Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1996, Page 18
18
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
31
íþróttir
íþróttir
Yeboah vill
fara frá Leeds
Tony Yeboah er ekki sáttur
við veru sína hjá enska knatt-
spyrnufélaginu Leeds og vill
komast í burtu. Hann fór í fýlu
þegar George Graham, stjóri
Leeds, valdi hann ekki í byrjun-
arliðið um síðustu helgi en hann
var þá klár í fyrsta sinn á þess-
ari leiktíð eftir að hafa verið
lengi frá vegna meiðsla. Yeboah
segir að tvö þýsk úrvalsdeildar-
lið hafi þegar sett sig í samband
með það i huga að fá hann í sín-
ar raðir.
Eriksson vill taka
við Blackburn
Svíinn Sven Göran Eriksson
er reiðubúinn að taka við fram-
kvæmdastjórastöðunni hjá
Blackbum Rovers í byrjun
næsta árs fái hann sig lausan frá
ítalska liðinu Sampdoria.
Klinsmann ekki
sáttur hjá Bayern
Júrgen Klinsmann lét hafa eft-
ir sér í gær við þýska fjölmiðla
að hann vildi fara frá Bayern
Múnchen ef andrúmsloftiö í her-
búðum félagsins lagaðist ekki.
Klinsmann og Franz Beckenbau-
er, forseti Bayem, hafa átt í úti-
stöðum í vetur og Klinsmann
hefur fengið sig fullsaddan af
hrokanum í Beckenbauer.
Hef áhuga á að
fara til Spánar
Það renna mörg félög hýru
auga til Klinsmanns. Sjálfur seg-
ist hann hafa mikinn áhuga á aö
spila á Spáni enda vilji hann
læra spænsku. Þá kemur vel til
greina að Klinsmann fari aftur
til Englands en kona hans,
Debbie, sem er bandarísk, kunni
mjög vel við sig í Englandi.
Gerg sigraöi
í risasvigi
Hilde Gerg frá Þýskalandi
sigraði í risasvigi í heimsbikar-
keppninni á skíðum í Val D’Isere
í Frakklandi í gær. Landa henn-
ar Katja Seizinger varð önnur og
Isolde Kostner frá Ítalíu þriðja.
Helsta von Norðurlandabúa,
Pemilla Wiberg frá Sviþjóð, varð
að gera sér 9. sætið að góðu.
Ashbee kominn
til Cambridge
Ian Ashbee, enski knatt-
spymumaðurinn sem Derby
County lánaði til ÍR síðasta sum-
ar, hefur fengið frjálsa sölu frá
Derby. Hann er kominn til Cam-
bridge sem er í toppbaráttu 3.
deildar. Þar tók nýlega við völd-
um Roy McFarland, iyrrum
stjóri Derby.
SH hljóp I skarð-
ið fyrir HSÍ
Þegar dregiö var í riðla fyrir
lokakeppni HM í handknattleik í
Kumamoto í Japan í síðustu
viku var enginn sendur frá HSÍ
til að vera viðstaddur, eins og
venjan er. ísland átti þó fulltrúa
við dráttinn, HSÍ leitaði til Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
sem hefur menn á sínum vegum
í Japan, og einn þeirra brá sér til
Kumamoto fyrir hönd sambands-
Dregið hjá yngri
landsliðunum
í gær var dregið i riðla fyrir
Evrópumót yngri landsliða karla
í knattspymu. Unglingalandslið
íslands er í riðli með Austurríki,
Finnlandi og Litháen en drengja-
landsliðið er í riðli með Lett-
landi og Póllandi. Þessir leikir
fara fram næsta haust.
-GH/VS
Knattspyrna:
Skagamenn leita i
Þýskalandi og Svíþjóð
Það er ekki ljóst ennþá hver verður
næsti þjálfari íslands- og bikarmeist-
ara Skagamanna í knattspymu en
eins og kunnugt er var Guðjóni Þórð-
arsyni vikið frá störfum fyrir
skömmu.
Samkvæmt heimildum DV hafa
Skagamenn sett sig í samband við
Þjóðverjann Klaus Hilpert, fyirum
þjálfara ÍA og núverandi fram-
kvæmdastjóra hjá Bochum, liði Þórð-
ar Guðjónssonar, og beðið hann að
svipast um eftir þjálfara í Þýskalandi.
