Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1996, Síða 32
44
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
Stórbreyting eða
engin breyting
„Við framsóknarmenn höfum
lagt mikla vinnu í að lúslesa
þennan texta og stöndum öll
heilshugar á bak við hann. Hon-
um hefur verið breytt í stórum
dráttum.“
Siv Friðleifsdóttir alþingismað-
ur um frumvarp um samnings-
veð, í DV.
Orðalagsbreyting
„Ég fæ ekki séð í fljótu bragði
að sú orðalagsbreyting sem gerð
hefur verið breyti miklu.“
Kristján Pálsson alþingismaður
um sama frumvarp, í DV.
Potað í heilagar kýr
„Ég kæri að hálfu leyti vegna
þess að ég er stríðinn og mér
þykir gaman að pota í heilagar
kýr. Að hinu leytinu vegna þess
að ég trúi að hægt sé að efla
menningu og listir með betri
hætti en gert er í dag.“
Gunnar Smári Egilsson sem
hefur kært Launasjóð rithöf-
unda til Samkeppnisstofnunar,
í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Engin eðlisbreyting
„Við sjáum enga eðlisbreyt-
ingu í þessum ákvörðunum um
lífeyrissjóð opinberra starfs-
manna og teljum ekki eðlilegt að
allir samningar séu í uppnámi
vegna þessa máls.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, i Degi-Tímanum.
Sprelllifandi
„Mér var boðin lýsing á mitt
eigið leiði þó ég sé sprelllifandi.
það virðist ekki skipta neinu
máli hvort einhver liggur í gröf-
inni eða ekki.“
Sólveig Halblaub, í DV.
Giljagaur er jólasveinn dagsins í
dag.
Þjóðminjasafnið:
Giljagaur
kemur
í heimsókn
Eins og undanfarin ár koma
jólasveinarnir íslensku við í
Þjóðminjasafninu þegar þeir
koma til byggða og í dag er kom-
ið að jólasveini númer tvö,
Giljagaur og kemur hann í Þjóð-
Blessuð veröldin
minjasafnið kl. 14.00 og verður
hann boðinn velkominn af gest-
um. í kvæði Jóhannesar úr Kötl-
um um jólasveinana segir um
Giljagaur:
Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skaust í fjósið inn
Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósmanninn tal
É1 og snjókoma
Vaxandi 997 mb lægð skammt
norður af VestQörðum hreyflst aust-
suðaustur. Fyrir sunnan land er
minnkandi hæðarhryggur sem þok-
ast suður á bóginn.
Veðrið 1 dag
í dag verður suðvestankaldi eða
breytileg átt og víða smáskúrir eða
slydduél. Snýst í vaxandi norðaust-
anátt með snjókomu eða éljum á
norðvestanverðu landinu síðdegis. í
nótt fer einnig að snjóa norðaustan-
lands. Víða frostlaust í dag en kóln-
andi í nótt.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
vestankaldi og skúrir. Norðlægari
síðdegis en norðaustankaldi eða
stinningskaldi í nótt. Hiti 1 til 4 stig
í dag en nálægt frostmarki í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 15.31
Sólarupprás á morgun: 11.15
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.22
Árdegisflóð á morgun: 08.46
Veðriö kl. 6 í morgun:
Akureyri
Akurnes
Bergstaðir
Bolungarvík
Egilsstaöir
Keflavikurflugv.
Kirkjubkl.
Raufarhöfn
Reykjavík
Stórhöfði
Helsinki
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Amsterdam
Barcelona
Chicago
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Los Angeles
Madrid
Malaga
Mallorca
París
Róm
Valencia
New York
Orlando
Nuuk
Vín
Washington
Winnipeg
skýjaö
heiðskírt
alskýjaö
alskýjaö
súld
alskýjaó
slydda
súld á síó. kls.
skýjaö
rigning
léttskýjaö
léttskýjaó
snjókoma
snjóél á síð. kls.
rigning og súld
þokumóóa
alskýjaö
rigning
léttskýjað
snjókoma
súld
súld
rigning
léttskýjaö
þoka
þokumóöa
léttskýjaö
heióskírt
snjókoma
súld
snjókoma
2
-5
2
-2
3
-2
0
2
3
3
2
-4
-1
-2
1
14
2
1
-3
0
3
10
14
15
4
9
16
16
-3
0
-6
Ólafur Þórarinsson tónlistarmaður:
Jólalögin flutt í fjósinu á Laugarbakka
„Platan átti að koma út L fyrra
en úti í Þýskalandi, þar sem hún
var unnin, lenti allt í klúðri og ég
fékk hana ekki í hendumar fyrr
en 21. desember og þá var orðið
allt of seint að fara að kynna hana
og seldi ég aðeins nokkur eintök,
aðallega til vina og kunningja. Og
þar sem platan inniheldur jólaboð-
skap þýddi það að ég varð að
geyma mér fram að jólunum í ár
að koma henni á markaðinn," seg-
ir hinn kunni tónlistarmaður,
Ólafur Þórarinsson (Labbi), um
tilurö jólaplötu sinnar, Jólabaðið,
sem er ári á eftir áætlun.
Maður dagsins
Ólafur segir að á plötunni séu
ný lög: „Það var lengi búið að velt-
ast í mér að gera plötu tengda jól-
unum. Lögin eru eftir mig og
Bjöm bróður, en hann var með
mér í Mánum héma I eina tið.
