Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1996, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
Útlönd
Ríkisarfinn í Bagdad með skotsár eftir ökuferð um glæsihverfin:
Banatilræði við elsta
son Saddams í írak
Uday, elsta syni Saddams
Husseins íraksforseta, var sýnt
banatilræði í gærkvöldi. Skotið var
á Uday og hann særður þar sem
hann ók um götur Bagdad, að sögn
íraska sjónvarpsins.
„Opinber talsmaður forsetaskrif-
stofunnar skýrði frá því að Uday
Saddam Hussein, forseti írösku
ólympíunefndarinnar, hefði særst í
heigulslegri árás,“ sagði í frétt
sjónvarpsins.
Talsmaðurinn sagði að Uday
hefði verið að aka í einkabíl sínum
í glæsihverfinu al-Mansour þegar
árásin var gerð. Hann sagði að for-
setasonurinn hefði ekki hlotið al-
varleg sár og því væri ekki ástæða
til að hafa áhyggjur af líðan hans.
Uday var lagður inn á Ibn Sina
sjúkrahúsið í Bagdad.
Talsmaðurinn sagði í viðtali við
sjónvarpið að rannsókn væri hafin
á „þessum viðurstyggilega glæp“,
eins og hann orðaði það.
Þetta er fyrsta tilræðið við hinn
32 ára gamla Uday sem vitað er
um. Hann rekur áhrifamesta dag-
blað íraks, Babel, og hann á einnig
vinsæla sjónvarpsstöð. Hann er
ákaflega valdamikill og af mörgum
talinn líklegur eftirmaður foður
síns á forsetastóli.
Ekki er vitað hverjir stóðu að til-
ræðinu við Uday en víst þykir að
hann eigi sér marga óvini. Hann er
Uday Saddam Hussein.
Sfmamynd Reuter
harður í hom að taka og m.a. er
talið að hann hafl staðið fyrir
morðunum á tveimur mágum sín-
um sem flúðu til Jórdaníu í fýrra
með eiginkonum sínum, dætrum
Saddams Husseins, og skylduliði
en sneru aftur heim eftir nokkurra
mánaða útlegð. Þeir voru vart
komnir heim þegar þeir voru myrt-
ir. Opinber skýring var sú að reið-
ir ættingjar þeirra hefðu verið þar
að verki. Bandarískur embættis-
maður sagði í viðtali við sjónvarps-
stöðina CNN í gærkvöldi að ekki
væri hægt að útiloka að erjur inn-
an forsetafjölskyldunnar lægju að
baki tilræðinu.
Reuter
Major missir
meirihluta
sinn á þingi
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, missti meirihluta í
neðri deild þingsins í gær er
Verkamannaflokkurinn sigraði
í aukaþingkosningum í Barns-
ley East í norðurhluta Englands.
Er þetta í fyrsta sinn sem íhalds-
menn missa meirihluta á þingi
frá því að fyrirrennari Majors,
Margaret Thatcher, tók víð völd-
um fyrir 17 árum.
Það skyggði þó á gleöi Verka-
mannaflokksins yfir kosninga-
sigrinum að breska útvarpsstöð-
in BBC kvaðst hafa uppgötvað að
gerð hefði verið tilraun til
svindls í sambandi viö kjör
manns ársins sem hlustendur
stöðvarinnar taka þátt í. Sögðu
talsmenn BBC að starfsmaður
Verkamannaflokksins hefði hvatt
flokksfélaga til að senda inn þús-
undir tillagna um að Tony Blair,
leiðtogi Verkamannaflokksins,
yrði kjörinn maður ársins. Voru
félagamir beðnir að gæta þess að
senda ekki tillögumar á faxtækj-
um sem tilheyrðu flokknum.
Tony Blair kveðst ekkert vita um
málið.
Þrátt fyrir að stjómin hafi
misst meirihluta ætlar Verka-
mannaflokkurinn ekki að bera
upp vantrauststillögu á næst-
unni. Major getur reitt sig á
stuðning níu sambandssinna frá
N-írlandi. Niðurstaðan þykir
samt auka á vanda hans fram að
kosningum sem ráðgerðar era í
vor.
Clinton ánægð-
ur með sam-
komulag um
frjáls tölvu-
viðskipti
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hringdi í gær í Charlene Bars-
hefsky, starfandi viðskiptafull-
trúa Bandaríkjastjómar, og
óskaði henni til hamingju með
samkomulagið um afnám tolla í
viðskiptum meö tölvur og annan
upplýsingatæknibúnað sem náð-
ist á fyrsta ráðherrafundi
Heimsviðskiptastofnunarinnar
(WTO) í Singapore.
„Forsetinn var mjög ánægð-
ur,“ sagði talsmaður banda-
rískra stjórnvalda.
Ráðherrar 128 landa sátu
fundinn og tókst þeim að komast
að samkomulagi um margvísleg
atriði, auk frelsis í tölvuvið-
skiptum, svo sem um að aðstoða
fátækar þjóðir og marka stefn-
una fyrir frekari viðræður um
frelsi í heimsviðskiptum til alda-
móta. Reuter
Hann er ekki árennilegur þessi síberíski tígur með kjúkiinginn f kjaftinum. Tígurinn er ofan á bifreiö mannsins sem
sér um aö gefa honum aö éta. Dýriö heldur til i sérstökum tfgrisdýragaröi í Kfna þar sem gestir geta keypt kjúklinga
til aö gefa skepnunum. Garöurinn var opnaöur í janúar í því augnamiöi aö bjarga sveltandi tígrum úr eldisstöö f fjár-
hagskröggum frá bráöum bana. Sfmamynd Reuter
Franski utanríkisráðherrann þykir hafa móðgað kollega sinn:
Gekk úr salnum þegar far-
ið var að mæra Christopher
Hervé de Charette og Warren Christopher á góöri stundu í sföasta mánuöi.