Það má nokkuð ljóst vera að Skaga-
menn vilja fá erlendan þjálfara því
forráðamenn ÍA hafa leitað til sænska
knattspymusambandsins og beðið
um aðstoð í þjálfaramálunum.
lan Ross talaöi við IA
DV hefúr heimildir fyrir því að
einn erlendur þjálfari hafi haft sam-
band við Skagamenn með það í huga
að þjálfa liðið en það er Englending-
urinn Ian Ross sem fyrir nokkmm
árum þjálfaði Val og síðar KR.
-GH
Áfall fyrir handboltann:
Engar útsendingar
frá HM í Japan?
Samkvæmt frétt í þýska blaðinu
Kieler Nachrichten í gær er fjarvera
þýskumælandi þjóðanna frá loka-
keppni HM í Japan næsta vor gifúr-
legt áfall fyrir handknattleiksíþrótt-
ina. Hún geti haft í fór með sér að
engar sjónvarpsútsendingar verði
frá keppninni til Evrópu.
Þýskaland, Sviss og Austiuríki
verða öll fjarri góðu gamni á HM,
sem og Danmörk, en auglýsendur
frá þessum þjóðum haíá borið uppi
stórmót í handboltanum undanfarin
ár.
Horst Lichtner, fjármálastjóri
svissneska fyrirtækisins CWL, sem
miðlar sjónvarpsrétti frá handknatt-
leiksmótum, segir í samtali við
blaðið: „Fjarvera Mið-Evrópuþjóð-
anna er gífurlegt áfall fyrir hand-
knattleikinn. Þetta þýðir að á
heimsvísu er HMnánast ekki til
lengur. Heil heimsmeistarakeppni
verður nánast merkingarlaus því
enginn mun fylgjast með henni.“
Sagt er í blaðinu að öll helstu
styrktarfyrirtæki handboltans und-
anfarin ár séu hætt við að setja pen-
inga í keppnina í Japan. Þar er að-
alstyrkaraðili þýska handbolta-
sambandsins, Krombacher, nefndur
sem dæmi. Þá séu sjónvarpsstöðvar
lítt áhugasamar fyrir keppninni
eins og staðan er. -VS
Volker Zerbe og félagar í þýska landsliö-
inu veröa fjarri góöu gamni í Japan og
þaö viröist ætla aö veröa handknattleiks-
íþróttinni dýrkeypt.
40 mil|jónir til HSI?
- einhugur sagöur um málið í Qárlaganefnd Alþingis
Fjárlaganefnd Alþingis hefur nú
til meðferðar ósk um fjárhagsaðstoð
til handa Handknattleikssambandi
íslands. Stöð 2 skýrði frá því í gær-
kvöldi að öruggar heimildir væru
fyrir því að innan nefndarinnar væri
einhugur um að samþykkja 40 millj-
óna króna framlag frá Alþingi sem
yrði greitt sambandinu á þremur
arum.
Þetta er sú upphæð sem HSÍ varð
af þegar heimsmeistarakeppnin fór
fram hér á landi á síðasta ári. Þá
þurfti mótshaldari í fyrsta skipti í
sögu HM að greiða sjónvarpsstöð í
heimalandinu fyrir upptökur frá
keppninni og námu þær greiðslur til
Ríkisútvarpsins 40 milljónum króna.
Skuldir HSÍ eru taldar vera í
kringum 80 milljónir króna og þetta
ffamlag myndi laga stöðu sambands-
ins verulega. Framundan er kostnað-
arsöm þátttaka karlalandsliðsins í
lokakeppni HM í Japan en þó er ljóst
að sigramir á Dönum á dögunum
hafa gert HSÍ auðveldara fyrir um
samninga og fjáraflanir. -VS
Allir ánægðir á Selfossi
DV, Selfossi:
„Við lögðum þennan leik upp eins
og alla aðra, við ætluðum ekki að van-
meta þá,“ sagði Friðrik Ingi Rúnars-
son, þjálfari íslandsmeistara Grind-
víkinga, eftir 86-112 sigur á 1. deildar
liði Selfyssinga í 8-liða úrslitmn bik-
arkeppninnar í körfuknattleik á Sel-
fossi i gærkvöld.
„Við vorum að vísu sterkari en
höfðum gaman af þessum leik, sem og
vonandi allir héma í kvöld,“ sagði
Friðrik.