Textamir eru aftur á móti sniðnir
að jólunum. Ég samdi þá að vísu
ekki en lagði grunninn að því um
hvað þeir væru og fékk meðal ann-
ars Jónas Friðrik til samstarfs. Ég
fer yfir víðara svið en gengur og
gerist í jólatextum. Það má ekki
gleyma því í öllum gleðihugleið-
Ólafur Þórarinsson.
ingunum að það érú sumir sem
eiga bágt og er í textunum bæði
íjallaö um menn sem eiga bágt og
málleysingja. Má benda á lagið
Rjúpuna þar sem ekki er beint
verið að agnúast út í veiðimenn-
ina en bent á hver hvötin á bak
við veiðiferðina er.“
Ólafur mun núna um helgina
standa fyrir nýstárlegri kynningu
á plötunni: „Þar sem ég er sveita-
maður og bý í sveit fannst mér við
hæfi að fara til kunningja míns
sem býr á Laugarbökkum undir
Ingólfsfjalli. Þar er hann með
„ferðamannafjós" og getur þar
boðið upp á veitingar. Ég ætla aö
kynna Jólabað á sunnudaginn kl.
15.00 og flytja lög af plötunni með
aðstoð tónlistarmanna sem koma
við sögu á henni. í leiðinni verður
matar- og ostakynning frá Höfn á
Selfossi. Þá munu jólasveinar úr
Ingólfsfjalli koma í heimsókn.
Aðalstarf Ólafs í dag er tónlistin
en stutt er síðan hann hætti bú-
skap á Glóru þar sem hann býr:
„Ég er með hljómsveitina Karma
og við spilum mikið. I henni er
meðal annarra dóttir mín, Guð-
laug, sem syngur. Ég er búinn að
koma mér upp fullkomnu upptöku-
stúdíói á Glóru og það er meðal
annars á dagskrá hjá mér að gera
sólóplötu og má segja að jólaplatan
hafi verið upphitun fyrir það.“
Ólafur sagði að fyrir utan mús-
íkina snerist áhugi hans einkum
að því koma í notkun miklum hús-
byggingum sem standa ónotaðar á
Glóru: „Ég er að vinna við að
koma þeim í nýtingu sem
geymslu- og iðnaðarhúsnæði. Þá
hef ég tekið upp á þvi að hlaupa út
um allar sveitir til að hafa heils-
una i lagi, trimma þetta 30-60 kíló-
metra á viku.“ -HK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1686:
Myndgátan hér aö ofan lýsir athöfn.
I>V
Amma segir frá jólunum.
Jólin hennar
ömmu
Furðuleikhúsið sýnir í dag og
á morgun í Möguleikhúsinu við
Hlemm jólaleikritið Jólin henn-
ar ömmu. í leikritinu segir Sig-
ríður amma frá því þegar hún
var ung stúlka og Grýla tók Ólaf,
besta vin hennar, og ætlaði að
éta hann. Sigríður þarf að hraða
sér upp í fjöll til að reyna að
bjarga honum. Á leiðinni hittir
hún Stekkjarstaur sem er á leið
til byggða til að hrella bóndans
fé. Stekkjarstaur bjargar Sigríði
og fær að launum rauða skott-
húfu en í gamla daga voru jól-
sveinarnir öðruvísi klæddir en
þeir eru í dag. Sigríðir fræðir
Stekkjarstaur um Jesú og af
hverju við höldum jólin og í
sameiningu reyna þau að fá
Grýlu ofan af því að éta bömin á
jólunum.
Leikhús
Höfundur leikritsins er Mar-
grét Kr. Pétursdóttir og leikur
hún eitt hlutverkið í sýningunni
en auk hennar leika Eggert
Kaaber og Ólöf Sverrisdóttir.
Tónlistin er eftir Valgeir Skag-
fjörð og leikstjóri er Gunnar
Gunnsteinsson.
Bridge
Bandaríkjamaðurinn David
Berkowitz þurfti að hafa mikið fyr-
ir því að vinna 4 spaða á hendur NS
í þessu spili í tvímenningskeppni á
dögunum, eftir laufaútspil hjá and-
stöðunni. Allflestir spiluðu 4 spaða í
suður og fengu hjartadrottningu út í
upphafi. Sú vöm auðveldar mjög
sóknina fyrir sagnhafa. Hann getur
þá búið sér til tíunda slaginn á
hjarta:
* 2
DG104
DG43
4 9876
4 KDG7
«4 ÁK87
•f 1075
* DG
* 10965
* 65
■f 86
4 Á10543
« Á843
V 932
f ÁK92
* K2
Austur drap útspilið á ás og
skipti yfir í tíguláttuna. Vestur fékk
að eiga þann slag á drottninguna og
kaus að spila sig út á laufi.
Berkowitz fékk þann slag heima á
kónginn og síðan spilaði hann
tveimur hæstu í trompi. Þegar ljóst
var að trompin lágu illa spilaði
hann hjarta á tíu vesturs. Vestur
spilaði lágu hjarta sem Berkowitz
drap á kónginn í blindum og renndi
síðan niður trompunum. Áður en
síðasta trompinu var spilað var
staðan þessi:
« —
* D10
f D43
4 —
f G
* Á8
f 107
4 —
4 10
«4 —
f 8
4 1054
4 8
3
f ÁK9
4 —
Síðasta trompið þvingaði vestur í
rauðu litunum og Berkowitz náði að
tryggja sér meðalskorið.
ísak Örn Sigurðsson