Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1996, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1996, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 HLJÓMPLjÍTU MliIMJi fi Ríkisraddirnar" The Beatles — Anthology III Lokakaflinn *** Anthology III tekur á ferli The Beatles frá 1968 til 1970, tímanum þegar Hvíta albúmið, Abbey Road og Let It Be urðu tiL Þama er sem fyrr boðið upp á hinar hlið- ar laganna sem fjórmenn- ingamir unnu að auk ein- staka mola sem hefur ekki komið út fyrr. Útgáfan geymir tvo hljómdiska. Sá fyrri er aðal- lega helgaður Hvíta albúm- inu. Þar er að finna bráð- athyglisverðar útgáfúr laga eins og While My Guitar Gently Weeps sem tók miklum breytingum frá þvi að höfundurinn raulaði það fyrst inn á band þar til endanlegri útgáfu var náð. Talsvert af tónlist fýrri disksins hefur áður komið út í óþökk höfundanna en öllu minna af efhi þess seinni. Þar er einnig að finna margan ópusinn sem yljar Bítlaaðdáendum um hjartarætumar. Til dæmis má nefna óborgan- lega útgáfú Come Together. Á diskimum tveimur er sáralítið sem unnt væri að flokka undir óútgáfuhæft rasl - i mesta lagi hlustunarvæna afganga. Anthology DI er sennilega áheyrUegust platnanna þriggja í seríunni og nær því ljómandi vel að sýna hina hliðina á tónlist þeirri sem fiórmenning- amir í The Beatles vora að fást við síðustu misserin áður en leiðir skildu. Ásgeir Tómasson Type 0 Negative - October Rust lllska í fallegum umbúðum *★* Þetta er alveg ótrúleg plata. Þessi hljómsveit á ræt- ur djúpt (ég meina djúpt!) í rokkinu og ákveður að færa tónlistina í áheyrilegri bún- ing. Útkoman verður róleg tónlist en drangaleg, falleg en ógnvekjandi. Einhvern veginn kemur Duran Duran upp í hugann! Ég skal út- skýra það nánar ... ímyndið ykkur að Duran Duran hægði á lögum sínum og tæki upp á því að syngja þau tveimur áttundum neðar en venjulega. Einmitt! Það er útkoman! Það er gaman að heyra hvemig Type 0 Negative notar skemmtilega strengjahljóðfæri og píanó við flutninginn á þessum drungalegu lög- um. Það fýllir þau undarlegri, tregafúllri fegurð. Ofan á aUt koma síðan laglínur, oft á tíðum svo poppaðar að áðumefndir sykur-popp- arar koma upp í hugann. Hljómurinn á plötunni er sérstaklega yfir- þyrmandi; hún er hljóðblönduð mjög lágt þannig að græjumar verða að skrúfast upp til að heyra tónlistina sæmilega. Hljóðið er allt tek- ið upp og blandað stafrænt þannig að hljómurinn verður nokkuð harður. Margir hafa kvartað undan ónáttúrulegum gitarhljómi þeg- ar þessi tækni er notuð, en Type 0 Negative bregst við þessu með því að hafa hann eins ónáttúrulegan og hægt er; tekur gítarinn upp beint inn í hljóðborðið án hljóðnema þannig að úr verður hart-bjagað- plasthljóð sem hentar tónlistinni ótrúlega vel. Það sem háir þessari plötu er að Type 0 Negative taka sig einum of alvarlega. Lögin em of löng og ómarkviss. Miðað við uppbyggingu á flestum lögum þeirra þá bæta þeir ekki miklu við eftir 4 mínútur, þannig að lögin á plötunni em oft að endurtaka sig í 2-4 mínútur áður en þau hætta. Engu að síður ætti þessi plata að vera kærkomin í safn allra áhugamanna um vandaða tónlist og ég get ekki látið hjá líða að minnast á plötualbúmið sem er sérstaklega faUegt og vel unnið. Magnús Þór Ásgeirsson Bjarni Arason - Milli mín og þín Bravó, ogþó! ★★* öfanvj/. raáou Eitt lag á plötunni MiUi mín og þín ber af öðrum eins og guU af eiri. Leiðin- legt að upptökuhljómur þess skuli vera vemi en allra hinna og að það sé aukalag á plötunni. En gamla Evróvisjónlagið Karen er einfaldlega eitt- hvað það besta sem Bjami Arason hefur sungið á ferli sínum og hefði sómt sér vel í keppninni mndeUdu sem það var samið fyrir. Platan MiUi mín og þín er um margt vel heppnuð. Músikantar og gestasöngvarar standa sig vel, enda lið í fremstu röð íslenskra tónlistarmanna og þótt víðar væri leitað. Sjálfur syngur Bjami