Grindvíkingar byrjuðu með sitt
sterkasta lið inni á og náðu fljótlega
góðri forystu. Um miðjan hálfleikinn
kom varaliðið inn á og Selfyssingar
náðu að halda vel í við það en staðan
var 29-55 í hálfleik.
Varalið Grindvíkinga spilaði fyrstu
10 mínútur síðari hálfleiks en síðan
fengu allir að spreyta sig. Malcolm
Montgomery hjá Selfossi, sem aðeins
skoraði 3 stig í fyrri hálfleik, fór ham-
fórum og bætti 30 stigum við.
Herman Myers skoraði 17 stig fyrir
Grindavík, Unndór Sigurðsson 14 og
allir komust á blað.
Montgomery gerði 33 stig fyrir Sel-
foss og Gylfí Þorkelsson þjálfari gerði
17. Allir heimamanna fengu að
spreyta sig á móti íslandsmeisturun-
um og i lokin gengu allir ánægðir af
velli. -DR
EM kvenna:
Danmörk og
Noregur í
úrslitaleik?
Danmörk, Þýskaland, Noregur
og Austurríki em komin í und-
anúrslit í Evrópukeppni kvenna-
landsliða í handknattleik sem nú
stendur yfir í Danmörku.
Undanúrslitin era leikin í dag
og þá mætast annars vegar
dönsku og þýsku stúlkurnar og
hins vegar þær norsku og aust-
urrísku. Það era taldar góðar
líkur á því að Norðurlandaliðin
leiki til úrslita um titilinn á
sunnudag.
Lokaumferð riðlakeppninnar
var leikin í fyrradag og fór
þannig:
A-riöill:
Króatía-Svíþjóö.......29-28
Danmörk-Ungverjaland...29-28
Austurríki-Pólland ...29-22
Lokastaðan:
Danmörk 5 5 0 0 148-101 10
Austurríki 5 4 0 1 125-105 8
Króatía 5 3 0 2 121-120 6
Svíþjóð 5 2 0 3 114-139 4
Ungveijal. 5 1 0 4 109-117 2
Pólland 5 0 0 5 107-132 0
B-riöill:
Noregur-Rúmenía . 26-26
Úkraína-Litháen .. 27-20
Þýskaland-Rússland .. 29-23
Lokastaðan:
Noregur 5 3 2 0 134-106 8
Þýskaland 5 4 0 1 124-111 8
Rúmenia 5 3 1 1 132-122 7
Rússland 5 2 1 2 132-119 5
Úkraína 5 1 0 4 114-122 2
Litháen 5 0 0 5 97-153 0
-VS
Enska blaðið Liverpool Echo í gær:
Liverpool og Newcastle
berjast um íslenska
undrastrákinn
- fer aftur til beggja félaganna eftir áramótin
Enska blaðið Liverpool
Echo sagði í gær að Roy
Evans, framkvæmdastjóri
Liverpool, væri kominn í
stríð við Newcastle um ís-
lenska undrastrákinn Bjarna
Guðjónsson.
„Þessi hæfileikaríki piltur
hefur nýlokið einstaklega
góðu tímabili með tvöfóldum
meisturum Akraness og var
fenginn til reynslu hjá
Newcastle. Liverpool var
gert aðvart um þennan 17 ára
sóknarmann þegar hann
skoraði sigurmarkið gegn
Mark Kennedy og félögum í
írska 21-árs landsliðinu í
Dublin," segir meðal annars
í greininni."
Þá er sagt að Roy Evans sé
á fullri ferð að reyna að
styrkja lið sitt fyrir átökin í
Evrópukeppni bikarhafa en
þar leikur Liverpool við
Brann frá Noregi í 8-liða úr-
slitum í mars. Félagið þarf
að vera búið að skrá nýja
leikmenn fyrir 15. janúar til
að þeir verði löglegir í Evr-
ópukeppninni. Fram kemur
að Bjami gæti ekki spilað
með Liverpool þar vegna
þess að hann hafi þegar spil-
að í Evrópukeppni á þessu
tímabili.
