Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Side 1
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 1996
25
Getraunir:
Enski
boltinn
2x2 x22 xx11x22
Lottó 5/38:
21318 27 33 (17)
Jurgen Klinsmann fagnaö eftir að
hann hafbi skorað 100. mark sitt í
þýsku úrvalsdeildinni.
Símamynd Reuter
Enska úrvalsdeildarliðið
Newcastle United er á höttunum
eftir Skagamanninum Bjama Guð-
jónssyni. Enska liðið er sagt reiðu-
búið að greiða um 115 milljónir ís-
lenskra króna fyrir Bjama sem er
aöeins 17 ára að aldri. Það var
enska blaðið Daiiy Telegraph sem
greindi frá þessu i fóstudagsútgáfu
sinni. Þessi frétt fékk síðan byr und-
ir báða vængi í gær þegar sagt var
frá því á heimasíðu Newcastle að
viðræður væru hafnar á milli fé-
lagsins og ÍA. Á heimasíðunni sagði
enn fremur að innan tíðar gæti Les
Ferdinand átt von á því að íslend-
ingurinn ungi léki við hlið hans í
fremstu víglínu Newcastle.
Kevin Keegan, framkvæmdastjóri
Newcastle, bauð Bjama út til æf-
inga í viku tíma. Keegan hreifst af
Bjama og vill fá hann aftur til fé-
lagsins, samkvæmt heimildum DV.
Þegar dvölinni hjá Newcastle
lauk fór Bjarni til svissneska liösins
Grasshoppers og þar er sömu sögu
að segja. Svissneska liðið hefur mik-
inn áhuga á Bjama. Eftir um sólar-
hrings viðdvöl á íslandi hélt Bjami
svo í gærmorgun áleiðis til Liver-
pool en enska félagið bauð honum
út til æfinga í viku tíma.
Samkvæmt heimildum DV em
fíeiri erlend félög full áhuga á
Bjama sem skoraði 12 mörk fyrir
Skagamenn í 1. deild á síðasta
sumri.
„Það hafa átt sér stað óformlegar
viðræður en málið er á algjöru
frumstigi. Það liggja engin samn-
ingsdrög á borðinu en Newcastle
hefúr engu að síður sýnt áhuga á að
fá Bjama í sínar raðir. Næsta skref
I máíinu verður ekki tekið fyrr en
Bjami kemur heim frá Liverpool,
sagði Áki Gunnarsson i varastjóm
ÍA í samtali við DV.
-JKS
Frjálsar íþróttir:
Þríðja skipti
hjá Johnson
Michael Johnson og Gail
Devers unnu um helgina
til Jesse Owens verðlaun-
anna í frjálsum íþróttum.
Verðlaun þessi hafa
verið veitt í 15 ár og þykja
mikill heiður. Þetta var í
þriðja sinn sem Johnson
fær verðlaunin og hefur
enginn náð þeim áfanga
áður.
Johnson átti frábært tíma-
bil. Hann vann 200 og 400 m
hlaup á Ólympíuleikunum, setti
heimsmet í 200 m hlaupinu og
hefur nú unnið 57 400 m hlaup í
röð. Johnson fékk 2084 atkvæði
en tugþrautarmaöurinn Dan
O’Brien varð annar með 1.450 at-
kvæði.
Gail Devers, sem vann Jesse
Owens verðlaunin einnig 1993,
vann gullverðlaunin í 100 m
hlaupi á Ólympíuleikunum og
einnig í 4x100 m boðhlaupi
kvenna. Devers hlaut 1994 at-
kvæði en Gwen Torrence sem
varð önnur var með 1293 at-
kvæði.
-SK
Fann ekki dóm■
ara og vann sér
inn 55 milljónir
Goran Ivanesevic frá Króatíu
ætlaði að hætta keppni á mesta
peningamóti tennisleikara ár
hvert sem lauk í Múnchen í gær.
Ivanesevic var veikur en þeg-
ar hann ætlaði að tilkynna brott-
hvarf sitt úr mótinu fann hann
ekki dómarann og hélt því áfram
keppni. Hann lék í gær til úrslita
á mótinu gegn Boris Becker og
vann sér inn 55 milljónir króna.
Það getur hann þakkað að hafa
ekki fundið dómarann fyrr í vik-
unni. -SK
Sjá nánar bls. 30
100. markið en
hótaraðfara
Júrgen Klinsmann náði þeim
merka áfanga um helgina að
skora 100. mark sitt í þýsku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu.
100. markið var sigurmark
Bayem Munchen gegn Borussia
Mönchengladbach. Klinsmann
er ekki ánægður hjá Bayem og
hótaði um helgina að fara frá fé-
laginu ef liðiö hætti ekki að
leika stífan varnarleik. -SK
Sjá allt um knattspym-
una í Evrópu á bls. 31.
;V<’5
Keegan og IA
' samningum
- Newcastle tilbúiö að greiða 115 milljónir króna fyrir Bjarna Guðjóns-
son. Liverpool hefur einnig áhuga og Bjarni æfir nú með félaginu
Enski boltinn:
Klúður hjá
Man. Utd
Leikmenn Manchester
United glutmðu niður unnum
leik gegn West Ham í ensku
úrvalsdeildinni í gær á
heimavelli West Ham.
Solskjær og Beckham komu
United i 0-2 en West Ham jafn-
aði með tveimur mörkum á
jafnmörgum mínútum undir
lok leiksins.
Enski boltinn á bls. 27
IÞR
I