ekkert aumt sjá. Hvemig er ann-
ars hægt að túlka þá ákvörðun
hennar að snúa aftur heim til
Tomma eiginmanns Lee með skottið
milli lapanna til að styðja hann í
baráttu hans við ofdrykkjufjand-
ann?
„Allar þessar fáránlegu getsagnir
um hjónaband okkar em rangar. Ég
er í meðferð við ofneyslu áfengis og
eiginkona mín styður mig með ráð-
um og dáð,“ sagði í yfirlýsingu sem
Tommi trommari sendi frá sér í gær.
Ekki em margir dagar síðan Pa-
mela fór fram á skilnað frá Tomma
karlinum og bar hún viö þessu
venjulega, ósættanlegum ágrein-
ingi. Hún mun víst ekki hafa verið
allt of hrifin af drykkjulátum eigin-
mannsins né heldur af kvennafari
hans á meðan hún var í leiðangri að
kaupa föt á bamið þeirra. Pamela
gaf fréttamönnum ekki færi á sér í
gær og því er ekki vitað hvort hún
hefur dregið skilnaðarbeiðni sina til
baka.
Talskona þeirra hjóna var fremur
fámál við fréttamenn en hún fékkst
þó til að staðfesta að Pamela strand-
Ofurfyrirsætan Claudia Schiffer áritar hér auglýsingu fyrir nýja dagataliö sittá Fashion Cafe í New York. Ágóöanum
af sölu dagatalsins veröur varið til aö styrkja sjóö fyrir barnalækningar. Símamynd Reuter
vörður og litli sonurinn Jason
Thomas væm nú aftur komin heim
í kotið eftir tveggja vikna dvöl á bú-
garði vinafólks.
Pamela og Tommi gengu í það
heilaga á baðströnd í Mexíkó í febr-
úar árið 1995. Þau höfðu þá aðeins
verið saman i fjóra daga. Ástarbálið
var því aðeins pínulítið að kulna en
að blossa upp.
Gwyneth
með mömmu
og pabba
í París
Gwyneth Paltrow, unnusta
Brads Pitts, var á dögunum með
móður sinni, sviðsleikkonunni
Blythe Danner, og foður sinum,
sjónvarpsframleiðandanum
Bruce Paltrow, í París. Þeir sem^
sáu mæðgurnar saman þóttust
sjá hvaðan stúlkan hefði fegurð-
ina. Hún hefur nú nýlokið leik í
myndinni Great Expectations og
gat þess vegna leyft sér að taka
frí. Vegna mikilla anna við kvik-
myndaleik gat Brad Pitt ekki
komið með til Parísar.
I
I
iólagetraunin 1996
l.hluti
Hvað er í
pakkanum?
þurfa síðan að hafa borist okkur
eigi síðar en fostudaginn 20. desem-
ber.
Það sem þið eigið að gera, lesendur
góðir, er að segja okkur hvað er í
stóra pakkanum. Val ykkar
stendur á milli þriggja
hluta; bangsa, trommu
eða dúkku. Þeg-
ar þið
Þá er það fyrsti hluti jólagetraunar
DV sem birtast mun tíu sinnum
alls. Síðasta birting verður í laugar-
dagsblaði 14. desember og þá fyrst á
að setja alla svarseðlana sem
klipptir hafa verið út úr
blaðinu í umslag og
senda til DV, merkt
DV - jólagetraun,
Þverholti 11, 105
Reykjavík. Svar-
seðlamir
hafið áttað ykkur á því hver af þess-
um þremur hlutum gæti verið í
pakkanum skrifið þið það á seðilinn
sem fylgir hér með. KLippið seðilinn
síðan út og setjið í umslag.
Athugið að geyma alla seðlana
þar til síðasta myndin hefur ver-
ið birt.
Rétt er að hvetja alla til þess að taka
þátt í þessum skemmtilega leik því
til mikils er að vinna. Á myndinni
sjáið þið 1. verðlaunin en 2. verð-
laun em Sony hljómtækjasamstæða
frá Japis, að verðmæti 69.900 kr., og
3.-4. verðlaun em Panasonic ferða-
útvarp með geislaspilara frá Japis,
að andvirði 19.900 kr. Japis gefur
síðan 20 geisladiska með KK og
Magnúsi Eiríkssyni í 5.-24. verð-
laun. Heildarverð-
mæti vinn-
inga er
305.500
krónur. -sv
1. verðlaun í jólagetrauninni eru Thomson sjónvarp. Sjónvarpið er 29", aö
verömæti 99.900 kr. Þaö eru Bónus Radíó og Radíóbúöin sem gefa þessi há-
gæöatæki.
i---------------------------------------------------
Hvað er í pakkanum?
: □ Bangsi □ Tromma □ Dúkka
Nafn:
Heimilisfang:,
Staður:____________________________ Sími:_________
Sendist til: DV, Þverholti 11,105 ReyKjavík, merkt:
DV - jólagetraun
t-