Sama hvaðan góöir
leikmenn koma
Haft er eftir Evans: „Mér
er sama hvaðan góðir leik-
menn koma og við erum ekki
bara að skoða leikmenn frá
Norðurlöndum þessa dagana,
við erum með allan heiminn
í smásjánni. Það væri gott að
ná i leikmenn fyrir 15. janú-
ar en það þurfa að vera þeir
réttu.“
Bjarni, Björn og
Björnebye
Liverpool er í þann veginn
að kaupa Norðmanninn
Björn Tore Kvarme frá Ros-
enborg og fyrir er hjá félag-
inu landi hans, Stig Inge
Björnebye. „Hugsið ykkur lið
Liverpool þegar Bjarni,
Bjöm og Bjömebye spila all-
ir með!“ segja þeir hjá Liver-
pool Echo.
Ensk blöð segja að Roy
Evans hafi ekki getað dulið
ánægju sína með að dragast
gegn Birki Kristinssyni,
Ágústi Gylfa-
Liverpool um helgina en
fer aftur til Englands
eftir áramótin. New-
castle hefur boðið
honum að koma aftur
og sama er að segja
um Liverpool. Sviss-
nesku meistaramir í
Grasshoppers eru
sömuleiðis áfram
áhugasamir um Bjama en
hann var hjá þeim á
dögimum sem
syni
og félögum í
Brann. Breskir veðbankar
telja nú Liverpool annað sig-
urstranglegasta lið keppn-
innar, á eftir Barcelona.
Fer til beggja félag-
anna eftir áramótin
Bjarni kemur heim frá
kunn-
ugt er, eftir að
hafa verið við æfingar
hjá Newcastle.
-DVÓ/VS
n
BIKARKEPPNIN
Konur - 8-liöa úrslit:
Keflavlk-GrLndavlk .......83-49
Erla Þorsteinsdóttir 22, Anna María
Sveinsdóttir 12, Erla Reynisdóttir 11 -
Anna Dís Sveinbjömsdóttir 14,
Sandra Guðlaugsdóttir 13.
Njarðvík-Skallagrímur .... 72-38
Rannveig Randversdóttir 13, Eva
Stefánsdóttir 11 - Hildur Jónsdóttir
10, Jóhanna Ragnarsdóttir 9.
ÍS-KR.....................44-52
Maria Leifsdóttir 14, Kristjana Magn-
úsdóttir 9 - Linda Stefánsdóttir 15,
Guðbjörg Norfjörð 14, Sóley Sigur-
þórsdóttir 13.
iR-KFÍ....................75-36
Keflvíkingar voru klókir
- þegar þeir knúöu fram sigur á ÍR í bikarnum, 87-88
Lokasekúndurnar voru ótrúlegar í bikarleik ÍR-
inga og Keflvíkinga í Seljaskólcmum í gærkvöld. Þeg-
ar fjórar sekúndur vom eftir fékk Keflavík tvö vita-
skot en ÍR hafði þá 3ja stiga forskot. Guðjón Skúlason
setti bæði skotin niður og munaði þá einu stigi. ÍR-
ingar ætluðu að koma boltanum í leik en Keflvíking-
ar bratu á þeim áður en þeim tókst það og fengu
dæmda á sig tæknivillu sem varð til þess að ÍR-ingar
urðu að taka tvö vítaskot. Eggert klikkaði á báðum,
Keflvíkingar fóm í hraðaupphlaup og Kristinn Frið-
riksson skoraði sigurkörfuna, 87-88.
Þetta var snilldarráð hjá þjálfara Keflavikur en að
sama skapi svekkjandi fyrir ÍR. Þjálfari og leikmenn
ÍR hafa sennilega ekki áttað sig á því að þetta mætti.
Bæði lið eiga hrós skilið fyrir hraðan og skemmti-
legan leik og vom allir leikmenn að standa fyrir sínu.
ÍR-ingar börðust mjög vel og var Eggert þar fremst-
ur í flokki, Atli Bjöm og Baker léku einnig vel.
Hjá Keflavík var Albert ÓskcU’sson sterkur og
þeir Johnsson, Guðjón og Kristinn léku vel.
Spennan var í hámarki í þessum leik og
áhorfendur, sem lögðu leið sína i Seljaskól-
ann, fengu að sjá einn af betri leikjum
vetrarins.
Stig ÍR: Eggert Garðarsson 28, Tito
Baker 23, Eiríkur Önundarson 18, Atli B.
