Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1996, Page 13
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
w
í/ienning
Smári Freyr og Tómas Gunnar, höfundar bókarinnar A lausu.
Lausbeislaðir unglingar
Þrátt fyrir ungan aldur gefa þeir félagar Smári Freyr og Tómas Gunnar
nú út þriðju unglingabók sína, Á lausu. Þar segir frá Þorgrími sem er kall-
aður Toggi og hefur aldrei verið með stelpu. Það ástand varir þó ekki lengi,
áður en við er litið er fang Togga fullt af kvenfólki í misjöfnu ástandi.
í sögubyrjun er Þorgrimur það sem kallast á slæmri íslensku „nörd“. Það
er varla til hallærislegri unglingur en sá sem gengur í sömu hvítu íþrótta-
sokkunum i þrjú ár, telur á sér tippahárin og vill heldur spila einhver geim-
spil en kyssa sætar stelpur. Toggi hefur það þó til brunns að bera að vera
skemmtilegur sögumaður og besta skinn og áður en yfir líkur er hann orð-
inn ekta töffari. Sögulok eru þó ekki eins klisjukennd og á horfir.
Eins og fyrri bækur þeirra félaga ber Á lausu í sér andmæli gegn þeim
Bókmenntir
Margrát Tryggvadóttir
unglingabókum sem hafa selst best undanfarin ár en hafa því miður marg-
ar hverjar varla verið pappírsins virði. Bókin er uppfull af skemmtUegum
vísunum í unglingabækur síðustu ára og athugasemdum um þær: „í hUlun-
um voru unglingabækur. „Ég kíkti á þær og í ljós kom að aUar voru léleg-
ar nema tvær. Þessar tvær hétu BK og Y en ekki orð um það meir. Uss!“
(bls. 116). (Fyrir þá sem ekki þekkja tU er hér átt við fyrri bækur Smára og
Tómasar, Blauta kossa og YfsUon). Sem fyrr er það Þorgrímur Þráinsson
sem verður fyrir mestu aðkasti og er gert óspart grín að verkum hans. Að-
alpersónan er jafnvel látin heita í höfuðið á skáldinu. Þeir hæða einnig ýmis
önnur fyrirbæri í menningarheimi okkar, s.s. auglýsingar, sérstaklega þær
sem er ætlað að höfða tU unglinga. Á einum stað er Toggi með þrjú Rís
súkkulaði en eignast samt enga vini!
Á lausu er skemmtUeg saga og fersk, jafnvel of fersk. Verkið gæti meira
að segja gagnast sem kennslubók í íslensku og öðru slangurmáli. Bókin er
mjög fyndin en kimni höfunda höfðar sjálfsagt ekki tU aUra og gæti jafnvel
hneykslað suma. Flestir unglingar ættu þó að fá nokkuð fyrir sinn snúð.
13
JAPIS
FJOLBREYTIMIN ER I JAPIS
SONY MHC-991AV
ÞESSI SLÆR ALLAR HINAR
HEIMABÍÓSTÆÐURNAR UT.
HLJÓMUR ER SÖGU RlKARI
KR. 69.900
Panasonic SC-CH34
FULLKOMIN 5 DISKA
HLJÓMTÆKJASAMSTÆÐA
MEÐ ÖLLU
KR.39.900
P.in.isonic SL-S138
GEISLASPILARI
FYRIR ÞA SEM ERU Á FERDINNI
s. KR. 9.980 ^
SONY MHC-'/;i ~
ÞETTA ER HUN! HLJÓMURINN
ER ÓTRIJLEGUR, 3. DISKA STÆDA
Á FRÁBÆRU VERÐI
KR. 49.900
Smári Freyr og Tómas Gunnar: Á lausu.
Skjaldborg 1996.
„Fyrir 40 árum þýddi ég Spámanninn eftir Khalil Gibran. Bók
sem ég taldi þá að bæri af öðrum bókum í Bandaríkjunum.
Nú 40 árum síðar þýddi ég Lögmálin sjö
um velgengni vegna þess að mér finnst
að sú bók beri af öðrum bókum sem ég
hef séð frá Ameríku.”
(r rwr r D n I