Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Síða 22
74
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996
Afmæli______________________
Kristín Þorkelsdóttir
Kristín Þorkelsdóttir, myndlist-
armaður og grafiskur hönnuður,
Lindarhvammi 13, Kópavogi, er
sextug í dag.
Starfsferill
Kristín fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í austurbænum. Hún
lauk landsprófi 1952 og stundaði
nám á sviði frjálsar myndlistar og
myndlistarkennslu í Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1952-55.
Kristín vann hjá Sveini Kjarval
húsgagnaarkitekt 1954-56, hóf
sjálfsnám í grafiskri hönnun 1956
og stundaði síðan margbreytileg
hönnunarverkefni á heimili sinu
þar til hún stofnaði AUK hf., Aug-
lýsingastofu Kristínar, ásamt
manni sínum, Herði Daníelssyni,
1967. Hún veitti hönnunardeild stof-
unnar forstöðu til 1992 en þau hjón-
in seldu sinn hlut í Auk 1994.
Stofan hlaut fjölmargar viður-
kenningar og verðlaun en íslensku
peningaseðlamir eru eitt þekktasta
verk Kristínar frá þessum tíma.
Árið 1993 stofnaði Kristín útgáfu-
og hönnunarfyrirtækið Nýjar vídd-
ir, ásamt Daða syni sínum og fleiri.
Kristín var formaður Listiðnar
.1976-77, einn stofnanda SÍA 1978,
sat í stjóm sambandsins 1982-87 og
þar af formaður 1983-84, tók virkan
þátt í starfsemi FÍT, Félags ís-
lenskra teiknara,
1960-75, sat i stjórn þess
um árabil og var kjörin
heiðursfélagi þess 1982.
Kristín hóf vatnslita-
málim 1984 og hefur síð-
an haldið sex einkasýn-
ingar: Stillur í Lang-
brók, 1985; Víddir, 1986,
og Hrif, 1987, í Gallerí
Borg; Birtu í Nýhöfn,
1989; Verund, í Hafn-
arborg, 1992, og Fjalla-
dans í Listasafni Kópa-
vogs, 1994. Eru myndir
hennar m.a. til sýnis á vinnustofu
hennar, Lindarhvammi 13, og hjá
Nýjum víddum, Snorrabraut 54.
Kristín hlaut 1. verðlaun í sam-
keppni um merki Iðnsýningar 1966,
Náttúmverndarráðs 1967, og ellefu
hundrað ára afmælis íslandsbyggð-
ar 1974. Hún var tilnefnd til Menn-
ingarverðlauna DV fyrir listhönn-
un dagatalsins Af ljósakri 1994.
Fjölskylda
Kristín giftist 18.5. 1956 Herði
Daníelssyni, f. 3.9.1934, myndatöku-
manni og grafískum hönnuði. Hann
er sonur Daníels A. Daníelssonar,
héraðslæknis á Dalvík, og Sigríðar
Jónsdóttur frá Kirkjubæ í Skutuls-
firði, verkakonu í Reykjavík.
Böm Kristínar og Harðar
eru Heiðar Rafn, f. 19.7.
1956, tölvunarfræðingur
hjá Hugbúnaði, búsettur
á Seltjamamesi, kvæntur
Guðrúnu Elísabetu Gunn-
arsdóttur, matvælafræð-
ingi hjá Hollustuvemd,
og eru synir þeirra Gunn-
ar Rafn, f. 10.6. 1981,
Hörður Kristinn, f. 11.8.
1984, og Helgi Rúnar, f.
16.1. 1989; Daði, f. 6.4.
1958, leirlistamaður og
framkvæmdastjóri Nýrra
vídda, kvæntur Þórdísi Kristleifs-
dóttur, fatahönnuði og íslensku-
fræðingi, en sonur þeirra er Krist-
leifur, f. 7.12. 1979; Þorkell Sigurð-
ur, f. 23.7. 1969, kvikmyndagerðar-
maður í Reykjavík, en sambýlis-
kona hans er Ragna Fróðadóttir
fatahönnuður.
Systkini Kristinar eru Ingibjörg,
f. 15.3. 1926, fulltrúi hjá VÍS í Kópa-
vogi; Salome, f. 3.7. 1927, fyrrv. al-
þingisforseti, búsett í Mosfellsbæ;
Sigurður, f. 23.2. 1932, viðskipta-
fræðingur og rikisféhirðir, búsettur
í Reykjavík.