Þorbjömsson 12, Gísli Hallsson 6.
Stig Keflavíkur: Damon Johnson 25,
Kristinn Friðriksson 18, Guðjón Skúlason 17,
Albert Óskarsson 14, Falur Harðarson 10, El-
entínus Margeirsson 2, Birgir Örn Birgisson
2. -SS
Ronaldo bestur hjá World Soccer
Hið virta knattspyrnutímarit
World Soccer birti í gær niðurstöð-
umar í kjöri sínu á knattspymu-
mcmni ársins 1996. Fyrir valinu varð
Ronaldo, hinn ungi brasilíski snill-
ingur hjá Barcelona. Englendingur-
inn Alan Shearer varð annar og Li-
beriumaðurinn George Weah þriðji.
Ljóst er að einn þessara þriggja
verður útnefhdur knattspymumað-
ur ársins í heiminum þann 20. janú-
ar en í því kjöri er Shearer talinn
sigurstranglegastur.
Berti Vogts, landsliðsþjálfari Þjóö-
verja, var valinn þjálfari ársins og
lið Nígeríu, sem vann ólympíugullið
í Atlanta í sumar, var valið lið árs-
ins.
I*
••
Oruggur Haukasigur
- Haukar í 2. sæti eftir sigur í Garðabænum
„Eg er sáttur við stigin en ekki leikinn
sem slíkan. Það vantaði baráttuna og
kraftinn sem verið hefur í leik okkar að
undanfómu," sagði Páll Ólafsson, liðs-
stjóri Hauka, eftir sigur þeirra á Stjöm-
unni, 27-30, í lokaleik fyrri umferðar 1.
deildarinnar í Ásgarði í gærkvöldi.
„Það er þó gott að halda jólin í öðra
sæti deildarinnar og við mætum aftur
galvaskir eftir jólafriið og þá vonandi
með alla menn heila,“ sagði Páll.
Það má með sanni segja að það hafi
ekki verið áferðarfallegur handbolti sem
liðin buðu upp á í gærkvöld. Sigur
Hauka var nokkuð ömggur. Þeir héldu
forskoti allan fyrri hálfleikinn og þurftu
ekki mikið að taka á gestgjöfunum í
vöminni því Stjömumenn, sem léku án
Konráðs Olavssonar, vom mjög ráðleys-
islegir í sókninni og fullákafir í flestum
sínum aðgerðum.
í seinni hálfleik færðist mun meira
íjör í leikinn. Stjömumenn voru ákveðn-
ari en í þeim fyrri og virtust ætla að
saxa á forskot gestanna en sem fyrr voru
þeir fljótfærir á stundum og misstu bolt-
ann oft klaufalega. Meiri yfirvegun var
hins vegar í leik Haukanna og um miðj-
an seinni hálfleik náðu þeir sex marka
forskoti sem var of mikið fyrir heima-
menn sem börðust þó vel í lokin.
Petr Baumruk og Halldór Ingólfsson
vom bestir Haukanna en hjá Stjömunni
var Valdimar atkvæðamestur en gerði
sig líka stimdum sekan um slæm mistök.
Sigurður Viðarsson og Axel Stefánsson
áttu einnig góða spretti.
-ÖB
Stjarnan (12)27
Haukar (16) 30
14), 2-3, 6-10, 11-13, (12-16), 12-17,
18-22, 19-25, 22-26, 25-28, 27-30.
Mörk Stjörnunnar: Valdimar
Grímsson 7/3, Sigurður Viðarsson 5,
Hilmar Þórlindsson 4, Magnús Agnar
Magnússon 3, Viðar Erlingsson 3,
Hafsteinn Hafsteinsson 2, Rögnvaldur
Johnsen 2, Jón Þórðarson 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 14.
Mörk Hauka: Petr Baumruk 8/3,
Halldór Ingólfsson 5, Sigurður Þórð-
arson 3, Gústaf Bjamason 3, Aron
Kristjánsson 3, Þorvarður Tjörvi
Ólafsson 3, Rúnar Sigtryggsson 2, Ósk-
ar Sigurðsson 1, Einar Gunnarsson 1.
Varin skot: Bjami Frostason 5,
Magnús Sigmundsson 6.
Brottvisanir: Stjaman 12 min.,
Haukar 6 mín.
Dómarar: EgiR og Öm Markús-
synir, sæmilegir.