Sfmamynd Reuter
Bandarísk stjómvöld eru sárlega
móðguð yfir því sem þau kalla
ókurteisi Hervés de Charettes, utan-
ríkisráðherra Frakklands, í garð
Warrens Christophers, fráfarandi
bandarísks starfsbróður hans, í
Brassel á dögunum. De Charette
yfirgaf samkvæmi utanríkisráð-
herra NATO þegar framkvæmda-
stjóri samtakanna, Javier Solana,
hóf að mæra Christopher fyrir störf
hans. Fyrir vikið andar heldur
köOu milli Washington og Parísar
þessa dagana.
„Slík hegðun er mjög svo óvenju-
leg,“ sagði bandarískur embættis-
maður sem varð vitni að atvikinu.
„Þetta var mikil ókurteisi. Það er
erfitt að ímynda sér hvað gat valdið
svona framferði."
í hádegisverði ráðherranna á
þriðjudag fóra allir starfsbræður
Christophers í NATO lofsamlegum
orðum um hann nema de Charette.
Þegar Solana tilkynnti svo í öðra
samkvæmi um kvöldið að hann
vildi segja nokkur orð til heiðurs
Christopher gekk de Charette úr
salnum, að sögn bandaríska emb-
ættismannsins. Franski sendiherr-
ann kom í hans stað en sneri baki í
samkomuna og blaðraði þess í staö
við aðstoðarmann sinn.
Háttsettur franskur embættis-
maður sagði að de Charette hefði
ekki lítilsvirt Christopher af ásettu
ráði heldur hefði ræða Solanas ekki
verið á dagskránni. Það væri eina
ástæðan fyrir því að hann gekk úr
salnum. Embættismaðurinn sagði
að aðrir NATO-ráðherrar hefðu
einnig verið fjarstaddir en vildi þó
ekki nafngreina þá.
Atvik þetta þykir sýna vel ástand-
ið í sambúð Frakka og Bandaríkja-
manna um þessar mundir þar sem
þjóðimar eiga í margvíslegum deil-
um, svo sem um endurskipulagn-
ingu hemaðarappbyggingar NATO,
um eftirmann Boutrosar-Ghalis í
embætti framkvæmdastjóra SÞ, um
ágreining um stefnu Vesturlanda í
Saír og um viðleitni Frakka til að
hafa meiri áhrif á friðarferlið í Mið-
Austurlöndum. Reuter
Stuttar fréttir dv
Flýja frá Tansaníu
Um 400 þúsund hútúar frá Rú-
anda hafa yfirgefið flóttamanna-
búðir i Tansaníu. Þeir hunsa
fyrirmæli um að fara heim og
streyma til nágraxmaríkja.
Efla gyðingabyggðir
ísraelsþing kemur saman í
dag til að ræða efiingu gyðinga-
byggða á landsvæði araba.
Ávíta Burma
Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna ávítaði í gær herfor-
ingjastjórnina
í Burma fyrir
að kúga
stjórnarand-
stöðuna.
Madeleine Al-
bright, sendi-
herra Banda-
rikjanna hjá
SÞ, segir Burmastjórn ekki upp-
fylla lágmarkskröfur hvað varð-
ar mannréttindi.
Mótmæli í Los Angeles
Lögreglan í Los Angeles hand-
tók 12 mótmælendur sem höfðu
hlekkjað sig við flutningabíl og
klifrað upp á olíutanka til að
mótmæla lagningu olíuleiðslna í
gegnum Burma.
Skaut Palestínumann
ísraelskur bóndi skaut til
bana palestínskan verkamann
sem hann hélt að væri að brjót-
ast inn í hús sitt.
Stofha friði í hættu
Jórdanskur ráðherra, sem er í
heimsókn í ísrael, segir sum
stefnumál ísraelsstjómar stofha
friði í Miðausturlöndum í
hættu.
Dini í sáttaferð
Lamberto Dini, utanrikisráð-
herra Ítalíu, hvatti í Belgrad í
gær Slobodan
Milosevic
Serbíuforseta
til að leysa
kreppuna
vegna ógild-
ingar kosn-
ingaúrslit-
anna. Dini
hitti einnig leiðtoga stjómarand-
stöðunnar.
Þingmaður í rannsókn
Einn af þingmönnum stjóm-
arflokkanna í Tyrklandi á á
hættu að verða ákærður vegna
hneykslismáls sem tengir tyrk-
neska stjómmálamenn við bófa,
dularfull morð og heróínsölu.
Á fornar slóftir
Nelson Mandela, forseti S-Afr-
íku, heimsótti í gær í fyrsta sinn
staðinn þar sem hann var hand-
tekinn fyrir þremur áratugum.
Bjargaði Kínverjum
Þýskur kaupsýslumaður og
nasisti, John Rabe, bjargaði þús-
undum Kínverja þegar Japanir
hertóku Nanking 1937.
Óbreytt stefna
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, hefur tilkynnt að haldið
verði áfram
efhahagsum-
bótum sem
geta verið
sársaukafull-
ar. Forsetinn
útilokar upp-
stokkun í
sfjóminni
þrátt fyrir óvinsældir Alains
Juppes forsætisráðherra.
DNA vantreyst
Sérfræðingur fullyrti fyrir
rétti í máli O.J. Simpsons að
DNA- sönnunargögnin, sem not-
uð vora til að tengja hann við
morð, væru ekki áreiðanleg.
Sprengja á Korsíku
Aðskilnaðarsinnar á Korsíku
segjast bera ábyrgð á sprengju-
árás á hús á golfvelli í gær. Eng-
inn slasaöist í árásinni.
Reuter