Foreldrar Kristínar: Þorkell Sig-
urðsson, f. 18.2.1898, d. 1.3.1969, vél-
stjóri á nýsköpunartogurum og
kunnur baráttumaður fyrir út-
færslu íslensku landhelginnar, og
k.h., Anna Þorbjörg Sigurðardóttir,
f. 18.9. 1900, húsmóðir í Reykjavík.
Ætt
Þorkell var bróðir Árna frí-
kirkjuprests, sonar Sigurðar, rithöf-
undar og formanns í Þorlákshöfn,
Þorsteinssonar. Móðir Þorkels var
Ingibjörg, systir Sigríðar, móður
Vilhjálms Ámasonar útgerðar-
manns, föður Árna hagfræðipró-
fessors. Ingibjörg var dóttir Þor-
kels, b. í Óseyramesi, Þorkelsson-
ar, af Bergsætt, hálfbróður Ólafar,
móður Sigurgeirs biskups, föður
Péturs biskups.
Anna er dóttir Sigurðar, vita-
varðar á Reykjanesi, bróður Stef-
áns, afa Stefáns, fyrrv. bæjarstjóra
og alþm. í Hafnarfirði, föður þing-
mannanna Guðmundar Áma og
Gunnlaugs. Sigurður var sonur Sig-
urðar, hákarlaskipstjóra í Saurbæ í
Vatndsdal, Gunnarssonar og Þor-
bjargar Jóelsdóttur. Móðir Þor-
bjargar var Þórdís Sigmundsdóttir,
systir Óskar, ömmu Guðmundar
Björnssonar landlæknis og
langömmu Sigurðar Nordals. Móðir
Önnu var Kristín Jóhannesdóttir,
frá Miðhvammi í Aðaldal.
Kristín er að heiman.
Kristín Þorkelsdóttir.
Páll Bergmann Magnússon
Páll Valdimar Bergmann Magn-
ússon, bóndi að Vindhæli í Vind-
hælishreppi í Austur-Húnavatns-
'iýslu, er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Páll fæddist á Bergsstöðum í
Hallárdal og ólst upp hjá foreldrum
sínum sem lengst af bjuggu á Bergs-
stöðum, að Þverá og á Sæunnarstöð-
um í Hallárdal á Skagaströnd.
Páll hóf búskap með foreldrum
sínum og bræðrum á Sæunnarstöð-
um í Hallárdal og bjuggu þau þar til
1944 er þau fluttu að Vindhæli á
Skagaströnd þar sem Páll hefur
búið síðan í félagi við bræður sína,
Guðmann og Guðmund.
Fjölskylda
Systkini Páls eru Steingrímur
Bergmann, f. 15.6. 1908, d. 13.3. 1975,
bóndi á Eyvindarstöðum; María Ka-
rólína, f. 22.11. 1909, áður ljósmóðir
á Sauðárkróki, nú búsett í Hafnar-
firði; Sigurður Berg-
mann, f. 4.12. 1910, fyrrv.
verkstjóri hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga á Sauðár-
króki; Guðmann Einar
Bergmann, f. 9.12. 1913,
bóndi á Vindhæli; Guð-
mundur Bergmann, f.
24.7. 1919, bóndi á Vind-
hæli.
Foreldrar Páls voru
Magnús Steingrímsson, f.
3.4. 1881, frá Njálsstöðum
á Skagaströnd, bóndi, og
k.h., Guðrún Einarsdótt-
ir, f. 8.8. 1879, frá Hafursstaðakoti í
Vindhælishreppi, húsfreyja.
Ætt
Systkini Magnúsar vora Páll, rit-
stjóri Vísis; Páll, b. á Njálsstöðum á
Skagaströnd, og Friðrika, húsfreyja
á Kagaðarhóli á Ásum.
Magnús var sonur Steingríms, b. á
Njálsstöðum á Skagaströnd, bróður
Þorgríms, afa þeirra systkina, Önnu
Sigurðardóttur, forstöðu-
manns Kvennasögusafns-
ins, Þorgríms, prófasts á
Staðarstað; Ásbergs borg-
arfógeta, og Valborgar,
fyrrv. skólastjóra Fóstra-
skólans, móður Sigríðar
Snævarr sendiherra.
