Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1996, Síða 28
40
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
Sviðsljós
Leyndi andláti
bams síns í mánuð
Söngvarinn Prince lét sem
hann væri hamingjusamur faöir í
heilan mánuð eftir aö bam hans
var dáið. Þetta geröi söngvarinn
til þess að leyfa konu sinni, Mayte
Garcia, að jafna sig vegna andláts
litla sonarins. í viðtali vegna út-
gáfú geisladisks sagði Prince að
það væri yndislegt að vera faðir
og að barnið veitti sér og Mayte
ómælda gleði. Þá var þegar búið
að jarðsetja barnið.
Lætur ekki kúga
út sér fé
Kvikmyndaleikarinn Matthew
McConaughey neitar að greiða
ljósmyndara, sem tók nektar-
myndir af honum fyrir fjórum
áram ásamt þáverandi kærustu
hans, 35 milljónir íslenskra
króna. En þá dreymdi kappann
víst ekki um að hann yrði fræg
Hollywoodstjama og trúlofaður
Söndru Bullock.
Ástmenn prinsessanna
eiga báðir von á barni
Daniel Ducruet, fyrrum eigin-
maður Stefaníu prinsessu, og
Vincent Lindon, fyrrum ástmaður
Karólinu prinsessu, eiga báðir von
á bami ef marka má frásagnir er-
lendra slúðurblaða.
Talið er að Stefanía eigi sérstak-
lega erfitt með að kyngja því að eig-
inmaðurinn fyrrverandi sé að verða
faðir enn einu sinni því orðrómur
var á kreiki um að hún hefði verið
reiðubúin að taka hann aftur þrátt
fyrir framhjáhald hans og þrátt fyr-
ir eindregin mótmæli foður síns.
Sættir er hins vegar ósennilegri nú
en nokkra sinni eftir að fransk-
belgíska nektardansmærin Fili
Houteman tilkynnti að samvera
hennar og Ducruets á sundlaugar-
barmi í ágúst síðastliðnum hefði
haft ofangreindar afleiðingar í fór
með sér.
Fili Houteman fullyrðir að ekki
geti aðrir en Daniel Ducruet verið
faðir bamsins sem hún ber undir
belti.
Leikarinn Vincent Lindon er
sagður hafa bamað þjónustustúlku
að nafni Laurence sem hann kynnt-
ist á eyjunni Antigua í Karíbahafi
er hann var þar í fríi. Er Vincent
frétti af því að stúlkan væri barns-
hafandi á hann að hafa reynt að fá
hana til að láta eyða fóstrinu en hún
svarað að hún vildi heldur vera ein-
stæð móðir. Samkvæmt slúðurblöð-
unum á Laurence von á baminu eft-
ir tæpan mánuð.
Þessi frétt þykir enn verri fyrir
leikkonuna Sandrine Kiberlain en
Karólínu prinsessu því Vincent hef-
ur búið með þeirri fyrrnefndu eftir
að sambandi hans og prinsessunnar
lauk.
Þessi mynd af Mónakófjölskyldunni var tekin eftir aö prinsessurnar Stefan-
ía og Karólína voru báðar orönar einstæöar.
Elizabeth Taylor kvartar ógjarnan þó hún sé sárþjáö.
Elizabeth Taylor
þjáist af gigt
Elizabeth Taylor, sem er orðin 64
ára, er sárþjáð af gigt. Hendur
leikkonunnar eru afmyndaðar og
em fingurnir næstum eins og pylsur
í laginu og hún er með verki í öxlum
og mjöðmum. Haft er eftir Liz að
stundum sé erfitt að komast fram úr
rúminu.
Liz gekkst undir mjaðmarliðsað-
gerðir 1994 og 1995. I hæði skiptin
vöraðu læknar hana við því að hún
gæti búist við þvi að eiga erfitt með
gang vegna liðagigtar. Er jafnvel bú-
ist við því að hún verði bundin hjóla-
stól í framtíðinni.
Þrátt fyrir erfiðleikana kvartar
Liz ógjarnan og hún telur sig í raun
allt of unga til þess að vera með gigt.
Hún hafi alltaf tengt sjúkdóminn við
gamalt fólk.
jólagetraunin 1996
9. hluti
Hvað er í
pakkanum?
Næstsíðasti hluti jólagetraunar
DV birtist í dag og sem fyrr eigið
þið, lesendur góðir, að hressa upp á
getspekigáfurnar og segja okkur
hvað sé í pakkanum, þeim stóra
rauða. Alls verða birtar tíu svona
myndir og þið sendið okkm-
síðan úrlausnimar í einu
lagi þegar allar hafa verið
birtar. Sú síðasta birtist á
morgun. Frestur til þess
að senda inn rennur út
fostudaginn 20. desember.
í pakkanum í dag er api, gíraffi
eða stóll, ykkar er að geta. Munið að
skrá svarið á svarseðilinn, setja
hann í umslag og geyma þar til
allar myndirnar hafa ver-
ið birtar. Þá má
inn til: DV, jólagetraim, Þverholti
11, 105 Reykjavík.
Til mikils er að vinna því
dregið verður um
glæsilega vinninga
að heildarverð-
mæti 305.500 krón-
ur. AUs hljóta 24
heppnir þátttak-
endur verðlaun.
-sv
r---------------------------------------------1
Hvað er í pakkanum?
□ Api □ Gíraffi □ Stóll
! Nafn:_____________________________________ !
Heimilisfang:,
Staður:______________________________ Sími:
| Sendist til: DV, Þverholti 11,105 Reyiqavík, merkt:
| DV - jólagetraun
i___________________________________________________________________________i
Fyrstu verðlaun eru 29" Thomson sjónvarpstæki og Thomson myndbands-
tæki frá Bónus Radló og Radíóbúöinni aö heildarverömæti 155.800 krónur.