Áhorfendur: Um 200.
Maður leiksins: Petr Baumruk,
Haukum.
1. DilLD KARLA
Afturelding 11 10 0 1 294-270 20
Haukar 11 7 2 2 283-265 16
KA 11 7 1 3 299-289 15
ÍBV 11 6 0 5 269-254 12
Fram 11 5 2 4 254-244 12
Stjaman 11 5 0 6 292-283 10
HK 11 4 1 6 251-262 9
Selfoss 11 4 1 6 281-301 9
Valur 11 3 2 6 244-254 8
FH 11 4 0 7 260-293 8
ÍR 11 3 1 7 267-270 7
Grótta 11 2 2 7 261-270 6
Hálldór Ingólfsson og Sigurður
Þórðarson léku á ný með Haukum 1
gærkvöld eftir fjarvera vegna
meiðsla.
Konráð Olavsson og Ingvar
Ragnarsson markvörður léku ekki
með Stjömunni í gærkvöld vegna
veikinda.
Stjarnan var aðeins með einn
markvörð í leiknum, Axel Stefáns-
son, því þriðji markvörður liðsins
var líka veikur.
Einar Baldvin Ámason var fyr-
irliði Stjömunnar í fyrsta skipti í
fjarveru Konráðs.
Bjarni Guðjónsson hefur staðið sig
vel hjá ensku stórveldunum New-
castle og Liverpool og útlit er fyrir
baráttu þeirra um undirskrift hans
eftir áramótin.
Davíð í
Leiftur?
DV, Olafsfirði:
Nú em allar líkur á því að
Davíð Garðarsson gangi til
liðs við 1. deildar lið Leifturs í
knattspymu. Hann hefur æft
með leikmannahópi Leifturs í
Reykjavík i vetur og fallið vel
inn í hópinn. Davíð hefur
lengst af leikið með Val en
einnig með FH í 1. deildinni
og hann spilaði með Þór á Ak-
ureyri í 2. deildinni í sumar.
Davíð lék vel með Valsmönn-
um þegar þeir björguðu sér á
ævintýralegan hátt frá falli
sumarið 1995 en þá var Krist-
inn Björnsson, núverandi
þjálfari Leifturs, við stjómvöl-
inn hjá Reykjavíkurveldinu
rauðklædda. -HJ
■ ••
Miklar líkur em á að Gauti
Laxdal gangi til liðs við
Stjömuna og leiki með félag-
inu í 1. deildinni í knatt-
spymu næsta sumar. Gauti
lék með KA í 2. deildinni í
fyrra og áður með Fram og KA
í 1. deildinni. Hann er þrítug-
ur og á 149 leiki að baki í 1.
deild.
„Það bendir flest til þess að
ég verði búsettur sunnan
heiða næsta árið og þá er ljóst
að ég verð ekki áfram með
KA. Ég hef æft með Stjömunni
að undanfömu og líst vel á
mig þar þannig að það er lík-
legast að ég verði í Garðabæn-
um á næsta tímabili," sagði
Gauti við DV í gærkvöld. -VS
Bjarki
meiddist
Bjarki Gunnlaugsson, sem
hefur verið að gera góða hluti
með Mannheim í þýsku 2.
deildinni í knattspymu og á
stuttum tíma verið valinn fjór-
um sinnum í lið vikunnar hjá
Kicker, verður frá keppni í
minnsta kosti einn mánuð.
Bjarki var sparkaður niður
á æfingu með þeim afleiðing-
um að liðbönd slitnuðu. Þessi
meiðsli koma kannski á besta
tíma þar sem jólafrí er
framundan og Mannheim á að-
eins eftir að spila einn leik fyr-
ir fríið. -DVÓ/GH
Enski boltinn - Fótboltavörur - Frábært úrval
Líverpool - Manch. Utd.-
Arsenal - Newcastle -
Tottenham - Chelsea -
Leeds:
* Treyjur, stuttbuxur, liðasett,
bolir, handklæði, húfur, könnur,
fótboltar, klukkur, sokkar, merki,
treflar, töskur, dagatöl, hanskar,
sælgæti, mínibúningar o.fl. o.fl.
* Ath. Sumar vörur ekki til meö
óllum liöunum.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
SPAJITA
Laugavegi 49 - sími 551 2024