Steingrímur var sonur
Jónatans, b. á Marðar-
núpi i Vatnsdal, Davíðs-
sonar, b. í Hvarfi í Víði-
dal, Davíðssonar, hrepp-
stjóra á Spákonufelli, Guð-
mundssonar. Móðir Jón-
atans var Ragnheiður Friðriksdóttir,
prests á Breiðabólstað í Vesturhópi,
Þórarinssonar, sýslumanns á Grund
í Eyjafirði, Jónssonar, ættföður
Thorarensenættarinnar. Móðir
Ragnheiðar var Hólmfríður Jóns-
dóttir, varalögmanns í Viðidals-
tungu, Ólafssonar, lögsagnara á
Eyri, Jónssonar, ættföður Eyrarætt-
arinnar.
Móðir Magnúsar var Anna Guð-
rún Friðriksdóttir Schram, dóttir
Carls Friðriks Schram, b. á Kornsá
í Vatnsdal, Christianssonar
Schram, verslunarstjóra Höfða-
kaupstaðar og ættföður Schram-ætt-
arinnar. Móðir Önnu var Margrét
Stefánsdóttir frá Hofi í Vatnsdal,
amma Áma Pálssonar prófessors.
Systkini Guðrúnar Einarsdóttur
vora Gísli, sjómaður á Skagaströnd,
og Sigþrúður, húsmóðir á Skaga-
strönd.
Guðrún var dóttir Einars Gísla-
sonar, afkomanda Jóns harða, b. í
Mörk á Laxárdal fremri og ættföður
Harðabónda-ættarinnar, frá Köldu-
kinn í Ásum, Jónssonar, b. á Höllu-
stöðum í Blöndudal, Halldórssonar
frá Fossum í Svartárdal.
Móðir Guðrúnar var María Guð-
mundsdóttir, systir Guðmundar á
Torfalæk, föður Páls Kolka læknis
og Elínborgar á Kringlu í Torfalækj-
arhreppi, móður Guðrúnar Teits-
dóttur, ljósmóður á Skagaströnd,
Jónssonar, b. í Nípukoti. Móðir
Mariu var Guðrún Guðmundsdóttir,
smiðs á Síðu í Víðidal, og k.h., Guð-
Páll Bergmann
Magnússon.
Jóhannes Valdimarsson
Jóhannes Vcddemarsson, nemi
við Árósarháskóla, Gudrunsvej 6; 1
mf. í Brabrandhverfinu i útjaðri Ár-
ósa, varð fertugur í gær.
Starfsferill
Jóhannes fæddist á Akurhóli á
Grenivík en flutti með fjöldskyldu
sinni í Kópavoginn 1965. Hann
stundaði nám við Kársnesskóla og
Þinghólsskóla, lauk stúdentsprófi
frá Samvinnuskólanum á Bifröst
1984, stundaði nám í rekstrarfræði
og stighœkkandi
birtingarafsláttur
við Samvinnuháskólann á Bifröst
frá 1991 og lauk rekstrarfræðiprófi
þaðan vorið 1993. Þá flutti hann til
Danmerkur og hóf nám í heimspeki-
deild Árósarháskóla. Hann vinnur
nú að lokaverkefni til cand. mag.
gráðu í Informationsvidenskab og
Business Administration frá Há-
skólanum í Árósum.
í verkefninu rannsakar hann
hvernig tölvan sem fjölmiðill nýtist
fyrirtækjum, m.a. til að tryggja sam-
keppnisstöðu þeirra og hvaða kröf-
ur tölvan sem fjölmiðill gerir til höf-
Smáauglýsingar
1 gsg
550 5000
unda og/eða hönnuða
upplýsingakerfa.
Jóhannes hefur sam-
hliða námi unnið ýmis
störf og verið virkur í
félagslífi. Hann öðlaðist
atvinnuleyfi til aksturs
leigubifreiða 1985,
stofnaði og rak Auglýs-
ingastofuna Höfða ári
síðar og gerðist kaup-
maður í Áskjöri um
nokkurra ára skeið.