eins og herforingi og kann nú orðið að beita blæbrigöum raddar- innar betur en nokkm sinni fyrr. Hið eina sem hægt er að kvarta yfir er lagavalið. Lögin eru einfaldlega óspennandi júrópopp upp tU hópa. Hinir hráu, vesturheimsku blátónar sem Bjami sótti áhrif sín í á árvun áður (aðaUega Presleylög) virðast nú að mestu gleymdir. Helst að brúnin lyftist þegar lagiö Tómarúm eftir Frið- rik Karlsson fer í gang. Textar plötunnar em upp og niður. Ásgeir Tómasson syngja kántrírokk Ríkisraddimar þrjár, sem svo em kaUaðar, Ema Þórarinsdóttir, Eva Ásrún Albertsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir, vom búnar að bræða með sér nokkuð lengi að gera saman plötu þegar skyndUega var ákveðið að slá tU snemma í haust. Rúmum mánuði síðar var aUt klappað og klárt, tríóið, sem nú hafði fengið nafniö Snörumar, var lingsson, Hafliði Guðmundsson, Valgeir Skagfjörð, Birgir Svan Sím- onarson og Eva Ásrún. Snömmar þrjár hafa enn sem komið er lítið haft sig í frammi við aö kynna nýju plötuna en þar verð- ur breyting á í desember. „Við fórum reyndar í Kringluna á laugardag og árituðum framan við Hagkaup," segir Eva Ásrún. helgar fram að jólum og flytjum þar ein fimm lög af plötunni." Þær Ema, Eva Ásrún og Guðrún hafa sungið saman lengi. Samstarf Emu og Evu teygir sig reyndar meira en tuttugu ár aftur í tímann og aUar þrjár hafa þær unnið sam- an síðastliðin sex ár eða síðan þær réðu sig í ríkisþjónustu við að syngja í Söngvakeppni evrópskra Ríkisraddirnar þrjár, öðru nafni Snörurnar. Það hafði legiö lengi í loftinu aö þær hljóðrituöu saman plötu þegar þær réðust í verkiö i haust. DV-mynd RASi búið að snara af tíu hressum lögum með hjálp góðra manna og fáeinum dögum síðar var platan Snömmar komin í verslanir. „Þetta gekk aUt ótrúlega hratt fýrir sig,“ segir Eva Ásrún. „Við vorum eldsnöggar að velja fjöldann aUan af íslenskum og erlendum lög- um sem okkur langaði að hafa með. Síðan varð að skrifa út tfi aö fá leyfi tU að nota erlendu lögin. Leyfi fékkst ekki fyrir tveimur, tvö tU viðbótar heltust úr lestinni og á endanum fuUunnum við tíu lög. Það hefði náttúrlega ekki verið hægt að vinna svona hratt nema með því að fá þaulvana fagmenn með okkur í hljóðverið." Fagmennimir eru Jóhann Ás- mundsson og Gunnlaugur Briem úr Mezzoforte, Guðmundur Pétursson gítarleikari, Dan Cassidy fiðluleik- ari, Pálmi Gunnarsson gestasöngv- ari og Óskar Einarsson, sem leikur á píanó og önnur hljómborð, radd- ar, útsetur, stýrir upptökum og hljóðblandar með Ara Dan upp- tökumanni. „Hver er Óskar? Það er góð spuming," segir Eva Ásrún þegar beðið er mn deUi á upptökustjóran- um. „Hann er Akureyringur og stýrir frambærUegasta gospelkór landsins. Hann hefur verið aö hasla sér vöU að undanfomu, vann tU dæmis plötu með Miriam Óskars- dóttur fyrir síðustu jól, vann tón- listina fýrir áramótaskaup Sjón- varpsins í fýrra og verður aftur með hana núna." Annríki framundan Platan Snörumar hefur aðaUega að geyma kántrítónlist. Sum lögin em þekkt, önnur hafa lítt heyrst áður. Gamli smeUurinn Kveiktu ljós, sem Blandaður kór frá Siglu- firði söng á sjöunda áratugnum, er þama og er nú orðinn líkari upp- runalegu útgáfúnni frá The Seekers en áður. Eitt er innlent, Lifið er svo stutt eftir Magnús Eiríksson, sem var samið sérstaklega fýrir plötuna. Magnús á einn annan texta og aðr- ir textahöfundar em Friðrik Er- „Við það tækifæri komu fram dans- arar frá danssmiðju Hermanns Ragnars og starfsfólkið í Hagkaupi kom líka og dansaði með. Við ætl- um að vera þar á morgun líka. Síð- an tökum við þátt í nokkrum skemmtunum á Hótel íslandi um sjónvarpsstöðva. Þar af leiðandi tók ekki langan tíma að finna sam- hljóminn eina sanna þegar þær af- réðu að snara af plötu á eilítið lengri tíma en það tekur suma aðra að finna almennfiegan bassat- rommuhljóm í stúdióinu. -ÁT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.