Hann starfar nú sam-
hliða námi sem for-
stöðumaður
„Formidleren", tölvuverkstæðis
sem annast námskeiðahald og
kennslu í tölvufræðum í úthverfi
Árósa. Á skólaárum sínum í Sam-
vinnskólanum var hann gjaldkeri
ferðasjóðs nemenda 1981-82 og for-
maður mötuneytis Samvinnuhá-
skólans 1992-93. Einnig starfaði
hann á árum áður í ungliðahreyf-
ingu Framsóknarflokksins. í Árós-
um var hann í ritnefnd blaðs íslend-
ingafélagsins, Gorgeirs, 1994-95, for-
maður Sparkfjelagsins Heklu sem
leikur í dönsku deildar-
keppninni 1995-96, og í hús-
nefnd félagsins 1996.
Fjölskylda
Börn Jóhannesar eru Sig-
rún, f. 1978; Rebekka, f. 1984;
Matthías Már, f. 1989 (með
Matthildi Sonju Matthías-
dóttur); óskírð, f. 1996, (með
Lindu Björk Birgisdóttur).
Systkini Jóhannesar eru
Sigrún, búsett á Grenivík;
Ragna, búsett í Reykjavík;
Kristinn; búsettur í Kópa-
vogi; Óskar, búsettur í Kópavogi;
Sigriður, búsett í Þorlákshöfn;
Valdemar Héðinn, búsettur í Vogum;
Auður Elísabet, búsett í Englandi.
Foreldrar Jóhannesar: Valdemar
Kristinsson (d. 30. sept 1984) og Guð-
björg Óskarsdóttir sem nú býr í
Kópavogi.
Jóhannes tekur á móti gestum á
afmælisdaginn á heimili sínu, Gudr-
unsvej 6; 1 mf. í Brabrandhverfinu í
útjaðri Árósa.
~2P.
staögreiöslu-
og greiðslukortaafsláttur
oW millf h
Jóhannes
Valdemarsson.
Tll hamingju
með afmælið
4. desember
90 ára
Ólafur Halldórsson,
Háalundi 4, Akureyri.
85 ára
Martha Kristjánsdóttir,
Brúnastekk 2, Reykjavík.
80 ára
Einar H. Jónsson,
Miðbraut 5, Vopnafirði.
75 ára
Jón Andrésson,
Skúlaskeiði 22, Hafnarfirði.
70 ára
Valgerður Ólafsdóttir,
Eyjabakka 14, Reykjavík.
Erla Sigurðardóttir,
Kirkjuvegi 5, Ólafsfirði.
Gísllaug Bergmann,
Yrsufelli 9, Reykjavik.
60 ára
Sveinn Sveinsson,
Hólavegi 77, Siglufirði.
Gunnar Kristjánsson,
Fáskrúðarbakka, Eyja- og
Miklaholtshreppi.
Hann er að heiman.
Sigurvin Kristjánsson,
Fáskrúðarbakka, Eyja- og
Miklaholtshreppi.
Hann er að heiman.
Guðlaug Guðlaugsdóttir,
Reyrengi 4, Reykjavík.
Inga Guðmundsdóttir,
Hlíðarhjalla 62, Kópavogi.
50 ára
Þórey Valgeirsdóttir,
Laufvangi 12, Hafnarfirði.
Guðjón Sveinsson,
Furuhlíð 5, Hafnarfirði.
Ólafur Sveinsson,
Furuhlíð 5, Hafnarfirði.
Sigríður Mikaelsdóttir,
Flókalundi við Laugarvatn,
Laugarvatnshreppi.
ívar Sigurjónsson,
Bakkahlíð 3, Akureyri.
Jens G. Guðmundsson,
Jöldugróf 11, Reykjavík.
40 ára
Margrét
Guðmunds-
dóttir
húsmóðir,
Skipholti 16,
Reykjavík.
Sandra
Anne
Eaton,
Vikurbakka
36, Reykjavík.
Árelía Þórdis Andrésdóttir,
Lindarbergi 40, Hafnarfirði.
Signin Lilja Smáradóttir,
Lambhaga 42, Selfossi.
Ólafía Jóna Ólafsdóttir,
Stigahlíð 56, Reykjavík,
Óskar Kjartan
Guðmundsson,
Logafold 119, Reykjavík.